28.03.1968
Neðri deild: 84. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1751 í B-deild Alþingistíðinda. (1615)
164. mál, byggingarsjóður aldraðs fólks
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Þegar frv. þetta var hér til 1. umr., hlaut það mjög góðar viðtökur. Ég mælti hér með samþykkt þessa frv. fyrir hönd okkar Alþb.-manna og fulltrúi Framsfl., sem hér talaði, mælti einnig eindregið með samþykkt frv., en flm. að frv. voru einn maður úr Sjálfstfl. og annar úr Alþfl., svo að það leit nú eiginlega mjög vel út fyrir þessu frv. hér í upphafi málsins. En nú hafa spunnizt hér allmiklar og að mínum dómi mjög einkennilegar umr. um málið, og hafa menn þá blandað inn í þetta í rauninni furðulegustu efnum miðað við, það, hvað hér er raunverulega um að ræða. Það, sem liggur fyrir, er þetta, að um alllangan tíma hefur verið starfandi happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna. Tekjur af þessu happdrætti hafa runnið til byggingarstarfsemi hér í Reykjavík til þess að koma hér upp allmiklu elliheimili eða dvalarheimili, og þó að þar sé um að ræða dvalarheimili fyrir aldraða sjómenn, vitum við, að það er í framkvæmd, enda viðurkennt af öllum sem almennt dvalarheimili, þar sem ekki er hægt að draga neina skýra línu þar á milli, hvort sá aldraði er beinlínis gamall sjómaður eða um annað aldrað fólk er að ræða. Nú fyrir nokkrum árum gerist svo það, að það þykir ástæða til þess að ákveða að taka 40% af árlegum tekjum þessa happdrættis og mynda með þeim sérstakan sjóð, Byggingarsjóð aldraðs fólks, og var þá ætlunin að nota þetta fé til þess að koma upp sérbyggðum íbúðum fyrir aldrað fólk. Það er enginn vafi á því, að þegar þetta var lagt til, litu menn nokkuð misjöfnum augum á það, hversu þetta yrði auðvelt í framkvæmd, og kom það hér þegar fram þá á Alþ., þegar þetta var samþ. Reynslan hefur síðan sýnt það, að þetta er svo erfitt í framkvæmd, að það hefur ekkert verið notað enn þá af þessum 40%, sem leggjast í sjóðinn, og að dómi þeirra, sem bezt þekkja til, er talið, að helzt geti verið um það að ræða, að tveir staðir á landinu, og þó vafasamt um annan þeirra, geti notfært sér þessi lagaákvæði, þ. e. a. s. Reykjavíkurborg og jafnvel Akureyrarbær. En það er nokkurn veginn augljóst mál, að aðrir staðir á landinu hafa ekki tök á því og munu ekki treysta sér í sambandi við það að leysa þessi vandamál gamla fólksins, munu ekki treysta sér til þess að fara út í byggingu sérbyggðra íbúða fyrir gamalt fólk. Og auðvitað vita allir, að gamla fólkið sjálft fer ekki að ráðast í byggingar, jafnvel þó að um nokkurn stuðning væri að ræða, úr því að það er komið á gamalsaldur.
Það liggur líka fyrir upplýst, að eini aðilinn, sem hefur sótt um lán úr þessum sjóði, Byggingarsjóði aldraðs fólks, þessum 40% af happdrættisfénu, er Reykjavíkurborg. Hitt hefur líka legið fyrir í langan tíma, að margir aðilar úti um land, sem eru að berjast í því að koma upp elliheimilum eða dvalarheimilum eða leysa vandamál gamla fólksins, eru í vandræðum með það að fá stofnfé til þessara framkvæmda, því að samkv. lögum ber ríkinu ekki að leggja fram neinn hluta af stofnkostnaði elliheimilis eða dvalarheimilis og sjóðir, sem lána fram stofnfé í þessu skyni, eru ekki fyrir hendi. Það hefur verið bent á það hér, að happdrætti DAS hefði út af fyrir sig heimild til þess að lána eitthvað af þessum 60%, sem eftir eru hjá happdrættinu, til elliheimilis- eða dvalarheimilisframkvæmda, hvar sem er á landinu. En það er vitað mál, að þeir, sem stjórna þessu happdrætti, telja sig vera skuldbundna framkvæmdunum hér í Reykjavík, sem eru enn á því stigi, að þar er mikið eftir ógert. Og þeir hafa bent á það, að um 70% af tekjum happdrættisins komi héðan af Reykjavíkursvæðinu, þar sem þeir standa í framkvæmdum og höfðu áður gert till. um það, að þeir fengju um 70% af þessu fé til þess að halda áfram verkefni sínu. En Alþ. hafði nú ákveðið, að þeir skyldu aðeins halda 60%, en 40% skyldu leggjast í þennan sérstaka sjóð. Framkvæmdin hefur síðan orðið sú, að þessi 60%, sem eru minna en fellur til sjóðsins héðan af Reykjavíkursvæðinu gegnum happdrættistekjurnar og minna en forustumenn þessara samtaka töldu, að þeir þyrftu að hafa, reynslan hefur svo orðið sú, að allt þetta fé gengur áfram til framkvæmdanna við Hrafnistu. En þörfin hefur eftir sem áður verið jafnmikil úti um landið og margir aðilar þar hafa verið að sækja um lán til happdrættisins í sambandi við framkvæmdir úti á landi. Þeir hafa ekki getað fengið þar neina fyrirgreiðslu. En svo koma fram till. hér á Alþ. um það að losa nokkuð um það fé, sem komið er af þessum 40% happdrættisins og eru í Byggingarsjóði aldraðs fólks og ekki er notað af þessum ástæðum, sem ég hef m. a. rakið og heimila, að jafnhliða því að nota það fé til sérbyggingar fyrir gamalt fólk, eins og l. gerðu ráð fyrir, þá megi einnig lána af því til framkvæmda í sambandi við byggingu dvalarheimila eða elliheimila.
Og þeir, sem standa að því að flytja þetta frv., gefa hér alveg hiklaust yfirlýsingu um það, að það sé þeirra ætlan, að þessu fé verði alveg sérstaklega varið til þeirra fjölmörgu staða utan Reykjavíkursvæðisins, sem nú njóta einskis af þessu fé, sem aflað er með happdrættinu, og þeir muni fyrir sitt leyti leggja það til, að þetta fé fari — að svo miklu leyti, sem það verði lánað í þessu skyni — einmitt til staða utan Reykjavíkursvæðisins, en samtökin, sem standa hér að byggingu Hrafnistu, mundu ekki fara fram á neinn hluta af þessu til sinna framkvæmda. Þá gerast þeir einkennilegu hlutir að mínum dómi, að hér koma fram í umr. tveir fulltrúar dreifbýlisins, — sem ég efast ekkert um að eru, — tveir fulltrúar Framsfl. og eru alveg á móti þessu, Þeir vilja í fyrsta lagi halda sér mjög við þá hugmynd, að þessum 40% af happdrættisfénu, sem renna í þennan byggingarsjóð aldraðs fólks, eigi að verja til sérbygginga yfir gamalt fólk, af því að það sé miklu betra, þó að reynslan sýni það, að þetta sé ekki framkvæmanlegt, nema þá ef það reynist vera framkvæmanlegt hér í Reykjavík.
Ég hlýt að lýsa undrun minni yfir þessari afstöðu, og ég trúi því varla, að afstaða þessara þm. sé sú, sem raun ber vitni um, nema vegna misskilnings þeirra á því, hvað hér er um að ræða. Það er út af fyrir sig ósköp fallegt og gott að tala um það, að uppi séu tvær stefnur í þessum málum varðandi lausn vandamála gamla fólksins, annars vegar elliheimilisstefnan og hins vegar einkaíbúðastefnan. Segja má það eflaust, að það sé hægt að framkvæma allmikið í þessum efnum eftir þessum tveimur mismunandi stefnum, en það er enginn vafi á því, að það liggur fyrir um einkabyggingar yfir gamla fólkið, að það er mjög torvelt að standa að slíkum framkvæmdum og þær munu reynast miklum mun dýrari en sambyggingarnar og þær koma ekki að fullu gagni nema í vissum tilfellum, því að auðvitað er mjög oft um það að ræða í sambandi við gamla fólkið, að það þarf að meira eða minna leyti á sjúkrahjálp að halda eða slíkri umönnun, sem aðeins er hægt að veita því, þar sem auðvelt er að ná til læknis, sem gæti að heimilinu svo að segja frá degi til dags eða þar sem er auðveldlega hægt að hlaupa í skarðið með það að rétta gamla fólkinu hjálparhönd eftir því, hvernig á stendur fyrir því, heilsufarslega séð.
Ég segi það nákvæmlega eins og ég sagði hér í upphafi þessa máls, að ég tel, að með þessu frv. sé verið að stíga spor í rétta átt, það sé verið að rétta þeim höndina með nokkra lánsmöguleika, sem litla möguleika hafa haft. Það er ekki verið að taka alveg fyrir hugmyndina um það að fara þessa einkaíbúðastefnuleið, sem hér hefur verið kölluð. Það er leyfilegt að veita fé úr þessum sjóði til slíkra framkvæmda. Ég fyrir mitt leyti er á þeirri skoðun miðað við þessi vandamál, eins og þau liggja fyrir, að það væri miklum mun réttara að nota öll þessi 40% — þau eru ekki meira en svo — til lána til þeirra aðila, sem nú standa í framkvæmdum með byggingu dvalarheimila utan Reykjavíkursvæðisins — en það er mjög réttmætt, að það svæði fái einmitt þennan hluta af þessu fé, sem hér er um að ræða — heldur en að taka verulegan hluta af þessu og knýja það fram, að hann skuli fara í einkaíbúðabyggingar, t. d. hér í Reykjavík, til viðbótar við framkvæmdir Hrafnistu. Ég get ekki séð betur en að önnur till., sem hv. 5. þm. Norðurl. e., Stefán Valgeirsson, flytur hér, stefni alveg örugglega í þá átt að takmarka það, hvað af þessu fé megi lána til elliheimilaframkvæmda utan Reykjavíkursvæðisins, við það, hvað eftir verður af þessum 40%, þegar t. d. Reykjavíkurborg er búin að fá allt það til einkabygginga, sem hún sækir um.
Hin till., sem hv. 5. þm. Norðurl. e. flytur, er á þskj. 448. Þar vill hann taka það fram, að 3/4 hluta af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins samkv. lögum megi einungis lána til aðila utan Reykjavíkursvæðisins. Út af fyrir sig lítur þetta ekki illa út, en ég fyrir mitt leyti er á móti þessari till. líka, vegna þess að mér sýnist, að með henni sé verið eins og að slá því föstu, að það sé þetta hlutfall af þessu fé, sem hér er um að ræða, sem megi fara til svæðanna utan Reykjavíkur og ekki meira. En ef heimildin verður á þennan almenna hátt og ég tala nú ekki um, ef þeir menn, sem mestu ráða um framkvæmdir málsins, eru sama sinnis eins og hv. 10. þm. Reykv., sem er einn af forustumönnum í þessum efnum, og telja, að það sé einmitt réttmætt að nota meginhlutann af þessu fé til framkvæmda utan Reykjavíkursvæðisins, þá sé ég ekki annað en þessi till., sem hv. 5. þm. Norðurl. e. flytur, sé til bölvunar fyrir þá aðila í þessum efnum, sem ég ber þarna einkum fyrir brjósti, og ég tel, að hafi farið verst út úr þessu, því að það er ekkert um það að villast, að af þessu fé, sem aflað hefur verið í þessu skyni með happdrættisframkvæmdunum, hafa um 30% komið frá svæðum utan Reykjavíkursvæðisins. En hins vegar hefur ekkert af þessu fé gengið þangað til framkvæmda. Framkvæmdirnar hafa verið hér. En með þessu frv. er einmitt verið að gera það mögulegt, að hægt sé á þann hátt, sem er í samræmi við þær framkvæmdir, sem fram fara utan Reykjavíkursvæðisins, að veita þangað nokkur lán af þessu fé.
Ég held, að ef sú skoðun væri hér almennt ríkjandi, að menn ættu að halda sér við þá hugmynd að byggja hér yfir gamla fólkið nálega einvörðungu eftir þessari einkaíbúðastefnuleið, sem hér hefur verið kölluð, yrði það svo, að framkvæmdunum miðaði ákaflega hægt áfram og þær yrðu þá varla neinar nema þá hér í aðalþéttbýlinu, einkum hér á höfuðborgarsvæðinu. Ég er því í rauninni alveg undrandi yfir þeim umr., sem hér hafa farið fram um þetta, og mér sýnist, að þær bendi ekki til þess, að þeir aðilar, sem hafa hér staðið og lýst yfir andúð sinni á frv., eins og hér hefur komið fram eða flutt hér brtt. við það, að þeir tali hér raunverulega fyrir þá aðila, sem ég hélt, að þeir ætluðu sér að tala fyrir, en það eru þeir aðilar, sem búa einmitt utan Reykjavíkursvæðisins.
Ég skal svo ekki orðlengja um þetta frekar, en mín afstaða til þessa frv. er óbreytt. Ég vil samþykkja þetta frv. Ég tel það spor í rétta átt. Ég geri mér fyllilega grein fyrir því, að hér er ekki um mikið fjármagn að ræða, en það gæti þó orðið í vissum tilfellum þannig, að það sköpuðust möguleikar til þess að fá úr þessum sjóði allt að 20% af heildarframkvæmdakostnaðinum. Ég benti á það hér við 1. umr. málsins, að það þyrfti að gera hér enn þá stærra átak en gert er í þessu frv. til þess að rétta þeim hjálparhönd, sem standa í þessum framkvæmdum, sérstaklega úti um land. En ég met það, sem hér er gert, og fagna því og því vil ég samþykkja frv. óbreytt og mun greiða atkv. á móti þeim brtt., sem fram eru komnar í málinu.