23.01.1968
Neðri deild: 53. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2155 í B-deild Alþingistíðinda. (1964)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Utanrrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Ég hef raunar ekki annað um þetta að segja heldur en það, að það er fullt samkomulag á milli ríkisstj. Íslands og varnarliðsins, þeirra, sem því stjórna, um það, að hér á Íslandi séu ekki kjarnorkusprengjur af neinu tagi. Og ég veit ekki annað og það hefur aldrei komið neitt fram, sem bendi í aðra átt en þá, að þetta samkomulag sé virt og haldið að öllu leyti af viðsemjendum okkar um þetta mál. Ég hef ekki heyrt um það og það hefur ekki að svo miklu leyti, sem ég veit, legið nokkur grunur á, að þetta samkomulag hafi verið rofið og að kjarnorkuvopn hafi verið höfð hér um hönd.

Ég gleymdi einu atriði í þessu, sem gjarnan má koma með, að ég heyrði það í útvarpi í gær, að þar var birt viðtal við aðmírál Stone, yfirmann varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, þar sem hann ítrekaði og undirstrikaði einmitt þetta, að um þetta væri fullt samkomulag, einnig af þeirra hálfu.