26.03.1968
Neðri deild: 83. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2160 í B-deild Alþingistíðinda. (1970)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Jónas Árnason:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. svör við fsp. minni. En það er eins og fyrri daginn, að í ljós kemur, að af hálfu okkar Íslendinga er ekki um að ræða neitt eftirlit með framferði Bandaríkjamanna hér á Íslandi. Hæstv. ráðh. komst svo að orði, að þessum flugmönnum sé frjálst að æfa sig eins og þeir þykjast þurfa, og sennilega þá að hafa með sér í flugvélunum það, sem þeim sýnist, að undanskildum þó kjarnorkusprengjum, sem er reyndar ekki heldur haft neitt eftirlit með.

Ég vil nú enn ítreka þau tilmæli, sem hér hafa komið fram á Alþ. hvað eftir annað í vetur, að við förum að rétta svolítið úr okkur gagnvart Bandaríkjamönnum og förum að sýna meira sjálfstæði í afstöðu okkar til þeirra, m. a. með því að treysta þeim ekki endalaust í blindni. Það væri hin herfilegasta glópska. Og sú glópska, því miður, hefur ráðið helzt til miklu um utanríkisstefnu okkar á undanförnum árum, að treysta því í blindni, að annar aðilanna, þeirra, sem takast á um áhrif í veröldinni nú, sé engill, en hinum megin séu tómir djöflar.

Það má í þessu sambandi, af því að ég minntist á hér áðan þau lagaákvæði, að flugmenn megi ekki æfa sig undir 1000 metra hæð, þá má í þessu sambandi minna á það, að í gær gerðist það einnig, eftir að þessi umræddi atburður var orðinn, að þota, sem var í fylgd með þeirri, sem slysið kom fyrir, flaug hvað eftir annað svo nærri bæjum þarna í nágrenninu, að bændur þar eystra lýstu því þannig, að menn og skepnur hefðu orðið dauðskelkaðar. Ástæðan til þessa kann að hafa verið sú, að flugmaðurinn var að fylgjast með því, hvað varð um félaga hans, en atburðir eins og þessi, að þotur fljúgi svona nærri mannabyggð og jafnvel svo, að fólk verði dauðskelkað af, eru ekkert einsdæmi, þannig að bandarískar herþotur og flugmenn í Keflavík hafa að sjálfsögðu hvað eftir annað gerzt brotlegir við umrædd lagaákvæði.

Og ég vil sem sagt enn einu sinni ítreka þau tilmæli, að ríkisstj. fari að auka eftirlit með framferði Bandaríkjamanna hér á landi, og við förum að haga okkur í þessum efnum þannig, að það megi vera okkur til meiri sóma heldur en undanfarið.