11.10.1967
Sameinað þing: 0. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 41 í B-deild Alþingistíðinda. (19)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Magnús Kjartansson:
Herra forseti. Ég ætla mér ekki að lengja þennan sérkennilega málfund ýkjamikið. Hann ber að, eins og ég sagði áðan, með því einkennilega móti, að tveir flokkar, sem skipa hér meiri hl. Alþingis, treysta sér ekki til að hafa neina skoðun á máli, en vilja samt hefja um það umræður. Og hæstv. forsrh. lýsti því yfir hér áðan með býsna mikilli þykkju, að fyrirætlun þeirra hefði verið sú að láta Alþb. eitt úrskurða málið. Þeir gerðu sér von um, að Framsókn sæti hjá líka. En hvað er hæstv. forsrh. að gera með slíkum vinnubrögðum sem þessum? Það ákvæði er í sjálfri stjórnarskrá Íslands, að það sé skylda hv. alþm. að feila úrskurð um, hvort þm. séu rétt kjörnir eða ekki. Þetta er mjög alvarleg skylda, hún hvílir á öllum þm., og það er mjög ósæmilegt, þegar hæstv. forsrh. ætlar að fara að breyta þessu skylduverki í hreinan skrípaleik, eins og þessi málsmeðferð er af hálfu stjórnarflokkanna.
Annars ætlaði ég að minnast hér örfáum orðum á eitt atriði, sem hér hefur borið á góma. Annars vegar umtal um alræði flokksstjórna og hins vegar um frelsi fólksins. Það sakar e.t.v. ekki að geta þess í sambandi við umræður um slík atriði, að innan Alþb. er ekki um neitt alræði flokksstjórnar að ræða og hreinlega ekki um nein völd í sambandi við framboð. Framboðin eru hjá fólkinu í hverju kjördæmi um sig. Framboð í Reykjavík er ákveðið af Alþb. í Reykjavík á almennum félagsfundi, og flokksstjórn hefur ekkert um það að segja. Þar er því ekki um að ræða neina nauðsyn á uppreisn gegn alræði flokksstjórnar. Það er um að ræða uppreisn gegn meiri hluta í samtökum, sem fyrir eru. Og ég vil ítreka það, sem ég sagði áðan í ræðu minni, að ég tel óhjákvæmilegt að breyta gildandi kosningalögum til að kveða skýrt á um vissa hluti þar. Það er staðreynd, sem gerzt hefur þar í sumar, það er staðreynd, að þar eru ákvæði, sem eru svo óljós, að hálærðir lögfræðingar geta staðið hver uppi í hárinu á öðrum endalaust um þau atriði, og það mál þarf að vera skýrt. Ég vil geta þess, að ég hef ekki á móti því, að þar séu ákvæði um rétt minni hl. í flokkum, það kemur vel til athugunar, en þá verður að ganga frá því, að það sé raunverulega verið að vernda rétt minni hl. í flokkum. Eins og ákvæðin eru núna, er að sjá svo sem hver sem er geti boðið fram í nafni hvaða flokks sem er, og það eru náttúrlega algerlega fráleit ákvæði.
Hæstv. dómsmrh. talaði eitthvað um það áðan, að hann hefði verið að greiða þung högg úr þessum ræðustóli, en þau hefðu ekki verið ætluð hv. þm. Hannibal Valdimarssyni, heldur mér. Ekki fann ég sérlega mikið fyrir þyngslunum af þessum höggum. Hæstv. ráðh. tók að vísu upp í sig venjuleg stóryrði, talaði um að kyssa á vöndinn, svik við sjálfan sig og aðra, en það er létt verk og löðurmannlegt að tína slík orð út úr sér og hittir ekki nokkurn mann. Hitt fataðist ráðh. gjörsamlega við, að gagnrýna þau sjónarmið, sem komu fram í minni ræðu hér áðan. Hann var að reyna að tala þar um lögskýringar þeirra lögfræðinga, sem fjölluðu um vandamálin frammi fyrir landskjörstjórn og yfirkjörstjórn, en ég lagði á það mjög ríka áherzlu í minni ræðu og vænti þess, að hæstv. dómsmrh. hafi skilið það, að það gerðust atburðir — það gerðust óvefengjanlegir atburðir í þessu máli — í sumar eftir þær deilur. Landskjörstjórn kvað upp sinn úrskurð. Það er staðreynd. Æðsti aðili, sá aðili, sem gefur út kjörbréf, kvað upp þennan úrskurð. Hvort sem manni finnst hann vera réttur eða rangur, þá gerði hann það. Eftir það var vald aðeins eftir hjá einum aðila, meiri hl. Alþingis. Það var hæstiréttur, og þess vegna lá á, að kjósendur fengju að vita fyrir kosningar, hvað meiri hl. Alþingis ætlaði að gera. Og ég rakti það í ræðu minni áðan með tilvitnunum, að fulltrúar yfirgnæfandi meiri hl. Alþingis lýstu því yfir fyrir kosningar, að þeir teldu úrskurð landskjörstjórnar réttan á margvíslegan hátt.
Ég bið hv. þm. Sigurð Bjarnason og Benedikt Gröndal velvirðingar á því, að ég taldi þá hafa verið viðstadda á fundi, þar sem þeir voru ekki. Hins vegar voru á þeim fundi staddir varafulltrúar þeirra — varamenn þeirra og fulltrúar þeirra sömu flokka og þeir eru fulltrúar fyrir, og eins og hv. þm. Sigurður Bjarnason rakti hér skilmerkilega áðan, var ákvörðunin um, hvernig haga skyldi útvarpi — bæði hljóðvarpi og sjónvarpi — rökstudd með tilvitnun í ummæli Hannibals Valdimarssonar og í niðurstöður landskjörstjórnar. Það var sjálfur rökstuðningurinn, og þessi niðurstaða útvarpsráðs var síðan varin í öllum blöðum þessara flokka.
En sem sagt: Mér finnst þessi undarlegu ræðuhöld hafa staðið nægilega lengi. Allir vita, hvernig ætlunin er að afgreiða þetta mál. Ég færði rök að því áðan og tel það algerlega augljóst mál, að með öllum áróðursmætti sínum lýstu fulltrúar þessara þriggja flokka yfir því fyrir kosningar, að úrskurður landskjörstjórnar mundi standa, og það eru af þeirra hálfu alger svik, ef þeir bregðast nú þeim orðum, sem þeir höfðu svona stór fyrir kosningar.
Bjarni Benediktsson, hæstv. forsrh., sagði hér áðan í öðru orðinu, að ég hefði tekið ákveðna afstöðu fyrir kosningar, og í hinu orðinu sagði hann, að ég hefði neitað að svara. Ég neitaði nú reyndar ekki að svara. Ég sagði nákvæmlega það sama fyrir kosningar og ég segi núna, að málin væru í höndum fulltrúa þessara þriggja flokka. Og ég varaði fólk við að treysta þeim. Ef völdin hefðu oltið á úrskurði í þessu máli, hefði ekki verið farið eftir neinu nema valdahagsmununum.