18.04.1968
Sameinað þing: 54. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2086 í B-deild Alþingistíðinda. (1949)
Framkvæmda- og fjáröflunaráætlun 1968
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Fyrir réttu ári síðan flutti ég Alþ. skýrslu um framkvæmda- og fjáröflunaráætlun ársins 1967. Gerði ég þá grein fyrir þeim miklu umskiptum í efnahagsmálum, sem átt höfðu sér stað á árinu 1966 og þeim viðhorfum, sem virtust blasa við á árinu 1967, að því er þá varð bezt séð. Ekki væri lengur um að ræða þann öra vöxt þjóðarframleiðslu og þjóðartekna, sem staðið hefði um allmargra ára skeið, áhrifa verðfalls útflutningsafurða mundi gæta að fullu á árinu og þær þjóðartekjur, sem til ráðstöfunar yrðu, mundu verða frekar minni en meiri en þær voru á árinu 1966. Þetta mundi gerast, þrátt fyrir þau áhrif, sem framkvæmdirnar við Búrfell og í Straumsvík mundu hafa, en við þær aðstæður, sem nú hefðu skapazt, mundu þær styrkja efnahagslíf landsins og draga úr því áfalli, sem það hafði orðið fyrir. Ég benti á, að sá mikli vöxtur neyzlu og fjármunamyndunar, sem haldizt hefði svo lengi og enn sett svip sinn á árið 1966, hvorki mætti né gæti haldizt. Þýðingarmikið væri, að aðgerðir opinberra aðila í peninga- og fjármálum, og sú stefna, sem tekin væri varðandi opinberar framkvæmdir og fjáröflun til þeirra, styddi myndun nýs jafnvægis, án þess þó, að beinlínis leiddi til rýrnunar atvinnu eða til stöðvunar þýðingarmikilla framkvæmda.
Ég lýsti síðan, hvernig þessi viðhorf hefðu mótað almennt sjónarmið í sambandi við fyrirætlanir um opinberar framkvæmdir og fjáröflun til þeirra og til fjárfestingarlánasjóða á árinu 1967. Lögð hefði verið áherzla á, að framkvæmdir héldust innan eðlilegra marka efnahagsjafnvægis og að innlendur sparnaður væri hagnýttur til fjáröflunar. Jafnframt hefði þó orðið að taka mikið tillit til þess, að flestar þeirra opinberu framkvæmda, sem unnið væri að, væru á því stigi, að þeim yrði ekki frestað, án þess að tjón hlytist af, og þær sinntu þörfum, sem vart fengju beðið. Hér hefur því verið um að ræða erfitt mat mismunandi sjónarmiða. Ég gerði loks grein fyrir fyrirætlunum ríkisstj. um framkvæmdir og fjáröflun í einstökum atriðum og fyrir væntanlegri fjármunamyndun á árinu 1967, eins og sennilegt mætti teljast að hún yrði. Myndin, sem þannig var dregin upp, var í aðalatriðum sú, að jafnhliða nokkurri minnkun þjóðartekna myndi fjármunamyndun halda áfram að aukast. Jafnvel þó ekki væri tekið tillit til framkvæmdanna við Búrfell, né í Straumsvík. Var gert ráð fyrir, að aukningin mundi nema 4% fyrir utan þessar framkvæmdir, en 16% að þeim meðtöldum. Jafnframt var búizt við, að aukningin mundi koma fram í íbúðarhúsabyggingum og opinberum framkvæmdum, en fjármunamyndun í atvinnuvegunum mundi hins vegar lítið breytast. Þessi áframhaldandi aukning fjármunamyndunar, samfara því, að vöxtur þjóðarteknanna stöðvaðist eða snerist til minnkunar, hlaut að skapa erfiðleika í greiðslujöfnuði landsins út á við og hættu og spennu í efnahagsmálum innanlands, og gerði ég sérstaklega grein fyrir, að frá sjónarmiði efnahagsjafnvægis hefði tvímælalaust verið æskilegt, að framkvæmdir hefðu getað orðið minni en líkur bentu til, að þær mundu verða. Það leið ekki langur tími frá því, er ég gaf þá skýrslu hér á Alþ., sem ég hef nú lýst, þar til ljóst var, að þróun efnahagsmála á árinu 1967 mundi verða miklum mun óhagstæðari en gert hafði verið ráð fyrir, þegar skýrslan var samin og fyrirætlanir ríkisstj. um stefnuna í efnahagsmálum og um framkvæmdir og fjáröflun mótaðar. Reyndist þróunin æ óhagstæðari því lengra sem á árið leið, aflabrestur varð á hverri vertíðinni á fætur annarri, afurðaverð hélt áfram að lækka á flestum afurðum og skreiðarmarkaðurinn í Nígeríu lokaðist með öllu vegna borgarastyrjaldar þar í landi.
Enda þótt lokatölur liggi enn ekki fyrir um öll atriði efnahagsþróunar þessa einstæða árs, er þó unnt að mynda sér nú glögga yfirsýn um hana í aðalatriðum. Framleiðsla sjávarafurða til útflutnings minnkaði á árinu um 20% að magni og um 30% að verðmæti. Heildarfiskaflinn varð um 895 þús. tonn, eða 345 þús. tonnum minni en árið áður. Stórfelldust varð minnkun síldaraflans, 310 þús. tonn, eða um 40%. Loðnuaflinn minnkaði um 28 þús. tonn, eða rúm 22%, þorskafli minnkaði um rúm 6 þús. tonn, eða tæp 2%. Þó áhrif þessarar aflaminnkunar, bæði á sjávarútveginn sjálfan og þjóðarbúskapinn allan, væru ærin, bættust við það áhrif aukins úthaldskostnaðar vegna veðurhörku og sóknar á fjarlægari mið en áður. Verðfall frystra fiskflaka nam 16%, síldarlýsis 20% og síldarmjöls um 15% frá ársmeðaltali 1966 til ársmeðaltals 1967. Í heild lækkaði verð útflutningsafurða um 12%. Aðrir atvinnuvegir áttu einnig erfitt uppdráttar. Þrátt fyrir mjög mikla fjárfestingu í þessum atvinnuvegum um margra ára skeið, jókst landbúnaðarframleiðslan um aðeins 1% og iðnaðarframleiðsla var talin hafa staðið í stað. Hins vegar jukust byggingastarfsemi og mannvirkjagerð um allt að 10%. Komu hér til áhrif framkvæmdanna við Búrfell og í Straumsvík.
Þjóðarframleiðslan í heild minnkaði um 1½%, að því er nú verður bezt vitað. En vegna mikillar versnunar viðskiptakjara minnkuðu þjóðartekjur um hvorki meira né minna en 8%. Þau umskipti í þróun efnahagsmála, sem hófust á árinu 1966 og máttu heita algjör á árinu 1967, sjást greinilegast með því að bera saman vöxt þjóðarframleiðslu og þjóðartekna á mann. Á árinu 1962–1965 óx þjóðarframleiðsla á mann um 4½% á ári að jafnaði, en þjóðartekjur á mann til muna meira, eða um 6% á ári, vegna batnandi viðskiptakjara. Vaxtahraðann hægði mjög á árinu 1966, en framleiðsla og tekjur á mann uxu um nálægt 2% og á árinu 1967 varð, eins og ofan greinir, minnkun framleiðslu, sem nemur 3% á mann, og minnkun þjóðartekna á mann um 9½%. Hin mikla minnkun þjóðartekna á árinu 1967 kom ekki svo teljandi væri fram sem minnkun raunverulegra tekna almennings á árinu. Að vísu gæti nokkurs samdráttar í atvinnu. Er þannig talið, að vinnutími verkamanna í Reykjavík hafi verið 3–4% styttri á fyrra árshelmingi 1967, en á sama tíma 1966. Tekjur síldveiðisjómanna rýrnuðu einnig mjög vegna aflabrests og verðfalls. Á hinn bóginn hækkaði kaupgjald nokkuð frá ársmeðaltali 1966, til ársmeðaltals 1967, en verðlag hélzt stöðugt frá ágúst 1966 allt fram á síðustu mánuði ársins 1967. Um endanlegar niðurstöður þessarar þróunar verður ekki sagt með fullri vissu, fyrr en unnið hefur verið úr skattframtölum, en bráðabirgðaathugun þeirra framtala og önnur gögn, er nú liggja fyrir, benda til þess, að raunvirði ráðstöfunartekna einstaklinga hafi verið u. þ. b. hið sama 1967 og það var 1966. Í samræmi við þetta er talið, að einkaneyzla hafi ekki minnkað, heldur aukizt um 1–2%, en það jafngildir því, að einkaneyzla á mann hafi staðið í stað. Minnkun þjóðartekna leiddi heldur ekki til minnkunar þeirrar þjónustu, sem ríki, sveitarfélög og stofnanir þeirra veita borgurunum, hinnar svokölluðu samneyzlu. Samneyzlan hefur á undanförnum árum vaxið með mjög svipuðum hraða og þjóðartekjur, eða um 6–7% á ári. Á árinu 1967 dró aðeins lítið eitt úr þessum vexti og er hann talinn hafa numið 5%. Enn síður gætti minnkunar þjóðartekna í fjármunamyndun. Er hún talin hafa aukizt um 12% á árinu og hafa numið 33% af þjóðarframleiðslu. Að sjálfsögðu munar hér mikið um framkvæmdirnar við Búrfell og í Straumsvík, að þeim frátöldum er aukning fjármunamyndunar um 1% og fjármunamyndunin um 30% þjóðarframleiðslu, sem er talsvert hærri hlutfallstala en verið hefur á undanförnum árum. Þróun fjármunamyndunar var mjög svipuð því og gert hafði verið ráð fyrir í þeirri skýrslu, sem ég flutti hér fyrir ári. Þó varð nokkur seinkun framkvæmda við Búrfell og í Straumsvík frá því, sem búizt hafði verið við. Fjármunamyndun í atvinnuvegum var einnig lítið eitt minni en gert hafði verið ráð fyrir. Á hinn bóginn mun fjármunamyndun í íbúðarhúsum hafa reynzt lítið eitt meiri en búizt var við, en fjármunamyndun í opinberum framkvæmdum öðrum en Búrfellsvirkjun og Straumsvíkurhöfn mjög svipuð því, er gert hafði verið ráð fyrir.
Eins og hér að framan hefur verið lýst, kom minnkun þjóðartekna á árinu 1967 hvorki fram í minnkun raunverulegra tekna almennings né í ráðstöfun verðmæta til neyzlu og fjárfestingar. Á hinn bóginn kom minnkunin fram í stórlega versnandi fjárhag atvinnufyrirtækja og opinberra aðila og þá ekki sízt ríkissjóðs. Auknir opinberir styrkir og mikið útstreymi fjár úr bönkum og fjárfestingarsjóðum til atvinnufyrirtækja gerði þeim kleift að halda uppi starfsemi sinni. Á hliðstæðan hátt stóð fjárstreymi úr bankakerfinu undir halla ríkissjóðs og annarra opinberra sjóða. En til útstreymis fjár í bankakerfinu umfram innstreymi svarar hallinn á heildargreiðslujöfnuði landsins og minnkun gjaldeyrisforðans. Á sama tíma og útflutningur vöru minnkar um 28% á árinu 1967 jókst innflutningur vöru um 6% og stóð að heita mátti í stað, sé innflutningur skipa og flugvéla og innflutningur vegna framkvæmda við Búrfell og í Straumsvík undanskilinn. Halli á viðskiptajöfnuði fyrir vörur og þjónustu varð 2350 millj. kr., en hafði verið 321 millj. kr. á árinu 1966. Innstreymi erlends fjármagns umfram endurgreiðslur lána varð jafnframt óvenju mikið vegna framkvæmdanna við Búrfell og í Straumsvík og mikils skipa og flugvélainnflutnings. Í heild var greiðslujöfnuðurinn óhagstæður um 1070 millj. kr. Var þetta í fyrsta skipti síðan árið 1959, að heildargreiðslujöfnuður reyndist óhagstæður. Gjaldeyrisstaða bankanna var í ársbyrjun 1915 millj. kr. miðað við gamla gengið, en reyndist í árslok 1.041 millj. kr. miðað við nýja gengið.
Það má því í stuttu máli draga saman niðurstöður efnahagsþróunar ársins 1967 með því að segja, að komizt hafi verið hjá því, að hið mikla áfall, sem þjóðarbúskapur varð fyrir vegna aflabrests og verðfalls, leiddi til minnkandi rauntekna almennings og til minnkaðrar neyzlu og fjárfestingar. Í stað þess hafi áfallið sorfið að fjárhag atvinnufyrirtækja og opinberra aðila, og skapað gífurlegan halla á greiðslujöfnuði landsins út á við, sem gleypt hafði meira en helming gjaldeyrisforðans. Að verulegu leyti varð sú þróun, sem hér átti sér stað, beinlínis sú, sem að var stefnt með aðgerðum stjórnvalda allt frá sumrinu 1966, þegar hinna breyttu viðhorfa í efnahagsmálum tók fyrst að gæta, og með þeim fyrirætlunum um fjármunamyndun og fjáröflun, sem ég gerði grein fyrir hér á Alþ. fyrir ári síðan. Það var eðlilegt, að þess væri freistað í lengstu lög að draga úr áhrifum áfallsins á kjör almennings og fjármunamyndun, en atvinnufyrirtæki og opinberir sjóðir tækju fyrsta skellinn með eim afleiðingum, að gjaldeyrisforðinn rýrnaði. Á hinn bóginn hlaut það að vera ljóst, enda á það lögð rík áherzla, að því voru þröng takmörk sett, hversu langt þessi þróun mætti ganga, og sú stefna, sem mörkuð hafði verið, byggðist í raun og veru á þeirri von, að aflabrögð og verðlagsþróun mundu snúast til betri vegar áður en langt um liði.
Þegar aflabresturinn varð meiri en nokkur hafði búizt við, verðfallið hélzt, æ meira kreppti að atvinnufyrirtækjum, halli ríkissjóðs fór sívaxandi og rýrnun gjaldeyrisforðans var miklu meiri en gert hafði verið ráð fyrir, var ljóst, að nýrra og róttækari aðgerða í efnahagsmálum var þörf.
Við gengisfellingu sterlingspundsins 18. nóv. s. l. tók steininn úr og varð hún ásamt undangenginni þróun aflabragða og afurðaverðs tilefni nýrrar gengisskráningar íslenzku krónunnar. Hið nýja gengi, sem tilkynnt var 24. nóv., er eins og kunnugt er 57 kr. hver bandarískur dollar, og svarar það til gengisfellingar um 24.6% gagnvart dollar, en um 12% gagnvart sterlingspundi.
Eins og ég hef lýst hér að framan, blasti það þannig við síðari hluta ársins 1967, að aðlögun ráðstafanatekna almennings, neyzlu og fjármunamyndunar, að lækkuðum þjóðartekjum mætti ekki dragast lengur. Slíkur dráttur mundi geta sorfið svo að atvinnufyrirtækjum, að almenn rekstrarstöðvun væri á næsta leiti. Jafnframt því, sem aðstaða landsins út á við versnaði svo, að trú á greiðslugetu þess var í hættu. Á hinn bóginn skipti það enn sem fyrr miklu máli, að þessar nauðsynlegu breytingar á efnahagsmálum landsins yrðu ekki þess valdandi að alvarlegt atvinnuleysi skapaðist og þær gengju ekki nær lífskjörum almennings en brýna nauðsyn bæri til.
Við ákvörðun hins nýja gengis í nóvembermánuði s. l. var tillit tekið til þessara tveggja sjónarmiða. Annars vegar miðaði gengisfellingin sjálf að því að bæta rekstrarstöðu atvinnufyrirtækja og örva framleiðslu, jafnframt því sem hún dró úr neyzlu og fjármunamyndun. Hins vegar var stefnt að því að stilla gengislækkuninni eins mikið í hóf og frekast var kostur og draga úr áhrifum hennar á lífskjörin með lækkun tolla og hækkun á bótum almannatrygginga. Þessara sömu sjónarmiða hefur enn gætt við undirbúning framkvæmda- og fjáröflunaráætlunar ársins, sem staðið hefur yfir undanfarna mánuði. Annars vegar hefur orðið að viðurkenna nauðsyn þess, að heildarfjármunamyndun í landinu minnkaði á árinu. Hins vegar hefur verið stefnt að því, að þessi minnkun yrði ekki stórvægileg, og umfram allt, að hún leiddi ekki til atvinnuleysis. Jafnframt hefur að sjálfsögðu einnig verið reynt að komast hjá frestun framkvæmda, sem komnar eru langt áleiðis, og ekki unnt að fresta, án þess að tjón hljótist af. Þann erfiða vanda, sem skapast vegna þessara tveggja tillita, hefur verið reynt að leysa við undirbúning áætlunarinnar með því að freista þess að útvega til hennar verulegt erlent lánsfé í fyrsta sinn í mörg ár, jafnframt þeirri fjáröflun innanlands, sem frekast er talin möguleg með hliðsjón af vaxandi þrengingum á peningamarkaðnum.
Síðan hinir miklu efnahagsörðugleikar skullu á fyrir tæpum tveimur árum síðan, hefur, eins og ég hef lýst hér að framan, á hverjum tíma verið kappkostað að ganga eins skammt og frekast er unnt í aðgerðum til leiðréttingar þess misræmis, á milli þjóðartekna og verðmætaráðstöfunar, sem örðugleikarnir sköpuðu. Af þessu hefur svo aftur á móti leitt, að þegar örðugleikarnir sjálfir hafa sífellt farið vaxandi, hafa ráðstafanir, sem gerðar hafa verið, reynst ónógar áður en langt um leið, og nýjar ráðstafanir hafa orðið að fylgja í kjölfar þeirra. Þannig kom verðstöðvunarstefnan, sem fylgt var frá haustinu 1966 fram á haust 1967, í veg fyrir áframhaldandi aukningu tekna og neyzlu á sama tíma og þjóðartekjur minnkuðu. En þetta var ekki nægilegt, þegar enn jók á verðfall og aflabrest síðari hluta árs 1967. Ráðstafanir til að leiðrétta þann halla, sem auknar niðurgreiðslur og aðrar ráðstafanir til aðstoðar atvinnuvegunum höfðu skapað hjá ríkissjóði, reyndust heldur ekki nægjanlegar, þegar gengisfelling sterlingspundsins kom til og verðfallið hélt enn áfram.
Á hliðstæðan hátt reyndist gengisfellingin í nóvember ekki sú stoð fyrir sjávarútveginn, sem ætlazt hafði verið til, þegar nýtt verðfall átti sér stað á freðfiskmarkaðnum í Sovétríkjunum og enginn minnsti bati varð á verði mjöls og lýsis. Á það er sízt ástæða að draga dul, að sams konar þróun getur enn endurtekið sig síðar á þessu ári. Bregðist afli enn og breytist verðlag þýðingarmikilla afurða ekki að neinu leyti til batnaðar, getur reynzt óumflýjanlegt að gera nýjar ráðstafanir, bæði til aðstoðar sjávarútveginum og til lagfæringar á óhagstæðum greiðslujöfnuði. Það er auðvitað engin æskileg mynd af stjórn efnahagsmála, þegar gripið er til slíkra aðgerða æ ofan í æ, en það er nauðsynlegt að gera sér ljóst, að þessi vinnubrögð eru ekki viðhöfð vegna skorts á yfirsýn yfir vandamálin né á þreki til að takast á við þau, heldur vegna þess, hversu þýðingarmikið það hefur verið talið að ganga ekki lengra á hverjum tíma en brýnasta nauðsyn hefur verið talin.
Við undirbúning framkvæmda- og fjáröflunaráætlunar ársins hefur verið gengið út frá forsendum um þróun þjóðarframleiðslu og þjóðartekna á árinu, sem eru mun svartsýnni en þær, sem gert var ráð fyrir á síðustu mánuðum ársins 1967, en verða þó að teljast allbjartsýnar, eins og nú horfir við. Þessar forsendur fela í sér lítils háttar aukningu þjóðarframleiðslu á árinu, fyrst og fremst vegna nokkurs bata í aflabrögðum frá árinu 1967, á hinn bóginn gera þær ekki ráð fyrir neinni teljandi hækkun útflutningsverðlags frá því lága verði, sem nú er ríkjandi. Jafnframt er búizt við, að lítils háttar aukning verði á landbúnaðarframleiðslu, en nokkru meiri í iðnaðarframleiðslu, og stefnt er að því, að atvinna haldist svipuð og á árinu 1967. Sú þróun kaupgjalds og verðlags, sem gera má ráð fyrir á grundvelli þeirra kjarasamninga, sem nú er nýlokið, ásamt þeim forsendum um atvinnu og framleiðslu, sem áður er lýst, felur það í sér, að nokkur lækkun muni verða á raunvirði ráðstöfunartekna á árinu, gagnstætt því, sem var á s. l. ári. Má búast við, að einkaneyzla muni einnig dragast saman í samræmi við þetta. Á það er þó vert að leggja áherzlu, að þessi minnkun einkaneyzlu mun verða minni en svarar til þeirrar minnkunar þjóðartekna, sem átt hefur sér stað vegna aflabrests og verðfalls. Verulega mun draga úr aukningu samneyzlu á árinu, enda þótt þær ráðstafanir, sem gerðar hafa verið til sparnaðar í opinberum rekstri, hafi ekki enn getað komið í veg fyrir nokkra aukningu þessarar neyzlu. Fjármunamyndunin mun hins vegar væntanlega minnka talsvert, eins og ég mun víkja nánar að í einstökum atriðum hér á eftir. Minnkun einkaneyzlu og fjármunamyndun mun draga talsvert úr hallanum á greiðslujöfnuði miðað við árið 1967. Því er hins vegar ekki að leyna, að mikil hætta er á, að þessi halli verði áframhaldandi mikill og meiri en nemi innstreymi fjármagns umfram afborganir, þannig að enn geti gengið á gjaldeyrisforðann. Því eru hins vegar miklu þrengri takmörk sett en áður, hversu lengi slík þróun má halda áfram. Á undanförnum árum hefur fjár til framkvæmdaáætlunarinnar fyrst og fremst verið aflað á innlendum vettvangi. Annars vegar með sölu verðtryggðra spariskírteina og hins vegar með samningi við bankana um, að hluti innstæðuaukningar gangi til þessara þarfa. Var sú stefna að takmarka fjáröflunina sem mest við innlendan sparnað og forðast erlendar lántökur í þessu skyni eðlileg og sjálfsögð meðan spenna ríkti í efnahagsmálum innanlands, greiðslujöfnuður var hagstæður og gjaldeyrisforði nægur. Dregið hefur verulega úr innlendum sparnaði vegna hins breytta ástands í efnahagsmálum. Innstæðuaukning í bönkum hefur minnkað, og ekki er unnt að selja jafnmikið magn spariskírteina og áður. Kom þessi breyting þegar fram á s. l. ári og gerði það að verkum, að fjáröflun reyndist nokkru minni en áætlað hafði verið. Ef byggja hefði átt að mestu á innlendri fjáröflun, eins og á undanförnum árum, hefði fjáröflunin aðeins getað orðið rúmur helmingur þess, sem hún varð á s. l. ári, og hefði þetta leitt til þess, að draga hefði orðið úr starfsemi fjárfestingarlánasjóða og úr opinberum framkvæmdum að sama skapi. Með tilliti til þeirra viðhorfa, sem nú hafa skapazt í efnahagsmálum, þar sem spenna á vinnumarkaðinum er horfin og hætta á, að atvinna reynist ónóg, jafnframt því að greiðslujöfnuður er óhagstæður, taldi ríkisstj. og Seðlabankinn hins vegar réttlætanlegt að freista þess að afla nú verulegs erlends lánsfjár til áætlunarinnar. Hefur nokkur undirbúningur þegar farið fram í þessu skyni, og er gert ráð fyrir, að þessi viðbótarfjáröflun geti numið allt að 275 millj. kr. Í viðbót við þetta verður svo aflað sérstaks erlends lánsfjár vegna Vestfjarðaáætlunar, eins og á undanförnum árum um 28 millj. kr., og gert er ráð fyrir, að svipuð upphæð mótvirðisfjár samkvæmt vörukaupasamningi við Bandaríkin verði til ráðstöfunar eins og s. l. ár, eða um 46 millj. kr. Innlend fjáröflun til áætlunarinnar verður sama eðlis og á undanförnum árum, en upphæðirnar lægri. Gert er ráð fyrir, að framlag bankanna, sem nú standa yfir samningar um, muni eins og áður nema 10% af innlánsaukningu, og er sú upphæð nú áætluð 50 millj. kr. í stað 70 millj. á s. l. ári. Ekki er gert ráð fyrir, að sala spariskírteina muni nema meira en 75 millj. á þessu ári, samanborið við 125 millj. kr., sem áætlaðar voru á s. l. ári. Þá er fé, er fæst af endurgreiðslu spariskírteinalána á þessu ári, einnig áætlað nokkru lægra nú en á s. l. ári, 50 millj. kr. í stað 61 millj., og endurgreiðslur af brezka láninu, sem komu inn áður en afborganir af því láni hófust og námu 25 millj. kr. á s. l. ári, falla nú niður, þar sem afborganir af því láni munu hefjast á þessu ári. Eigið fé Framkvæmdasjóðs rennur eins og á s. l. ári til áætlunarinnar, en það verður nú talsvert minna en á s. l. ári, vegna þess fyrst og fremst, að afgreiða þarf nú lán, er veitt voru á árinu 1967 samkvæmt áætlun þessa árs, en ekki reyndist þá unnt að afgreiða vegna fjárskorts. Loks hverfur nú þýðingarmikill liður, er var í fjáröfluninni á s. l. ári, framlag af greiðsluafgangi ríkissjóðs frá árinu 1966 að upphæð 53 millj. kr., er gekk til vegagerðar, skóla og sjúkrahúsa innan áætlunarinnar. Í heild nemur hin áætlaða fjáröflun nú 575 millj. kr., samanborið við 521 millj. á s. l. ári. Eru 60% af þessari fjáröflun, eða 335 millj. kr., af erlendum uppruna, samanborið við innan við 10% á s. l. ári.
Í skýrslu þeirri, er ég flutti hér fyrir ári, gerði ég grein fyrir því þýðingarmikla hlutverki, sem Framkvæmdasjóður Íslands mundi framvegis gegna í sambandi við áætlunargerð og fjáröflun vegna fjárfestingarlánasjóða og atvinnufyrirtækja. Í rauninni má telja, að með þeirri skipan, sem þá var upp tekin, sé um tvær framkvæmda- og fjáröflunaraðferðir að ræða. Annars vegar er áætlun um starfsemi fjárfestingarlánasjóða og fjáröflun vegna hennar, sem Framkvæmdasjóður og Seðlabankinn undirbúa og stjórn Framkvæmdasjóðs staðfestir. Hins vegar er áætlun um opinberar framkvæmdir utan fjárlaga og fjáröflun vegna þeirra, sem fjmrn. og Efnahagsstofnunin undirbúa og Alþ. staðfestir með sérstakri lagasetningu. Þessar tvær áætlanir tengjast síðan, að því leyti sem fjáröflunin er hin sama, og fénu er skipt á milli þeirra. Til þess hluta fjáröflunaráætlunarinnar, sem um fjárfestingarlánasjóðina fjallar, gengur eigið fé Framkvæmdasjóðs og lánsfjáröflun frá bönkunum. Sömuleiðis ganga til hans 113 millj. kr. af hinu væntanlega erlenda lánsfé. Þá gengur erlenda lánsféð til samgöngumála á Vestfjörðum einnig í gegnum Framkvæmdasjóð. Samtals nemur þessi hluti fjáröflunarinnar 245 millj. kr., samanborið við 212 millj. kr. á s. l. ári. Langmestur hluti þess fjár, sem þannig er aflað, gengur til fjárfestingarlánasjóðanna og kemur það til viðbótar eigin ráðstöfunarfé þeirra. Þessir fjárfestingarlánasjóðir eru 8 að tölu, eins og á s. l. ári, og eru þeir þessir: Stofnlánadeild landbúnaðarins, veðdeild Búnaðarbankans, Fiskveiðasjóður, Iðnlánasjóður, Lánasjóður sveitarfélaga, Ferðamálasjóður, Stofnlánadeild verzlunarfyrirtækja og Byggingarsjóður verkamanna. Að auki ganga sérstakar upphæðir til Fiskveiðasjóðs vegna framkvæmda við dráttarbrautir, til Byggingarsjóðs ríkisins vegna byggingaráætlunar ríkissjóðs og Reykjavíkurborgar og til Sementsverksmiðju ríkisins.
Lánveitingar þessara 8 fjárfestingarlánasjóða eru áætlaðar rúmar 640 millj. kr. á þessu ári, fyrir utan lán til dráttarbrautanna, og er það rétt um 100 millj. kr. hærri upphæð en á s. l. ári. Er þessi hækkun að langmestu leyti hjá Fiskveiðasjóði, en lánveitingar hans munu aukast mjög á árinu. Stafar þetta af því, að vegna mikils skipainnflutnings á árinu 1967 hækka samningsbundnar greiðslur vegna innfluttra skipa verulega, auk þess sem gera verður ráð fyrir allverulegri aukningu á lánum vegna skipasmíða innanlands. Þá koma einnig til ný lán vegna gengismunar á erlendum skipalánum og lán vegna endurskipulagningar frystiiðnaðar, en fjár til þessara þarfa er aflað sérstaklega. Hjá öðrum fjárfestingarlánasjóðum munu verða litlar breytingar á lánveitingum frá árinu 1967, og er yfirleitt stefnt að sömu útlánafjárhæðum og í áætlun ársins 1967. Gert er ráð fyrir, að stofnlánadeild landbúnaðarins geti á þessu ári veitt jafnmikil lán og áætlað var að hún veitti undanfarin tvö ár, þ. e. 130 millj. kr. Má búast við, að lánsfjárþörf vegna framkvæmda bænda verði nú nokkru minni en að undanförnu. Á hinn bóginn er mikil þörf aukins lánsfjár til vinnslustöðva og þá einkum sláturhúsa, og er þýðingarmikið, að stofnlánadeildin geti sinnt þeirri lánsfjárþörf í vaxandi mæli. Eigið fé fjárfestingarlánasjóða fer vaxandi frá ári til árs. Þó reyndist fjárhagur þeirra lakari 1967 en áætlað var vegna erfiðrar innheimtu. Vonir standa til, að á þessu ári verði að nýju breyting til batnaðar, og byggist sú aukning á væntanlegum útlánum sjóðanna, sem hér að framan hefur verið gerð grein fyrir, fyrst og fremst á aukningu ráðstöfunarfjár, en ekki á aukinni lánsfjáröflun. Á árinu 1968 verður einhver veruleg aukning á eigin ráðstöfunarfé Fiskveiðasjóðs og Iðnlánasjóðs. Auk þeirrar lánsfjáröflunar til hinnar venjulegu starfsemi fjárfestingarlánasjóðanna, sem að framan er lýst, mun verða aflað lánsfjár til dráttarbrautaframkvæmda að upphæð 15 millj. kr. Ekki er um að ræða lánsfé til áframhalds á þeim miklu framkvæmdum í þessari grein, sem staðið hafa nú um allmargra ára skeið. Mun framkvæmdum við dráttarbrautirnar á Akranesi, í Njarðvík og í Neskaupstað, sem komnar eru mjög langt áleiðis, ljúka að fullu á þessu ári. Þá mun framkvæmdum við dráttarbrautina á Akureyri, sem hófust á s. l. ári, einnig verða að miklu leyti lokið á þessu ári. Enda þótt framkvæmdum sé lokið, eru fjárhagserfiðleikar dráttarbrautanna þar með síður en svo úr sögunni. Fjárfestingarkostnaður við brautirnar er orðinn mjög mikill. Eru tekjur þeirra ekki í neinu eðlilegu hlutfalli við þann kostnað og engin von til þess, að þær geti risið undir honum, nema unnt verði að auka rekstrartekjur þeirra.
Þá er gert ráð fyrir, að Framkvæmdasjóður láni Byggingarsjóði ríkisins 20 millj. kr. vegna byggingaráætlunar ríkisins og Reykjavíkurborgar. Kemur sú lánveiting til viðbótar lánveitingu Atvinnuleysistryggingasjóðs, sem væntanlega mun ekki nema lægri upphæð en á s. l. ári, þ. e. 30 millj. kr. Miðar þessi lánsfjáröflun að því, að byggingaráætlunin dragi sem minnst úr lánveitingum Byggingarsjóðs ríkisins til annarra þarfa. Sementsverksmiðja ríkisins hefur að undanförnu staðið í miklum framkvæmdum, sem nú eru komnar langt áleiðis og ætlunin er að ljúka á þessu ári. Er hér fyrst og fremst um að ræða mannvirki við Ártúnshöfða í Reykjavík til fermingar og affermingar á lausu sementi og geymslu þess. Enn fremur er um að ræða tæki til að vega og ferma laust sement á Akranesi og kaup stórra flutningabifreiða. Kostnaður við þessar framkvæmdir mun fara langt fram úr því, sem rekstrarafgangur verksmiðjunnar getur staðið undir. Er því þörf öflunar verulegs lánsfjár til langs tíma, og er gert ráð fyrir, að 8 millj. kr. gangi fil þessara þarfa af því fé, sem aflað er innan fjáröflunaráætlunar ársins.
Fjáröflun til opinberra framkvæmda nemur að þessu sinni 330 millj. kr. Tæpur helmingur þessarar fjárhæðar, eða 147 millj. kr., mun koma frá hinu væntanlega erlenda láni. En að öðru leyti eru það spariskírteinalán og mótvirði bandaríska vörukaupalánsins, sem ganga til þessa hluta áætlunarinnar, eins og á undanförnum árum. Fjáröflun til opinberra framkvæmda er nokkru hærri í áætlun þessa árs en hún var á síðastliðnu ári, en þá nam hún 309 millj. kr. Þetta felur það jafnframt í sér, að hún er hærri en hún hefur nokkru sinni verið áður. Byggist þetta að sjálfsögðu á þeirri erlendu lánsfjáröflun, sem fyrirhuguð er. Þegar fjáröflunaráætlun ársins var fyrst undirbúin á s. l. hausti í sambandi við undirbúning fjárlaga, var ætlunin að taka aðra stefnu í þessum málum en nú hefur verið valin. Ljóst var þá, að innlend fjáröflun með sölu spariskírteina og öðrum hætti mundi vera miklum annmörkum háð. Var því reynt að lækka sem mest fjárþörf til opinberra framkvæmda innan áætlunarinnar með því að auka fjárveitingar í fjárl. Var þannig ætlunin að sjá fyrir þörfum almennra hafnagerða, skóla, sjúkrahúsa og annarra opinberra bygginga að öllu leyti innan ramma fjárlaga og takmarka fjáröflun til opinberra framkvæmda innan áætlunarinnar við raforkumál, landshafnir, vissar vegaframkvæmdir og flugmál. Þegar hins vegar reyndist nauðsynlegt að framkvæma verulega lækkun útgjalda fjárl. eftir áramótin, var ákveðið að flytja hluta framkvæmda við skóla og sjúkrahús, að upphæð 62.2 millj., frá fjárl. yfir á framkvæmdaáætlunina, jafnframt því sem ákveðið var að reyna að auka þá fyrirhuguðu erlendu lántöku, sem þá þegar var í undirbúningi. Það hefur því nú, eins og einnig á undanförnum árum, verið undir ýmsum atvikum komið, að hve miklu leyti opinberar framkvæmdir falla undir fjárlög, og að hve miklu leyti fjár til þeirra er aflað innan ramma framkvæmda- og fjáröflunaráætlunarinnar. Eins og ég vík að hér á eftir í sambandi við fyrirhugaðar breytingar á áætlunargerð yfirleitt, tel ég rétt að stefna að því, ekki sízt með tilliti til hinnar breyttu fjárlagagerðar, sem nú hefur verið tekin upp, að hin árlega framkvæmda- og fjáröflunaráætlun verði framvegis hluti fjárlaga, að því er tekur til opinberra framkvæmda. Um starfsemi fjárfestingarlánasjóðanna mundi þá eftir sem áður verða samin sérstök árleg áætlun á vegum Framkvæmdasjóðs og Seðlabankans.
Verulegar breytingar verða á skiptingu fjáröflunar á milli einstakra greina opinberra framkvæmda frá því, sem var á s. l. ári. Veruleg aukning verður í einstökum greinum eða til einstakra verka vegna óhjákvæmilegra skuldbindinga. Þannig eykst fjáröflun til Búrfellsvirkjunar úr 25 millj. kr. á s. l. ári í 75 millj. kr. á þessu ári. Þá kemur í fyrsta sinn til sögunnar fjáröflun til nýs og mikils verks, sem nú er að hefjast, Hafnarfjarðarvegar í Kópavogi. Fjáröflun vegna jarðborunar á Reykjanesi og byggingar lögreglustöðvar í Reykjavík eru nýir liðir í áætluninni. Þá hefur fjáröflun til skóla og sjúkrahúsa einnig aukizt verulega frá s. l. ári vegna lækkunar fjárveitinga til þessara greina. Gegn þessum hækkunum hefur orðið að koma nokkur lækkun fjáröflunar til raforkumála, vegamála og flugmála. Fjáröflun til almennra hafnagerða hverfur nú af áætluninni vegna þeirrar miklu hækkunar fjárveitinga á fjárl., sem leiðir af framkvæmd hinna nýju hafnalaga.
Í heild nema framkvæmdir þær, er fjáröflunin gengur til, mjög svipaðri upphæð og á s. l. ári, eða 484 millj. kr., samanborið við 475 millj. þá. Á hinn bóginn nema skuldagreiðslur, sem afla verður fjár til, miklu hærri upphæð en á s. l. ári, eða 156 millj. kr., samanborið við 80 millj. kr. þá. Eru þessar skuldagreiðslur að mestu leyti vegna vegaframkvæmda og skiptir Reykjanesbrautin þar langmestu máli. Nokkur lækkun verður á skuldagreiðslum vegna hennar á næsta ári, en þó verður þess langt að bíða, að fjármál þessara framkvæmda verði komin í eðlilegt horf.
Allmikið er og um aukningu á greiðslu lausaskulda vegna þess, að framkvæmdir við suma vegi, hafnir og flugvelli fóru fram úr áætlun á s. l. ári.
Síðar í þessari skýrslu mun ég gera nánari grein fyrir opinberum framkvæmdum á árinu 1968 yfirleitt og þá jafnframt víkja að einstökum greinum og verkum innan framkvæmdaáætlunar ársins.
Ég hef hér að framan vikið að tengslunum á milli fjárlaga og hinnar árlegu framkvæmda- og fjáröflunaráætlunar og lýst þeirri skoðun minni, að stefna beri að því að fella allar áætlanir um opinberar framkvæmdir undir ramma fjárlaga. Þetta atriði er að sjálfsögðu liður í fyrirætlun um framtíð áætlunargerðar hér á landi yfirleitt. Í þeirri skýrslu, er ég gaf á Alþ. fyrir ári, lýsti ég nokkuð hugmyndum ríkisstj. í þessu efni, jafnframt því sem ég skýrði frá því, að ríkisstj. hefði ákveðið að leggja ekki að svo stöddu fram nýja þjóðhags- og framkvæmdaáætlun til 4 ára við lok áætlunartímabilsins 1963–1966. Síðan þessi skýrsla var flutt, hefur stjórn Efnahagsstofnunarinnar framkvæmt sérstaka athugun á framtíð áætlunargerðar hér á landi og nú fyrir skömmu skilað tillögum og áliti um þetta efni til ríkisstj. Í sambandi við þessa athugun Efnahagsstofnunarinnar kom sérfræðingur Alþjóðabankans í áætlunargerð hingað í heimsókn á s. l. sumri. Tók hann þátt í ráðstefnum og fundum um áætlunargerð og átti ýtarlegar viðræður um þessi mál við ríkisstj. og stjórnarstarfsmenn Efnahagsstofnunarinnar. Í nóvember s. l. gekk hann frá skýrslu um niðurstöðu heimsóknar sinnar, er hann nefnir „Tillögur um áætlunargerð á Íslandi“, og hefur stjórn Efnahagsstofnunarinnar haft hana til hliðsjónar við samningu álits síns og tillagna. Skýrsla sérfræðingsins og álit og tillögur Efnahagsstofnunarinnar hafa fyrir skömmu verið ræddar í Hagráði og hafa nú einnig verið sendar alþm. Ég vil nota það tækifæri, sem mér býðst hér í dag, til þess að skýra frá því, að ríkisstj. er í öllum meginatriðum sammála þeim sjónarmiðum, sem fram koma, bæði í skýrslu sérfræðingsins og áliti og tillögum stjórnar Efnahagsstofnunarinnar. Í samræmi við þetta telur ríkisstj., að á næstu árum beri að halda áfram á þeirri braut, sem íslenzk áætlunargerð hefur beinzt inn á að undanförnu, þ. e. a. s. að leggja megináherzlu á gerð árlegra áætlana annars vegar og gerð áætlana til langs tíma um einstakar atvinnugreinar og einstakar greinar opinberra framkvæmda hins vegar. Jafnframt sé haldið áfram að bæta undirbúning og mat einstakra verka. Er hér raunar einmitt um sömu atriði að ræða og ég nefndi sérstaklega í skýrslu þeirri, er ég flutti hér fyrir ári síðan.
Þar sem þm. hafa þær skýrslur, sem hér um ræðir, undir höndum, er ástæðulaust að rekja einstök atriði þessara fyrirætlana nánar en ég hef nú gert. Endurbætur í áætlunargerð eftir þeim leiðum, sem hér er lagt til, skipta miklu máli, og geta tvímælalaust stuðlað að því að létta þá erfiðleika, sem við mun verða að glíma í íslenzkum efnahagsmálum á næstunni. Á hinn bóginn væri ekki raunhæft að gera ráð fyrir, að unnt sé að hrinda öllum þessum endurbótum í framkvæmd á skömmum tíma. Framkvæmd þeirra krefst endurskipulagningar hjá ráðuneytum og stofnunum, sem óhjákvæmilega mun taka sinn tíma. Áætlunargerð, sem er annað en nafnið tómt, krefst einnig fjölmenns og vel þjálfaðs starfsliðs hjá öllum þeim mörgu ráðuneytum og stofnunum, sem hér koma við sögu. Er það starfslið nú ekki til nema að litlu leyti, og það mun ekki verða til nema hægt og hægt, allra sízt á tímum, sem krefjast hins strangasta aðhalds í opinberum útgjöldum og þá ekki sízt útgjöldum vegna mannahalds.
Í því yfirliti, sem ég gaf hér að framan um viðhorfin í efnahagsmálum á árinu 1968, lýsti ég því, hvernig nauðsynleg aðlögun þjóðarbúskaparins að nýjum og erfiðum aðstæðum hlyti að eiga sér stað með minnkun á ráðstöfun verðmæta, þ. e. a. s. fyrst og fremst með minnkun á neyzlu og fjárfestingu. Þessi aðlögun hefur ekki hafizt af alvöru fyrr en á þessu ári. Og svo framarlega sem ekki verður von bráðar mikil breyting til hins betra á aflabrögðum og útflutningsverðlagi, sem engar líkur benda til, verður að gera ráð fyrir, að hún standi um nokkurra ára skeið.
Eins og ég hef lýst hér að framan, hlýtur það að vera stefna stjórnvalda við þessar aðstæður að stuðla að því, að þessi samdráttur eigi sér stað, án þess að til atvinnuleysis komi og án þess að þær framkvæmdir stöðvist eða tefjist, sem mesta þýðingu hafa fyrir framtíðarþróun þjóðarbúskaparins og velferð almennings. Að þessu hefur verið stefnt í undirbúningi þeirra framkvæmda- og fjáröflunaráætlana ársins, sem ég hef lýst hér að framan, með því að stuðla að því með lánsfjáröflun, að þeir fjárfestingarlánasjóðir, sem styðja að fjármunamyndun í atvinnuvegum og íbúðarhúsabyggingum, geti haldið áfram starfsemi sinni af fullum krafti og þannig að nokkru vegið á móti áhrifum hinna miklu fjárhagsörðugleika atvinnuveganna. Að þessu hefur einnig verið stefnt með aukinni lánsfjáröflun til opinberra framkvæmda, þannig að erfiður fjárhagur ríkissjóðs og aukinn stuðningur hans við atvinnuvegina hafi ekki þurft að leiða til mikillar lækkunar verklegra framkvæmda. Þrátt fyrir þetta mun að sjálfsögðu eiga sér stað veruleg minnkun fjármunamyndunar á þessu ári, enda er sú minnkun forsenda þess, að takast megi að draga úr hinum mikla halla greiðslujafnaðarins og eyðingu gjaldeyrisforðans. Ég mun nú gera nokkra grein fyrir þeirri þróun fjármunamyndunar í einstökum atriðum, sem búast má við á árinu. Að því er bæði atvinnuvegina og íbúðarhúsabyggingar snertir, er hér að sjálfsögðu um verulega óvissu að ræða, og gildir þetta raunar einnig um opinberar framkvæmdir, að því leyti sem þær eru komnar undir ákvörðunum og eigin fjáröflun sveitarfélaga. Eigi að síður má gera ráð fyrir, að þær áætlanir, sem með fjármunamynduninni eru gerðar, sýni í aðalatriðum þá þróun, sem muni eiga sér stað, og hefur sú verið reynslan á undanförnum árum.
Gert er ráð fyrir, að fjármunamyndunin í heild nemi á árinu 1968 rúmum 7600 millj. kr., samanborið við tæpar 7900 millj. á árinu 1967. Er þetta hvort tveggja reiknað á verðlagi ársins 1967. Mundi hér vera um 3% minnkun að ræða um það bil. Eigi að síður mundi þessi fjármunamyndun vera meiri en á nokkru öðru ári, að árinu 1967 einu undanskildu, og mundi nema mjög svipuðu hlutfalli á þjóðarframleiðslu og á því ári, eða rétt um 33%. Að sjálfsögðu er þessi þróun fjármunamyndunar mjög undir áhrifum aukningar framkvæmda við Búrfell og í Straumsvík. Fyrir utan þær framkvæmdir er gert ráð fyrir fjármunamyndun að upphæð rúmlega 6000 millj. kr., samanborið við rúmlega 7100 millj. á árinu 1967, hvort tveggja á verðlagi þessa árs. Mundi hér vera um 15% lækkun að ræða eða um það bil. Miðað við þjóðarframleiðslu mundi lækkunin verða úr 30% um það bil á árinu 1967 í 26% á árinu 1968. Þrátt fyrir minnkunina mundi hér verða um að ræða meiri fjármunamyndun fyrir utan framkvæmdir við Búrfell og í Straumsvík en nokkru sinni áður, að hinu mikla fjárfestingarskeiði 1964–67 undanskildu. Eins og við er að búast mun minnkun fjármunamyndunar verða mest í atvinnuvegunum. Þar hefur aukningin verið örust á undanförnum árum. Þar er lokið ýmsum þeim verkefnum, sem fjármunamyndunin hefur beinzt að um skeið, og þar hefur hin óhagstæða þróun efnahagsmála skapað fjárhagsörðugleika og óvissu um framtíðarhorfur, sem hljóta að draga mjög úr viðleitni til fjármunamyndunar. Mest mun lækkunin verða í kaupum fiskiskipa og í kaupum ýmissa véla og tækja, en einmitt þessi kaup hafa verið gífurlega mikil á undanförnum árum og þó allra mest á árinu 1967. Einnig má gera ráð fyrir, að nokkur minnkun fjármunamyndunar eigi sér stað í landbúnaði, í vinnslu sjávarafurða, í iðnaði, séu framkvæmdir við álbræðsluna ekki taldar með, og í verzlun. Þrátt fyrir þá minnkun, sem hér er gert ráð fyrir, mundi fjármunamyndun í atvinnuvegunum, að undantekinni fjármunamyndun í álbræðslunni, vera meiri en hún hefur nokkru sinni verið hér á landi, að undanteknu tímabilinu 1963–67, sem sker sig úr með einstaklega háa fjármunamyndun á þessu sviði.
Þýðingarmikið er, að það lát, sem nú hlýtur að verða um skeið á örri uppbyggingu atvinnuveganna, sé af hálfu þeirra sjálfra og af hálfu þeirra opinberu aðila, sem hér koma við sögu, notað til að búa sem bezt í haginn fyrir nýtt uppbyggingartímabil. Það hefur komið í ljós, að talsverður hluti þeirrar fjárfestingar, sem framkvæmd hefur verið í atvinnuvegunum á undanförnum árum, hefur ekki verið eins vel undirbúin og ekki eins vel ráðin og æskilegt hefði verið. Þessi fjárfesting ber einnig vott um þröngan sjóndeildarhring þeirra, sem um fjárfestingarákvarðanir fjalla, er kemur fram í ríkri tilhneigingu til þess, að margir aðilar ráðast í sams konar framkvæmdir á sama tíma. Fyrirtæki ættu að geta náð betri árangri í þessu efni en hingað til með því að temja sér vandlegri undirbúning verka og beita strangara arðsemismati en þau hafa gert. Í þessu efni ber bönkum og fjárfestingarlánasjóðum að veita þeim aðstoð og aðhald. Aukin áætlunargerð á sviði atvinnuveganna í samvinnu milli þeirra eigin samtaka og opinberra aðila gæti hér einnig orðið að liði. Gert er ráð fyrir, að íbúðarhúsabyggingar verði á árinu 1968 mjög svipaðar því, sem þær hafa verið á árinu 1967. Er búizt við fjármunamyndun að upphæð 1800 millj. kr., miðað við verðlag ársins 1967, en 2000 millj. kr. miðað við verðlag ársins 1968. Mundi þetta fela í sér um 5% minnkun fjármunamyndunar í íbúðarhúsabyggingum frá metárinu 1967, en þá var fjármunamyndunin talin 1900 millj. kr. á verðlagi þess árs. Að sjálfsögðu er þó þessi tala verulegri óvissu undirorpin, enda þótt mikill stuðningur komi til íbúðarhúsabygginga gegnum starfsemi opinberra sjóða. Íbúðarhúsabyggingar hafa á undanförnum árum verið ríflega miðaðar við áætlaðar þarfir, og mun svo enn verða á þessu ári. Efnahagsstofnunin hefur áætlað íbúðaþörfina um 1600 íbúðir árið 1967, 1700 hvort áranna 1968 og 1969 og 1800 hvort áranna 1970–71. Í reynd er talið, að fjármunamyndun umreiknuð í fullgerðar íbúðir hafi verið um 1800 árið 1966 og 1900 árið 1967 og muni verða um 1800 á árinu 1968. Íbúðarhúsabyggingar á árinu 1966–68 eru því nær því að samsvara þörfum áranna 1970–71 en þessara ára sjálfra. Tala fullgerðra íbúða hefur verið lítið eitt lægri en þetta eða um 1700 á árinu 1966, tæpar 1800 á árinu 1967 og er áætluð 1700 á árinu 1968. Gert er ráð fyrir, að á árinu 1968 muni fjármunamyndun í byggingum og mannvirkjum hins opinbera aukast úr 2490 millj. í 2750 millj. kr., hvort tveggja reiknað á verðlagi ársins 1967, eða um 10%. Stafar þessi aukning af væntanlegri aukningu framkvæmda við Búrfellsvirkjun og Straumsvíkurhöfn, um 465 millj. kr. Aftur á móti er gert ráð fyrir því, að aðrar opinberar framkvæmdir muni dragast saman um 205 millj. kr., eða sem næst 10%. Þrátt fyrir þetta mundi fjármunamyndun í byggingum og mannvirkjum hins opinbera að undanteknum framkvæmdum við Búrfellsvirkjun og Straumsvíkurhöfn verða meiri en hún hefur nokkru sinni verið áður, miðað við fast verðlag, að undanteknum árunum 1966 og 1967. Sú minnkun framkvæmda, sem hér um ræðir, mun fyrst og fremst eiga sér stað í vega- og brúagerð, hafnagerð, flugvallagerð og í framkvæmdum Pósts og síma. Aftur á móti er ekki gert ráð fyrir, að nein minnkun eigi sér stað í skólabyggingum og nokkur aukning muni verða í hitaveitu- og vatnsveituframkvæmdum.
Mun nú nánar vikið að einstökum greinum opinberra framkvæmda. Mikil aukning mun verða í framkvæmd við Búrfellsvirkjun á þessu ári, enda er það ár, sem þær framkvæmdir ná hámarki. Er gert ráð fyrir, að framkvæmdaaukningin nái 940 millj. kr. miðað við verðlag ársins 1968, en 780 millj. kr. miðað við verðlag ársins 1967. Framkvæmdaupphæð s. l. árs nam 380 millj. kr. á verðlagi þess árs. Áætlað er, að aðrar raforkuframkvæmdir en Búrfellsvirkjun muni nema um 260 millj. kr. á árinu 1968. Er þetta mjög svipuð upphæð og á árinu 1967, en þá var fjármunamyndun í þessum framkvæmdum um það bil 250 millj. kr. Eru þá báðar upphæðirnar taldar á verðlagi ársins 1967. Allmiklar breytingar verða þó í ýmsum liðum þessara framkvæmda. Þannig verður veruleg aukning á framkvæmdum Landsvirkjunar, öðrum en Búrfellsvirkjun, vegna byggingar gufuaflsstöðva. Á hinn bóginn verður veruleg minnkun á framkvæmdum Rafmagnsveitna ríkisins. Stafar þetta bæði af erfiðum fjárhag þessa fyrirtækis og þeim almennu erfiðleikum, sem eru á lánsfjáröflun á þessu ári, en einnig af því, að þörf fyrir aukningu dísilrafstöðva, sem verið hefur mikil á undanförnum árum, er nú að mestu horfin. Framkvæmdir rafmagnsveitna sveitarfélaga, bæði Rafmagnsveitna Reykjavíkur og annarra, verða svipaðar og áður. Mjög mikil þörf er aukinna raforkuframkvæmda í ýmsum landshlutum á næstu árum. Hefði raunar verið æskilegt, að unnt hefði verið að veita verulegum upphæðum af fjáröflun ársins í ár til þessara þarfa. Vegna framkvæmda í öðrum greinum, sem komnar eru langt áleiðis og nauðsynlegt er að ljúka sem fyrst, hefur þetta þó ekki reynzt kleift nema að mjög takmörkuðu leyti. Athugun á væntanlegri Laxárvirkjun og hagkvæmustu leiðum til að sjá fyrir raforkuþörf Austurlands og svæðis Húna- og Skagafjarðarveitna er nú að mestu lokið, og mun unnt að taka ákvarðanir á grundvelli þeirra athugana innan skamms. Í sambandi við þessar athuganir er í ráði að reisa á þessu ári litla gufuaflsstöð í Námaskarði til reynslu. Jafnframt mun haldið áfram undirbúningi að Laxárvirkjun. Þá hafa Rafmagnsveitur ríkisins hug á að hrinda í framkvæmd virkjun Smyrlabjargaár í Austur-Skaftafellssýslu, en þeirri virkjun var frestað á sínum tíma, eftir að vélar og leiðslur höfðu verið keyptar, vegna óvissu um, hvort nægilegt vatnsmagn væri til staðar. Einnig hafa Rafmagnsveitur ríkisins áhuga á byggingu línu frá Laxárvirkjun til Raufarhafnar og frá Þverárvirkjun til Búðardals. Allar mundu þessar framkvæmdir stefna að því að draga úr dísilaflsþörf rafmagnsveitnanna og bæta rekstrarafkomu þeirra.
Gert er ráð fyrir, að framkvæmdir við hitaveitur og vatnsveitur aukist úr 170 millj. kr. á ári árið 1967 í 190 millj. kr. á árinu 1968, hvort tveggja reiknað á verðlagi ársins 1967. Munar hér langmestu um mikla aukningu framkvæmda við vatnsveitu í Vestmannaeyjum, en þær framkvæmdir ná hámarki á þessu ári. Einnig er gert ráð fyrir nokkurri aukningu vatnsveituframkvæmda í Reykjavík og á hinn bóginn munu framkvæmdir við Hitaveitu Reykjavíkur, sem verið hafa miklar á undanförnum árum, fara nokkuð lækkandi á þessu ári.
Framkvæmdir við vega- og brúargerð jukust verulega á árinu 1967 samanborið við árið 1966. Byggðist þessi aukning fyrst og fremst á framlagi á tekjuafgangi ríkissjóðs frá árinu 1966, sem gekk aðallega til endurbyggingar brúa. Á þessu ári er mikill vandi á höndum í sambandi við fjármál vega- og brúagerðar, sem ekki er lengur hægt að leysa á þann auðvelda hátt, sem gert var á síðastliðnu ári. Í fyrsta lagi hafa tekjur Vegasjóðs, sem eru fast gjald af benzíni og gúmmíi, ásamt föstum þungaskatti af bifreiðum, ekki aukizt í samræmi við hækkandi kostnað undanfarinna ára. Í öðru lagi hefur viðhaldskostnaður vega reynzt mjög mikill á undanförnum tveimur árum vegna slæms tíðarfars. Í þriðja lagi hafa allmikil lán verið tekin til einstakra vegaframkvæmda á undanförnum árum og þá einkum til lagningar Reykjanesbrautar. Í vegáætlun hefur hins vegar ekki verið séð fyrir nægilegu fé til að standa straum af greiðslu vaxta og afborgana af þessum lánum. Hafa því greiðslur vaxta og afborgana utan vegáætlunar farið ört vaxandi. Í fjórða lagi hafa sumar vegaframkvæmdir, sem unnið hefur verið að á undanförnum árum, orðið mun dýrari en upphaflega var gert ráð fyrir. Gildir þetta fyrst og fremst um byggingu Siglufjarðarvegar. Loks má nefna, að undirbúningur hraðbrautarframkvæmda, sem hófst á s. l. ári, er kostnaðarsamur, þar sem hvort tveggja kemur til, að þessar framkvæmdir eru miklar, og ætlunin er að taka til þeirra erlend lán. Þarfnast þær því nákvæmari undirbúnings en yfirleitt hefur tíðkazt hér á landi, nema í sambandi við raforkuframkvæmdir.
Af þeim sökum, sem hér hefur verið lýst, var það ljóst, að um mikla minnkun vegaframkvæmda hlyti að verða að ræða á árinu, nema gripið væri til sérstakra fjáröflunarráðstafana. Slík minnkun gat hins vegar varla komið til mála, bæði vegna þess, að þá hefði orðið að víkja mjög frá þeim fyrirætlunum, sem 4 ára vegáætlunin nú á síðasta ári fól í sér, og vegna þess, að flestar þeirra vegaframkvæmda, sem nú er unnið að utan vegáætlunar, eru mjög langt komnar og samningabundnar við verktaka þær þýðingarmestu þeirra. Eins og kunnugt er, var því sú leið valin að hækka verulega fjáröflun til vegamála með vegagjöldum. Jafnframt er með þeirri aukningu gjalda lagður fjárhagslegur grundvöllur að lagningu hraðbrauta og annarri aukningu vegaframkvæmda á næstu árum. Þrátt fyrir þessa auknu fjáröflun munu framkvæmdir vega- og brúagerða dragast nokkuð saman á árinu 1968 miðað við árið 1967, eða í 175 millj. kr. samanborið við 210 millj. árið 1967, reiknað á verðlagi þess árs. Kemur hér til, að hin aukna fjáröflun er ekki í gildi allt árið, að viðhaldskostnaður er mikill, að skuldagreiðslur vegna vegaframkvæmda eru mjög miklar og meiri en áður, og hið sérstaka framlag, er greitt var á síðastliðnu ári til Vega- og brúasjóðs af greiðsluafgangi ríkissjóðs árið 1966, fellur nú niður.
Á þessu ári mun verða lokið framkvæmdum við tvo vegi, sem unnið hefur verið að nokkru undanfarin ár með sérstakri fjáröflun utan vegáætlunar. Þetta eru Siglufjarðarvegur og Suðurfjarðavegur um Vattarnes. Ekki þarf að orðlengja þýðingu Siglufjarðarvegar fyrir Siglfirðinga og Fljótamenn. Því miður hefur þessi vegur þó reynzt margfalt dýrari en vonazt hafði verið til. Stafar þetta fyrst og fremst af því, að aðstæður við gerð jarðganga reyndust einstaklega erfiðar, og spáir sú reynsla ekki góðu um gerð jarðganga hér á landi yfirleitt. Þó að framkvæmdum við sjálfan Siglufjarðarveginn verði nú lokið, er enn eftir að byggja upp gamla veginn í Fljótum á milli Ketiláss og Haganesvíkur, svo að fullt gagn verði af þessu verki. Þá mun einnig þurfa að standa undir miklum skuldagreiðslum vegna þessara vega á næstu árum. Lagning Suðurfjarðavegar um Vattarnes mun greiða mjög fyrir traustum samgöngum allt árið á milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar annars vegar og suðurfjarða hins vegar, eins og þegar hefur komið í ljós á þessum vetri. Er hér um mikla samgöngubót að ræða, sem jafnframt mun stuðla að viðgangi Egilsstaða sem miðstöðvar fjórðungsins. Þá mun á þessu ári einnig ljúka lagningu vegar á milli Mývatnssveitar og Húsavíkur, sem framkvæmdir voru hafnar við á s. l. ári. Er hér um að ræða mikið verk, sem nauðsynlegt var að framkvæma vegna starfsemi kísiliðjunnar, en er einnig þýðingarmikil samgöngubót fyrir héraðið allt. Framkvæmdir munu halda áfram á þessu ári við tvo aðra vegi, sem nokkuð hefur verið unnið að á undanförnum árum með sérstakri fjáröflun, en þeir eru Austurlandsvegur á Möðrudalsöræfum og Heydalsvegur í Hnappadalssýslu. Það fé, sem unnt verður að láta ganga til þessara verka á þessu ári, er þó af of skornum skammti til þess, að nokkur gagnlegur áfangi geti þar náðst. Heimildir til lántöku í vegáætlun hafa á sínum tíma verið ákveðnar án vitneskju um það fjármagn, sem kann að verða til ráðstöfunar, og fela slíkar heimildir að sjálfsögðu ekki í sér neinar skuldbindingar um lánsfjáröflun. Lánsfjáröfluninni verður síðan á hverjum tíma að reyna að beina til að ljúka framkvæmdum eða ná þýðingarmiklum áföngum verka, í stað þess að dreifa fénu á marga staði án þess að nokkur skynsamlegur áfangi náist neins staðar. Á undanförnum árum hefur verið reynt að bæta vinnubrögð opinberra framkvæmda í þessu efni, og hefur umtalsverður árangur náðst í þá átt. Því miður gætir þó þröngra héraðssjónarmiða enn helzt til mikið í þessum málum. Þá munu á þessu ári hafnar framkvæmdir við Hafnarfjarðarveg í Kópavogi, en til þess verks mun aflað verulegs lánsfjár samkvæmt sérstöku samkomulagi á milli Kópavogskaupstaðar og samgmrn. Á þessu og næsta ári er ætlunin að ljúka áfanganum norðanmegin á Digraneshálsi á mótum Nýbýlavegar, Kársnesbrautar og Hafnarfjarðarvegar. Að þessum áfanga loknum mun umferðin til Kópavogs og úr honum geta farið greiðlega um þessi vegamót, jafnframt því sem mjög mun létta á umferð um Digraneshálsinn sjálfan.
Eins og áður er sagt, mun á þessu ári haldið áfram undirbúningi framkvæmda við lagningu hraðbrauta og aukningu annarra vegaframkvæmda á næstu árum. Hér er að nokkru leyti um að ræða verkfræðilegan undirbúning einstakra verka og að nokkru leyti almenna áætlunargerð um samgöngumál yfirleitt með sérstakri áherzlu á vegamálin, jafnframt því sem ný fjögurra ára vegáætlun verður undirbúin. Efnahagsstofnunin mun á þessu ári í samráði við samgmrn., vegamálastjórn, hafnarmálastjórn og flugmálastjórn vinna að athugun á samgöngumálum og áætlunargerð um þau til langs tíma. Er ætlunin, að erlend verkfræðifyrirtæki aðstoði við þessa samgöngumálaathugun, og mun skýrsla þessi lögð fyrir Alþjóðabankann eða aðra erlenda lánveitendur, sem sótt verður um lán til vegna hraðbrautaframkvæmda. Vonir standa til, að þessar framkvæmdir gætu hafizt ekki síðar en á árinu 1970, eða þegar eftir að framkvæmdum við Búrfell og í Straumsvík lýkur.
Gert er ráð fyrir, að svipaðri fjárhæð verði varið til gatna- og holræsagerðar á þessu ári eins og á s. l. ári. Verðhækkanir gera það þó að verkum, að fjármunamyndunin verður ívið lægri en á því ári, reiknuð á föstu verðlagi, eða 310 millj. kr. samanborið við 330 millj. kr. á s. l. ári, hvort tveggja miðað við verðlag ársins 1967. Hafa framkvæmdir við gatna- og holræsagerðir, eins og kunnugt er, aukizt gífurlega á undanförnum árum og meira en nokkur önnur grein opinberra framkvæmda.
Hafnaframkvæmdir munu haldast að heita má óbreyttar á þessu ári frá árinu 1967, 245 millj. kr. samanborið við 240 millj., reiknað á verðlagi ársins 1967. Hér kemur þó til greina mikil aukning í framkvæmdum við Straumsvíkurhöfn, eða úr 40 millj. kr. árið 1967 í 105 millj. kr. á þessu ári. Framkvæmdir við aðrar hafnargerðir munu dragast saman á árinu. Mestu munar þó hér um minnkun framkvæmda við Sundahöfn í Reykjavík, sem nú er komin langt áleiðis. Framkvæmdirnar við landshafnirnar á Rifi, í Keflavík — Njarðvík og í Þorlákshöfn munu einnig verða nokkuð minni á þessu ári en á s. l. ári. Eigi að síður er stefnt að því að ljúka nú framkvæmdum við landshafnirnar í Keflavík — Njarðvík og í Þorlákshöfn, þannig að báðar þessar hafnir komist í fulla notkun. Frekari framkvæmdum við Rifshöfn verður hins vegar frestað að sinni. Miklu máli skiptir, að framkvæmdum við hinar landshafnirnar tvær verði lokið eins og áætlað er, og hefur fjárveiting til þessara hafna innan fjáröflunaráætlunarinnar verið aukin verulega í þessu skyni, og einnig til þess að unnt sé að greiða skuldir frá fyrri árum. Báðar þessar hafnarframkvæmdir hafa reynzt miklu dýrari en ráð hafði verið fyrir gert. Báðar þeirra, og þó einkum Þorlákshöfn, eru dæmi þess skorts á nægilega góðum tæknilegum og fjárhagslegum undirbúningi verka, sem allt of oft hefur viljað brenna við í opinberum framkvæmdum hér á landi. Það er einnig dæmi um það, hversu lítill gaumur því oft hefur verið gefinn hér á landi, að hagsbætur verka standi í eðlilegu hlutfalli við kostnað þeirra. Eigi að síður eru þessi verk nú komin svo langt áleiðis, að miklu máli skiptir nú að ljúka þeim hið fyrsta, svo hið mikla fjármagn, sem í þeim er bundið, geti farið að skila einhverjum arði. Jafnframt er þýðingarmikið, að sams konar vinnubrögð verði ekki endurtekin framvegis, en að því marki stefna þær lagfæringar á undirbúningi opinberra framkvæmda, sem nú er verið að vinna að. Gert er ráð fyrir, að framkvæmdir við almennar hafnargerðir, þ. e. a. s. aðrar hafnargerðir en landshafnirnar, Reykjavíkurhöfn og Straumsvíkurhöfn, verði svipaðar á þessu ári og s.l. ári, en þó nokkru lægri reiknað á föstu verðlagi. Fjár til þessara hafnargerða er aflað með fjárveitingum, sem mjög hafa verið hækkaðar í samræmi við nýju hafnal. og nema 43 millj. kr. á ári. Þá munu, eins og á undanförnum árum, ganga til þessarar hafnargerðar lánveitingar úr Atvinnuleysistryggingasjóði að upphæð 20 millj. kr. og lán samkvæmt Vestfjarðaáætlun að upphæð 9.8 millj. kr., og að öðru leyti munu hlutaðeigandi hafnarsjóðir og sveitarfélög sjálf sjá um fjáröflunina. Miklir fjárhagsörðugleikar munu hins vegar verða hjá mörgum þessara hafnargerða vegna þess, að þær eru ekki færar um að standa undir vöxtum og afborgunum af lánum og eru þegar í vanskilum við Ríkisábyrgðasjóð. Samkvæmt nýju hafnal. var ætlunin, að Hafnabótasjóður gæti komið þessum hafnargerðum til aðstoðar. Þar sem ákvæði hins upphaflega frv. um sérstaka fjáröflun til Hafnabótasjóðs í þessu skyni voru felld niður, hefur Hafnabótasjóður hins vegar ekki fjárhagslegt bolmagn til þess að leysa þetta hlutverk af hendi nema að takmörkuðu leyti. Sérstök athugun fer nú fram á þessu fjárhagslega vandamáli. Svo mikið hefur verið unnið í hafnargerðum víða um land á undanförnum árum, að unnt ætti að reynast á nokkrum árum að koma öllum þeim höfnum, sem þýðingu hafa fyrir samgöngur og fiskveiðar í viðunandi horf. Mun gerð áætlana um þetta verða einn liður þeirrar athugunar á samgöngumálum, sem unnið verður að á þessu ári. Jafnhliða þessu verða hlutaðeigandi sveitarfélög í samvinnu við aðra opinbera aðila að stuðla að því að koma fjármálum hafnanna í viðunandi horf.
Flugvallarframkvæmdir, sem verið hafa miklar á árunum 1965–1967, munu dragast saman á þessu ári. Stafar þetta fyrst og fremst af því, að framkvæmdum, sem staðið hafa yfir við endurbætur farþegaafgreiðslu á Keflavíkurflugvelli, er nú lokið, og lagfæringu flugbrauta á Reykjavíkurflugvelli og malbikun flugbrautar á Akureyri að mestu lokið. Á þessu ári munu framkvæmdir halda áfram við lagningu flugbrautar í Vestmannaeyjum, við byggingu flugskýlis á Ísafirði og Egilsstöðum og við malbikun á Akureyrarflugvelli, auk ýmissa minni háttar framkvæmda við aðra flugvelli. Endurbótum á öryggiskerfinu mun haldið áfram með sama hætti og á undanförnum tveimur árum. Þörf er verulegra framkvæmda á næstu árum á flugvöllum utan Reykjavíkur, auk nokkurrar lagfæringar á austur- og vesturbraut Reykjavíkurflugvallar. Röðun þessara verka og leiðir til aukinnar fjáröflunar til framkvæmda í þessari grein, munu verða meðal þeirra atriða, sem tekin verða til yfirvegunar í þeirri athugun á samgöngumálum, sem framkvæmd verður á þessu ári og ég hef þegar minnzt á.
Framkvæmdir á vegum Pósts og síma, hljóðvarps og sjónvarps hafa verið mjög miklar á undanförnum árum, og jukust hvað mest á árinu 1966 og 67. Að því er framkvæmdir símans snertir, er fjár til þeirra aflað að mestu leyti á rekstrarafgangi stofnunarinnar og að nokkru leyti með erlendum lánum til fárra ára vegna tækjakaupa. Ætlunin er, að afnotagjöld símans verði ekki hækkuð á þessu ári. Mun rekstrarhagnaður minnka sem þessu svarar og fjárfesting dragast saman í samræmi við þetta. Gert er ráð fyrir, að fjármunamyndun í þessum flokki lækki úr 220 millj. kr. 1967 í 160 millj. kr. 1968, hvort tveggja reiknað á verðlagi ársins 1967.
Skólabyggingar eru ásamt hita- og vatnsveitum eina grein opinberra framkvæmda, sem ekki er gert ráð fyrir að dragist saman á árinu. Er búizt við, að framkvæmdir við skólabyggingar nemi 295 millj. kr. á árinu 1968 samanborið við 290 millj. kr. á árinu 1967, hvort tveggja reiknað á verðlagi ársins 1967. Eru framkvæmdir þessara tveggja ára við skólabyggingar miklu meiri en nokkru sinni hafa verið áður hér á landi.
Gert er ráð fyrir, að sömu fjárhæð sé varið til byggingar sjúkrahúsa á þessu ári og á s. l. ári. Vegna verðhækkana minnkar þó fjármunamyndunin á föstu verðlagi úr 150 millj. 1967 í 135 millj. á þessu ári, hvort tveggja reiknað á verðlagi ársins 1967. Þýðingarmestu verkin, sem hér er um að ræða, eru eins og áður bygging Borgarsjúkrahússins í Reykjavík og stækkun Landspítalans ásamt byggingu eldhúss fyrir þann spítala. Á hinn bóginn hefur byggingu þvottahúss við Landspítalann verið frestað, og er nú verið að athuga aðra lausn á þvottahúsþörfinni í samvinnu við Reykjavíkurborg.
Ekki er gert ráð fyrir breytingu fjárhæða í sambandi við félagsheimili frá því, sem var á s. l. ári, en þó með ívið minnkandi framkvæmdum miðað við fast verðlag. Í sambandi við aðrar opinberar byggingar er heldur ekki gert ráð fyrir breytingum fjárhæða, en hins vegar nokkurri lækkun fjármunamyndunar miðað við fast verðlag. Framkvæmdir við tollstöðvarbyggingu í Reykjavík munu nokkuð dragast saman og byggingu Norræna hússins er nú að mestu lokið. Á hinn bóginn mun verða nokkur aukning framkvæmda við byggingu lögreglustöðvar í Reykjavík og ýmsar byggingar Reykjavíkurborgar. Í þessum flokki eru einnig taldar byggingar rannsóknastofnana atvinnuveganna. Byggingu annarrar álmu Rannsóknastofnunar landbúnaðarins á Keldnaholti er nú lokið og rannsóknastofnunin flutt þangað. Á þessu ári er ætlunin að byggja hús fyrir starfsemi Rannsóknastofnunar byggingaiðnaðarins einnig á Keldnaholti. Þegar því verki er lokið, er næst fyrir hendi að leysa húsnæðisþörf Rannsóknastofnunar iðnaðarins, en hún er enn til húsa í gamla atvinnudeildarhúsnæðinu, sem fyrirhugað hefur verið, að Háskólinn fái til afnota.
Ég vil einnig nota það tækifæri, sem hér býðst, til að gera sérstaka grein fyrir framkvæmdum í samgöngumálum á Vestfjörðum, samkvæmt Vestfjarðaáætlun. Þær framkvæmdir hófust fyrir 3 árum síðan. Var áætlunin byggð á undangenginni athugun á samgöngumálum og öðrum aðstæðum á Vestfjörðum í heild, og miðað að því að einbeita framkvæmdum að því að koma á góðu vegasambandi innan Vestfjarða við tvær miðstöðvar byggðarinnar, Ísafjörð og Patreksfjörð, jafnframt því að góðum flugsamgöngum væri komið á frá þessum tveimur stöðum. Á þessum grundvelli reyndist kleift að afla verulegs erlends fjármagns til framkvæmdanna, eins og kunnugt er. Þessum framkvæmdum er nú svo langt komið að sjá má fyrir enda þeirra á næsta ári. Þær hafa orðið nokkuð dýrari en við hafði verið búizt, enda var verkfræðilegum athugunum ekki lokið, þegar upphaflega áætlunin var gerð, og nánari athuganir hafa leitt í ljós, að varla komi til greina að ráðast í einn lið framkvæmdanna, jarðgöng í Breiðadalsheiði, kostnaðar vegna. Að öðru leyti verður að telja, að framkvæmdirnar hafi gengið mjög vel, og jákvæður árangur þeirra sé þegar farinn að koma í ljós. Koma hér ótvírætt fram kostir skipulegra vinnubragða í undirbúningi framkvæmda og fjáröflunar og einbeitingar framkvæmda á tilteknum og vel völdum verkefnum. Vil ég hér í stuttu máli gera grein fyrir einstökum verkum innan þessarar áætlunar: Framkvæmdum við flugvellina á Ísafirði og Patreksfirði er nú lokið fyrir nokkru, nema byggingu flugskýlis á Ísafirði, sem nú stendur yfir, og malbikun flugvallar á Ísafirði, sem mun frestast um sinn. Hafnargerðum er lokið eða að mestu lokið á Patreksfirði, Þingeyri, Bíldudal, Flateyri og Suðureyri. Framkvæmdir í Súðavík munu hefjast á þessu ári. Ætlunin var að hefja einnig framkvæmdir við Ísafjarðarhöfn á þessu ári, en vegna skemmda á Bolungarvíkurhöfn í vetur hefur nú komið til álits að láta framkvæmdir við þá höfn ganga fyrir, og fresta framkvæmdum við Ísafjarðarhöfn til næsta árs, enda mundu þær ekki hafa skapað bætta hafnaraðstöðu þar á þessu ári hvort sem var. Lagning vegar frá Patreksfirði til Bíldudals um Hálfdan er lokið fyrir 2 árum, sömuleiðis lagningu vegar til flugvallarins á Patreksfirði og að mestu til flugvallarins á Ísafirði. Lagningu vegar um Breiðadalsheiði á milli Flateyrar og Ísafjarðar mun ljúka á þessu ári, að undanteknum göngunum, sem áður er minnzt á, en tæknileg athugun fer nú fram á því vandamáli. Þá mun um helmingi framkvæmda við Súgandafjarðarveg ljúka á þessu ári og sömuleiðis rúmlega helmingi verks sunnan Þingmannaheiðar. Þá mun einnig drjúgum hluta af Bolungarvíkurvegi lokið á þessu ári. Á næsta ári mun þessum vegaframkvæmdum lokið að fullu, og einnig veginum yfir Gemlufallsheiði milli Þingeyrar og Flateyrar. Mun þá í öllum aðalatriðum náð þeim árangri, sem stefnt var að með samgönguáætluninni fyrir Vestfirði.
Við Íslendingar höfum á undanförnum árum lifað eitt mesta velgengnisskeið í sögu okkar. Þjóðarframleiðslan óx ört, og þjóðartekjurnar jukust meir en við höfum yfirleitt átt að venjast áður og meir en í flestum öðrum löndum á sama tíma. Þjóðartekjurnar á mann voru að verða á borð við það, sem bezt gerist í þeim löndum, sem lengst eru komin á þróunarbraut, og tekjuskipting sennilega jafnari en í nokkru öðru landi. Sparnaður og fjármunamyndun var meiri en nokkru sinni áður og meiri en yfirleitt gerist með öðrum þjóðum. Greiðslujöfnuður landsins varð hagstæður árum saman, gjaldeyrisvarasjóður fyllilega á borð við það, sem aðrar þjóðir telja nægilegt, og lánstraust landsins betra en nokkru sinni áður. Við höfðum sjálfir trú á því, að enda þótt framfarirnar gætu ekki alltaf orðið eins örar og þetta, stæði velmegunin traustum fótum, nútímatækni í fiskileit og við veiðar mundi stórlega draga úr hættunni á aflaleysi og blómlegur efnahagur annarra þjóða og vaxandi alþjóðaviðskipti auka eftirspurn eftir útflutningsafurðum okkar og treysta verðlag þeirra. Reynsla undanfarinna tveggja ára hefur fært okkur heim sanninn um það, hversu mjög við erum enn háð þeim náttúruöflum, sem við hvorki skiljum til hlítar eða ráðum við. Þessi 2 ár hafa einnig fært okkur heim sanninn um það, hversu háð við erum efnahagsþróun í heiminum yfirleitt og atburðum í hinum fjarlægustu löndum, og sýnt okkur, hversu langt það á í land, þrátt fyrir þær miklu framfarir, sem orðið hafa í þessu efni, að þjóðir heimsins hafi náð fullu valdi á stjórn efnahagsmála sinna og þróað með sér þá samvinnu, sem geti komið í veg fyrir alvarlegar truflanir alþjóðaviðskipta. Þetta er mikill og gagnlegur lærdómur, ef menn kunna að færa sér hann í nyt, en á það mun nú reyna hjá okkur ekki síður en hjá öðrum þjóðum. Eins og nú horfir við, verðum við að gera ráð fyrir áframhaldandi erfiðleikum á útflutningsmörkuðum og megum ekki búast við skjótum bata aflabragða. Við verðum m. ö. o. að búa okkur undir, að núverandi aðstaða í efnahagsmálum muni haldast um nokkurt skeið og geti jafnvel enn farið versnandi, a. m. k. í sumum atriðum. Þetta felur í sér, að við komumst ekki hjá því að laga líf okkar að nýjum aðstæðum, að reynsla okkar sem einstaklinga og sem samfélagsþegna verður að færast til samræmis við lægri tekjur og framkvæmdir til samræmis við minnkaðan sparnað. Þetta eru mikil umskipti og meira en nokkur nágrannaþjóð okkar mun þurfa að þola, og eiga þær þó margar við mikla erfiðleika að etja. Þessi umskipti verða síður en svo sársaukalaus, en þau eru þó ekki stórvægilegri en svo, að við munum að þeim loknum geta lifað við betri lífskjör en við höfum nokkru sinni áður notið, þar til fyrir 2–3 árum, og haldið uppi meiri framkvæmdum í landinu en við nokkru sinni áður höfum gert, að allra síðustu árum undanteknum. Á undanförnum 2 árum hafa stjórnarvöld landsins leitazt við að sýna fram á nauðsyn þessarar aðlögunar, og búa í haginn fyrir, að hún geti orðið smám saman, án þess að snöggur samdráttur yrði í framleiðslu og framkvæmdum og atvinnuleysi myndaðist. Eftir því sem erfiðleikarnir hafa vaxið, hefur orðið að herða á þessari viðleitni með nýjum og öflugri aðgerðum. Með þeirri framkvæmd á fjáröflunaráætlun fyrir árið 1968, sem ég hef gert grein fyrir í þessari skýrslu, er stefnt að þessu sama markmiði að stuðla að nauðsynlegum breytingum til samræmis við lækkaðar þjóðartekjur, jafnframt því sem komizt sé hjá atvinnuleysi og reynt að leggja sem traustastan grunn að framtíðarþróun efnahagslífsins. Miklu máli skiptir, að í þessu efni takist vel til. Skortur skilnings á eðli vandans og gildi þeirra tækja, sem unnt er að beita við lausn hans, má ekki verða til þess að gera umskiptin sársaukafyllri en brýnustu nauðsyn ber til, og torvelda nýja framþróun, þegar hagstæðari skilyrði verða aftur fyrir hendi. Enn síður má skammsýnt tillit til stéttarhagsmuna og stjórnmálaávinnings valda slíkri ógæfu. Það er ósk ríkisstj., að sem mestur skilningur megi verða á þessum málum og sem mest samstaða við lausn þeirra. Í þeim anda hefur sú áætlun um framkvæmdir og fjáröflun ársins 1968 verið undirbúin, sem ég hef nú gefið skýrslu um.