28.03.1968
Neðri deild: 84. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1754 í B-deild Alþingistíðinda. (1616)

164. mál, byggingarsjóður aldraðs fólks

Halldór E. Sigurðsson:

Herra forseti. Því er stundum haldið fram, að það sé svo með hv. alþm., að þeir eigi lítið af sjálfstæðum skoðunum, heldur sé það flokkslínan, sem þeir fylgi. Ég hef aldrei verið hrifinn af þessari skoðun og er líka ljóst, að hún er byggð á algerri vanþekkingu. Þetta mál er greinilega sönnun þess, að svo er ekki, að flokkslínunni sé fylgt, því að deilt er um frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 376, um byggingarsjóð fyrir aldrað fólk og eru það m. a. samherjar mínir, sem hafa aðra skoðun en flm. þessa frv., en ég hef lýst hér stuðningi mínum við frv.

Ég vil geta þess í sambandi við þetta mál, að þessi skoðun, sem hér er hreyft með frv. á þskj. 376 er ekkert ný hér á Alþ. Upphaflega þál. frá 1958 gerði ráð fyrir því, og þegar frv. um Byggingarsjóð aldraðs fólks var hér til meðferðar á Alþ. 1963, lýsti ég þeirri skoðun, að frv. væri allt of takmarkað. Það, sem vantaði í frv., væri möguleikarnir til þess að styðja að byggingu dvalarheimila. Og ég spurði hæstv. þáv. félmrh., Emil Jónsson, sérstaklega um það, hvort hægt væri að skilja frv., eins og það þá var, á þann veg, að dvalarheimilin gætu notið fjárhagsstuðnings af frv., sem þá var til meðferðar á hv. Alþ. Og ég lýsti því mjög ákveðið, að þarna fyndist mér skorta á, að þetta væri nógu skýrt, og þess vegna fagna ég breytingunni á lögunum með flutningi frv. á þskj. 376.

Ég vil benda á það, að Alþ. hefur áður lýst þeirri stefnu sinni, að það vildi styðja dvalarheimili, því að þann 18. apríl 1967 var afgreidd frá hv. Alþ. þáltill. um dvalarheimili fyrir aldrað fólk, sem er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta athuga á hvern hátt hagfelldast væri að koma á samstarfi milli sveitarfélaga, sýslufélaga og ríkis um skipulega uppbyggingu á dvalarheimilum fyrir aldrað fólk víðs vegar um landið.

Í því sambandi skal m. a. haft í huga, að komið verði upp íbúðarhúsum fyrir aldrað fólk, t. d. hjón, sem ættu þess kost að fá húsnæði leigt.“

Það hefur verið stefna Alþ., að þessar leiðir skyldu báðar farnar, og á síðari árum hefur einmitt hneigzt meira að því að veita meiri stuðning við dvalarheimilin en lög um Byggingarsjóð aldraðs fólks gerðu ráð fyrir. 1. flm. að þessari þáltill. í fyrra var hv. 2. þm. Sunnl., Ágúst Þorvaldsson, og fjvn. Alþ. stóð öll að málinu og Alþ. afgreiddi það samhljóða. Þess vegna er hér ekki um nýja stefnu að ræða, sem er að kollvarpa þeirri eldri. Hins vegar er verið að færa út þau lög, sem til eru um þetta, meðan verið er að skoða málið í heild, til þess að hægt sé að nota þá fjármuni, sem fyrir hendi eru og verða, til að hrinda í framkvæmd byggingum fyrir aldrað fólk á þann hátt, sem það helzt kýs. Það, sem hér er verið að gera, er það, að verið er að opna leiðina fyrir fjárhagslegan stuðning við dvalarheimili með þessum lögum, en ekki verið að hafna þeirri leið, sem í lögunum felst nú, ef áhugi og möguleikar eru til að framkvæma þá leið. En eins og kom fram hjá fyrri flm. frv., opnar þessi lagabreyting möguleikana til þess að styðja að dvalarheimilum fyrir aldrað fólk, sem mjög er þörf á.

Ég átta mig ekki alveg á þeirri andstöðu, sem fram hefur komið við þetta frv., en undirstrika það, að hér er ekki um nýja stefnu að ræða, heldur útfærslu á stefnu, sem mörkuð var með þál. 1958 og í fyrra, og nefnd er nú að vinna að heildarmálinu og getur unnið áfram, þótt þetta frv. verði samþ., sem ég vonast til. Það er aðeins verið að greiða fyrir því, að á meðan heildarskipun málsins er ekki komin í framkvæmd, sé hægt að nota þessa fjármuni til þess að koma upp þeim byggingum fyrir aldrað fólk, sem mestur möguleiki er til að koma upp nú. Og ég undirstrika það, að í hinum smærri kauptúnum og stöðum úti um landið er hvorki áhugi né möguleiki til þess að koma upp dvalarheimilum fyrir aldrað fólk nema í því formi, sem þetta frv. gerir ráð fyrir. Því endurtek ég yfirlýsingu um stuðning minn við málið óbreytt og treysti því, að hv. þm. ljái þessu máli lið og sjái svo um, að það nái fram að ganga nú.