28.03.1968
Neðri deild: 84. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1762 í B-deild Alþingistíðinda. (1619)

164. mál, byggingarsjóður aldraðs fólks

Ingvar Gíslason:

Herra forseti. Það voru einhver orð, sem féllu í ræðu minni, sem virtust stinga hv. 10. þm. Reykv., líklega vegna þeirrar stofnunar, sem hann ber einkum fyrir brjósti. Ég mun hafa tekið nokkuð hvasst til orða, sagt sem svo, að það hafi risið upp heldur óhugnanlegar stofnanir hér í landinu í sambandi við elliheimili, og það, sem ég á við í þessu sambandi, er vitanlega það, hvað þessi elliheimili eru stór. Það eru takmörk fyrir því, hvað rétt er að byggja elliheimili stór, og sú stefna hefur verið allt of mikið ráðandi hér hjá okkur að byggja allt of stór dvalarheimili fyrir aldrað fólk. Það er það, sem ég kalla óhugnanlegt frá mannlegu sjónarmiði, hvað sem það kann að vera frá fjárhagslegu sjónarmiði. (Gripið fram í: Hvað eiga þau að vera stór?) Hv. þm. spyr, hvað sé rétt að hafa þessi elliheimili stór. Ég skal fúslega játa, að því er ég ekki maður til að svara. En hins vegar langar mig til þess, úr því að hann beinir þessari fsp. til mín, að lesa hér úr því nál., sem ég hef áður minnzt á, örstutta setningu. Þar segir m. a., með leyfi hæstv. forseta: „Í viðtölum við vistmenn og starfsfólk á þeim dvalarheimilum, sem n. hefur heimsótt, og með hliðsjón af ýmsum öðrum upplýsingum, telur n. æskilegast, að vistheimilin séu ekki öllu stærri en 15–20 manna.“ Ég veit ekki, hvort þetta er nægilegt svar fyrir hv. þm., en þetta er álit sérfróðra manna, sem um þetta fjölluðu fyrir nokkrum árum og lögðu till. sínar fyrir ráðh. og Alþ.