08.02.1968
Sameinað þing: 35. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2187 í B-deild Alþingistíðinda. (1989)

Slysfarir á sjó

forseti (BF):

Að undanförnu hafa veður gerzt válynd hér við land. Má heita, að hvert stórviðrið hafi rekið annað. Mestur varð þó veðurofsinn um síðustu helgi, einkum við norðvestanvert landið. Fór þar saman norðan fárviðri, stórhríð, mikið frost og geysilegt hafrót. Hafa þessi aftakaveður valdið líf- og eignatjóni, og enn á ný minnt okkur á þá staðreynd, að alltaf geta náttúruöflin farið svo miklum hamförum, að enginn mannlegur máttur fái rönd við reist.

Þegar slík óveður geisa á hafinu, verða vönduðustu og beztu skip eins og eggjaskurn, og þaulreyndir stjórnendur og sægarpar fá ekki við neitt ráðið. Þá er enginn óhultur, fyrr en komið er alla leið til öruggrar hafnar. Um síðustu helgi leituðu mörg skip skjóls á Ísafirði undan veðurofsanum, en þar er ein öruggasta höfn landsins. Var þá veðurhæð svo mikil, að tvö skip fórust á Ísafjarðardjúpi, þar sem þau áttu örskammt eftir ófarið inn á lífhöfn, og mikil leit að hinu þriðja hefur ekki borið árangur. Er nú talið fullvíst, að það skip hafi einnig farizt. Skipin eru þessi:

Vélskipið Heiðrún II ÍS-12 frá Bolungarvík. Var skipið á leið frá Bolungarvík til Ísafjarðar s. l. sunnudag. Er það venjulega um 45–50 mínútna sigling, en sortinn og byljirnir hröktu skipið af leið, og hélt það sjó á Ísafjarðardjúpi þar til skömmu eftir miðnætti á sunnudagskvöld, að því er bezt er vitað. Síðan hefur ekkert af skipinu heyrzt, og leit að því ekki borið árangur, eins og fyrr segir. Með Heiðrúnu II voru 6 menn.

Togarinn Ross Cleveland frá Hull í Bretlandi. Með honum fórust 18 menn, en einn bjargaðist á undursamlegan hátt, eins og fréttir hermdu í fyrradag.

Togarinn Notts County frá Grimsby í Bretlandi. Af honum fórst einn maður, en varðskipinu Óðni tókst giftusamlega að bjarga 18 manns af áhöfninni.

Fáum dögum áður en þessir válegu atburðir gerðust, fórst brezki togarinn Kingston Peridot frá Hull út af Tjörnesi með allri áhöfn, 20 manns.

Skömmu þar á undan hafði togarinn St. Romanus, einnig frá Hull, farizt í hafinu milli Noregs og Íslands. Á því skipi var 20 manna áhöfn. Hafa þannig farizt 3 skip frá útgerðarborginni Hull og með þeim 59 manns á tæpum mánuði.

Íslendingar og Bretar hafa löngum verið keppinautar í fiskveiðum, en þegar báðar þjóðirnar verða fyrir jafnhörmulegum áföllum og manntjóni, skilja þær hvor aðra.

Hér á Íslandi grúfir kvíði og sorg yfir heimilum þeirra, sem taldir eru af með Heiðrúnu II. frá Bolungarvík. Alþingi og þjóðin öll taka þátt í þeirri sorg og votta harmi slegnum aðstandendum innilegustu samúð.

Í útgerðarborginni Hull í Bretlandi ríkir þungur harmur á heimilum fjölda fiskimanna eftir þær miklu fórnir, sem hafið hefur krafizt síðustu vikurnar af þeirri borg. Þar eins og hér rísa öldur samúðar með öllum þeim, sem um sárt eiga að binda vegna hinna geigvænlegu sjóslysa. Tilfinningar sorgar og samúðar eru þær sömu, hvort sem þær bærast í brjóstum Íslendinga eða brezkra manna.

Atburðir þessir minna enn einu sinni á þær miklu hættur, sem sjómennskunni eru samfara. Um leið minna þeir á þá skyldu, að fyllsta öryggis sé gætt í sambandi við byggingu skipa, búnað þeirra, stjórnun og siglingu. Þarf þetta allt, svo og slysavarnir á landi, að vera eins fullkomið og mannlegur máttur fær frekast við ráðið.

Eiginkonur og aðrir aðstandendur sjómannastéttarinnar í Hull hafa komið af stað hreyfingu til ess að auka öryggi ástvina sinna á sjónum.

Íslendingar hljóta að styðja þá hreyfingu af fremsta megni, og um leið votta þeir syrgjandi ástvinum hinna látnu brezku sjómanna innilegustu samúð.

Ég bið hv. alþm. að taka undir orð mín og heiðra minningu látinna íslenzkra og brezkra sjómanna með því að rísa úr sætum. - [Þingmenn risu úr sætum.]