18.04.1968
Sameinað þing: 55. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1998 í B-deild Alþingistíðinda. (1916)
Almennar stjórnmálaumræður
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Góðir áheyrendur. Nú er veturinn senn liðinn, harður vetur og snjóþungur með landföstum ís. Vetrarveðrin hafa orsakað slys og valdið efnalegu tjóni á sjó og landi. Segja má, að síðustu þrír veturnir hafi verið mjög harðir miðað við það, sem verið hefur síðustu áratugina. Vorin 1966 og 1967 voru köld og grasspretta var því með seinna móti og nokkuð bar á kali í túnum. Nú vona allir, að komandi vor verði gott og bæti upp liðinn vetur.
Langir vetur með vorharðindum hafa lengi gert lífsbaráttuna erfiða hér á landi. Mörg árin féll búfénaður vegna harðinda og fóðurskorts. Sem betur fer eru tímarnir breyttir. Nú er fénaðinum komið fram með innfluttu kjarnfóðri, sem oft reynist að vísu dýrt, en gott þykir að grípa til, þegar innlent fóður er takmarkað. Ný tækni til veiða hefur ekki notið sín vel á liðnum vetri. Frá því í okt. til marzloka hefur óvenjulítill afli borizt á land vegna ótíðar og storma. Þótt sæmileg veiði hafi verið í aprílmánuði, er hætt við, að vetraraflinn verði með minnsta móti að þessu sinni. Verðfall útflutningsafurðanna skall á um mitt ár 1966 og má segja, að ýmsar útflutningsvörur, svo sem lýsi, hafi enn lækkað síðustu mánuðina. Þegar aflaleysi og verðfall útflutningsvörunnar fylgist að, verður þjóðartjónið mjög tilfinnanlegt. Verðlækkun á útflutningsvörum landbúnaðarins hefur einnig orðið mikil. Hefur ullarverð t. d. lækkað um allt að 100% frá því, sem var 1965. Gærur og aðrar skinnavörur hafa einnig lækkað mikið í verði. Bezti markaðurinn fyrir dilkakjötið hefur lokazt. Norðmenn keyptu um 7000 tonn af dilkakjöti frá Íslandi 1966 fyrir mjög hagstætt verð, en sá markaður er ekki lengur fyrir hendi. Það, sem hér hefur verið nefnt, verðlækkun afurðanna erlendis samfara aflaleysi, varð þess valdandi, að þjóðin missti 1/3 af útflutningstekjunum 1967 eða allt að 2 þús. millj. kr., og sennilega nokkru meira, ef með er talin skreiðin, sem í landinu liggur óseld og engin vissa er fyrir að markaður finnist fyrir. Enn er ekki vitað, hvort verðlagið breytist til batnaðar, sjálfsagt er að lifa í þeirri von, þótt nauðsyn beri til að búa sig undir að taka á móti óhagstæðum viðskiptakjörum fyrst um sinn.
Íslenzkt þjóðfélag er á margan hátt byggt upp með frumstæðum hætti. Enn er treyst að mestu á sjávaraflann. Yfir 90% útflutningsvörunnar eru sjávarafurðir. Þegar sjávarafli bregzt, samfara stórkostlegri verðlækkun, væri eðlilegt, að þjóðfélagsbyggingin riðaði við slíkt áfall efnahagslega og atvinnulega séð. Óhjákvæmilegt er, að þetta hafi nokkur áhrif á tekjumöguleika almennings. Það má segja, að vel hafi tekizt að standa af sér þá utanaðkomandi erfiðleika, sem steðjað hafa að þjóðinni.
Kemur það til af því, að á undanförnum árum hefur verið haldið vel á málunum. Atvinnutæki hafa verið keypt til landsins og afkastageta atvinnuveganna stórum aukizt. Gjaldeyrisvarasjóði var safnað, og hefur þjóðin notið þess, þegar árferði versnaði. Grundvöllur var lagður að stærstu framkvæmdum í sögu þjóðarinnar, stórvirkjun í Þjórsá, ásamt byggingu álverksmiðjunnar. Kísilverksmiðjan er tekin til starfa við Mývatn, og undirbúin er stækkun Áburðarverksmiðjunnar, lagður hefur verið grundvöllur að stórauknum skipasmíðum innanlands, og að því er keppt, að fiskibátar og stærri skip verði smíðuð í landinu. Unnið er að undirbúningi margvíslegra framkvæmda annarra á sviði iðnaðar, landbúnaðar, sjávarútvegs, verzlunar og samgangna. Unnið er að stærstu framkvæmdaáætlun í vegamálum, sem nokkru sinni hefur þekkzt í landinu. Með fjölbreytni í atvinnulífinu og traustum atvinnugreinum er mögulegt að tryggja öllum atvinnu og góð lífsskilyrði. Nauðsyn ber til, að í landinu megi starfa fjölbreyttur atvinnurekstur, sem er arðbær fyrir þjóðarbúið. Á því veltur efnaleg velgengni þjóðarbúsins og þjóðfélagsþegnanna.
Eðlilega á atvinnureksturinn við erfiðleika að etja í árferði því, sem verið hefur um sinn. Tilkostnaður við fiskiðnaðinn er næstum því sá sami, hvort sem báturinn kemur með 2 tonn að landi eftir róðurinn eða 20 tonn. Tilkostnaðurinn við landbúnaðarframleiðsluna hefur aukizt síðustu 2–3 árin vegna versnandi tíðarfars. Landbúnaðarframleiðslan hefur aukizt á undanförnum árum, þótt fólkinu, sem við landbúnaðarstörf vinnur, hafi farið fækkandi. Á síðustu 10 árum hefur kjöt- og mjólkurframleiðslan aukizt um 50%. Búin hafa stækkað, litlar jarðir eru sameinaðar og skilyrði til búskapar þannig bætt, samfara aukinni ræktun og vélvæðingu. Hagur bændastéttarinnar í heild hefur batnað mjög mikið á þessu tímabili og framkvæmdir í landbúnaðinum aldrei verið eins stórstígar í ræktun, byggingum og véltækni. Kaup bænda á árunum 1960–1966 hefur hækkað miklu meira en kaup þeirra stétta, sem tekjur bænda miðast við, sbr. Árbók landbúnaðarins 1966. Þetta var nauðsynlegt að gera, þar sem hlutur bænda var miklu minni undir stjórn framsóknarmanna en annarra stétta. Árið 1965 höfðu bændur því sem næst jafnréttisaðstöðu, en tekjur þeirra eru mjög misjafnar eftir sýslum og landshlutum. Tíðarfarið síðustu 2 árin hefur leitt til þess, að bændur hafa ekki fengið þá tekjuaukningu nettó, sem búast hefði mátt við. Enn eru margir bændur með það lítil bú, að þeir hljóta að verða tekjulágir, og verður tekjumismunur bænda því mjög mikill. Árið 1966 voru meðal nettótekjur bænda í einni sýslu 240 þús. kr., en í annarri 157 þús. kr. Mismunurinn er 83 þús. kr. Þetta segir sína sögu og gefur að nokkru leyti skýringu á því, hvers vegna meðaltekjur bænda miðað við landið allt eru ekki hærri en raun ber vitni. Sjálfstæðismenn gengust fyrir því að tryggja bændum fullt verð fyrir útflutta búvöru.
Mega útflutningsuppbætur nema 10% af heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar. Áður en þessi ákvæði voru lögfest, urðu bændur að bera hallann af lágu útflutningsverði. Árið 1957–1958 vantaði sum mjólkurbúin 10–12% á verðið vegna útfluttra osta, sem uppbætur fengust ekki á. Þá réðu framsóknarmenn stefnunni í landbúnaðarmálum og fjármálum. Þá var algjörlega neitað að rétta bændunum hjálparhönd. Að þessu sinni hefur framleiðsluráð hækkað verðjöfnunargjald á mjólk um 13 aura á lítra og dilkakjötið um 3 kr. á kíló. Þetta gerir framleiðsluráð vegna þess, að talið er, að útflutningsuppbæturnar nægi ekki að þessu sinni. Fyrir mjólkina 1967 ætti þó að fást fullt verð að mestu, þar sem fullar bætur hafa verið greiddar á útfluttar mjólkurvörur það ár. Ef útflutningsuppbæturnar nægja ekki á yfirstandandi verðlagsári, stafar það af aukinni framleiðslu og lækkandi markaðsverði erlendis.
Það er vitanlega mjög alvarlegt, að markaðsverð erlendis hefur lækkað. Hitt er ekki eins alvarlegt og margir ætla, þótt framleiðslan aukist. Það er betra að vanta lítilsháttar á fullt verð framleiðslunnar, vegna þess að mikið er framleitt, heldur en að fá fullt verð fyrir litla framleiðslu. Útflutningsuppbætur á þessu ári verða um 260 millj. kr., auk þess sem gengishagnaður af útfluttum búvörum verður 40–50 millj. kr., sem gengur til uppbótar, aðallega á ull og gærur. Stjórn Stéttarsambands bænda hefur lagt til að taka upp skömmtun á fóðurbæti og skattleggja þann hluta fóðurmjölsins, sem notað er umfram tilskilinn skammt. Áður en sú hugmynd verður lögfest, þarf margt að íhuga í sambandi við hagsmuni bændastéttarinnar, ef hún verður þá nokkurn tíma lögfest, sú tillaga.
Talað hefur verið um, að úrskurður yfirnefndar s. l. haust hafi verið bændum óhagstæður. Út í það skal ekki farið sérstaklega við þetta tækifæri. Ég hef oft haldið því fram, að það fengist betri útkoma með samkomulagi í 6 manna n., ásamt viðræðum við ríkisstj., heldur en að láta málin fara í úrskurð, hverjir sem yfirnefndina skipa. Frá því í haust hefur mjólkurlítrinn hækkað um 48 aura og dilkakjötið 4.34 kr. kg. Það er því rangt, sem sagt hefur verið, að bændur fái lægra verð fyrir afurðirnar á þessu ári heldur en á s. l. ári. Jafnvel þótt framleiðsluráð geti engu skilað af verðjöfnunargjaldinu, ættu bændur eigi að síður að fá nokkra hækkun í sinn hlut. Áburðarverðið hækkar að þessu sinni um 19.5%. Því var haldið fast að bændum, að það mundi hækka um a. m. k. 30%. Seðlabankinn mun að þessu sinni veita sérstaka fyrirgreiðslu til þess að auðvelda bændum áburðarkaupin.
Erfitt árferði kemur við bændur ekki síður en aðra landsmenn. Það er þó víst, að tekjur bænda eru minni sveiflum háðar en margra annarra stétta. Lög um framleiðsluráð landbúnaðarins og verðlag búvöru eru bændum mikil trygging gegn stóráföllum í verðlagi og tekjumissi. Árið 1966 voru þessi lög endurbætt og lýstu framsóknarmenn ánægju sinni yfir þessari lagasetningu, ekki síður en við sjálfstæðismenn. Það vantar enn nokkuð á, vegna þess að tími hefur ekki til þess unnizt, að lögin séu framkvæmd eins og ætlazt er til, sbr. ákvæði um vinnutímamælingar og annað, sem ætlazt er til, að verðlagið verði byggt á.
Í gærkvöld minntust stjórnarandstæðingar á verkföllin í vetur og talað var um, að 25 þús. manns hafi staðið að verkföllunum. Það má merkilegt heita, að til þessara verkfalla var stofnað með því, að örfá hundruð manns létu vilja sinn í ljósi og gáfu heimild til vinnustöðvunar. Verkföllin gerðu þjóðinni í heild mikið tjón og einnig þeim, sem lögðu niður vinnu. Það er talið af þeim, sem bezt þekkja til, að launþegar hefðu náð eins góðum samningum án verkfalla, ef það hefði verið reynt í alvöru áður en til verkfallanna kom. En þetta þýðir ekki að sakast um úr því sem komið er, en af því mætti eigi að síður nokkuð læra. Stjórnarandstæðingar tala um hlut ríkisstjórnarinnar í þessari deilu. Ríkisstj. bar sáttarorð á milli og fullyrða má, að fyrir atbeina hennar og ekki sízt forsrh. leystist deilan fyrr en ætla mætti, eftir því sem til hennar var stofnað. Það er og álit flestra, að lausnin hafi verið eftir atvikum hófleg og farsæl. Sjálfsagt er að þakka þeim, sem að samningunum stóðu, bæði fulltrúum vinnuveitenda og launþega, fyrir góðan vilja til þess að finna lausn á deilunni. Stjórnarandstæðingar fluttu þáltill., sem þeir sögðu, að væri til lausnar á verkföllunum, og vildu fá útvarpsumr. um hana á meðan á samningunum stóð. Það var álit sáttasemjara ríkisins, forseta Alþýðusambandsins og fulltrúa vinnuveitenda í samninganefndinni, að það gæti haft mjög alvarlegar afleiðingar á samkomulagstilraunirnar, sem yfir stóðu, ef á Alþ. væri verið að rífast um fram komnar till. og aðilar að koma með yfirlýsingar og fullyrðingar, sem síðan þætti ekki fært að víkja frá. Það leit þannig út, að þeir, sem fluttu till., vildu koma í veg fyrir lausn vinnudeilunnar og kynda ófriðarbál, svo upplausn, langvarandi vinnustöðvun og vandræði væru ríkjandi. Það var ekki hugsað um hagsmuni fólksins, sem í vinnudeilunni stóð og vantaði peninga fyrir brýnustu lífsnauðsynjum. Það skipti ekki máli, þótt mjólkinni væri hellt niður. Frá sjónarmiði tillögumanna virtist mega fórna hagsmunum almennings á altari valdastreitunnar og pólitísks ofstækis.
Hagsmunir almennings voru í veði. Ríkisstj. stuðlaði að lausn vandans og mun eftirleiðis eins og hingað til stuðla að góðri samvinnu við stéttasamtökin. Það er stefna ríkisstj. að efla atvinnulífið og tryggja stöðuga og góða atvinnu fyrir alla. Það er mikilvægasta verkefnið, að uppbygging atvinnuveganna geti tekizt og lífskjör almennings megi verða sem bezt. Því getur enginn neitað, að á síðustu árum hefur hagur almennings farið batnandi í landinu og fólk hefur getað veitt sér margt af því, sem það varð áður að neita sér um.
Stjórnarandstæðingar minntust lítillega á vegamál og skattlagningu í sambandi við breytingu á vegalögum. Þau gjöld, sem nú eru lögð á bifreiðar landsmanna, fást endurgreidd með því, að vegirnir verða betri, slit bifreiðanna minna en áður, auk minni eyðslu á brennsluefni. En um gerð varanlegra vega hefur mikið verið rætt og ritað undanfarna daga. Stjórnarandstæðingar vilja ekki, að fjölförnustu vegirnir verði bættir, eins og unnið er að, þess vegna neita þeir um tekjur í því skyni. Vilja þeir aðeins, að tekið verði lán til aukinna framkvæmda og það fé tekið til vegagerðar, sem búið er að ráðstafa á fjárl. Þar er sýndarmennska stjórnarandstöðunnar augljós. Margir munu fagna því, að nú verður hafizt handa um varanlega vegagerð. Það þolir ekki bið, að varanlegt slitlag verði sett á fjölförnustu vegina.
Karl Guðjónsson talaði um vatnsveitu Vestmanneyinga í gærkvöldi. Hann sagði, að vatnsveitan fengi ekki eðlilega fyrirgreiðslu hjá stjórnvöldunum. Hann nefndi 2.7 millj. kr., sem vatnsveitunni væri skammtað. Sannleikurinn er sá, að þeir, sem bezt þekkja, bæjarstjóri Vestmannaeyja, forseti bæjarstjórnarinnar og Guðlaugur Gíslason, 3. þm. Sunnl., munu hafa allt aðra sögu að segja en Karl Guðjónsson. Ég minnist þess, að bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum og forseti bæjarstjórnar töluðu við mig í vetur um vatnsveituna. Fann ég ekki annað en þeir væru ánægðir með alla fyrirgreiðslu í því máli. Vatnsveitan fær ríkisábyrgð fyrir lánum. Hún fær ríkisstyrk árlega. Hún fær sérstaka fyrirgreiðslu í sambandi við tollaafgreiðslu á innfluttum vatnsleiðslupípum og öðru því tilheyrandi. Það er slæmt, þegar menn taka að tala um mál, sem þeir hafa ekki kynnt sér.
Málflutningur Karls Guðjónssonar um kísilverksmiðjuna er í samræmi við þröngsýni annarra stjórnarandstæðinga, þegar verið er að koma upp nýjum atvinnugreinum í landinu. Vonir standa til, að kísilleðjan á botni Mývatns geti gefið þjóðarbúinu árlega marga milljónatugi króna í dýrmætum gjaldeyri og veiti fjölda manns atvinnu. Þetta er sama og með álbræðsluna. Framsóknarmenn sögðu í gærkvöld, að þeir út af fyrir sig væru ekki á móti álbræðslu í landinu, heldur hefði þeim þótt samningar við Swiss Aluminium óhagstæðir og því hafi þeir verið á móti þessari framkvæmd, stórvirkjun í Þjórsá og byggingu álbræðslu. Þegar álbræðslan er komin í fulla stærð, mun hún gefa árlega um 100 millj. kr. í skatta. Meginhluti þessa fjár rennur í Atvinnujöfnunarsjóð. Verkefni Atvinnujöfnunarsjóðs er að byggja upp atvinnulífið víðs vegar um landið og skapa þannig skilyrði fyrir vinnandi fólk til góðra lífskjara og öruggrar atvinnu. Þá mun þjóðin fá árlega frá álbræðslunni allt að 500 millj. kr. í erlendum gjaldeyri, sem vissulega munar um í okkar þjóðarbúskap. Auk þess verður raforkuverð til venjulegra nota mun ódýrara vegna álbræðslunnar. En afturhaldið og þröngsýnin, sem tröllríður stjórnarandstöðunni, var á móti jafnsjálfsögðum framkvæmdum og hér hafa verið nefndar.
Framsóknarmenn tala oft um sparnað og nauðsyn þess að breyta um stefnu. Sparnaðarviðleitnin hjá þeim kemur fram með einstökum hætti. Þannig hafa þeir á þessu þingi flutt þáltill. um skipun mþn. og væru þær samþykktar, fengju 50 menn vel launaðar stöður fyrir tilstilli þeirra. Framsóknarmenn vilja láta Alþ. sitja a. m. k. 10 mánuði á ári. Þeir vilja láta stjórnmálaflokkana fá launað starfslið. Hvenær sem fram kemur till. um aukin útgjöld úr ríkissjóði greiða framsóknarmenn henni atkv. Þetta er framlag þeirra í verðlags- og dýrtíðarmálum. Þannig mætti halda áfram að minna á úrræði framsóknarmanna til sparnaðar.
Þjóðin mun hafa hlustað á útvarpsumr. að þessu sinni og gert sér grein fyrir málflutningi manna. Gagnrýni stjórnarandstöðunnar er lítils virði, vegna þess að hún hefur ekkert jákvætt til málanna að leggja. Málflutningur stjórnarandstæðinga byggist á nöldri og úrtölum, svartsýni á framtíðina, þröngsýni og vonleysi. Sá hugsunarháttur, sem liggur að baki slíku tali, er ekki til góðs í neinum skilningi. Það, sem farsælast er fyrir þjóðina í nútíð og framtíð, er hæfileg bjartsýni, sem byggist á raunhæfum úrræðum, heilbrigðum framkvæmdum og þjóðhollum verkefnum, sem styrkja mega efnahagslegar undirstöður þjóðlífsins. Með framsýni og árvekni, sem nauðsynleg er í stjórnmálum þessarar þjóðar, mun takast að sigrast á þeim erfiðleikum, sem að steðja um sinn. Það er oft talað um, að þjóðinni fjölgi og því ber vitanlega að fagna. En samfara því er skylt og nauðsynlegt að hafa framsýni og úrræði til þess að auka atvinnumöguleikana, svo að fjölgandi þjóðfélag hafi ávallt nægileg verkefni til að vinna að. Með stefnu frelsis og framtaks mun að því verða unnið að skapa traust athafnalíf með fjölþættum atvinnurekstri og tryggja þannig efnahagslegt öryggi þjóðarinnar. Góða nótt.