07.12.1967
Neðri deild: 35. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1809 í B-deild Alþingistíðinda. (1764)
56. mál, sveitarstjórnarlög
Flm. (Friðjón Þórðarson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér er um að ræða, fjallar um smábreytingu á sveitarstjórnarlögum nr. 58 frá 1961. Það var flutt á síðasta Alþ. af Jóni Ísberg sýslumanni, sem nú er formaður Sýslumannafélagsins. Það var ekki útrætt þá, en er nú endurflutt í samráði við hann. Svo sem kunnugt er má kalla, að einu tekjur sýslusjóða séu sýslusjóðsgjöldin. Um þau segir svo í 101. gr. sveitarstjórnarlaga:
„Sýslunefnd skal á aðalfundi semja áætlun um tekjur og gjöld sýslusjóðs fyrir yfirstandandi ár. Því, sem á vantar, að tekjur sýslusjóðs hrökkvi fyrir útgjöldum hans, skal jafnað niður á hreppana, að þriðjungi eftir samanlögðu skattmati fasteigna, að þriðjungi eftir tölu verkfærra karlmanna og að þriðjungi eftir samanlagðri fjárhæð skuldlausrar eignar og nettótekna samkv. skattskrá, allt í hverjum hreppi fyrir sig.“
Eins og segir í grg., var það skylda hreppstjóra samkv. eldri lagaákvæðum að semja skrár yfir verkfæra menn árlega og senda þær sýslumanni. Var síðan þriðjungi sýslusjóðsgjaldsins jafnað niður eftir þeim skrám samkv. framansögðu. Ákvæði um, hver semja skuli slíkar skrár, eru ekki lengur í l. Þó er þetta verk sennilega víðast hvar unnið af hreppstjórum samkv. gömlum ákvæðum. Þetta verður að vísu ekki talið mikið starf, en þó full ástæða til að leggja það niður, ef ná má sama árangri eftir öðrum leiðum. Flestum mun þykja skriffinnskan nóg, þó að úr henni dragi, þar sem hún er ónauðsynleg. Nú er þjóðskráin orðin öruggt og hentugt heimildarrit um fólksfjölda og aðsetur manna. Er því hér lagt til, að í stað orðanna „að þriðjungi eftir tölu verkfærra karlmanna“ í 101. gr. sveitarstjórnarlaga komi: „að þriðjungi eftir íbúatölu“. Þetta er ekki stórvægileg breyting, hvorki í orði né á borði, en horfir þó ótvírætt til hagræðis og öryggis í framkvæmd.
Ég hef þessi orð ekki fleiri, en legg til, að þessu frv. verði, að lokinni þessari umr., vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og félmn.