26.03.1968
Neðri deild: 83. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2157 í B-deild Alþingistíðinda. (1968)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Jónas Árnason:

Herra forseti. Ég hef kvatt mér hljóðs utan dagskrár út af atburði, sem í gær gerðist austur í Landssveit skammt frá bænum Stóra-Klofa, og af þessu tilefni vil ég leyfa mér að beina fsp. til hæstv. utanrrh. Hafa íslenzk stjórnarvöld gefið bandarísku herstjórninni einhver fyrirmæli um það að herþotur eins og þessi, sem eru á stöðugu flugi yfir Íslandi í æfingarskyni, að því er manni skilst, haldi sig fjarri mannabyggðum og flytji ekki með sér farm, sem íbúum landsins getur stafað sérstök hætta af, ef slys verða? Ef ekki hafa verið settar reglur um þetta, sýnist mér, að ekki væri vanþörf á að setja slíkar reglur. Hafi slíkar reglur hins vegar verið settar, má líka spyrja: Hvaða eftirlit hefur verið sett af Íslendinga hálfu með því, að þotuflugmenn fari eftir þeim reglum?

Raunar virðist margt benda til þess, að slíkt eftirlit sé næsta slakt, ef það þá nokkurt er. Þess eru mörg dæmi, að herþotur fljúgi mjög lágt yfir byggðum, og í því sambandi má minna á, að hvað sem kann að líða reglum um herþotuflug, eru þó ákvæði skýr og greinileg í íslenzkum lögum um það, að flugmenn yfirleitt megi ekki stunda æfingar undir 1000 feta hæð. Ég hringdi í skrifstofu flugmálastjóra í morgun og fékk þetta staðfest, og vafalaust hafa margir Íslendingar séð þess dæmi, að bandarískir herþotuflugmenn hafa gerzt brotlegir við þau lagaákvæði a. m. k.

Um hættuna, sem stafar af herþotuflugi yfir Íslandi, talar sá atburður, sem gerðist þar eystra í gær, sínu máli. Maður, sem staddur var í 1 km fjarlægð frá þeirri sprengingu, sem varð við slysið, lýsir þessu þannig, að hann hafi fundið loftþrýstinginn af þessu eins og titring á andliti sér og sér hafi fundizt eins og loftið hitnaði snögglega af þessu. Og í morgun hringdi ég til nágranna þessa manns, bóndans á Skarði, Guðna Kristinssonar, sem er hreppstjóri, og þá var þangað nýkominn hópur Bandaríkjamanna af Keflavíkurflugvelli, og bóndi sagði mér, að þeir væru að búa sig undir það að tína saman sprengjurnar, sem kastazt hefðu úr flugvélinni við slysið, eins og hann orðaði það. Og í hádegisfréttum útvarpsins áðan heyrðu menn, að brakið úr flugvélinni hafði kastazt um 200 m svæði. Þarna var líka staddur íslenzkur lögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli, og ég náði tali af honum. Hann taldi að vísu, að hér væri ekki um sprengjur að ræða, heldur tiltölulega litlar eldflaugar, en það væri staðreynd, að flugvélin hefði haft eldflaugar innanborðs. Ég spurði hann, hvort hann teldi, að sú sprenging, sem varð við slysið, hefði stafað af eldflaugum. Hann taldi, að svo væri ekki, heldur sennilegast, að sprengingin hefði orðið af benzíninu í vélinni. En hvað um það, eldflaugar eru að sjálfsögðu í eðli sínu ekki annað en sérstök tegund af sprengjum, þannig að Guðni hreppstjóri fer síður en svo með rangt mál, þegar hann talar um sprengjur í þessu sambandi.

Hugsum okkur nú, að atburður þessi hefði orðið í þéttbýli, t. d. Keflavík eða Grindavík, næsta nágrenni Keflavíkurflugvallar, þar sem þessar flugvélar hafa bækistöð. Umræddur lögregluþjónn sagði mér, að þotan hefði umturnað 400 metra kafla á þeim mel, þar sem hún kom til jarðar. Hún ruddist sem sé eða þaut 400 m leið eftir jörðinni, frá því að hún kom niður og þar til hún stöðvaðist loksins. Slíkur var sem sé hraðinn og krafturinn. Og segir sig sjálft, að ef hún hefði komið niður í þéttbýli, mundu eigi allfá hús hafa orðið illa leikin á eftir, bæði af árekstrinum og einnig af sprengingu eins og þeirri, sem varð þar eystra í gær, svo að maður tali nú ekki um hugsanlegt manntjón af þessum völdum. Og hafi slík sprenging, svo ógnarleg sem hún virðist þó hafa verið, aðeins stafað af benzíni, við hverju mætti þá ekki búast, ef slíkt slys yrði í þéttbýli og ylli því t.d., að eldflaugar eða sprengjur, sem viðkomandi þota hefði innanborðs, spryngju?

M. ö. o., atburður sá, sem í gær gerðist þar eystra í Landssveit, er hastarleg áminning um hættuna, sem stafar af herþotuflugi yfir þessu landi okkar, sem bandaríska herstjórnin leyfir sér að nota að því er virðist að vild sinni sem eitt allsherjar æfingasvæði fyrir stríðsflugmenn sína. Og atburður þessi hlýtur einnig að vekja menn til umhugsunar um nauðsyn þess, að nákvæmt eftirlit sé haft með þessu flugi af hálfu Íslendinga, og flestir Íslendingar munu telja það algera lágmarkskröfu, af hálfu Íslendinga, að þeir fái að segja til um það, hvers konar farm þessar flugvélar fái að flytja með sér.

Ég vil svo þakka hæstv. forseta fyrir það að hafa gefið mér orðið hér utan dagskrár. Ég þykist vita, að hann muni og þm. allir vera mér sammála um nauðsyn þess, að mál þessi séu rædd af alvöru í ljósi þess atburðar, sem í gær gerðist austur í Landssveit.