28.03.1968
Neðri deild: 84. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1739 í B-deild Alþingistíðinda. (1612)

164. mál, byggingarsjóður aldraðs fólks

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Í umr. s. l. þriðjudag um þetta mál kom ýmislegt fram, sem benti til þess, að ekki væri ástæðulaust að athuga öll þessi mál og gera framtíðaráætlun um byggingar yfir aldrað fólk, ekki einungis hér í Reykjavík, heldur einnig, hvernig á að leysa þetta vandamál í framtíðinni úti á landsbyggðinni. Hv. 10. þm. Reykv. (PS) ræddi um það með allmiklu yfirlæti, hvernig sjómannasamtökin ætluðu að vinna að þessum málum í næstu framtíð, og ekki gat neinn, sem á hlýddi, verið í minnsta vafa um það, hver um stjórnvölinn héldi nú í þeim samtökum og mótaði stefnuna. Enginn má skilja orð mín svo, að ég geri lítið úr því, sem sjómannasamtökin hafa gert á þessu sviði. En hitt er þá líka hollt að hafa í huga, að löggjafinn hefur stutt þessi samtök alveg á sérstakan hátt með því að leyfa þeim að reka happdrætti um langt árabil, sem þjóðin öll hefur stutt með miklum myndarskap öll þessi ár. Og í þessu sambandi skulum við ekki gleyma því, að öllum tekjum af þessu happdrætti hefur verið varið til byggingar hér í Reykjavík að undanskildum þessum sjóði, sem hér er verið að ræða um og er nú ekki orðinn nema 7 millj. kr. Manni skilst, að þetta séu þriggja eða fjögurra ára tekjur sjóðsins, sem hér er um að ræða, og samt mætti ætla, ef dæma mætti af ræðum sumra hv. alþm., sem til máls tóku í þessu máli s. l. þriðjudag, að með þessum fjármunum væri hægt að leysa mikið af þeim vandamálum, sem leysa þarf á þessu sviði. Minnir þetta ekki of mikið á kvæðið um 5-eyringinn, hvað barnið ætlaði að kaupa fyrir hann, ef það fengi einn 5-eyring á milli handanna, og þó eftir öll kaupin ætlaði það að gefa pabba sínum allan afganginn?

Það er ekki mikið, þó að á ári kæmu inn um rúmar 2 millj., og það er ekki hægt að gera nein býsn fyrir það, eins og verðgildi peninga okkar er háttað á 9. ári viðreisnarinnar. Og þó að hið upphaflega markmið sjóðsins verði að engu gert, eins og flm. þessa frv. leggja til, þrátt fyrir mjög lofsamleg ummæli þeirra um upphaflegan tilgang hans í grg., sem frv. fylgir, leysir það mjög lítinn hluta þess vandamáls, sem hér um ræðir, því að verði vandamál þess aldraða fólks, sem hefur heilsu og þrek til að sjá um sig sjálft að mestu eða öllu leyti ekki leyst með einhverjum hætti, annaðhvort með því að lána því sjálfu fé til íbúðabygginga eða leigja því íbúð, þarf þetta fólk að fá pláss á elliheimilum, og ég er ekki farinn að sjá, að það verði ódýrari lausn fyrir þjóðfélagið, enda þyrftu elliheimilin að vera stærri, sem því nemur, þó að sé svo ekki litið á það, að meðan gamla fólkið getur hugsað um sig sjálft, mun það ekki óska eftir því að vera á elliheimilum, og lausn á þessum vanda á að miða við það að reyna að koma til móts við óskir og þarfir gamla fólksins, eins og ástæður frekast leyfa. Þessi sjóður er langt frá því að valda því hlutverki, sem honum var ætlað í fyrstu, hvað þá að hann sé megnugur að gera meira. Hv. 10. þm. Reykv. ræddi um það, hverjar hans hugmyndir væru á þessu sviði, og þær eru auðvitað góðra gjalda verðar, en ég vil þó benda honum á, að það er ekki það, sem hér er verið að ræða um, ekki hans góða ásetning í þessum efnum, heldur hitt, hvaða fyrirmæli eigi að gilda af hendi löggjafans að þessu leyti. Og ég held nú, að það geti orðið þyngri á metaskálunum fyrirmæli laganna en ásetningur hv. þm., þótt göfugmannlegur sé, þegar til kastanna kemur.

Það er eitt, sem við skulum hafa einnig í huga, þegar við ræðum þetta mál, að skilyrðið, sem sett var fyrir framlengingu happdrættisins árið 1963, var, að 40% af hagnaði happdrættisins gengju í sérstakan sjóð, sem átti að verja fé úr í þessu sérstaka augnamiði, þ. e. a. s. til íbúðabygginga fyrir aldrað fólk. Það var það eina skilyrði, sem sett var. Nú 5 árum síðar er svo farið fram á það, að þetta eina skilyrði sé strikað út og eftir að það yrði gert, gæti allt féð farið t. d. til þess að byggja við Dvalarheimili aldraðra sjómanna. A. m. k. væri það frambærilegt samkv. l. eftir að þetta frv. er samþ., verði það gert, eins og flm. leggja til, að gert verði. Ég verð nú að segja það, að ég kann ekki að öllu leyti við þetta og ekki sízt vegna þess, að 1. flm. þessa frv. virðist gera það í nafni sjómannasamtakanna, ef dæma má af málflutningi hans. Og eins og áður segir, leysir þetta frv. hv. flm. engin vandamál, ekkert af þeim vanda, sem fyrir hendi er. Hitt væri svo annað mál og vænlegra til árangurs að grípa þá hugmynd á lofti, sem hv. 10. þm. Reykv. var hér með á þriðjudaginn, að nota þau 60% af happdrættinu, sem nú ganga til byggingar dvalarheimilisins, til að byggja dvalarheimili annars staðar að einhverju eða öllu leyti um eitthvert árabil. En til þess duga ekki viljayfirlýsingar eins manns, heldur þyrfti að breyta l. um happdrættið og e. t. v. um leið að auka tekjur þess á einhvern hátt, og að því er ég fús til að vinna með hv. þm. eða hverjum öðrum, sem í alvöru vill vinna að þessum aðkallandi vandamálum. Ég vil alls ekki veikja neinn þátt þessara mála, og þess vegna kem ég með þær brtt., sem liggja hér á þskj. 418 og 448.

Ef íbúðamálunum verður alveg varpað fyrir róða, eins og flm. leggja til með þessu frv., mundi það auka mjög eftirspurn eftir plássi á dvalarheimilum. Gerir það þetta mál auðveldara til úrlausnar? Og ef þessum málum er ekki sinnt úti á landsbyggðinni, eykur það eftirspurn eftir plássi hér í Reykjavík fyrir aldrað fólk, fyrir utan það, að mjög fátt af því fólki, sem á annað borð hefur alið allan aldur sinn úti á landi, kærir sig um að flytja til Reykjavíkur og fara þar á elliheimili, en fái það ekki annars staðar pláss, á það í mörgum tilfellum ekki annars úrkosta. Þess vegna voru lög um íbúðarbyggingar fyrir aldrað fólk spor í rétta átt, spor, sem alger óþarfi er að stíga aftur á bak, og þess vegna legg ég þessar brtt. hér fram. Og í tilefni af því, sem hv. 9. landsk. þm. sagði hér síðasta þriðjudag, að það hefði sýnt sig, að eftirspurn eftir íbúðum fyrir aldrað fólk væri alls engin, vil ég nú bara benda hv. þm. á það, að lítil reynsla er fengin í því efni, þar sem þessi sjóður er alls ekki einu sinni tekinn enn til starfa. Og ég held, að allir, sem eitthvað hugsa um þessi mál á annað borð, hljóti að sjá, að þörfin er þarna mjög brýn og hraðvaxandi, þar sem það er alltaf mjög ört stækkandi hópur einmitt af þessu aldraða fólki. Hv. 10. þm. Reykv. viðurkenndi, að það væri mikil þörf fyrir svona íbúðir, hann gerði það, og ég vil, að það komi hér fram. En nú vil ég spyrja: Er nú afstaða hv. flm. til þeirra till., sem ég flyt hér við frv. þeirra, í fullu samræmi við það, sem stendur hér í grg. og ég vil lesa hér kafla úr, með leyfi forseta:

„Með l. um Byggingarsjóð aldraðs fólks var stefnt að því að koma á fót sjóði, sem lánað gæti til byggingar hentugra íbúða fyrir aldrað fólk. Var m. a. haft í huga, að með byggingu slíkra íbúða yrði gamla fólkið síður slitið úr tengslum við það umhverfi, sem það hefði lifað og starfað í meiri hluta starfsævi sinnar.“

Ég get ekki betur séð en till. mínar nái þessum tilgangi frekar en frv. óbreytt. Og það er eftirtektarvert, að þó að hv. flm. lýsi í grg., að hverju eigi að stefna í þessum efnum, þ. e. a. s. að halda svo á þessum málum, að gamla fólkið þurfi ekki að slíta sig frá átthögum sínum og framkvæmdum eigi að haga með tilliti til þess, leggjast þeir mjög gegn því, að einmitt þannig sé mörkuð stefnan af hendi löggjafans. Ég tel, að full ástæða sé til, að hv. Alþ. taki öll þessi mál til endurskoðunar, m. a. lög um happdrætti DAS, og að gerð sé einhver áætlun um framkvæmdir eitthvert tímabil fram í tímann, t. d. 5 ára tímabil, og þá hvernig skuli afla fjár til framkvæmda að öðru leyti en því, sem tekjur af þessu happdrætti mundu hrökkva til. Byggingarsjóður aldraðs fólks er þess ekki umkominn að gera stóra hluti, nema þá að tekjur hans séu auknar með einhverjum hætti, og ef hv. alþm. geta bent á leiðir til þess, mun ég vera fús til þess að styðja það mál einnig.