26.01.1968
Sameinað þing: 30. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2046 í B-deild Alþingistíðinda. (1927)

Framkvæmd vegáætlunar 1967

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Skýrsla sú, sem hér um ræðir, var lögð fram áður en þingi var frestað fyrir jól. Í vegalögunum er gert ráð fyrir, að skýrslan sé rædd fyrir árslok og lögð fram það snemma á haustinu, að til þess gefist tími. Mér finnst þetta vera nokkur galli á vegalögunum, því vitanlega er ekki hægt að gefa tæmandi skýrslu um vegaframkvæmdir á liðnu ári fyrr en í árslok, og það kemur fram í þessari skýrslu, að árið var ekki að fullu liðið, þegar skýrslan var samin, og þess vegna eru nokkrir liðir á skýrslunni byggðir á áætlunum, og enn hefur Vegagerðin núna í janúarmán. ekki lokið uppgjöri eða reikningum um framkvæmdir liðins árs, sem ekki er von til. En skýrsla þessi hefur legið á borðum hv. þm. og er eins ýtarleg og unnt var að hafa hana miðað við þann tíma, sem hún var samin, og gefur skýrslan ýtarlegt yfirlit yfir framkvæmdir í vegamálum á s. l. ári.

Á skýrslunni má sjá, að við vegáætlunina hefur verið staðið um allar framkvæmdir, og framkvæmdir á árinu 1967 hafa verið með meira móti. Það er eins og kunnugt er gert ráð fyrir því, að samin verði ný vegáætlun á næsta þingi, næsta hausti, sem verði tilbúin fyrir árslok þ. á., ef mögulegt er, eða þá í síðasta lagi á fyrstu mánuðum ársins 1969. Gildandi vegáætlun var endurskoðuð, eins og heimild er til, á síðasta þingi, og er því unnið eftir endurskoðaðri áætlun á árinu 1967 og 1968. Það var gert ráð fyrir því, að nokkur afgangur yrði til ráðstöfunar tekna á árinu 1967, eða 18,2 millj. kr., en þetta reyndist vera minna, eða aðeins um 11 millj. kr. Heildarútgjöld Vegasjóðs urðu nokkru meiri heldur en gert var ráð fyrir, sem liggur eingöngu í því, að vegaviðhaldið var meira. Þá var meira fé varið til snjómoksturs heldur en gert var ráð fyrir, og það urðu ýmis spjöll af náttúruvöldum, sem var ófyrirséð, en sem varð að bæta úr. Þess vegna hefur orðið á árinu 1967 nokkur umframeyðsla, eins og segir í skýrslunni á bls. 2. S. l. vetur var óvenju snjóþungur um allt land og varð þess vegna að eyða meiru í snjómokstur heldur en gert var ráð fyrir. Þá segir hér einnig frá því, að stórfelldar skemmdir hafi orðið á vegum og brúm vegna vatnavaxta í janúar 1967, eins og greint hefur verið frá, og þess vegna var umframeyðsla, sem nemur um 4 millj. kr., — eingöngu þess vegna. Það segir hér í skýrslunni, að það hafi valdið nokkrum erfiðleikum, að þegar vegáætlunin var endurskoðuð, þá hafi ekki verið reiknað með hækkuðum kostnaði vegna hækkaðrar vísitölu úr 185 stigum í 188 eins og hún var á s. l. ári. Nokkrum erfiðleikum, en þó ekki þeim, að ekki væri mögulegt að standa við áætlunina. En verðbreytingar á s. l. ári urðu vitanlega minni fyrir það, að verðstöðvunin var, og kom það til bjargar þeirri vísitöluhækkun, sem varð í nóv. 1966 til marz 1967. Það hefur farið fram umferðartalning á vegum á árinu og sýnir hún eðlilega aukna umferð, þar sem bílunum er stöðugt að fjölga, en mest er umferðaraukningin á vegunum hér út frá Reykjavík, á Vesturlandsvegi og Suðurlandsvegi.

Þá er hér yfirlit um innheimtu tekna og greiðsluyfirlit. Eins og sjá má í greinargerð um tekjuáætlun Vegasjóðs af benzínskatti fyrir yfirstandandi ár er benzínsala á tekjuáætlun nóv. okt. áætluð 71 millj. lítra, og er það 2,8% aukning frá árinu á undan. Á tímabilinu nóv. 1966 til sept. loka 1967 hefur benzínsala aukizt um 3 millj. lítra, eða 4,7% miðað við sama tímabil áður. Þar sem hér er um að ræða 11 af 12 tekjumánuðum Vegasjóðs af benzínsölu, má gera ráð fyrir, að heildartekjur af benzínskatti á árinu verði um 4 millj. kr. hærri en áætlað var. Þetta er sagt í okt. eða byrjun nóv., þegar þessi skýrsla er samin, en heildarniðurstöður hef ég ekki enn, en vegamálastjóri hefur sagt mér, að tekjur af benzíninu hafi orðið nokkru meiri heldur en hér var áætlað. Eins og ég minntist á áðan, þá voru eftirstöðvar tekna frá fyrra ári 11,2 millj. í staðinn fyrir 18,2 millj., af ástæðum, sem ég áðan minntist á. Þá segir hér á bls. 3, að samkv. framansögðu megi búast við, að innheimta tekna verði eins og þar segir: Áætlaðar tekjur af benzínskatti 239,4 millj., en samkv. áætlun var gert ráð fyrir, að þær yrðu 243,4, en verða sennilega 246 millj. Þungaskattur var áætlaður 70,5 millj., en var áætlaður á s. l. hausti 72,1, gæti orðið aðeins meiri. Gúmmígjald var áætlað 13,2, en var áætlað á s. l. hausti, að yrði ekki nema 11,5, en sennilega verður það um 12 millj. Ríkisframlag 27 millj. áætlað og varð það í reynd, en eftirstöðvar tekna voru áætlaðar 18,2, urðu 11,2. Niðurstaðan er því sú samkv. þessari áætlun, að innheimtar tekjur væru aðeins 365,2 millj. í staðinn fyrir 368,3, en eftir því sem vegamálastjóri heldur fram nú, þá munu þessar tekjur standast nokkurn veginn áætlun, kannske ríflega það. Það er ekki það, sem skiptir miklu máli, því að í sambandi við þessa áætlun þá var ekki um svo stóra fjárhæð hér að ræða, en það er samandregið hér á sömu bls.: Útgjöld áætluð 368,3 millj., kostnaður við vegaviðhald umfram áætlun var 5 millj., halli á Reykjanesbraut vegna gengisbreytingar áætlaður 2,7 millj., umframgreiðslur vegna smábrúa 0,5 millj. Þetta gerir 376,5 millj. í áætluð útgjöld samkv. áætlun vegamálastjóra. Svo segir enn fremur: Þar sem horfur eru á, að tekjur Vegasjóðs verði ekki nema 365,2 millj. kr. á árinu, má gera ráð fyrir, að greiðsluhalli Vegasjóðs verði 11,3, en eins og áður segir þá munu þær verða nokkru minni en áætlað var hér á s. l. hausti í okt.-nóv.

Þá kemur hér yfirlit um föst lán til vegaframkvæmda. Með heimild í 3. kafla vegáætlana 1967 hefur rn. í samráði við framkvæmdaáætlun ríkisstj. og Vestfjarðaáætlun aflað fastra lána til lagningar nokkurra þeirra vega, sem tilgreindir eru í 3. kafla vegáætlunar í ár. Til einstæðra vegaflokka nema lán þessi eftirtöldum upphæðum: Hraðbrautir 24,2 millj., þjóðbrautir 30,4 millj. og landsbrautir 3 millj. Þetta eru samtals 57,6 millj. kr. lán, sem eru tekin á árinu. En það væri eðlilegt að gefa skýringar á því, til hvaða vega þessi lán hafa farið. Það er þá fyrst að nefna Reykjanesbraut 24,2 millj. Þetta lán hefur að nokkru farið til vaxta og afborgana og að nokkru til framkvæmda á veginum fyrir ofan Hafnarfjörð, sem var malbikaður og lokið var við að fullgera á s. l. ári. Einnig var lokið við að fullgera tengingu frá Njarðvíkum að vegarendanum á s. l. ári, en til þess að standa í skilum með eldri lán voru einnig tekin meiri lán til vegarins, og þau nema alls 24,2 millj. Þá eru það þjóðbrautir: Það er Siglufjarðarvegur 17,5 millj., Múlavegur 2,4, Suðurfjarðavegur um Vattarnes 3,7, Vestfjarðavegur á Breiðadalsheiði 5,7, Vestfjarðavegur sunnan Þingmannaheiðar 1,1; samtals 30,4. Landsbrautir: Heydalsvegur 0,2, Djúpvegur 0,8, Bolungarvíkurvegur 3 millj.; 57,6 millj.

Þá er eðlilegt, að þm. vildu vita um skiptingu heildarlána eins og þau voru í árslok 1967 til vegaframkvæmda. Það er þá fyrst hraðbrautir: Reykjanesbraut 231,6 millj., sem hvílir á þeim vegi. Austurvegur 4,9 millj.; samtals 236,5 millj. Þjóðbrautir: Siglufjarðarvegur 51 millj., Múlavegur 11,3 millj., Ólafsvíkurvegur 4,5 millj., Suðurfjarðavegur um Vattarnes 6,5 millj., Vestfjarðavegur á Breiðadalsheiði 10,2 millj., Vestfjarðavegur sunnan Þingmannaheiðar 2,4 millj.; samtals 85,9 millj. Landsbrautir: Heydalsvegur 1,1 millj., Örlygshafnarvegur 0,5, Rauðasandsvegur 0,2, Bíldudalsvegur 3,4, Flateyrarvegur 0,5, Bolungarvíkurvegur 4,1, Djúpvegur 2,8; samtals 12,6 millj. En föstu lánin eru samtals 335 millj., þar af eru Austurvegur og Reykjanesbraut með 236 millj. og Siglufjarðarvegur með 51 millj., og svo er Vestfjarðaáætlunin með talsverðan hluta af þessu, þannig að Reykjanesbraut, Vestfjarðaáætlun og Siglufjarðarvegur eru með mestan hluta af þessum lánum.

En svo eru það bráðabirgðalán til vegaframkvæmda, sem tekin hafa verið eftir óskum sveitarfélaga og sýslufél. á s. l. ári. Það hefur verið gert að þessu sinni, eins og oftast áður, en aðeins með því skilyrði, að það væri á vegáætlun næsta árs fé til þess að greiða þetta bráðabirgðalán. Lán í þessu skyni eru aðeins lægri 1967 heldur en 1966 og hafa farið nokkuð minnkandi síðustu árin. Ég minntist áðan á skemmdir vegna vatnavaxta í janúar 1967, en geta má þess, að þessi stórflóð voru á Suður-, Vestur- og Norðurlandi og tjón af þessum skemmdum við endurskoðun í marz var lauslega áætlað um 4 millj., og mun láta nærri, að kostnaður við viðgerðirnar hafi numið þeirri upphæð.

Þá er hér talað um vegamerkingar skv. umferðarlögunum, að fjárveiting til þess hafi verið 1,2 millj. kr., og var sú fjárveiting vitanlega notuð, en þó hefði kannske mátt gera nokkuð meira af því, en vegna H-nefndar og hægrihandarumferðar, sem tekur gildi næsta ár, þá er gert nokkuð minna af þessu nú heldur en áður, að öðru leyti en því, sem passaði við hægrihandarumferðina.

Það er rétt að minnast aðeins á, hvað hefur verið aðallega gert í hraðbrautum á árinu. Það er Reykjanesbraut við Breiðholt, hér var verið að ræða áðan um byggingarframkvæmdir í Breiðholti, en Reykjanesbraut við Breiðholt liggur frá Elliðaánum út á Reykjanesbraut og telst þess vegna til þjóðvegakerfisins, en ekki til gatna innan bæjarins, og í framkvæmdaáætlun ríkisstj. á árinu 1967 voru áætlaðar 8 millj. kr. í þessu skyni. Ekki mun nú hafa verið unnið fyrir alla þá upphæð, en þegar þessi vegur er kominn, þá léttir hann ákaflega mikið á umferðinni um Hafnarfjarðarveg og Kópavog. Þá er það Þrengslavegur, þar var jú unnið nokkuð og borið ofan í veginn, en hluti af fjárveitingunni var notaður til almennra vegaframkvæmda; 3,2 millj. kr. Þá er það undirbúningur hraðbrautaframkvæmda. Það er eins og kunnugt er starfandi hraðbrautanefnd. Í þeirri n. eiga sæti 4 menn, þ. e. ráðuneytisstjórinn í samgmrn., Jónas Haralz forstöðumaður Efnahagsstofnunarinnar, Jóhannes Nordal seðlabankastjóri og vegamálastjóri. Í samráði við þessa menn hefur rn. gert áætlun um undirbúning að hraðbrautagerð. Kostnaður við þennan undirbúning var á s. l. ári um 7 millj. kr. Þá er gert ráð fyrir að verja allt að 20 millj. kr. til undirbúnings hraðbrauta á þessu ári, og er þá miðað við það, að undirbúningi verði komið það langt, að unnt verði að bjóða út ákveðin verk, ákveðna áfanga í hraðbrautum, í árslok eða byrjun næsta árs, miðað við það, að hefjast mætti handa um lagningu hraðbrauta á næsta ári. Það munu ýmis segja: Þetta er mikið fé að eyða 7 millj. kr. á s. l. ári og ætla sér að verja allt að 20 millj. kr. á þessu ári í þessu skyni. En undirbúningur að þessu er umfangsmikill, og til þess að þetta sé hægt að gera, þurfa margir sérfræðingar að koma við sögu, og þetta verður svona dýrt. Ég hygg að allir hv. alþm. séu samþykkir því, að þessi undirbúningur sé hafinn, sem sé forsenda þess, að byrjað verði á því að gera hraðbrautir með varanlegu slitlagi í landinu.

Í sambandi við hraðbrautaáætlunina, þá segir hér í skýrslunni, að það hafi verið gerð frumáætlun fyrir kaflann Elliðaár — Korpúlfsstaðaá — Leirvogur. Til undirbúnings lokaáætlunar hefur verið gerð jarðvegskönnun á báðum þessum köflum, svo og grunnmælingar allar, og lokið er gerð loftmyndakorta af fyrri kaflanum. Á Suðurlandsvegi hefur verið gerð frumáætlun um kaflann Lækjarbotnar — Svínahraun, og verið er að hefja gerð frumáætlunar um kaflann Blesugróf— Rauðhólar. Til undirbúnings frekari áætlunargerð hefur verið gerð jarðvegskönnun frá Blesugróf um Hellisheiði að Selfossi. Grunnmælingar hafa verið gerðar á allri þessari leið, og gerð loftmyndakorta átti að hefjast um áramót. Þá segir hér einnig, að verið sé að vinna að gerð frumáætlunar um kaflann Miklabraut — Breiðholt og Breiðholt — Fífuhvammur, jarðvegskönnun verið gerð á þeim kafla og sömuleiðis frummælingar og gerð loftmyndakorta af sama kafla langt komin. Hafnarfjarðarvegur: Gerð frumáætlun fyrir kaflann Hlíðarvegur í Kópavogi — Engidalur og gert ráð fyrir, að því yrði lokið um síðustu áramót. Jarðvegskönnun og grunnmælingar er lokið við að gera, og verið er að vinna að gerð loftmyndakorta, þannig að sjá má, að byrjað er á ýmsu í samb. við þetta, þó að því sé ekki lokið.

Svo er hér í þessari skýrslu gerð ýtarleg grein fyrir því, hvað unnið hefur verið við þjóðbrautir, og vegirnir nefndir með nöfnum.

Í sambandi við stórframkvæmdir á þjóðbrautum mun rétt að geta þess, að Siglufjarðarvegi og Strákagöngum var lokið á árinu, eins og kunnugt er, og sá vegur tekinn í notkun. Fjárveiting til vegarins á s. l. ári var 4.5 millj. Framkvæmdalán var tekið 17.5 millj. Til afborgana af lánum fóru 3 millj. kr. Þá er getið hér um það, að jarðgöngin hafi verið fóðruð og styrkt á 240 m kafla og gólf steypt í þau. Hins vegar hefur það komið fram, og ýmsir talið nauðsynlegt, að styrkja þurfi göngin öll, loftið, vegna þess að nokkur hætta geti stafað af grjóthruni. Það eru vitanlega verkfræðingarnir og vegamálastjóri, sem gera tillögur um það, ef nauðsyn ber til, en því mun auðvitað fylgja nokkur aukinn kostnaður, a. m. k. 1 til 2 millj. á áætlun, en í það dugar ekki að horfa, ef það er álitið nauðsynlegt. Þetta verk er merkilegt að mörgu leyti, og fyrstu jarðgöngin, sem hér hafa verið gerð, og má segja, að það hafi gengið vel að vinna þetta og lofi góðu um það, að hér á landi megi fleiri jarðgöng koma, þegar tímar líða og fé er til þess og ástæður fyrir hendi.

Þá er getið um það, að við girðingar og uppgræðslu með vegum hafi verið unnið, eins og efni stóðu til og veitt var fé til. Fjárveitingin var 3 millj. 176 þús. Þessi uppgræðsla er nauðsynleg, en það er stutt síðan farið var að veita fé í þessu skyni, og það verð ég að segja, að það er ákaflega mikill munur að sjá það, þegar sáð hefur verið í sárin meðfram vegunum og þau grædd upp, miðað við það sem áður var, þegar allt var skilið eftir í moldarflagi, og var stundum upphaf að frekari uppblæstri, auk þess sem það er mjög ljótt fyrir augað.

Þá er hér skýrt frá, hvernig farið hefur verið með reiðvegi, hverju varið hefur verið til ferjuhalds, og skýrir það sig sjálft.

Á s. l. ári voru gerðar 5 stórbrýr, sem eru mikil mannvirki hver fyrir sig. Þær eru: brúin á Jökulsá á Breiðamerkursandi, brúin hjá Spóastöðum í Biskupstungum, brú á Fnjóská við Hrísgerði, brú á Eldvatn hjá Ásum og á Jökulsá á Sólheimasandi. Þessar brýr munu vera um 450 m, mig vantar lengdina á einni brúnni, en þær munu vera 450–460 m þessar 5 stórbrýr. Þá eru brýr lengri en 10 m, 9 að tölu, og smábrýr 24. Þannig að við brúargerð hefur verið unnið á s. l. ári meira en oftast áður.

Þá er það til sýsluvegasjóða. Eins og sjá má hafa sýsluvegirnir fengið meira fé til ráðstöfunar síðan nýju vegal. voru sett, heldur en áður var, og er stundum sagt, að sýsluvegirnir hafi nú í mörgum tilfellum orðið betri en ýmsir þjóðvegir, vegna þess að þeir hafa tiltölulega meira fjármagn, og út af fyrir sig er ekki nema gott um það að segja, en vitanlega verður þá að viðurkenna um leið, að það væri æskilegt, að hægt væri að gera eins vel eða jafnvel enn betur við landsbrautirnar og ýmsa þjóðvegi.

Þá er til vega í kaupstöðum og kauptúnum framlag samkvæmt 32. gr. vegalaga, þ. e. 12½% af áætluðum heildartekjum Vegasjóðs 1967, sem voru áætlaðar 315.1 millj., þetta gerir 43 millj. 762 þús., og hefur það vitanlega haft mikla þýðingu fyrir kaupstaði og kauptún að fá þetta fjármagn, og í ýmsum kauptúnum hafa verið malbikaðar götur einmitt vegna þess, að framlag fékkst úr Vegasjóði til þess, en það eru vitanlega öll kauptún, sem leggja áherzlu á það að bæta göturnar og losna við moldarvegi og bleytupolla, sem einkennt hafa margar götur í kauptúnum fram að þessu.

Áherzla hefur verið lögð á það að endurnýja vélakost Vegagerðarinnar, eftir því sem mögulegt hefur verið, og hafa verið keyptar vélar á árinu fyrir 12 millj. kr., 2 millj. hafa verið lagðar í byggingu áhaldahúss og í bókasafn verkamanna 30 þús. kr. Enda þótt nú síðari ár hafi nokkuð verið bætt úr vélakosti Vegagerðarinnar, þær endurnýjaðar og auknar, þá er það alveg ljóst, að það þyrfti að gera stærra átak í þessum efnum. Enn er Vegagerðin með ýmsar gamlar vélar, sem bezt væri að taka úr notkun, og losa sig þannig við viðgerðakostnað, og enn þyrfti meiri fjölbreytni í vélakosti heldur en enn hefur verið fært að gera. En þetta stendur vonandi allt til bóta.

Tilraunir hafa verið gerðar með því að reyna ódýrt slitlag úr asfalti, og hafa ýmsir vegfarendur tekið eftir því, að slitlag var lagt úr asfaltblöndu á 0,3 km kafla á Suðurlandsvegi í Svínahrauni til samanburðar við olíumalarkafla, sem lagður var þar 1966. Sams konar slitlag var lagt á 1.2 km kafla á Suðurlandsvegi austan við Selfoss, og 400 m kafla á Álftanesvegi. Tæknifræðingar Vegagerðarinnar fóru stutta ferð til Skotlands til þess að kynna sér slitlagagerð þessa. Kostnaður við þessa framkvæmd er áætlaður 1 millj. 850 þús. Það er stutt síðan farið var að gera þessar tilraunir, og ég býst við, að það sé of snemmt að fullyrða um árangur af þeim, en ýmsir eru undrandi á því, hvað kaflinn í Svínahrauni, sem olíumöl var sett á 1966, hefur staðið sig vel í þeirri miklu umferð, sem þar er. Það er líka mál, að undirbyggingin á Svínahraunsveginum er eins góð og vera má og traust, og það er náttúrlega höfuðskilyrðið til þess að slitlagið þoli vel, að undirbyggingin sé góð, en sérfræðingar halda því fram, að þrátt fyrir þetta, sem sýnist lofa góðu í Svínahrauni, þá geti það ekki staðizt, að olíumöl nægi á Vesturlandsvegi eða á Suðurlandsvegi, til þess sé umferðin of mikil. Olíumölin geti gagnað, þar sem dagleg umferð er ekki yfir 500 bílar, eins og í Svíþjóð, þeir nota olíumöl á ýmsa hliðarvegi, sem ekki eru fjölfarnir, með góðum árangri. En hér á Vesturlandsvegi og Suðurlandsvegi er of mikil umferð, til þess að olíumölin geti dugað, að því að sérfróðir menn fullyrða. Mér sýnist að aðrar asfaltblöndurnar, sem hafa verið settar á vegi, bæði í Svínahrauni og eins fyrir austan Selfoss, reynist miklu verr heldur en olíumölin, þannig að það sé nú nokkurn veginn ljóst, að á þessum fjölförnu vegum sé tæpast um annað að ræða en steinsteypt lag eða þá fullkomið asfaltlag. Þá hefur Vegagerðin haft með höndum nokkrar rannsóknir á möl til mannvirkjagerðar og rannsóknir á burðarþoli vega.

Ég gat um það áðan, að það hafi verið byggðar nokkuð margar brýr, og ég sé, að ég hef hérna yfirlit nokkuð sundurliðað um vega- og brúarframkvæmdir á s. l. ári. Það er hér í sambandi við hraðbrautir: Undirbyggðir vegir 0.9 km — það þykir víst ekki mikið — og lagt slitlag á 0.9 km, það er á Reykjanesbrautinni. Þjóðbrautir: Undirbyggðir vegir 51.3 km, lagt slitlag á 54.3 km. Stórbýr: 2 brýr, 209 m, brýr 10 m og lengri á þjóðbrautum eru 4, samtals 52 m, og smábrýr á þjóðbrautum 5, samtals 25 m. Landsbrautir: Undirbyggðir vegir 57 km, lagt slitlag á 64 km. Stórbrýr á landsbrautum eru 2, samtals 174 m; brýr 10 m og lengri á landsbrautum eru 3, samtals 64 m; smábrýr 14, samtals 83 m. Á sýsluvegum: Brýr 10 m og lengri eru 2, samtals 62 m; 5 smábrýr, 30 m. Þá er hér einnig tekið saman um lengd akfærra þjóðvega, að í gildandi vegáætlun eru þjóðvegir taldir alls 9381.5 km, en í árslok 1967 hafi verið akfærir 8907 km. Vitanlega eru stórir kaflar af þessum vegum, sem eru taldir akfærir, en ekki eru akfærir nema kannske nokkra mánuði á árinu, vegna þess að þeir hafa ekki verið uppbyggðir eins og vera ber, en það er samt talið akfært, ef vegurinn er nothæfur og bílfær svo til allt árið.

Ég geri mér ljóst af því, sem ég hér hef sagt í sambandi við skýrsluna um framkvæmdir í vega- og brúamálum á s. l. ári, að mjög hefur verið stiklað á stóru, og það er sennilegt, að það sé ýmislegt, sem hv. alþm. vilja spyrja um og fá útskýringar á, og er náttúrlega sjálfsagt að verða við því, eftir því sem mögulegt er. En í sambandi við vegaframkvæmdir, er ekki annað að segja en það, eins og öllum er ljóst, að til þess að geta unnið að vegamálunum eins og við allir viljum, þyrfti meira fé. Það þyrfti meira fjármagn. Við getum verið sammála um það, að með nýju vegal. hefur ýmislegt áunnizt, bæði með því, að fjármagnið var aukið til Vegagerðarinnar, og því, að með nýju vegal. voru tekin upp ný og betri vinnubrögð, með því að vinna verkin í stærri áföngum og ljúka vissum áföngum, en vinna síður að litlum verkum á mörgum stöðum, þar sem fjármagnið notast síður, allt of mikið fer í flutningskostnað og ferðir þeirra, sem að vegagerðinni vinna, en með því að vinna í stærri áföngum nýtist fjármagnið betur. Þá er enginn vafi á því, að fjármagnið hefur notazt betur fyrir það, að tæki og vélar Vegagerðarinnar hafa verið endurnýjuð mun meira heldur en oft áður, — enda þótt þar sé ekki fullu takmarki náð og ekki nálægt því, — og það hefur notazt betur það fé, sem Vegagerðin hefur haft, fyrir það að tæki eru betri og fullkomnari heldur en áður voru. Allt þetta er vitanlega til bóta, enda þótt við getum verið sammála um, að æskilegt væri, að meira væri til ráðstöfunar og lengra væri hægt að ganga í því að uppfylla óskir manna um bætta vegi. Nú lýkur gildandi vegáætlun á þessu ári, og þá er verkefnið á næsta hausti að semja nýja vegáætlun fyrir árin 1969–1973. Ekki ætla ég að spá neinu um það, hversu vel gengur að afla fjár í næstu vegáætlun, en vitanlega stendur hugur okkar allra til, að það geti orðið. Og verkefnin eru fram undan og blasa við og með því að undirbúa hraðbrautir og verja til þess 7 millj. kr. á s. l. ári og 20 millj. á þessu ári reikna flestir með því, að gerð hraðbrauta með varanlegu slitlagi hefjist með næstu vegáætlun. Erfiðleikarnir verða vitanlega að útvega fjármagn, og ef við tölum um það á raunhæfan hátt, verður það erfitt, hverjir sem með þessi mál fara. En ráð þarf til þess að finna. Ég hef heyrt þetta sagt hér úr þessum ræðustól, og það oft: Vegirnir eiga að fá allar tekjur af umferðinni. Þetta er gott og blessað. Það væri mjög æskilegt, að vegirnir gætu fengið það, sem því svarar. En þá komum við alltaf að þessu sama, að ríkissjóður verður þá að fá í staðinn sömu upphæð einhvers staðar frá. Einhvers staðar frá verður ríkissjóður þá að fá þessa upphæð í staðinn, og hvort fjárins er aflað til vegagerðarinnar eða ríkissjóðs getur náttúrlega orðið alveg jafnerfitt. Ef Vegasjóður fengi við skulum segja 400 millj., sem sumir telja, að séu tekjur af umferðinni, þótt aðrir telji, að það séu 600, þá þyrfti að afla ríkissjóði tekna í staðinn. En ég ætla nú ekki að fara lengra út í það að þessu sinni, því að þetta er skýrsla um vegaframkvæmdir á s. l. ári, enda þótt hugur okkar allra, um leið og við tölum um framkvæmdir á s. l. ári, hljóti að beinast að því, hvað verður í framtíðinni. Og þegar við tölum um hraðbrautir, sem allir eru sammála um, að þurfi að hefja framkvæmdir á, er okkur ljóst, að þó að við höfum fyrirheit um lán frá Alþjóðabankanum, allt að 40% af stofnkostnaði, er það mikið fjármagn, sem þarf að útvega að auki til þess að geta lagt hraðbrautir á fjölförnustu vegina á næstu árum, auk þess sem kröfur verða vitanlega uppi frá þm. víðs vegar að af landinu, að eitthvað verði gert, kannske meira heldur en fyrr, í hinum ýmsu vegum víðs vegar um landið.

Herra forseti. Ég ætla þá að sinni að láta máli mínu lokið, um leið og ég segi það, að ég tel eðlilegt, að ég, eftir því sem efni standa til, svari fsp. og gefi upplýsingar, sem óskað er eftir frekar í sambandi við þessa skýrslu.