17.04.1968
Sameinað þing: 53. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1967 í B-deild Alþingistíðinda. (1909)
Almennar stjórnmálaumræður
Björn Pálsson:
Herra forseti. Stefna Framsfl. var og er að gera framleiðslukostnað atvinnuveganna sem minnstan með því að hafa lága vexti af afurða- og stofnlánum, stilla ríkisútgjöldum í hóf og forðast óþarfa álögur á atvinnufyrirtæki. Flokkurinn álítur að skipuleggja þurfi fjárfrekar framkvæmdir, svo hófs sé gætt í meðferð gjaldeyris, og ekki sé í annað ráðizt en það, sem álitið er til hagsbóta fyrir þjóðarheildina. Að öðru leyti vill flokkurinn styðja frjáls og óháð viðskipti, eftir því sem unnt er. Viðreisnarstjórnin fór aðra leið. Vextir voru hækkaðir á stofnlánum úr 4½% í 6½% og dráttarvextir tvöfaldaðir. Víxlavextir voru hækkaðir um 2–4%. Afborgunartími stofnlána var styttur úr 20 í 15 ár, skattar hækkaðir stórlega, eftirlit með fjárfestingu fellt niður og notkun gjaldeyris að mestu gefin frjáls. Þeir, sem áttu og gátu útvegað sér peninga, máttu kaupa og ráðast í það, sem þeir vildu. En annað var gert. Vald til að ákveða vexti og skráningu gengis var tekið af Alþ. og fengið Seðlabankanum, en í framkvæmd ríkisstj. Bankar, sparisjóðir og innlánsdeildir voru þvingaðar með lögum til að binda verulegan hluta af sparifé fólksins í Seðlabankanum. Gegnum lánastarfsemina skyldi þjóðinni stjórnað. Gengi krónunnar var lækkað 25% meira en raunhæft var og vísitala afnumin. Lýst var yfir því, að atvinnuvegunum skyldi komið á traustan og heilbrigðan grundvöll og útflutningsuppbætur afnumdar. Öflugan gjaldeyrissjóð skyldi stofna, svo að þeir, sem peninga hefðu, gætu ferðazt og keypt það, sem þeir vildu, og þar sem þeir vildu. Skapa skyldi traust á íslenzkum gjaldmiðli, svo gengislækkun endurtæki sig ekki. Fara skyldi sparlega með fé ríkisins. Þessar ráðstafanir nefndi stjórnin viðreisnarstefnu og skýrði sjálfa sig viðreisnarstjórn. Við sögðum, að gengið væri lækkað of mikið, vextir hækkaðir um of. Fólkið mundi ekki sætta sig við jafnmikla kjaraskerðingu. En á það var ekki hlustað. 1961 fór fólkið fram á kjarabætur og fékk 10–13% kauphækkun. Ríkisstj. svaraði með því að lækka krónuna jafnmikið. Eitt af loforðunum var brotið. Atvinnurekendur og verzlanir þurftu 13% fleiri krónur, en þær var erfitt að fá. Rekstrarfjárskorturinn fór að banka á dyrnar af fullum þunga, en síldarleitartækin komu, afli óx, verð hækkaði, skip stækkuðu og nætur dýpkuðu. Fjárl. hækkuðu um ca. 500 millj. árlega. Síldarverksmiðjur voru reknar með geysigróða 1965. Þá ruku þeir til, sem gátu, og fóru að vinna að því að stækka eða byggja síldarverksmiðjur. Ég var meðal þeirra, sem benti á, að óvarlegt væri að setja allt sitt traust á síldina, aflamagnið gæti og mundi minnka og ekki héldi verðið alltaf áfram að hækka. Síldin hefur sömu áhrif á menn og pókerspil, þeir hætta meiru og meiru. Sjálfsagt var að kaupa hæfilega mörg og stór síldarskip, rétt var að byggja verksmiðjur, ef öllu var í hóf stillt. Að kostnaðarhliðinni var hvergi gætt. Stjórnin sagði, að viðreisnin hefði tekizt, og var sjálf til fyrirmyndar í eyðslu. Árið 1966 fór ský að sjást á lofti. Þrátt fyrir óvenjuhátt verðlag og metafla, þurfti að greiða verulegar fjárhæðir frá ríkinu til sjávarútvegsins. Allt benti til, að þriðja gengislækkunin væri í aðsigi. Kostnaðarhliðin hafði gleymzt. Útgjöld fólks til ríkisins höfðu tvöfaldazt, þó bæði sé tekið tillit til gengislækkunar og fólksfjölgunar. Til að greiða gjöldin þurfti fólkið meiri tekjur, og því mátti það ekki eyða fyrst stjórnin eyddi? Íslendingar eyddu í ferðalög til útlanda fjórum sinnum meira hver maður 1966 en Bandaríkjamenn, sem ferðast þó allra þjóða mest. Bifreiðar voru keyptar fyrir 448 millj. kr. 1966 og 337 millj. árið 1967. Haldið var áfram að reisa síldarverksmiðjur og kaupa 3–400 tonna síldarskip, þó að aflinn minnkaði, aflinn fjarlægðist, lýsið lækkaði, og þó að fiskifræðingar segðu minna síldarmagn í hafinu. Ráðizt var í margþættar byggingarframkvæmdir. Seðlabankinn safnaði gjaldeyrissjóði af sparifé almennings, en rekstrarfé vantaði. Viðreisnarstjórnin var ekki í vandræðum að bæta úr því, atvinnuvegirnir voru látnir greiða ákveðin gjöld til stofnlánasjóðanna, íbúðarhúsasjóða, atvinnuleysistryggingasjóða, o. s. frv. Ég taldi upp 25 útgjaldaliði á bátaútveginn í þingræðu í fyrra, auk venjulegra rekstrarliða, suma eðlilega, aðra útvegnum óviðkomandi. Atvinnuvegirnir hættu að bera sig, kosningar nálguðust. Ríkisstj. lét setja verðstöðvunarlög. Guð á að hafa sagt: „Verði ljós,“ stjórnin sagði: „Verðlag hækkar ekki meir.“ Ríkissjóður og ríkisaðilar áttu hjá Seðlabankanum í árslok 1966 343 millj., en skulduðu 86 millj. í júlí 1967. Verðstöðvunin kostaði fé, það var einnig hætt að tala um verðstöðvun. Tilkynnt var Vestfjarðaáætlun fyrir kosningar og lán tekin hennar vegna. Óundirskrifaðir tékkar voru gefnir út vegna Norðurlandsáætlunarinnar.
Árið 1967 varð ríkisstj. fyrir því óláni að vinna kosningarnar. Svo breyttist þetta allt. Ríkisstj. vantaði peninga, ekkert mátti skera niður, atvinnuvegirnir báru sig ekki, það þurfti að leggja á marga nýja skatta. Enn breyttist þetta. Bretinn lækkaði gengið, þá voru okkar lærðu hagfræðingar fljótir að reikna, öllu var borgið, þeir lækkuðu bara gengið allt að því tvisvar sinnum meira en Bretinn, hirtu gengishagnaðinn af því, sem eftir var að nafninu til í gjaldeyrissjóði, og megnið af gengismismun af óseldum sjávarafurðum, innflutningsgjöld og söluskattur hlutu að hækka verulega að krónutölu við gengislækkunina, öllu var borgið. Minni hluti sjútvn. Nd. hélt því fram, að sjómenn, útgerðarmenn og fiskvinnslustöðvar ættu gengismismun af sjávarafurðum, og það ætti að nota meginhluta hans til að borga vexti og afborganir þessara aðila í Fiskveiðasjóði og opinber gjöld sjómanna, þá mundi sjávarútvegurinn ekki þurfa mikla aðstoð á árinu 1968. Á þann hátt væri von til, að gengislækkunin kæmi að einhverju gagni. Okkar till. voru felldar, afleiðingin var nýjar kröfur um aðstoð og fjárveitingar til sjávarútvegsins, allt að því eins miklar og árið 1967. Um leið og búið var að samþ. frv. um þessar ráðstafanir, var gengið því rangt skráð aftur. Ég hygg, að frv. hafi verið samið í Seðlabankanum.
Við skulum gera okkur það ljóst í eitt skipti fyrir öll, að það verður aldrei hægt að bæta úr rekstrarfjárskorti eða koma fjármálum þjóðarinnar í heilbrigt horf, nema fólkið geti treyst á varanlegan kaupmátt íslenzks gjaldmiðils. Það hefur það ekki gert síðan 1961. Það tekst eigi að gera gengi íslenzku kr. öruggt, nema hægt sé að reka meginútflutningsatvinnuvegina án stórfelldra styrkja. Til þess að það takist, þurfa vextir að vera mjög lágir á stofnlánum og afurðavíxlum, afnema þarf allar óþarfa álögur, sem hægt er, á atvinnuvegina og það þarf að skipuleggja gjaldeyrisfrekar fjárfestingar af vel hæfum mönnum, annaðhvort gegnum lánakerfið eða á annan hátt. M. ö. o., það þarf að gera flest öfugt við það, sem viðreisnarstjórnin hefur gert, opinberum gjöldum þarf að stilla í hóf, svo að fólkið þurfi ekki að gera óeðlilegar launakröfur, vegna þess hve nauðsynjar þess kosta mikið.
Það er rétt að viðurkenna, að núv. fjmrh. hefur sýnt viðleitni til að draga úr eyðslu, enda kennir neyðin naktri konu að spinna. Til þess að gera verulegt átak á því sviði þarf að gera margþættar og róttækar lagabreytingar, nota meiri hagsýni og betra skipulag. Það er auðveldara að auka eyðslu en draga úr henni. Fólkið er í eðli sínu gott og vill vel, en af þeim eiginleikum notast ekki, nema forráðamenn þjóðarinnar sýni gott fordæmi og fólkið skilji og trúi, að vel sé á málum haldið, því að enginn hermaður berst vel, nema hafa góðan herforingja.
Stjórnarliðar og blöð þeirra minnast nú orðið aldrei á viðreisn eða gjaldeyrissjóð, enda er hann raunverulega enginn til, því að vörukaupalán og bankaábyrgðir nema hærri upphæð. Ráðgert er að taka stórlán erlendis til að bjarga gjaldeyrisskorti í ár. Útflutningur var meiri 1967 en 1964, þó að hann væri 30% minni en 1966, því jafnhár hefur hann aldrei orðið. Ráðherrarnir endurtaka það sí og æ, hvað útflutningur 1967 hafi orðið lítill, en hann hefur aðeins orðið meiri — 30% meiri — 1966, 20% meiri 1965, það er aðeins tvisvar sinnum, sem hann hefur orðið meiri. Góður búnaður á að þola 1–2 meðalár eftir margra ára góðæri, viðreisnarhúsið þurfti ekki að hrynja vegna þess, ef grunnurinn hefði verið traustur. Ástæðan fyrir slæmri útkomu þjóðarbúsins 1967 er því fyrst og fremst of mikil eyðsla á flestum sviðum. Trúleysi á eigin gjaldmiðil, skipulagslaus fjárfesting, eftirlitslaus og óhófleg gjaldeyriseyðsla ásamt klaufalegri bankastarfsemi valda því, að þjóðin stendur nú á rústum viðreisnarinnar, því að verðlag var hagstæðara 1967 en 1964 á öllum helztu sjávarafurðum nema lýsi og eins hagstætt eða hagstæðara en 1965 á öllu nema lýsi og mjöli. Kaupfélögin hafa orðið að lækka útborgunarverð á sauðfjárafurðum til bænda vegna fjárskorts, og geta ekki útvegað þeim áburð, nema sérstakar ráðstafanir séu gerðar. Útgerðarmenn og fiskvinnslustöðvar hafa gefizt upp við að borga vexti og afborganir. Tryggingarfélögin geta ekki greitt tjónabætur vegna ógreiddra iðgjalda og lánsfjárskorts. Hvergi er lán að fá. Þeir einir eru beinir í baki, sem varlega hafa farið og lítið fjárfest.
Enginn þarf að efa, að stjórnin meinti það, sem hún sagði 1960. Vaxtavizkuna sóttu þeir til Parísar, héldu víst að aðstaða væri hér lík og hjá Frökkum. Gengisfræðsluna fengu þeir í heimabyggðum, hjá hagfræðingum og fleiri sérfróðum mönnum. Ráðh. eru greindir og góðir menn, en ég held að þeir átti sig ekki á því enn, að það, sem mistökunum veldur er heimatilbúinn iðnaður, sem varð til vegna þess að þeir fóru öfugt að öllu, líkt og klambrari, er setur handfang á hurð og lætur það snúa öfugt.
Bankar tóku virkan þátt í fjárfestingarkapphlaupinu. Innbyrtu marga sparisjóði, og reistu hús með glæsilegum innréttingum, en lán fást þar nú tæplega. Af 8 þús. millj. kr. spariinnlánum banka og sparisjóða voru 19 hundruð millj. bundnar í Seðlabankanum af því, eins og Nordal orðaði það, að innlánsbindingin var til þess að gera Seðlabankanum kleift að veita lán til forgangsþarfa og rekstrar og hafa þannig áhrif á skiptingu lánsfjár milli atvinnuveganna. M. ö. o. ríkisstj. vildi ráða yfir þessu fé öllu. Þessi ráðstöfun var þó eigi nægileg, 10% af innlánsaukningu bankanna skyldu þeir afhenda vegna framkvæmdaáætlunar ríkisstj. Auk þess hefur ríkisstj. boðið út vísitölutryggð ríkisskuldabréf, yfirboðið þannig lánastofnanir, og dregið frá þeim fé. En þetta er ekki nóg. Allir bankar hafa sína viðskiptamenn, sem ekki eiga kost að fá lán annars staðar, þegar lítið er um peninga. Sé um meiri háttar rekstur að ræða, getur lokun viðskiptabanka fyrir viðskiptamanni þýtt, að fyrirtæki hans þurfi að hætta rekstri, þótt það eigi miklar eignir. Slíkt getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir viðskipti og framleiðslu þjóðarinnar. Bankar hafa í slíkum tilfellum fengið yfirdrátt í Seðlabankanum. Fyrir þá fyrirgreiðslu ætti bankamálarh. okkar skilið að hljóta heimsfrægð, vegna viðskiptasnilli sinnar. Hann neyðir nefnilega viðskiptabankana með lögum til að leggja 1900 millj. í Seðlabankann, greiðir í vexti ca. 9%, en lánar þeim svo aftur þeirra eigið fé fyrir 16%. Þetta er ekki svo vitlaus regla, og gæti margur af henni lært. Á þennan hátt hefur Seðlabankanum tekizt að þjarma rækilega að sumum viðskiptabönkunum. Þetta m. a. er ástæðan fyrir því, að Jóhannes Nordal leggur til í ræðu 9. apríl að sameina Búnaðarbankann og Útvegsbankann, þó að hann segi, að það sé til þess að nýta betur sérhæft vinnuafl og nýtízku véltækni í bókhaldi. Ég held að við, sem búskap rekum, ættum að snúa bökum saman, hvar í flokki sem við erum, til að verja sjálfstæði Búnaðarbankans. Hann hefur gert og mun gera okkur mikið gagn. Þar er valinn maður í hverju rúmi. Það hefur aldrei verið rúm fyrir okkur í öðrum bönkum. Ég held að flesta gruni, hvaðan alda þessi er runnin. En að óreyndu verður því ekki trúað, að Sjálfstfl. styðji óskiptur þessa hugmynd a. m. k. á meðan Pétur Benediktsson á þar sæti. Við ýmsu má þá búast. Fiskveiðasjóði var t. d. stjórnað af prýði af óvenju hæfum manni, sá sjóður var settur undir yfirstjórn þriggja banka, sennilega til að flýta fyrir bókhaldinu, þeir eru hugmyndaríkir hagfræðingarnir. Því sameina þeir eigi Útvegsbankann og Landsbankann, þeirra verkefni eru svipuð? Og verð ég þó að segja, að ekki er hlutskipti útvegsmanna of gott, þó að tveir séu bankarnir. Góða nótt.