17.04.1968
Sameinað þing: 53. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1925 í B-deild Alþingistíðinda. (1901)

Almennar stjórnmálaumræður

Forsrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Góðir hlustendur. Flestum Íslendingum mun þykja ríkisstj. og Alþ. ærinn vandi á höndum að stýra svo að vel fari okkar eigin málum, þótt við ekki ætlum okkur umfram nauðsyn þá dul að leysa fram úr hinum flóknustu viðfangsefnum fjarlægra þjóða. Annað mál er, að við tökum þátt í ýmsu alþjóðasamstarfi og komumst ekki hjá einkum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, að taka afstöðu í margháttuðum málum. Að sjálfsögðu megum við ekki blanda okkur í annarra mál, nema hafa áður aflað okkur beztu fáanlegra upplýsinga. En við höfum óvíða eigin sendimenn, og mannfæð í utanríkisþjónustu gerir okkur torveldara að fylgjast með en hinum stærri þjóðum. Þrátt fyrir formlegt jafnrétti í atkvgr., hafa og þau ríki óhjákvæmilega mest áhrif, sem raunverulega hafa vilja, vald og getu til að ráða úrslitum friðar og ófriðar í heiminum. Þeim mun minni, sem bæði geta og vilji er til eigin framlags í þeim efnum, því fremur hæfir varúð í ályktunargerð, þar sem um líf og dauða er að tefla. Ekki þarf að efast um það, að allir Íslendingar vilji leggja sitt lóð á þá vogarskál, að vaxandi líkur verði fyrir varanlegum allsherjarfriði. Jafnvíst er hitt, að okkur greinir og hefur greint á um, hvernig það verði helzt gert og bezt studdur málstaður þeirra, sem fyrir ofbeldi verða.

Má þá minnast þess, þegar Einar Olgeirsson, þáv. forseti Nd. Alþ., varnaði Ólafi Thors máls hér í þessum sal um frelsisbaráttu Ungverja, einmitt þegar allur þorri Íslendinga fann sárast til með þeirri þrautpíndu þjóð. Að undanförnu hafa menn víðs vegar deilt hart um Víetnam-stríðið, en þótt þeir væru ósammála um uppruna þess og eðli, þá hafa allir óttazt afleiðingar þess, ef ekki tækist að draga þar úr viðsjám og stilla sem fyrst til friðar. Stríðsaðilar sjálfir hafa hins vegar verið tregir til að láta málið koma undir úrskurð Sameinuðu þjóðanna og jafnvel til opinberrar umr. á vettvangi þeirra. Á bak við tjöldin hefur þó einnig þar verið unnið að friðarumleitunum, og hefur ekki staðið á Íslendingum að leggja þar til góð orð, ef að haldi mætti koma.

Nokkrir þm. Framsóknar og Alþb. fluttu í vetur þáltill. um Víetnam-málið, samhljóða í báðum deildum. Í grg. var sagt, að till. væru í meginatriðum sniðnar eftir ályktun hollenzka þingsins frá því í ágúst 1967. En við samanburð á henni og till. hér sást þegar í stað, að þær voru einmitt ólíkar í meginatriðum. Hollenzka ályktunin lýsti berum orðum ugg vegna baráttuaðferða beggja stríðsaðila í Víetnam, og fór þess á leit, að Norður-Víetnammenn sýndu samningsvilja jafnframt því, sem Bandaríkin hættu loftárásum á þá alveg gagnstætt því, sem í till. hér var gert ráð fyrir, þar sem ætlazt var til, að Bandaríkin tækju einhliða ákvörðun um stöðvun loftárása þegar í stað og hinir sýndu samningsvilja ekki fyrr en loftárásum linnti. Loks var í till. hér ekki minnzt á Genfarsamkomulagið frá árinu 1954, sem hollenzka ályktunin sagði, að verða ætti samningsgrundvöllur. Nú getur menn greint á um, hver háttur skuli á þessu vera. En úr því að í ályktun Hollendinga var vitnað, var lágmarkskrafan sú, að rétt væri með farið. Síðar buðust flm. til þess að breyta till. sínum til samræmis við það, sem hollenzka þingið hafði raunverulega samþ. Með þessu tilboði gerðu þeir mikla yfirbót, og virtist þar með grundvöllur skapaður fyrir samþykkt til leiðbeiningar umboðsmönnum Íslands á alþjóðavettvangi, enda hefði með slíkri ályktun ekki verið gert upp á milli stríðsaðila, heldur farið bil beggja og ályktunin með öllu verið andstæð einhliða málflutningi kommúnista hér og annars staðar svo sem lýsti sér í því, að kommúnistar og vinstri menn yfirleitt greiddu atkv. á móti hinni hollenzku till. þar í landi ófalsaðri.

Áður en tími ynnist til afgreiðslu málsins á þessum grundvelli gerbreyttist aðstaða. Í hinni hollenzku ályktun var gert ráð fyrir því, að hernaðaraðgerðir í Víetnam væru enn að breiðast út, og var ályktun einmitt samþykkt af því tilefni. Eftir ræðu Johnsons Bandaríkjaforseta, hinn 31. marz, hafa hernaðaraðgerðir hins vegar dregizt saman og samningaundirbúningur hafizt. Nú væri fjarstæða að miða ályktun við annað en þessa breyttu stöðu, eins og ég jafnskjótt tjáði hv. þm. Lúðvík Jósefssyni. Á þetta vildi hann þá þegar lítt hlusta, og hann og félagar hans hafa síðan gert þessa ábendingu að árásarefni á mig. Mér er þó sagt í dag, að þeir vilji nú breyta til og gjörbreyta sinni fyrri till. miðað við nýjar aðstæður, og er það í sjálfu sér ekki þakkarvert.

En því rek ég þetta mál svo rækilega, að það er gott dæmi um þann skort á virðingu fyrir staðreyndum og hinn óvandaða málflutning, sem flestu öðru fremur hrjáir nú íslenzkt þjóðfélag, og var ræða hv. þm. Karls Guðjónssonar gott dæmi um þær aðfarir. Svo að ég drepi einungis á víð og dreif á nokkur atriði í því, sem hann fór ranglega með, þá er það alveg fjarstætt, að tekið hafi verið hinum óhagstæðari tilboðum í byggingar, sem hér er nú verið að reisa. Það eru einmitt mun hagstæðari tilboð, sem valin voru, og hinum óhagstæðari synjað. Þá er alveg snúið við sannleika, þegar fullyrt var af þessum þm., sem sumir aðrir hafa raunar áður sagt, að íslenzka stjórnin hafi átt upphaf að eða ráðið breytingu á viðskiptasamningum við Tékka og Pólverja. Það eru einmitt þessar ríkisstj., hinar erlendu, sem hafa breytt um stefnu og vilja nú ekki lengur hafa viðskiptin á sama vöruskiptagrundvelli og áður. Enn er það algerlega rangt hjá þessum hv. þm., að það hafi átt sér stað brigðmælgi um að útvega lán til byggingarframkvæmda utan Reykjavíkur og jafnvel hér. Af ríkisvaldsins hálfu hefur verið staðið í einu og öllu — og betur en það — við öll loforð, sem í þessum efnum hafa verið gefin. Hitt er annað mál, að sumir hafa þurft að bíða eftir lánum. Það er annað mál, sem þarfnast úrlausnar, en það kemur ekki af því, að ríkisstj. hafi brugðizt þeim loforðum, sem hún gaf. Allra harkalegast er þó, þegar þessi hv. þm. tekur þetta sem árásarefni á ríkisstj., þetta atriði, sem, ef rétt væri, byggðist þá á því, að ríkisstj. hefur staðið við samninga, sem gerðir voru við verkalýðshreyfinguna á árinu 1965 eftir eindreginni ósk hennar sjálfrar.

Það eru því miður ótal fleiri dæmi slíks málflutnings, þar á meðal sífelldar rakalausar ásakanir um, að ríkisstj. og stuðningsmenn hennar hafi fyrir kosningarnar í fyrra leitazt við að dylja fyrir landsmönnum, að alvarlega horfði í atvinnu- og efnahagsmálum. Þessum ásökunum hefur raunar áður verið rækilega svarað, bæði af mér og öðrum, en á meðan ekki er lát á ósönnum ásökunum verður að rifja sannleikann upp. Að þessu sinni minni ég á, að strax fyrir árslok 1966 varð ég fyrir margendurteknum brigzlyrðum vegna þess, að í umr. um verðstöðvunarlagafrv. talaði ég um neyðarástand, sem þá hefði skapazt. Og því fór svo fjarri, að ég léti brigzl andstæðinganna verða til þess, að ég drægi úr aðvörunum mínum um, hver hætta stafaði af aflaleysi og verðfalli, að í ræðu, er ég hélt fyrir tæpu ári, hinn 20. apríl 1967, á landsfundi sjálfstæðismanna og m. a. birtist þá þegar í víðlesnasta blaði landsins og var einnig dreift út með öðrum hætti á meðal landsmanna, þá talaði ég um, að „stórvandræði“ „blöstu við í hraðfrystiiðnaðinum“ af þessum sökum. Og ég áréttaði fyrri ummæli með því að segja, að „þegar jafn stórfellt verðfall og raun ber vitni verður á fullum 2/3 útflutnings, þá er óneitanlega um neyðarástand að ræða, sem víða mundi talið horfa til öngþveitis“.

Því fór og fjarri, að ég gerði lítið úr skaðsamlegum áhrifum verðbólgunnar, þó að hún mætti ekki skyggja á þau nýju viðbótarvandamál, sem verðfall og aflabrestur sköpuðu. Um verðbólguna sagði ég m. a.: „Vitanlega hefur verðbólgan skapað ýmiss konar vanda og skapar enn og hún getur orðið okkur enn skeinuhættari áður en lýkur.“

Þrátt fyrir þessi gögn og ótal mörg önnur um aðvaranir okkar fyrir kosningarnar í júní 1967, verður vafalaust haldið áfram að bregða okkur um blekkingar einmitt af hálfu sömu manna og nú standa sumir í ströngu við að gera grein fyrir, hvernig aflað var fjár til að halda áfram að greiða miklu hærra verð fyrir fisk seldan í Bandaríkjunum en raunverulega fékkst fyrir hann einmitt fram yfir kosningarnar 1967. Þeir, sem í slíku glerhúsi búa, ættu ekki að halda áfram grjótkasti á þá, sem þveröfugt hafa farið að. Sannleikurinn er sá, að allir vonuðum við, að verðfallið í Bandaríkjunum mundi vara einungis skamma stund og verðlag og aflabrögð á árinu 1967 mundu áður en lyki verða svipað og undanfarin ár. Verðstöðvunarlögin frá 1967 voru tímabundin og öllum var ljóst, að ef ekki rættist úr, mundi þurfa að grípa til annarra róttækari ráða. Annað mál er svo, að ríkisstj. og stuðningsmenn hennar lögðu með réttu áherzlu á, hvílík gerbreyting til bóta hefði orðið á hag bæði alls almennings og atvinnurekenda, frá því að viðreisnarstjórnin tók við völdum. Hér hefur sem sé orðið öll önnur þróun en í fyrirmyndarlandi kommúnista, Tékkóslóvakíu, þar sem hinir nýju forsprakkar segja nú, að kyrrstaða hafi verið í efnahag og afkomu almennings síðustu 15 ár. Allt, sem við sögðum í fyrra um framfarirnar á Íslandi, var satt, þó að mönnum hafi jafnt nú og stundum áður haldizt misjafnlega á fé sínu og ýmsir reist sér hurðarás um öxl í þeirri von, að hér héldust stöðugir uppgangstímar.

Engir vöruðu þó eindregnar við þeirri trú en við, sem vorið 1966 á meðan allt var enn í fullum blóma, bentum á, að Búrfellsvirkjun og bygging álbræðslu mætti ekki dragast, því að of seint væri að hefja undirbúning slíkra framkvæmda, eftir að atvinnuleysi væri skollið á. Raunin varð sú, að þótt neyðarástand blasti við vegna undanfarandi verðfalls og gæftaleysis vorið 1967, varð veruleikinn mun verri, þegar fram á árið kom. Um það tjáir ekki lengur að deila, að sökum aflabrests og verðfalls minnkuðu útflutningstekjurnar á árinu 1967 um 30% frá árinu áður. Afrakstur varð samt enn lakari vegna söluvandræða á skreiðarbirgðum í landinu og stóraukins kostnaðar við að ná þeim afla, sem þó fékkst, sökum óveðra, og hve langt þurfti að sækja, að ógleymdum erfiðleikum sökum hækkaðs kaupgjalds og verðbólguvaxtar á árinu 1967, sem raunar varð minni en áður, vegna verðstöðvunarlaganna.

Allir getum við verið vitrir eftir á. Enginn vandi er nú að segja, að árin 1965 og 1966 hefði átt að taka síldargróðann og leggja hann fyrir. En hverjir eftiráspekinganna studdu þær tilraunir, sem 1965 voru gerðar til að jafna lítillega á milli? Og hvaða stjórnarandstæðingar töldu of skammt gengið þegar ríkisstj. á sínum tíma beitti sér í andstöðu við þá fyrir, að atvinnurekendur mættu auka varasjóðsfrádrátt sinn? Gallinn er sá, að ekkert af því, sem gagnrýnendur nú telja upp, bentu þeir á eða studdu á meðan tími var til.

Fyrir okkur, sem áttum í hörðu höggi við hv. stjórnarandstæðinga út af Búrfellsvirkjun og álbræðslu, er nánast skoplegt að heyra þá tala nú eins og þeir hafi verið stuðningsmenn virkjunarframkvæmdanna. Sumir þeirra reyndu árum saman að gera þær með öllu móti tortryggilegar. Þeir fjölyrtu um, að óhæfileg áhætta leiddi af ísmyndun og tíndu sitthvað annað til. Úrslitum réði, að langflestir þeirra hömuðust á móti samningunum um álbræðslu, og vissu þó allir, að einmitt þeir samningar voru alger forsenda þess, að í Búrfellsvirkjun væri hægt að ráðast. Þeim, sem næga hreinskilni hafa til að minnast þessarar afstöðu sinnar, hlýtur að hafa verið einkennilega innanbrjósts, þegar þeir voru austur við Búrfell á dögunum. Glöggur þm., sem var í þeirri ferð, sagði, að sér fyndist landið stækka og batna við þá framkvæmd. Fyrir andstæðingana er gott að geta gleymt framkomu sinni gegn þeim landbótum. Víst er þeim það ekki of gott, einungis ef þeir bæta nú ráð sitt og taka með okkur hinum heilshugar þátt í hinu nýja landnámi, sem þjóðinni ríður á, að linnulaust verði haldið áfram. En það var síður en svo að heyra á hv. þm., Karli Guðjónssyni, að hann væri á þeim buxunum.

Áður en til hins verra brá um árferði, afla og verðlag, hafði ríkisstj. hafið þetta landnám með stórvirkjunum og þar með vísað veginn fram á við. En þessi síðustu misseri hefur stjórnin orðið að miða framkvæmdir sínar fyrst og fremst við að firra vandræðum. Er og erfitt að sjá, hvernig öðru vísi hefði átt að fara að, meðan hvert áfallið rekur annað. Nú síðast svo, að jafnvel hv. þm., reiknimeistari Sigurvin Einarsson, sem í vetur reiknaði út eins og alræmt er orðið, að við nytum nú meðalárferðis ef ekki góðæris, hefur nýlega flutt till. þar sem talað er um, að tímabært sé í því árferði, sem nú er, að fara varlega í álögum að svo stöddu.

Auðvitað komast menn til lengdar ekki hjá því að finna til afleiðinga áfallanna. Viðleitni ríkisstj. hefur beinzt að því, að þær þyrftu ekki að koma ósanngjarnlega misjafnt niður eða leiða til glundroða og þar með atvinnuleysis. Á undanförnum mánuðum hefur baráttan að verulegu leyti fjallað um vísitölugreiðslu á laun. Sumir hafa talið, að full vísitölugreiðsla eða verðtrygging séu mannréttindi, sem aldrei megi hagga. En aðrir telja, að þótt verðtrygging launa eigi stundum við, sé ekki ætíð svo, og allra sízt, þegar ytri aðstæður gerðu óhjákvæmilegt að skerða lífskjör og sköpuðu fyrirsjáanlega hættu á örum verðbólguvexti, ef víxláhrif verðlags og kaupgjalds eru óheft. Þessi deila um óhagganlega vísitöluuppbót er því furðulegri, sem lagaákvæði um hana hafa verið síbreytileg hér á landi, allt frá því að vísitöluákvæði voru lögfest á árinu 1939. Fróðum mönnum telst svo til, að á þessu tímabili hafi verið sett 19 breytileg lagaboð um vísitöluna. Í einn stað kemur, hvaða flokkasamsteypur hafa verið við stjórn, ætíð hafa þær orðið að laga vísitöluákvæðin eftir aðstæðum. Hér er því síður en svo um nokkur heilög óhagganleg mannréttindi að ræða.

Lítum og á fordæmi annarra þjóða. Í vetur urðu Finnar, Bretar og Danir að fella gengi gjaldmiðils síns, og höfðu þær þjóðir þó ekki orðið fyrir neitt námunda miklum áföllum í efnahagslífi sínu og við. Hjá öllum þessum þjóðum hefur síðan verið keppt að því að draga úr víxláhrifum kaupgjalds og verðlags. Engar höfðu þær samt viðlíka víðtæk verðtryggingarákvæði um kaupgjald og við.

Jafnaðarmannastjórnin danska féll raunar á tilraun sinni til að takmarka vísitöluuppbætur, en nýja stjórnin stefnir í sömu átt, þótt með öðrum aðferðum sé. En sumir segja e.t.v., að á slíkri hægri afturhaldsstjórn, verkalýðnum andvígri, sé lítt mark takandi.

Lítum þá til Bretlands. Þar situr enn stjórn Verkamannaflokksins. Hið nýja fjárlagafrv. hennar, — en þar í landi er efnahagsstefnan yfirleitt mörkuð með fjárl. — þetta nýja frv. er mun harkalegra í garð launþega en nokkrar fyrri ráðstafanir Wilsons, og hefur stjórn hans þó þótt ærið harðhent í þessum efnum hingað til. Enda er sagt, að stjórnarbreytingin nú fyrir skemmstu miði m.a. að því að fá launamálaráðh., sem enn betur takist að halda launahækkunum í skefjum en fram að þessu hefur reynzt fært. En Wilson og stjórn hans er einmitt að stórtapa fylgi, kynni þá einhver að segja. Til hverra? Íhaldsmanna, sem enginn býst við, að vilji leggja meiri byrðar á atvinnurekendur en Verkamannaflokksstjórnin.

En hvað um það, þá er í Finnlandi hvorki hægri stjórn né af sér gengin verkamannaflokksstjórn. Þar tók fyrir tæpum mánuði við völdum ný vinstri stjórn, að vísu undir forystu sósíaldemókrata, en að öðru leyti að mestu skipuð sambærilegum flokkum við Framsókn og Alþb. hér. Í stefnuyfirlýsingu hinnar nýju finnsku vinstri stjórnar segir m.a. orðrétt svo, samkv. heimild í Huvudstadsbladet hinn 22. marz s. l.:

„Útrýming atvinnuleysis er mikilvægasta verkefni ríkisstj. í efnahagsmálum. Til þess að þetta takist, þarf að örva hagvöxt og halda aftur af hækkun framleiðslukostnaðar. Auk þess sem langtíma hagvaxtarmarkmið séu samræmd stefnunni í tekju- og verðlagsmálum. Ríkisstj. beitir sér fyrir því, að samkomulag um tekjustefnuna á næsta ári verði gert þegar á þessu vori, og þannig að meðaltekjuhækkunin verði innan þeirra marka, sem meðalframleiðniaukningin setur, jafnframt því, sem munur hálauna og láglauna verði minnkaður. Til þess að tryggja grundvöll tekjustefnu á þessa leið, mun ríkisstj. í samráði við aðila vinnumarkaðarins og aðra hagsmunahópa þegar í stað gera ráðstafanir til þess að stöðva hækkun verðlags og framleiðslukostnaðar og afnema vísitölubindingu. Ef þörf krefur, mun ríkisstj. leita eftir sérstökum heimildum hjá þinginu. Markmið virkrar atvinnu- og hagvaxtarstefnu er að efla bæði einkaframtak og framtak opinberra aðila. Stofnun nýrra undirstöðuatvinnugreina er fyrst og fremst verkefni þjóðfélagsins í heild. Aðgerða ríkisvaldsins er sérstaklega þörf til þess að tryggja tilkomu iðnaðarfyrirtækja, sem hafa víðtæk áhrif á þjóðarhag. Sú starfsemi einkaaðila, sem stuðlar að velferð þjóðarheildarinnar, verður studd með ráðum og dáð. Hagur atvinnuástandsins er háður þróun þessarar viðleitni.“

Þetta er orðrétt tekið upp úr frásögn Huvudstadsbladet. Finnska vinstri stjórnin telur efnahagsörðugleika landsins einkum leiða af því, að Finnar séu allt of háðir einni undirstöðuatvinnugrein, skógarvinnslu eða trjáiðnaði. Þess vegna er í stefnuyfirlýsingu hinnar nýju stjórnar lögð áherzla á stofnun nýrra undirstöðuatvinnugreina og tilkomu iðnaðarfyrirtækja, sem hafa víðtæk áhrif á þjóðarhag. Skógarvinnslan stendur þó ekki undir nema 2/3 af útflutningstekjum Finnlands, þar sem við erum háðir fiskveiðum um 90–95%, og fiskveiðarnar eru ólíkt óvissari en skógarvinnslan. Þrátt fyrir þessar Finnum ólíkt hagkvæmari aðstæður, gera finnsku framsóknar- og Alþb.-mennirnir það að höfuðstefnumáli sínu að gera þegar í stað ráðstafanir til þess að stöðva hækkun verðlags og framleiðslukostnaðar með afnámi vísitölubindingar. Ef þörf krefur, sagðist ríkisstj. og mundu leita eftir sérstökum heimildum hjá þinginu. Þessara heimilda hefur finnska stjórnin nú þegar aflað sér og naut til þess atbeina stjórnarandstæðinga í hægri flokkunum, sem höfðu möguleika til að synja um heimildarlögin, af því að til þeirra þarf aukinn meiri hl.

Stundum höfum við á Alþ. að vísu mátt heyra, að almenn efnahagslögmál giltu ekki á Íslandi, en hver er það, sem í raun og veru trúir því, að samhengi kaupgjalds og verðlags sé annað í Finnlandi en á Íslandi eða íslenzkir stjórnmálamenn séu þeim mun óvitrari en finnskir, að þeir átti sig ekki á þessu samhengi. Auðvitað er sannleikurinn sá, að forystumenn hv. stjórnarandstæðinga hér hafa látið baráttuhitann hlaupa með sig í gönur. Þetta offors hefur ekki einungis brotizt fram gegn ríkisstj. og hennar tillögugerð, heldur og gegn verkalýðsforingjunum í þeirra eigin liði. Ofstækið varð aldrei augljósara en þegar þeir heimtuðu vísitölutill. sína tekna til útvarpsumr. hér á Alþ. einmitt í sama mund og skilyrði voru að skapast fyrir sáttum í verkfallinu mikla nú á dögunum. Þessar umr. heimtuðu þeir þrátt fyrir það, þótt aðaltalsmenn bæði verkalýðshreyfingarinnar, þ. á m. sjálfur forseti A. S.Í., og vinnuveitenda og sáttasemjari ríkisins lýstu þeirri skoðun sinni, að útvarpsumr. á því stigi væru lagaðar til að spilla fyrir sáttum eða a. m. k. til þess að draga þær á langinn.

Af hálfu hv. framsóknarmanna var þessi leikur þeim mun grárri sem hann var upp tekinn alveg sömu dagana og bændur á Suðurlandsláglendi þurftu að hella niður mjólk að verðmæti millj. kr. á dag að sögn talsmanna þeirra. Hæpið er að færa þessum hv. þm. til afsökunar, að þeir hafi ekki vitað, hvað þeir voru að gera, því að gamalreyndur forystumaður í þeirra hópi hafði skömmu áður sagt, þegar tíðrætt var um síendurteknar komur forystumanna deiluaðila í útvarp og sjónvarp, að þetta væri eins og þeir ætluðu að semja um lausn verkfallsins gegnum hátalara á Lækjartorgi. En því miður er það eins og sumir þessara foringja vilji ekki lengur hlusta á rödd síns eigin betra manns. Jafngerhugull maður og hingað til hófsamur eins og hinn nýi formaður Framsfl., hv. þm. Ólafur Jóhannesson, gat ekki setið á sér að hreyta eftir á ónotum í verkalýðinn fyrir að hafa ekki haldið fast við kröfuna um fulla vísitöluuppbót og sagði „samkomulagið, sem gert var, var engum til sæmdar. Ég tel það engum til sæmdar“. Slík voru ummæli þessa áður orðvara manns, svo að ekki sé minnzt á hin barnalegu brigzl Tímans í garð ríkisstj. fyrir, að hún skyldi vilja taka upp samvinnu við samtök verkalýðs og vinnuveitenda um að halda uppi fullri atvinnu í landinu. Ætla mætti þó, að í huga þeirra, sem telja atvinnuleysi eitt hið mesta böl, skipti minnstu máli, hver eigi hugmynd að hverju einstöku atriði, sem eftir atvikum þarf að kanna eða vinna að framkvæmd á til að forðast þetta böl, einungis, ef það tekst. Engum sanngjörnum manni getur heldur dulizt, að aðalviðfangsefni ríkisstj. undanfarna mánuði hefur verið að koma í veg fyrir atvinnuleysi, ekki einungis með margháttuðum stuðningi við helztu atvinnugreinar landsmanna í heild og forystu um stórvirkjanir, heldur og með fyrirgreiðslu fyrir ótal einstakra atvinnufyrirtækja, bæði um rekstur og nýjungar, svo sem eflingu innlendra skipasmíða.

Í þeirri viðleitni að forða frá atvinnuleysi, var samningurinn um lausn verkfallanna mikilsverður áfangi, ekki vegna þess að hann leysi allan vanda eða öruggt sé, að atvinnuvegirnir geti til frambúðar risið undir þeim byrðum, sem þeir þá tóku á sig. Það er komið undir framtíðarþróun, sem enginn getur séð fyrir, en því miður sýnist enn í dag vera okkur í óhag. Aðalatriðið er, að verkalýðshreyfingin sýndi skilning á, að eins og nú stendur yrði ekki komizt hjá almennri kjaraskerðingu, að kröfur yrði að laga eftir getu til að fullnægja þeim. Þá ber og að virða viðleitnina til að rétta hlut hinna verst stæðu miðað við aðra. Núv. ríkisstj. hefur ætíð óskað samstarfs við verkalýðshreyfinguna um þetta, undirtektir hennar hafa hins vegar verið misjafnar. Verulegur árangur náðist þó um vöxt kaupmáttar hjá hinum lægst launuðu með júní-samkomulaginu 1964. Kaupbreytingarnar 1966 miða í sömu átt og nú verða hinir lægst launuðu fyrir minni kjaraskerðingu en aðrir. Verulegur afsláttur verðlagsuppbóta á þessu ári byggist á þeim erfiðleikum, sem nú er við að etja. Í því felst viðurkenning á, að ekki sé unnt að komast hjá því að laga sig eftir aðstæðum. Þau sannindi eiga jafnt við nú og síðar, ef ekki rætist úr, og skulum við þó vissulega vona, að á betri veg snúist.

Svo mikill vandi er okkur á höndum og fyrirsjáanlega fram undan, að vissulega væri æskilegast, að sem víðtækast samstarf gæti tekizt til lausnar honum. Þar má hvorki metingur né rígur manna á milli vera til fyrirstöðu. En frumskilyrði samstarfs er, að skoðanir séu ekki svo gerólíkar, að í þveröfuga átt sé stefnt. Undirstaðan er, að menn hafi þor til þess að gera sér grein fyrir staðreyndunum eins og þær eru. Auðvitað eru orsakir erfiðleika okkar nú margþættar. Jafnfráleitt er að neita því, að þar eiga okkur óviðráðanlegar orsakir mesta sökina, eins og að verðbólgan á sinn skerf. En við verðbólguna er ekki unnt að ráða nema menn hafi hreinskilni til að játa, hvílíka úrslitaþýðingu kaupgjald hefur um vöxt hennar.

Og hvað sem verðbólgu líður, verðum við öll að laga lífshætti okkar eftir tekjum þjóðarheildarinnar. Eins og allir vilja sinn hlut af velgengni, kemst enginn undan áföllum, þegar þau skella á. Verðmæti til skipta aukast ekki við útgáfu verðlausra pappírspeninga. Þvílíkar tiltektir eru engin úrræði, heldur bein fjörráð. Við skulum ekki heldur mikla fyrir okkur erfiðleikana. Erfitt er að breyta til frá örum lífskjarabata til nokkurs afturhvarfs, en á meðan afturhvarfið þarf ekki að vera meira en að una við sams konar kjör og við höfðum fyrir tveimur til þremur árum og voru miklu betri heldur en þjóðin hafði nokkurn tíma búið við, er sízt ástæða til að örvænta.

En við skulum líka læra af örðugleikunum. Einn af þeim lærdómum, sem við þurfum að festa okkur í minni, er, að þótt því fari fjarri, að við séum þess umkomnir að gerast forsvarsmenn heimsbyggðarinnar, þá megum við ekki lengur standa með öllu utan við þau samtök, sem úrslitaráð geta haft um afkomu okkar. Við eigum, eftir því sem við á, að fá aðild að hinum miklu markaðsbandalögum til að njóta hlunninda þeirra og láta að okkur kveða um þær ákvarðanir, sem ráða okkar eigin afkomu. Við verðum einnig að herða sóknina fyrir fullnýtingu allra gæða landsins. Með því móti einu getum við til frambúðar skapað sæmilegt öryggi í atvinnuháttum og forðazt þær sveiflur, sem skapa okkur mesta erfiðleika nú.

Eins og ég sagði í eldhúsdagsræðu í fyrra: Á meðan við erum svo háðir sveiflum vegna afla og verðlags sem raun ber vitni, þá er ógerlegt að segja fyrir um það, hvaða úrræðum á að beita á hverri stundu. En einmitt þegar vandinn er mestur, ríður mest á því, að réttri meginstefnu sé fylgt. Stundum kunna menn raunar vegna ytri aðstæðna ekki að eiga neitt val, en ætíð, þegar fleiri kosta er völ og vafi leikur á, hvort velja beri leið frelsis eða ófrelsis, þá ber að hafa frelsið að leiðarstjörnu.