18.04.1968
Sameinað þing: 55. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1991 í B-deild Alþingistíðinda. (1915)

Almennar stjórnmálaumræður

Magnús Kjartansson:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Með viðreisnarstjórninni var tekinn upp sá háttur, að einum ráðh. var bætt við og falið það verkefni að hugsa. Hæstv. forsrh. gegnir engum sérstökum skyldustörfum í stjórnarráðinu öðrum en þeim að leggja á ráðin um heildarstefnu stjórnarinnar og skyggnast inn í framtíðina. Vissulega er þar um mikið og nauðsynlegt verkefni að ræða, en þess ber þá einnig að krefjast, að þessi hugsuður ríkisstj., hæstv. forsrh., hafi eitthvað til málanna að leggja umfram hversdagslegasta dægurmálapex, þegar hann flytur stjórnmálaboðskap í áheyrn alþjóðar. En í ræðu sinni í gær tókst hæstv. ráðh. ekki að hefja sig yfir þetta lágkúrulega stig. Hann markaði enga framtíðarstefnu, svaraði engum þeim spurningum, sem áhyggjufullir áheyrendur hans hafa borið upp undanfarna mánuði; ræðan bar því miður miklu meiri vott um hina stríðu lund hæstv. ráðh. en góða greind hans. Mér varð hún órækur vitnisburður um það, að viðreisnarskútan er nú stjórnlaust fley.

Hins vegar þótti mér það næsta nýstárlegt, að hæstv. ráðh. vék örlítið að utanríkismálum í upphafi ræðu sinnar. Því er nefnilega þannig háttað, að á þinginu í vetur höfum við Alþb.-menn oftsinnis hafið umr. um utanríkismál og af mörgum tilefnum, án þess að hæstv. ráðh. hafi fengizt til andsvara. Við höfum bent á þá augljósu staðreynd, að rök þau, sem hernámsflokkarnir sjálfir notuðu til þess að réttlæta hernámið 1951, eru nú öll úrelt orðin vegna gerbreyttra viðhorfa í alþjóðamálum og hermálum. Við höfum spurt, hvenær vænta megi nútímalegrar stefnu á þessu sviði eða hvort það sé afstaða stjórnarflokkanna, að hér skuli dveljast bandarískur her um ófyrirsjáanlega framtíð, hvað svo sem gerist í veröldinni umhverfis okkur. Við höfum bent á, að staða Atlantshafsbandalagsins sé gerbreytt, eftir að Frakkar slitu allri hernaðarsamvinnu við það og hreinsuðu land sitt af bandarískum herstöðvum, og eftir að samskipti Evrópuríkja eru orðin öll önnur en þau voru fyrir tveimur áratugum, og því verði Íslendingar að taka það til raunsærrar endurskoðunar, hvort við, vopnlaus friðarþjóð, eigum að halda áfram þátttöku í hernaðarsamtökum undir forystu þess ríkis, sem heyr ofbeldisstyrjöldina í Víetnam. Við höfum skorað á ríkisstj. að færa nútímaleg rök fyrir stefnu sinni í utanríkismálum, en láta sér ekki nægja úrelt viðhorf frá ísöld kalda stríðsins. En stjórnarliðið hefur viljað forðast að ræða þessi mál í allan vetur. Úr þess hópi hefur aðeins einn einasti maður tekið þátt í umr. um utanríkismál, hæstv. utanrrh. sjálfur. En málflutningur hans hefur borið það með sér, að hann var að sinna óhjákvæmilegri embættisskyldu fremur en hann hefði áhuga eða hefði fylgzt með þróun þessara mála síðustu árin.

Af hálfu Sjálfstfl. hefur ekki nokkur maður fengizt til þess að ræða hernámið og stefnu Íslands í utanríkismálum þrátt fyrir margítrekaðar áskoranir, sem ekki sízt hefur verið beint til Bjarna Benediktssonar forsrh., en hann er öðrum mönnum fremur höfundur hernámsstefnunnar. Í allan vetur höfum við farið fram á það, að ríkisstj. gerði formlega grein fyrir stefnu sinni í utanríkismálum, og nú mun loks von einhverrar skýrslu síðdegis á morgun, degi áður en þing verður sent heim, þegar ekkert ráðrúm gefst til könnunar og ítarlegra umr. á vegum Alþ. Þessi viðbrögð stjórnarflokkanna eru mjög athyglisverð. Þau eru sönnun þess, að ríkisstj. telur ekki fýsilegt að ræða stefnu sína í utanríkismálum. Á því sviði er þögnin talin hæfa málstaðnum bezt. Hitt er því miður borin von, að þessi þögn sé til marks um það, að valdamenn ríkisstj. séu nú að hugsa ráð sitt og fitja upp á nýjum viðhorfum. Það sannast einmitt á því dæmi, sem hæstv. forsrh. gerði að umtalsefni í gær. Síðan um miðjan febrúar hafa legið fyrir báðum deildum Alþ. till. um afstöðu Íslands til styrjaldarinnar í Víetnam. Till. þessar voru sniðnar eftir hugmyndum Ú Þants, framkvstj. Sameinuðu þjóðanna, og þeirri stefnu, sem mörkuð hefur verið af flestum ríkisstj. Vestur-Evrópu. Um skeið stóðu vonir til þess, að samstaða tækist á Alþ. um samþykkt slíkrar till. og var það raunar fastmælum bundið við Bjarna Benediktsson forsrh. sjálfan. En þegar á reyndi brást ráðh. þessu samkomulagi og bar fyrir sig tómar vífilengjur.

Á þeirri ráðabreytni getur ekki verið nein önnur skýring en sú, að hann dirfist ekki að standa að nokkurri þeirri samþykkt, sem hægt er að túlka sem gagnrýni á bandaríska utanríkisstefnu, ekki heldur þótt um sé að ræða styrjöldina í Víetnam, sem orðið hefur nærgöngulli við samvizku mannkynsins en nokkur annar atburður, sem gerzt hefur síðan heimsstyrjöldinni lauk. Það er þetta andlega ósjálfstæði, sem fyrst og fremst veldur þögn stjórnarliðsins í umr. um utanríkismál í vetur. Ráðh. eru sér þess meðvitandi, að utanríkisstefnan er ekki ákveðin á Alþ. Íslendinga, heldur á allt öðru þingi í allt öðru landi.

En utanríkismál verða ekki umflúin. Þau mæta okkur raunar hvert sem litið er. Ein meginnauðsyn Íslendinga um þessar mundir er einmitt sú að átta sig á stöðu sinni í umheiminum, hvers við þörfnumst til þess að geta staðizt samkeppni við aðrar margfalt stærri og auðugri þjóðir. Þau vandamál eru einnig í nánum tengslum við atvinnumál og efnahagsmál um þessar mundir, kjaramál og öryggi launafólks, þau viðfangsefni, sem hver einasti Íslendingur hefur velt fyrir sér síðustu mánuðina af vaxandi áhyggjum. Í vetur voru skráðir hátt á 2. þús. atvinnuleysingjar á Íslandi. Þau kjör, sem atvinnuleysi fylgja, urðu hlutskipti þúsunda manna um land allt. Slíku neyðarástandi höfðu landsmenn ekki kynnzt síðan veturinn 1951–1952. Af hverju stafaði þetta atvinnuleysi? Ástæðurnar voru ekki fyrst og fremst þeir tímabundnu erfiðleikar, sem nú er mest talað um, verðfall á erlendum mörkuðum og minnkandi afli, heldur er þeirra að leita á miklu lengra tímabili.

Á þeim miklu velmegunarárum, sem við lifðum þegar þjóðartekjur á mann jukust örar hér en í nokkru öðru landi heims og okkur áskotnuðust millj. kr. aðeins með bættum viðskiptakjörum, lét ríkisstj. Íslands hina þjóðlegu atvinnuvegi hrörna. Togarar landsmanna voru seldir eða bundnir við landfestar og enginn nýr keyptur, unz nú er svo komið, að togurum á veiðum hefur fækkað um 2/3 hluta. Sá hluti bátaflotans, sem aflar hráefnis handa fiskvinnslustöðvunum, hélt áfram að úreldast og var aðeins endurnýjaður að óverulegu leyti. Frystihúsin áttu af þessum ástæðum í sívaxandi erfiðleikum með að tryggja sér hráefni, og rekstraraðstaða þeirra varð vonlaus nema til kæmu stighækkandi styrkir úr ríkissjóði. Íslenzkur iðnaður var látinn sæta sama hlutskipti. Hinar miklu og vel búnu vélsmiðjur drógu úr athöfnum sínum og lokuðu einni deild af annarri. Skipasmíðastöðvarnar sáu verkefnin flutt úr landi, jafnt nýsmíðar sem viðgerðir. Neyzluvöruiðnaðurinn stóðst ekki samkeppni við frjálsan innflutning á hvers kyns varningi, sem áður hafði verið framleiddur innanlands, og verksmiðjurnar gáfust upp hver á fætur annarri.

Það var þessi samfellda öfugþróun, sem olli atvinnuleysinu í vetur, vaxandi samdráttur í atvinnulífinu á mestu velmegunarárum, sem Íslendingar hafa lifað.

Hitt skal enginn ætla, að hér hafi einvörðungu verið að verki getuleysi og skammsýni ríkisstj. Ástæðurnar voru miklu djúptækari og alvarlegri. Ég minnti á það áðan, að atvinnuleysið í vetur ætti enga hliðstæðu síðan 1951–1952. Eflaust eru margir búnir að gleyma, af hverju atvinnuleysið stafaði þann vetur. Hingað til lands hafði komið bandarískt hernámslið vorið 1951 og það þurfti að ráðast í miklar hernámsframkvæmdir og þurfti á þúsundum manna að halda í þeim tilgangi. Atvinnuleysið veturinn 1951–1952 var skipulagt af ráðnum hug til að sópa hundruðum og þúsundum manna í hernámsframkvæmdir með niðurlægjandi skilmálum og ósæmilegri aðbúð. Samdrátturinn að undanförnu á sér hliðstæðar orsakir. 1966 gerði ríkisstj. samning við alþjóðlegan auðhring um byggingu alúmínbræðslu hér á landi, og jafnframt var ákveðið, að Búrfellsvirkjun, sem Alþ. hafði einróma samþ. árið áður í þágu landsmanna sjálfra, skyldi að meiri hl. framleiða raforku handa hinu erlenda auðfyrirtæki. Þegar þessi samningur var gerður, kváðust stjórnarvöldin hafa miklar áhyggjur af því, sem þau kölluðu þenslu í efnahagslífinu, en stjórnarhagfræðingar líkja því við þenslu eða bólgu eða ígerð, ef landsmenn eiga kost á nægri atvinnu. Og ráðh. lýstu yfir því hér á þingi, að nú yrðu gerðar ráðstafanir til að tryggja það, að nægilegt vinnuafl yrði tiltækt til þess að ráðast í stórframkvæmdir í þágu útlendinga. Þetta er ástæðan fyrir því, að togaraflotinn hefur verið látinn dragast saman ásamt hinum minni bátum og að íslenzk iðnfyrirtæki hafa verið látin lamast eða gefast upp. Og ríkisstj. hefur náð því marki, sem hún stefndi að, ekki síður en veturinn 1951–1952. Það er ekki aðeins nægilegt vinnuafl í Straumi og við Búrfell, heldur liggja á báðum stöðum langar bænaskrár frá fólki, sem biður um að fá að vinna þar. Og þegar svo er komið, geta þeir, sem bera ábyrgðina, snúið staðreyndunum við. Nú segja þeir með landsföðurlegri sjálfumgleði, eins og þeir hafa sagt í þessum umræðum: Hvernig halda menn, að ástandið væri, ef við hefðum ekki samið við auðhringinn um, að hann fengi að reisa verksmiðju sína hér og hirða raforkuna frá Búrfellsvirkjun á gjafverði?

Niðurlæging hinna þjóðlegu atvinnuvega og atvinnuleysið voru engin óumflýjanleg örlög, heldur mannaverk í nánum tengslum við þá örlagaríku ákvörðun stjórnarvalda að hverfa frá algeru sjálfsforræði Íslendinga í atvinnumálum. Og hvað er svo fram undan á þessum sviðum? Atvinnan mikla í Straumi og við Búrfell stendur aðeins fram á mitt næsta ár. Þegar orkuverið er tekið til starfa, og alúmínbræðslan hafin, fá ekki margir menn atvinnu þar. Og hvað tekur þá við? Hafa íslenzk stjórnarvöld ekki hafizt handa um að efla hina þjóðlegu atvinnuvegi á nýjan leik til þess að taka við fjölgun þjóðarinnar og því vinnuafli, sem senn losnar frá Straumi og Búrfelli? Um það sjást engin merki nema kákið eitt. Hér á þingi er nýbúið að fella till. Alþb. um, að hafizt verði handa um endurnýjun togaraflotans með kaupum á skuttogurum. Till. Alþb. um nýsmíði fiskiskipa í innlendum skipasmíðastöðvum sefur svefninum langa í einni þn. Nýlega birtist viðskmrh. í sjónvarpi til þess að skýra frá því, að enda þótt fiskumbúðir væru nú háðar innflutningsleyfum, mætti enginn ætla, að tilgangurinn væri sá að vernda innlendan iðnað almennt. Útlendur iðnaðarvarningur skyldi áfram fá að flæða inn óhindrað og svipta landsmenn atvinnu. Ráðh. sá meira að segja ástæðu til þess að taka það sérstaklega fram með breiðu gleðibrosi, eins og hann gerði í umr. hér áðan, að hér skyldi sannarlega ekki verða neinn hörgull á dönskum tertubotnum. Sú stefna ríkisstj. að afrækja þjóðlega atvinnuvegi stendur enn óbreytt.

En hver er þá framtíðarstefna stjórnarflokkanna á sviði atvinnumála? Hún birtist á mjög ótvíræðan hátt í áróðri, sem nú er magnaður dag eftir dag í málgögnum Sjálfstfl., þess efnis, að við verðum að gera tafarlausar ráðstafanir til þess að hleypa fleiri erlendum fyrirtækjum inn í landið. Morgunblaðið hefur tekið upp hina gömlu hugmynd sína um að fá bandarískan auðhring til að reisa hér olíuhreinsunarstöð. Mjög athyglisverðar rannsóknir á sjóefnavinnslu í sambandi við hverasvæðið á Reykjanesi verða málgögnum Sjálfstfl. tilefni til þess að segja fagnandi, að þar sé svið, sem rétt sé að bjóða útlendingum falt. Þegar eru hafnar athuganir á því, hvort erlendir aðilar geti ekki að einhverju leyti tekið að sér þann hluta fiskiðnaðarins, sem fullkomnastur er hérlendis, frystiiðnaðinn. Mikil áherzla er lögð á nauðsyn þess, að við göngum í Fríverzlunarbandalagið og náum tengslum við Efnahagsbandalag Evrópu, fyrst og fremst til þess að greiða fyrir aukinni innrás erlends fjármagns. Og í áróðrinum er lögð á það vaxandi áherzla, að við megum ekki vera of kröfuharðir í samningum við hina erlendu aðila. Við sömdum um það 1966 að selja alúmínhringnum raforku við verði, sem enn er óvíst að standi undir tilkostnaði okkar. En á miðvikudaginn í síðustu viku sagði Vísir í forystugrein, að við yrðum að búa okkur undir að bjóða erlendum auðfélögum mun betri kosti. Blaðið komst svo að orði, með leyfi hæstv. forseta:

„Það hefur vakið mikla athygli, að Bretar bjóða erlendum álfyrirtækjum ríkisstyrki, 35–40% af stofnkostnaði álbræðslu, ef þau vilja byggja verksmiðjurnar í Bretlandi og efla þar með atvinnulífið þar. Þetta samsvarar því, að við hefðum gefið svissneska fyrirtækinu um þúsund milljónir króna upp í byggingarkostnað álbræðslunnar í Straumsvík. Þjóðverjar hafa lækkað raforkuverð hjá sér með ríkisframlagi til þess að freista álfyrirtækja til framkvæmda þar í landi.“

Þarna er framtíðarstefnan boðuð af óvenjulegri hreinskilni. Við eigum ekki aðeins að halda áfram að opna landið erlendum auðfélögum, heldur eigum við að laða þau hingað með fégjöfum, styrkja verksmiðjubyggingar þeirra, láta þau hafa aðgang að auðlindum okkar, ásamt meðgjöf úr ríkissjóði. Þetta er framtíðarstefna Sjálfstfl., þetta er það, sem á að taka við, þegar lokið er framkvæmdum í Straumi og við Búrfell.

Vert er að vekja athygli á því, að það eru fráleitar blekkingar, þegar rætt er um lönd eins og England og Vestur-Þýzkaland í samanburði við okkur í þessu sambandi. Þau lönd eru meðal háþróuðustu iðnaðarríkja í heimi, og erlend fjárfesting innan þeirra nemur aðeins örlitlu broti af framleiðslunni. Við erum hins vegar svo smá framleiðsluheild, að eitt fyrirtæki eins og alúmínbræðslan við Straum ber ægishjálm yfir öll fyrirtæki landsmanna sjálfra. Og eigi að halda áfram á þeirri braut, verður hin erlenda framleiðsla ríkjandi aðili í efnahagskerfinu, en athafnir landsmanna sjálfra aðeins aukageta. Slíkt ástand er óþekkt í nokkru sjálfstæðu landi í veröldinni; það tíðkast aðeins í hálfnýlendum og nýlendum.

Við höfum á undanförnum árum staðið á krossgötum, við stöndum þar enn; valið sker úr um framtíðarþróun hins íslenzka þjóðfélags. Ríkjum heims má um þessar mundir skipta í tvo meginflokka. Annars vegar eru hráefnaframleiðendur, hins vegar eru iðnaðarríki, sem vinna úr hráefninu. Þróunin í efnahagsmálum er sú, að bilið milli þessara tveggja ríkjahópa fer sífellt vaxandi, iðnaðarríkin verða stöðugt auðugri og voldugri á kostnað hráefnaframleiðendanna. Við erum í hópi hráefnaframleiðenda. Sjávarútvegur okkar framleiðir að yfirgnæfandi meiri hluta til hráefni handa öðrum, matvæli, sem aðrir fullvinna, iðnaðarhráefni, sem aðrir breyta í verðmæti, og skepnufóður. Lengi hefur verið rætt um nauðsyn þess, að Íslendingar komist á hærra iðnaðarstig, að við höfum sem mesta framleiðslu okkar fullunna vöru. En allt slíkt umtal hefur strandað á áhugaleysi og smáum sjónarmiðum stjórnarvalda, sem skort hefur viljafestu og stórhug til þess að ráðast í slíka umsköpun og tryggja þá miklu fjármögnun, sem til þess þarf. Sú stefna, sem nú er boðuð með sívaxandi innrás erlendra fyrirtækja, er alger uppgjöf á þessu sviði. Með henni er verið að dæma Íslendinga til frambúðar. Með samningunum við alúmínhringinn vorum við aðeins að selja raforkuna, einhverja dýrmætustu auðlind okkar, sem hráorku, eftirláta öðrum að breyta henni í markaðsverðmæti og flytja ágóðann úr landi. Þegar rætt er um að laða fleiri erlend fyrirtæki til landsins, er aðeins verið að bjóða þeim að hagnýta sér íslenzk hráefni, íslenzka hráorku og íslenzkt vinnuafl.

Þau vandamál, sem tengd eru framtíð hinna þjóðlegu atvinnuvega, eru brýnustu og örlagaríkustu viðfangsefni þjóðarinnar um þessar mundir. Þetta eru þau vandamál, sem hver hugsandi maður veltir fyrir sér og hefur áhyggjur af. En mér hefur lengi verið það undrunarefni, hvað íslenzkir atvinnurekendur láta bjóða sér af stjórnarstefnunni, hvað þeir sætta sig við vesælt hlutskipti. Sú var tíð, að þeir þóttust vera menn með mönnum í þessu landi. En hvar er nú baráttuhugur og reisn íslenzkra togaraeigenda og annarra útgerðarmanna, frystihúseigenda og iðnrekenda, sem sjá fram á, að þeim er ætlað síminnkandi aukahlutverk við stjórn atvinnumála á Íslandi. Þessir menn eru ómyrkir í máli um stjórnarstefnuna, þegar rætt er við þá í einrúmi, en í viðskiptum við stjórnarvöldin láta þeir allt yfir sig ganga og hugsa um það eitt að hirða þá mola, sem hrjóta af veizluborði annarra. Og hvað hugsa leiðtogar Alþfl. um þessar mundir? Þeir gátu ímyndað sér, að þeir væru að þoka áfram stefnumálum flokksins, á meðan lánið lék við viðreisnarstjórnina, en hvað á ástandið nú skylt við stefnu og markmið Alþfl.? Ætlar Alþfl. lengi enn að binda nafn sitt sérstaklega við mesta niðurlægingartímabil í sögu íslenzks sjávarútvegs?

Ég spyr um þessa áhrifaaðila í þjóðfélaginu, vegna þess að tómlæti þeirra og geðleysi er í vaxandi ósamræmi við afstöðu almennings í landinu, fólksins sjálfs. Engum fær dulizt, að almenningur á Íslandi er nú að endurmeta viðhorf sín í ljósi reynslunnar. Þetta endurmat hófst þegar í kosningunum í fyrra með hinu stórfellda fylgishruni Sjálfstfl. í Reykjavík. Það birtist á afar skýran hátt í verkfallinu mikla í vetur, þar sem launafólk úr öllum flokkum stóð hlið við hlið í órofa heild. Í þeirri samstöðu kom ekki aðeins fram einhugur um réttlætiskröfur launafólks, heldur vantraust á stefnu ríkisstj., ótrú á, að unnt sé að leysa vandamál þjóðarinnar skv. kennisetningum hennar. Hér á Íslandi er nú jarðvegur í almenningsálitinu og í öllum flokkum, til þess að hnekkja stjórnarstefnunni. Þar skortir aðeins nægilega öfluga, pólitíska forystu. Allt of margir áhrifamenn eru enn bundnir við úrelt og gömul og smá sjónarmið. Það er kominn tími til, að flokkabönd riðlist í alvöru og að nauðsynin sjálf móti nýja samstöðu allra þeirra, sem vilja efla þjóðlega atvinnuvegi, sem trúa á framtíð sjálfstæðs þjóðríkis á Íslandi. Og við skulum gera okkur það ljóst, að þrátt fyrir alla örðugleika er engin ástæða til svartsýni, ef unnt er að tryggja breytta stjórnarstefnu. Þrátt fyrir þá miklu erfiðleika á síðasta ári, sem mest er talað um, er niðurstaða Efnahagsstofnunarinnar sú, að þjóðartekjur urðu þá 23760 millj. kr., tæpir 24 milljarðar. Meðaltekjur á hvert mannsbarn á landinu voru þannig um 120 þús. kr., meðaltekjur á hverja fjölskyldu um hálf milljón kr. Eftir þetta erfiðleikaár vorum við enn þá í hópi auðugustu þjóða heims að því er varðar þjóðartekjur á mann, aðeins örfáar þjóðir stóðu okkur jafnfætis eða framar, allur þorri þjóða langt að baki. Fyrir því eru engin almenn rök, að þjóðfélag með þennan efnahagsgrundvöll geti ekki þróazt á sjálfstæðan hátt og haldið velli í samanburði við aðra, ef við áttum okkur á þeirri meginnauðsyn, að við verðum að taka upp íslenzkan áætlunarbúskap og miða stefnuna við þarfir okkar sjálfra, en engar úreltar hagfræðikreddur. Ef öfugþróunin heldur áfram, er það einvörðungu sjálfskaparvíti, og þá ber ríkisstj. ekki aðeins ábyrgðina, heldur einnig þeir, sem vita betur, en skortir þrek til að breyta vitneskju sinni í athafnir.