14.03.1968
Efri deild: 70. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1854 í B-deild Alþingistíðinda. (1870)
107. mál, síldarútvegsnefnd
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Ég vil láta fylgja með smáskýringu á því, að þetta kemur svo seint fram. Það er vegna þess, að ég leitaði til síldarútvegsnefndar og bað um ákveðnar upplýsingar, og það hefur tekið miklu lengri tíma en vænzt var að fá þær, og þær eru reyndar ekki komnar enn, svo að annaðhvort var að hrökkva eða stökkva með þetta atriði. En undanfarna daga hafa átt sér stað miklar umræður um, hvernig standa megi sem hagkvæmast að veiðum og söltun á væntanlegri síldarvertíð, og sýnist mönnum sitt hvað í því efni. Margvíslegar hugmyndir hafa verið ræddar til úrbóta, en því er ekki að leyna, að menn greinir mjög á um, hvað bezt muni henta til lausnar. Það má með sanni segja, að engin ein leið leysir allan þann vanda, sem við er að etja. Því þarf að leita nýrra ráða til þess að tryggja söltun á síld í sumar, ef síldin liggur svo langt frá landi í júlí og ágúst sem var á s. l. ári.
Í því sambandi vildi ég drepa á nokkrar hugmyndir, sem ræddar hafa verið:
1) Veiðiskipið siglir sjálft með síldina til íslenzkrar hafnar og tekur þar um borð tunnur, salt o. s. frv.
2) Nokkur veiðiskip hafa samvinnu um nýtingu aflans til söltunar um borð og flutning á síldinni til íslenzkrar hafnar og flutning á tunnum, salti og þvíumlíku til veiðisvæðisins.
3) Sérstök flutningaskip taka við síldinni frá veiðiskipum og flytja til þeirra tunnur, salt o. s. frv. Síldin sé lögð á land í íslenzkri höfn.
Allar þessar hugmyndir reikna með því, að það sé komið í íslenzka höfn með síldina.
Annar möguleiki:
1) Veiðiskipið siglir sjálft með síldina til erlendrar hafnar og tekur þar um borð tunnur, salt og þvíumlíkt.
2) Nokkur veiðiskip hafa samvinnu um nýtingu aflans til söltunar um borð, flutning á síldinni áfram til erlendrar hafnar og flutning á tunnum o.s.frv. til veiðisvæðisins. Hópveiði.
3) Sérstök flutningaskip taka við síldinni frá veiðiskipunum og flytja til þeirra tunnur, salt o.s.frv. og landa síðan síldinni í erlendri höfn.
Þessir þrír möguleikar gera ráð fyrir, að erlend höfn sé notuð.
Í þriðja lagi mætti flokka það svo:
1) Síld söltuð um borð í sérstökum móðurskipum. Móðurskipið tekur við fersksíld úr nót veiðiskipanna.
2) Móðurskipið tekur við fersksíld úr nót veiðiskipa og tekur jafnframt við síld, sem söltuð hefur verið um borð í veiðiskipunum sjálfum, og flytur í land til íslenzkrar hafnar.
Það liggur ekki fyrir, um hvað menn verða endanlega ásáttir, og eins og hv. þm. er kunnugt, er hér starfandi n., sem ræðir þessi vandamál, en það fer ekkert leynt, að þar eru misjöfn sjónarmið uppi, og er ekki að vita, hver endanleg niðurstaða verður. Engu að síður er það vitað, að nokkrir útvegsmenn vilja gera tilraun í þá átt að salta um borð og selja vöruna erlendis sennilega, því að það er vitað, að kaupendur fást til þess að taka við vörunni þannig. Það mun fara saman, að hagur útgerðar og hagur skipshafnar verður hvað beztur eftir því sem vöruvöndun er meiri. Og það verður ekki um það deilt, að ef framkvæmanlegt er að hafa nægilegt eftirlit með síldinni um borð í veiðiskipunum, eftir að hún er söltuð og komin í tunnuna, verða gæðin mest með því að salta síldina glænýja. Ýmis vandamál eru við það að salta síld um borð í veiðiskipunum, og þarf að mörgu að hyggja. Ég fer hér fram á það, að vegna kostnaðarauka og ýmissa annarra atriða fái síldarútvegsnefnd 1% fob-gjald af þeirri síld, sem seld er frá síldveiðiskipi í erlendri höfn og söltuð er þar um borð, í stað þess að venjan hefur verið, að síldarútvegsnefnd fái 2% af fob-gjaldi af landsaltaðri síld.
Annað atriðið í brtt. er um löggildingu útflytjenda. Skipin eru tekin út af Ferskfiskeftirliti ríkisins og annar útbúnaður er allur yfirfarinn og athugaður, og skipið er raunverulega orðið löggilt sem veiðihæft og því sýnist óeðlilegt, að það þurfi að koma margs konar löggilding til, og á þetta sér ekki stað um önnur íslenzk skip í veiði, sem salta eða vinna sinn afla um borð. Þau hafa frjálst val að leggja á land hér á Íslandi eða sigla með aflann í erlenda höfn, svo sem togarar, er ísa fisk eða salta um borð. Má því með sanni segja, að hliðstætt ætti að gilda um það skip, sem saltar síld um borð.
Síðast er brtt. um það, að ef útvegsmaður eða skipshöfn ákveður að salta um borð, geta þau atvik legið fyrir, að það þurfi að setja síldina á land í íslenzkri höfn. Nú er það svo, að venjulega er stimplað á botn tunnunnar á hvaða veg síldin er unnin, og samkv. l. nr. 70 19. júní 1933 segir svo: „Sérhver tunna saltaðrar síldar, sem út er flutt, skal vera auðkennd þannig, að það sjáist, að síldin sé íslenzk og á hvern hátt hún er verkuð, ásamt einkennisstöfum eða firmanafni útflytjanda þess, er í hlut á.“ Þess vegna er eðlilegt, að útgerð og skipshöfn geti haft mann í landi til umsjónar með þeirri síld, sem sett er í land, og það sé gert í samvinnu við einhverja ákveðna söltunarstöð, en ekki undir stöðvarmerkinu sem slíku. Þess vegna er hinn seinasti liður, b-liður, brtt. settur fram. Um þetta hafa verið misjöfn sjónarmið, hvort útvegsmenn ættu að afhenda síldina frá borði og þar með eignarhald á henni. Ég tel það óeðlilegt. Og það verður líka vandamál, hvernig á að merkja þá síld, sem er sjósöltuð um borð og síðan landverkuð að meira eða minna leyti, og þess vegna er eðlilegt, að tekið sé af skarið um þetta atriði.
Ég hef orðið var við það, að meðnm. mínir í sjútvn. óska eftir því, að þessum till. sé vísað til n., og ég fer þess á leit, herra forseti, að við því verði orðið.