18.01.1968
Neðri deild: 51. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1813 í B-deild Alþingistíðinda. (1782)

85. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Hv. 1. flm. sagði, að þetta frv. gæti verið prófsteinn á það, hvort stjórnarflokkarnir ætli sér áfram að fella allt, sem frá stjórnarandstöðunni kemur. Þetta er náttúrlega út af fyrir sig enginn prófsteinn á það, og það er ekki rétt, sem hv. þm. gefur í skyn með þessum orðum, að svo hafi þetta verið. Hafi stjórnarandstaðan komið með mál, sem vit var í og eðlilegt að samþykkja, hefur það verið gert. En það er bezt að segja það eins og er, að það hefur verið ákaflega sjaldan. Það er ákaflega sjaldan, sem það koma fram raunhæfar till. frá hv. stjórnarandstæðingi. Það er oftast eitthvað í því, sem er ekki aðgengilegt og ekki eðlilegt að samþykkja.

Það, sem farið er fram á í þessu frv., er allt annars eðlis, og þetta frv. eða þessi till. er ekkert ný fyrir mínum sjónum. Bankastjórar Búnaðarbankans ræddu þetta mál við mig, ég held, að það hafi verið frekar í haust heldur en á s. l. vori, og mér er kunnugt um það, að þeir telja eðlilegt að gera þessa breytingu og mér finnst það alveg eðlilegt. Út af fyrir sig kostar það ekki stofnlánadeildina meira fé, þótt þetta sé gert. Þetta er fyrirkomulagsatriði og það er rétt, sem hv. þm. sagði hér áðan, að það getur verið hagkvæmt fyrir bændur að lengja byggingartímann með því að geta sjálfir með sínu skylduliði unnið meira að framkvæmdinni heldur en annars væri gert.

Nú er það náttúrlega þannig, og það held ég, að hv. 1. flm. hljóti að vita, að bændur hafa oft fengið lán í einhverju formi út á væntanlegt stofnlán. Þeir hafa fengið víxla í Búnaðarbankanum, sem síðan hafa verið greiddir, þegar lánið hefur verið tekið út á framkvæmdina. Og þó að þetta verði tekið upp, sem ég mæli með, er ég ósköp hræddur um það, að þetta bráðabirgðalán komist ekki á stofnlánadeildarkjör, heldur verði hærri vextir af því heldur en eru í stofnlánadeildinni.

Þegar íbúðarhús eru byggð í sveitum, er lánað út á þau í áföngum til 42 ára með 6% vöxtum. Hv. 1. flm. vildi gefa í skyn, að það væru okurvextir, sem landbúnaðurinn býr við. Það má segja það. En borið saman við aðra þegna þjóðfélagsins er það ekki rétt. Og til íbúðarhúsa eru lánin veitt til 42 ára, og á þessum lánum er engin gengisklásúla eða visitala. Þetta eru hagstæð lán og þau eru veitt í áföngum,ekki aðeins tveimur, heldur að ég ætla oft í þremur, jafnvel fjórum. Með gripahúsin er þetta öðru vísi. Þau lán eru veitt til styttri tíma með 6½% vöxtum. Það eru ekki heldur okurvextir. Það eru hagstæðir vextir miðað við það, sem aðrir þegnar þjóðfélagsins búa við. Og það eru ekki heldur vísitölulán. Það eru ekki heldur gengistryggð lán, en það gæti verið æskilegt að hafa lánstímann lengri. En þá verður að geta þess, að gripahús hafa ekki alltaf verið þannig byggð, að það væri út af fyrir sig verjandi að hafa lánstímann lengri heldur en 20 ár. Um leið og lánstíminn er lengdur, verður að vanda til framkvæmdanna. Og við höfum séð það víða, að allt fram á síðustu ár hafa þessar byggingar verið misjafnar og ekki eðlilegt að lána út á þær til langs tíma.

Annars er eðlilegt að upplýsa það hér, vegna þess að hv. þm. talaði um, að ekki hefði verið flutt till. um frekari breytingar á stofnlánadeildarl. heldur en þetta, t. d. um lánstíma eða vexti, að það þarf ekki að breyta l. til þess að breyta vöxtum eða lánstíma. Það þarf ekki að breyta l. til þess að lengja lánstímann upp í 25 ár út á gripahús. Það þarf ekki heldur að breyta l. til þess að hækka eða lækka vextina, ef fært þykir. Og það hefur verið í athugun, hvort eðlilegt væri að hækka lánstímann upp í 25 ár út á gripahús, a. m. k. hafa heimild til þess, enda þá um framkvæmdir að ræða, sem teljast varanlegar og að öllu leyti vel frágengnar.

Hv. þm. sagði hér áðan, að ástandið í lánamálum landbúnaðarins hefði aldrei verið eins slæmt og nú, og að skilning vantaði hjá meiri hl. Alþingis fyrir því, sem má verða landbúnaðinum til gagns. Ég veit ekki, hvort hv. þm. telur, að hans traust vaxi við svona fullyrðingar. Svona fullyrðing gæfi vitanlega tilefni til þess að rifja upp sögu landbúnaðarmálanna og gera samanburð á stöðu landbúnaðarins í dag og meðferð stjórnvaldanna á landbúnaðinum í dag og því, sem var á meðan flokksbræður þessa hv. þm. voru við völd. En vegna þess að fundartímanum er nú að verða lokið og þetta mál er einangrað, er rétt að láta það bíða, vegna þess að til þess gefast ótal tækifæri. En þar sem hv. 1. flm. er nýr hér á Alþ. og hefur kannske ekki kynnt sér alveg til hlítar sögu fyrri ára, gæti vel verið, að það væri þess virði að fræða hann í þessum málum og gefa honum tækifæri til þess að rifja ýmislegt upp, svo að hann gæti áttað sig betur á þessum málum.