16.10.1967
Sameinað þing: 3. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2190 í B-deild Alþingistíðinda. (1991)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 14. okt. 1967.

Björn Pálsson, 5. þm. Norðurl. v., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu tvær vikur, vegna sérstakra anna heima fyrir, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Jón Kjartansson forstjóri, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Nú er það upplýst, að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. v., Jón Kjartansson forstjóri, dvelur erlendis og það liggur fyrir frá 2. varamanni flokksins í sama kjördæmi svo hljóðandi símskeyti:

„Er forfallaður frá að mæta á Alþingi. Óska eftir, að Guðmundur Jónasson, Ási, verði til kvaddur í minn stað.

Magnús Gíslason.“

Í framhaldi af þessu liggur svo fyrir kjörbréf Guðmundar Jónassonar bónda, Ási í Vatnsdal, sem 3. varaþingmanns Framsfl. í Norðurl. v., og vil ég biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]