04.03.1968
Neðri deild: 69. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2178 í B-deild Alþingistíðinda. (1981)

Verkföll

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Ég skal ekki flytja langa ræðu utan dagskrár í sambandi við þá fsp., sem hér hefur komið fram, og áskorun og svar hæstv. forsrh., en örfá orð vildi ég þó segja. Þá vil ég fyrst benda á að hæstv. ríkisstj. gekkst fyrir því að lögfesta greiðslu vísitöluuppbótar á laun í sambandi við s. n. júní-samkomulag, og var það einn liður í því samkomulagi, sem þá var gert við atvinnurekendur og verkafólk, einmitt að lögfesta verðlagsuppbætur á laun. Mér heyrist nú á hæstv. forsrh., að hann telji, að það sé varhugaverð stefna að skipa þessu með l. Mér finnst þetta vera stefnubreyting. Ef rétt hefur verið að skipa þessum efnum með l., þegar júní-samkomulagið var gert, þá er ekkert síður rétt að skipa þessu með l. nú. Hafi það verið óeðlilegt þá, að þetta væri samningsmál á valdi launþegasamtaka og atvinnurekenda, ætti alveg það sama að gilda nú. Það ætti ekki að skera úr í þessu efni, hvort sérstaklega vel stendur eða eitthvað lakar, þannig að t. d. hæstv. forsrh. og hans menn segi, þegar bezt stendur á: Nú get ég. En þegar erfiðara er að fást við málin, sé sagt, að nú eigi aðrir að ráða fram úr þessu. Mér finnst þetta ekki samræmi, og ég álít, að hæstv. ríkisstj. hefði aldrei átt að yfirgefa þá stefnu að ákveða verðlagsuppbætur með lögum og kom það greinilega fram af minni hendi og Framsfl., þegar um þessi mál var fjallað hér í haust. Við hentum einmitt á það þá, eins og kom mjög eindregið fram hjá verkalýðshreyfingunni og forráðamönnum launþegasamtakanna yfirleitt, að um þetta mundi aldrei fást friður. Verðhækkanir væru framundan og menn vildu ekki taka á sig þá kauplækkun, sem í því fælist, að vísitalan væri slitin úr sambandi.

Það kom greinilega fram, að hér var lagt svo mikið við, að sumir af hinum hógværustu leiðtogum kölluðu þetta stríðsyfirlýsingu hér á hv. Alþ. Þess vegna getur hæstv. forsrh. ekki hafa komið neitt á óvart af því, sem gerzt hefur síðan í þessu efni og það hlaut þannig að fara, að verkalýðshreyfingin gengi fram til þess að tryggja fólk gegn kauplækkunum, en það er ekkert annað, sem verið er að gera en að reyna að tryggja almenning gegn kauplækkun. Það er ekki farið fram á neinar kauphækkanir eða neinar kjarabætur, eingöngu að tryggja sig gegn kauplækkunum.

Hæstv. forsrh. bendir á að staða atvinnuveganna sé erfið um þessar mundir, og það er laukrétt, og ég skal ekki fara að ræða hér um ástæðurnar fyrir því. Við erum ekki sammála um þær. Ég segi, að það stafi bæði af verðfalli og slíkum erfiðleikum og rangri stjórnarstefnu ekki sízt, en um það erum við ekki sammála. En við skulum vera sammála um, að það sé um erfiðleika að ræða. Og þá kemur spurningin: er þá ekki óréttmætt af verkalýðshreyfingunni að neita því að fallast á kauplækkun á almenna kaupinu? Hvað er þetta almenna kaup, sem nú er greitt? Við getum sagt, að það sé yfirleitt frá 110 þús. kr. til 160 þús. kr. eða svo, ef það nær þá því, án yfirvinnu. En yfirvinna hefur nú mjög minnkað eins og kunnugt er.

Ég get ekki skilið, hvernig nokkrum manni dettur í hug, að það sé hægt að lækka þetta kaup, 110 t. d. til 160 þús. kr. á ári, vegna þess að mér er gersamlega ofvaxið að skilja það, hvernig hægt er að lifa af þvílíku kaupi. Og það er þetta, sem frá mínu sjónarmiði er aðalpunkturinn í málinu. Þess vegna hef ég verið fylgjandi því að verðtrygging á laun stæði áfram í l. og tel það skynsamlegast og vil taka undir þá áskorun, sem hér hefur komið fram um það, að verðtrygging á laun verði lögfest á ný og þar með leyst þessi deila. Það sé sett sem fastur punktur, sem allir verði sammála um, að kaup af þessu tagi sé ekki hægt að lækka, og að við trúum því, og ég a. m. k. trúi því alveg statt og stöðugt, að ef skynsamlega er búið að atvinnuvegunum og ýmsar ráðstafanir gerðar þeim til léttis geti þeir greitt þetta. Ný þjóðmálastefna verði tekin, sem yrði náttúrlega að koma til framkvæmda í mörgum liðum þjóðarbúsins. Eigum við ekki öll að vera sannfærð um, að það sé alls ekki komið þannig íslenzkum þjóðarbúskap, að ekki sé hægt að standast þetta kaup?

Ég vil hafa það sem fastan punkt í öllu, sem gert verður, að það sé hægt að greiða þetta kaup, vegna þess að það sé ekki bjóðandi minna. Og á ég þar við almenna kaupið. Þetta sama sagði ég í haust, þegar við vorum að ræða þessi mál.

Hæstv. forsrh. bendir á ýmsa erfiðleika og ég efast ekki um, að það er hægt að benda á ýmsa erfiðleika. En hann benti ekki og það hefur ekki enn verið reynt að benda á það, hvernig menn eiga að komast af með þetta kaup. Og það er frá mínu sjónarmiði og á að vera útgangspunkturinn í þessu og laga síðan annað eftir því. Ég trúi ekki öðru en því, að ef menn sneru bökum saman og leituðu að leiðum, fyndust leiðir, sem hægt væri að fara til þess að greiða fyrir því.

Það virðist vera þannig ástatt núna, að atvinnurekendur treysti sér ekki til þess að semja um þetta. Þeim finnist ekki aðstaða sín vera það góð, þó að þeir viðurkenni þetta í raun og veru um kaupið. Ég hef engan hitt, sem hefur haldið fram, að hægt væri að lifa á þessu kaupi; í einlægni talað, hef hreinlega engan hitt, sem vill halda því fram, en menn segja sumir, að það séu svo margir aðrir erfiðleikar, að ekki sé hægt að fallast á, að kaupið sé óbreytt. Það verði að lækka. En ég held því fram, að ef settur sé fastur sá punktur, að þetta kaup geti alls ekki lækkað og síðan leitað að leiðum til þess að greiða fyrir atvinnurekstrinum, þá sé hægt að leysa þessi vandamál. Með þeirri vinnuaðferð sé það hægt og það sé hún, sem eigi að viðhafa. Endurskoða líka ríkisbúskapinn og allar greinar okkar þjóðarbúskapar með það fyrir augum, að þetta kaup sé algert lágmark. Og þó að verðfall hafi orðið, sem kunnugt er, stendur verðlag ekki verr en það, að það er eitthvað álíka að meðaltali, og verið hefur síðustu 5 árin. Og þó að þjóðartekjur hafi minnkað nokkuð, eins og gerð hefur verið grein fyrir, er engin ástæða til þess að beygja sig svo í duftið að halda því fram, að ekki sé hægt að halda uppi þessum kaupgreiðslum. Ég er alveg sannfærður um, að það er hægt, ef nýjar aðferðir og heppilegri eru uppteknar og ef menn sneru saman bökum um að reyna það.

Ég sagði, að ég ætlaði ekki að flytja hér langa ræðu um ástandið eða halda hér eldhúsdag yfir hæstv. ríkisstj., en ég stóð fyrst og fremst upp til þess að benda á þau fáu atriði, sem ég hef tekið fram, og taka undir þá áskorun, sem fram hefur komið til hæstv. ríkisstj. að draga það ekkert að leysa deiluna. Ef það semdist í dag eða nótt, væri það gott, en draga ekki lengur en til morguns að beita sér þá fyrir því að leysa þetta mál með því að lögbjóða vísitölugreiðslur á nýjan leik og leita síðan samstarfs við sem flesta aðila um að greiða þannig málin, að það verði atvinnuvegunum vel kleift.