18.04.1968
Sameinað þing: 55. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2037 í B-deild Alþingistíðinda. (1925)

Almennar stjórnmálaumræður

Lúðvík Jósefsson:

Herra forseti. Góðir hlustendur. Hæstv. viðskmrh. flutti hér í kvöld býsna einkennilega ræðu. Hann þóttist hrekja með nokkrum orðum allan málflutning stjórnarandstæðinga, ekki er nú að spyrja að kappanum þeim. Hvað var það svo, sem hv. ráðh. sagði? Hann fullyrti, að kaupmáttur tímakaups verkamanna hefði hækkað á undanförnum árum, og bætti því síðan við, að sannleikskorn væri hins vegar í því, að kaupið hefði hækkað of mikið. Fullyrðingar ráðh. um kaupmátt tímakaupsins eru rangar, sé miðað við hreint, umsamið tímakaup, án þess að reikna sérstaklega inn í kaupið vinnutímastyttinguna. Sá kaupmáttur tímakaups, sem var 100 árið 1959, var aðeins 97.7 árið 1966. Það er svo athyglisverð yfirlýsing ráðh. Alþfl., að kaup verkafólks hafi hækkað of mikið að hans dómi. Það er sem sagt hans skoðun, að kaup, sem nemur um 120 þús. kr. á ári fyrir 8 stunda vinnu alla virka daga ársins, sé of hátt. Hæstv. viðskmrh. tók að sér að verja vaxtaokrið og lánsfjárskortinn. Hann sagði hiklaust, að eðlilegt væri, að vextir væru hærri hér en í öðrum löndum. Hann telur það sem sé eðlilegt, að ísl. útflutningsframleiðsla greiði 10–12% í vexti, þegar t.d. keppinautar okkar í Noregi greiða 3–5% í vexti.

Hæstv. viðskmrh. hefur lengi reynzt lipur í því að verja, hvað sem um hefur verið að ræða, — þannig hefur hann tekið að sér að verja hverja fjarstæðuna af annarri. Hann telur t. d. ekki eftir sér að verja innflutning á dönskum tertubotnum og segir einfaldlega, að þeir þyki góðir; og hví skyldi fólkið ekki mega kaupa góða tertubotna? Hæstv. viðskmrh. telur nauðsynlegt að lækka kaup almennings til þess að draga úr gjaldeyrisnotkun, en hann vill ekki draga úr algerlega óþörfum innflutningi, nema þá að bein framleiðslufyrirtæki eigi í hlut.

Þegar við Alþb.-menn leggjum til, að tekinn verði upp áætlunarbúskapur, þar sem reynt verði að gera sér nokkra grein fyrir því fyrirfram, hvað hagstæðast sé að framkvæma, og til hvers fjármunum þjóðarinnar eigi helzt að verja, er það kallað, að allt eigi að hneppast í fjötra. Áætlunarbúskapur hefur verið stefnumál Alþfl., en nú í íhaldsþjónustunni reynir hæstv. viðskmrh., Gylfi Þ. Gíslason, að sverta þetta stefnumál Alþfl. Það er ljóst af þessum umr., að till. sú, sem við Alþb.-menn og framsóknarmenn fluttum í vetur um lausn verkfallanna miklu, verkfallanna, sem á skullu, vegna þess að ríkisstj. felldi úr lögum vísitölutryggingu á kaup, hefur bögglazt allmjög fyrir þeim ríkisstjórnarmönnum. Nú reyna þeir að afsaka neitun sína á því að ræða till. okkar í alþjóðaráheyrn með því, að það hefði getað tafið fyrir lausn deilunnar, og bera m. a. fyrir sig álit forstjóra Vinnuveitendasambandsins, og, að því er þeir segja, forseta ASÍ. Till. okkar var um það að leysa deiluna tafarlaust á þeim grundvelli, sem þá lá fyrir, að verkalýðssamtökin vildu fallast á. Till. okkar var flutt í nánu samráði við marga helztu forystumenn verkalýðssamtakanna, enda lýsti Eðvarð Sigurðsson, formaður Verkamannasambands Íslands og jafnframt formaður stærsta verkalýðsfélagsins í landinu, því yfir í þessum umr. í gærkvöld, að hann hafi talið þessar umr. sjálfsagðar og æskilegar og tillöguflutningurinn hafi beinlínis flýtt fyrir lausn deilunnar.

Það er athyglisvert, að næstum að segja eina afsökunin, sem allir ráðh. hafa fram að færa, til réttlætingar því, hve hörmulega hefur tekizt til um framkvæmd stjórnarstefnunnar á flestum sviðum er, að á s. l. ári hafi orðið aflabrestur og verðhrun á erlendum mörkuðum. Með þessari skýringu á öll afglöp að réttlæta. Með þessari afsökun er ruglað saman óskyldum hlutum. Fyrir tveimur árum hömruðu þessir sömu ráðh. á því, að sú mikla atvinna, sem var hér á landi þá, vegna mikils fiskafla, og það tiltölulega háa kaup, sem þá fékkst, vegna hins háa verðlags á framleiðslunni, væri að þakka stjórnarstefnunni. Stjórnarstefnan þá átti auðvitað engan þátt í góðærinu, og gjaldeyrissjóðurinn, sem þá varð til, myndaðist vegna góðærisins, vegna hins mikla afla og hins góða verðlags, en ekki vegna stjórnarstefnunnar. Þetta sést bezt nú, þegar gjaldeyrissjóðurinn hrynur niður á einu ári, þrátt fyrir óbreytta stjórnarstefnu, en sem auðvitað er bein afleiðing af minni framleiðsluverðmætum. Stjórnarstefnan hefur auðvitað aldrei ráðið neinu um fiskirí eða um verðlag á okkar afurðum á erlendum mörkuðum, en stjórnarstefnan hefur ráðið því, að hér eru okurháir vextir hvílandi á okkar framleiðslu. Stjórnarstefnan hefur ráðið því, að lánstími stofnlána hefur verið styttur. Stjórnarstefnan hefur ráðið því, að hér hafa verið lögð á óheyrilega há útflutningsgjöld. Stjórnarstefnan hefur ráðið því, að allt verðlag hér innanlands hefur farið ört hækkandi, vegna hins svo nefnda viðskiptafrelsis, og stjórnarstefnan hefur ráðið því, að við höfum sóað óhæfilegum fjármunum í skipulagslausa fjárfestingu. Það er þessi ranga stefna, sem verður ekki afsökuð með því, að afli hafi minnkað eða verðlag hafi fallið á erlendum mörkuðum.

Í umr. í gærkvöld sagði hæstv. sjútvmrh. að leggja þyrfti ríka áherzlu á það, að vinnufriður gæti haldizt, sérstaklega við framleiðslustörfin. Hann sagði, að vinna yrði að því, að aukið traust milli sjómanna og verkafólks annars vegar gæti skapazt og atvinnurekenda í framleiðslunni. Og hvaða ráð ætlar svo þessi hæstv. ráðh. að hafa til þess að tryggja vinnufrið og skapa hið æskilega og gagnkvæma traust? Jú, hans leið er sú að knýja fram á Alþ. lög um hækkun á útflutningsgjöldum á sjávarafurðum og raska þannig umsömdum launagrundvelli um kjör sjómanna. Ráðh. er einmitt nú þessa dagana að knýja fram beina kauplækkun síldveiðisjómanna með því að lækka síldarverðið, en það verður óhjákvæmileg afleiðing af stórkostlegri hækkun útflutningsgjaldanna. Samtök síldveiðisjómanna hafa harðlega mótmælt þessari lagasetningu og varað við afleiðingum hennar. Ráðh. hlustar ekki á slíkar aðvaranir, en segist hins vegar vænta þess, að vinnufriður haldist og traust fari vaxandi á milli sjómanna og útgerðarmanna. Heldur ráðh. virkilega, að nokkur maður taki svona ræðuhöld alvarlega, þegar þannig er staðið að málum? Hér er á ferðinni sams konar leikur og leikinn var í vetur í málefnum verkafólks. Þá felldi ríkisstj. úr lögum ákvæði um vísitölubindingu á launum og skellti jafnframt yfir stórfelldum verðhækkunum. Síðan þóttist stjórnin alsaklaus og sagði að málið yrði að gerast upp af aðilum á vinnumarkaðinum. Sú ríkisstj., sem þannig hagar sér gagnvart verkafólki og sjómönnum, getur varla búizt við því, að vinnufriður haldist.

Í umr. í gærkvöld vék hæstv. forsrh. nokkuð að byggingarframkvæmdunum í Breiðholti og samningum þeim, sem ríkisstj. gerði við verkalýðsfélögin um þau mál. Hæstv. ráðh. sagði, að ríkisstj. hefði staðið við alla samninga í þessum efnum. Samningar um þessar byggingar voru gerðir í júlí 1965 í lok verkfalls. Loforð ríkisstj. var, að byggðar skyldu, skv. sérstakri áætlun, 250 íbúðir á ári í næstu 5 ár eða alls 1250 íbúðir með mjög hagstæðum kjörum. Nú hefur verið upplýst á Alþ., að enn hafi ekki verið byrjað á nema rúmlega 300 íbúðum, skv. þessari byggingaráætlun, og að ekki verði byrjað á næsta áfanga fyrr en á næsta ári. Ef staðið hefði verið við samkomulagið, hefði átt að vera búið að byggja 750 íbúðir í árslok þessa árs, en ekki 300, svo augljóst er, að því fer víðs fjarri, að staðið hafi verið við samkomulagið, eins og ráðh. þó fullyrti. Þá veit forsrh. vel, að ríkið hefur sáralítið fé lagt fram til þessara bygginga, annað en það, sem tekið hefur verið úr hinu almenna byggingarlánakerfi, en það hefur leitt til þess, að það hefur ekki getað sinnt lánabeiðnum frá hundruðum aðila. Það er því fullkomlega rétt, sem Karl Guðjónsson sagði hér í umr., að ríkisstj. hefur ekki staðið við þann samning, sem hún gerði um þessar byggingarframkvæmdir.

Eldhúsumr. þessum er nú að verða lokið. Þær hafa leitt í ljós á ótvíræðan hátt, að lengur er raunverulega ekki um að tala neina samfellda stefnu ríkisstj. í atvinnu- og efnahagsmálum. Gamla viðreisnarstefnan er að fullu og öllu komin í strand. Enginn treystir sér lengur að halda fram grundvallarkenningum þeirrar stefnu. Allir vita, að enn, eftir 8 ára viðreisn, eru atvinnuvegirnir reknir með miklum styrkjum og útflutningsuppbótum og öðru millifærsluformi. Allir vita, að ekki hefur tekizt að skapa traust verðgildi íslenzkra peninga og að ekki hefur tekizt að koma hér á stöðugu verðlagi. Reynslan hefur sýnt, að frjáls verðlagning leiðir til hækkandi verðlags og aukins milliliðakostnaðar. Reynslan hefur sýnt, að frjáls verðlagning hefur leitt til stórkostlegrar verðmætasóunar og eyðslu. Reynslan hefur sýnt, að skipulagsleysið hefur leitt til óæskilegrar þróunar í uppbyggingu atvinnulífsins og til aukinna erfiðleika fyrir útflutningsframleiðsluna. Í dag, eftir 8 ára viðreisn, stendur sjálf viðreisnarstjórnin gjörsamlega ráðþrota og úrræðalaus gagnvart nýjum og margvíslegum vandamálum atvinnulífsins. Viðbrögð ríkisstj. í atvinnu- og efnahagsmálum á s. l. vetri eru gott dæmi um þetta úrræðaleysi. Í októberbyrjun lagði stjórnin fyrir Alþ. till. sínar um sérstakar efnahagsaðgerðir, til þess, eins og hún sagði þá, að koma í veg fyrir gengislækkun. Áður en þessar till. voru að fullu afgreiddar á þingi, hafði stjórnin lagt fram till. um stórfellda gengislækkun, ekki þó í staðinn fyrir efnahagsráðstafanirnar, heldur til viðbótar við þær. Nokkru eftir, að ákvörðunin um gengislækkunina var ákveðin, lýsti stjórnin því yfir, að hún myndi lækka tolla, sem næmi 250–270 milljónum kr. Hún varð að víkja frá þessu loforði eftir örfáa daga. Þegar gengislækkunin var ákveðin, hélt stjórnin því fram, að með henni skapaðist grundvöllur til þess, að útflutningsframleiðslan yrði rekin án styrkja og uppbóta. Nokkrum vikum síðar varð hún þó að semja um sérstaka styrki til útgerðarinnar, sem nema 320 millj. kr. á ári. Þannig hefur verið hlaupið úr einu í annað, og flestar ráðstafanir stjórnarherranna hafa borið þess glöggt vitni, að þeir vissu harla lítið um ástandið í efnahagsmálunum.

Í febrúarbyrjun flutti ríkisstj. frv. um nokkurn sparnað í ríkisútgjöldunum, og þó var það frv. meir um frestun á ýmiss konar greiðslum skv. fjárl. Þessu frv. fylgdu þær skýringar, að stjórnin teldi nauðsynlegt að fara þessa leið þrátt fyrir nýlega afgreidd fjárlög, vegna þess að ekki væri tiltækilegt eins og komið væri efnahagsástandi þjóðarinnar að leggja á nýja skatta. Rétt um það leyti, sem þetta frv. ríkisstj. var samþ. á Alþ., lagði hún þó fram annað frv., sem fól í sér nýja skatta, sem nema um 200 millj. kr. á ári og sérstaklega eiga að bitna á umferðinni í landinu. Þannig hefur algert stefnuleysi og fálm einkennt flest viðbrögð ríkisstj. í efnahagsmálum á þessum vetri. Sannleikurinn er sá, að hvorki ríkisstj. né ráðgjafar hennar í efnahagsmálum vita orðið sitt rjúkandi ráð. Ráð þeirra hafa flest reynzt óráð og afleiðingarnar orðið eftir því.

Núv. ríkisstj. hefur lengst af fleytt sér áfram á miklu góðæri. Nú hefur þetta góðæri hins vegar snúizt upp í allmikla erfiðleika. Nú hefur því reynt á stefnu hennar í efnahagsmálum, en reynslan hefur líka orðið mönnum dýrkeypt. Núv. ríkisstj. hefur því glatað trausti þjóðarinnar. Hún á því að víkja sem allra fyrst, ef ekki á illa að fara. — Góða nótt.