18.01.1968
Neðri deild: 51. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1812 í B-deild Alþingistíðinda. (1781)

85. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins

Flm. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að leggja hér fram frv. um breyt. á l. nr. 75 frá 27. apríl 1962, um Stofnlánadeild landbúnaðarins, ásamt hv. 5. þm. Austf., 1. þm. Vestf., 2. þm. Sunnl., 3. þm. Vesturl. og 5. þm. Norðurl. v. Samkv. l. um Stofnlánadeild landbúnaðarins frá 27. apríl 1962 er ekki heimilt að veita stofnlán út á byggingar í sveitum, fyrr en þær eru fullfrágengnar, að íbúðarhúsabyggingum undanskildum. Þetta ákvæði í löggjöfinni hefur verið til mikils óhagræðis fyrir bændur, enda ekki í neinu samræmi við lánveitingar út á byggingar í þéttbýlinu, en þær munu vera taldar lánshæfar fokheldar. Eftir því sem gripahúsabyggingar hafa orðið stærri og vandaðri, hefur reynzt í fleiri og fleiri tilfellum ógerningur að ljúka þeim á einu ári og hafa þá engin föst lán fengizt út á þær það árið. Nú hefur sú regla yfirleitt verið hjá Búnaðarbankanum að veita þessi stofnlán aðeins í desembermánuði ár hvert. Ef byggingunni er því ekki lokið fyrir 15. nóv. byggingarárið, en fyrir þann tíma eiga vottorð frá byggingarfulltrúa að liggja fyrir hjá bankanum, fá bændur ekkert lán frá Stofnlánadeildinni, fyrr en að ári liðnu samkv. þessum reglum Búnaðarbankans. Lánsfé eftir öðrum leiðum hefur ekki legið á lausu að undanförnu, þó að ástandið í þeim efnum hafi aldrei verið eins slæmt og það er nú. Af þessum ástæðum hafa ýmsir bændur lagt í mikinn aukakostnað til þess að gera byggingar sínar lánshæfar fyrir tilskildan tíma, þar sem þeir hafa ekki séð neina leið til þess að standa í skilum, ef þeir yrðu af láninu það árið. Byggingar verða nógu dýrar fyrir því, þó að notuð sé full hagkvæmni við gerð þeirra og í mörgum tilfellum ofviða bændum, eins og nú er búið að þeim af hendi þjóðfélagsins. Það verður því að leita ýmissa úrræða til þess að reyna að lækka byggingarkostnaðinn, svo að framleiðslan geti undir honum staðið. Eitt af mörgum atriðum, sem verkað gæti í þá átt, er að bændur geti notað það vinnuafl, sem heimilin hafa yfir að ráða og hægt er að inna af hendi samhliða daglegum bústörfum, en við það hlýtur byggingartíminn líka að lengjast.

Ef þetta frv. næði fram að ganga, mundi það verka þannig, að margir bændur sæju sér frekar fært að byggja á lengri tíma og leggja fram meiri vinnu við byggingarnar sjálfir, og þá væri frekar hægt einnig að koma við vinnuskiptum við nágrannana til þess að lækka sem mest útlagðan kostnað.

Flm. er það vel ljóst, að brýn þörf er að gera fleiri breytingar á stofnlánadeildarlögunum, t. d. lengja lánstímann og lækka vexti. En þar sem í ljós hefur komið hér á hv. Alþ., og það mjög eftirminnilega, að meiri hl. skortir skilning eða vilja á málefnum landbúnaðarins, og það liggur þess vegna ljóst fyrir, að slíkar breytingar mundu ekki ná nú fram að ganga, þá leggjum við þessa einu breytingu til á l. að þessu sinni í þeirri von, að hún nái fram að ganga, þar sem hún felur ekki í sér aukinn stuðning eða aukið lánsfé til bænda, heldur hagkvæmara fyrirkomulag, þar sem gert er hér ráð fyrir, að lánað verði til bygginganna í tvennu lagi eins og tíðkast með íbúðarbyggingar í sveitum og ég held allar byggingar í þéttbýli. Það má því segja, að þetta frv. sé prófsteinn á það, hvort sú regla sé ófrávíkjanleg hjá hv. stjórnarflokkum að fella allt það, sem frá stjórnarandstöðunni kemur.

Ég vil svo leggja til, herra forseti, að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og hv. landbn.