20.11.1967
Sameinað þing: 13. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2193 í B-deild Alþingistíðinda. (2004)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hafa borizt: „Reykjavík, 17. nóv. 1967.

Matthías Á. Mathiesen, 1. þm. Reykn., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi, Axel Jónsson fulltrúi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Síðara bréfið hljóðar svo:

„Reykjavík, 17. nóvember 1967.

Friðjón Þórðarson, 4. þm. Vesturl., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl., Ásgeir Pétursson sýslumaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Fyrir liggja hér tvö kjörbréf, í fyrsta lagi kjörbréf, útgefið af yfirkjörstjórn Reykjaneskjördæmis til handa Axel Jónssyni fulltrúa í Kópavogi, og í öðru lagi kjörbréf, útgefið af yfirkjörstjórn Vesturlandskjördæmis til handa Ásgeiri Péturssyni, Borgarnesi.

Leyfi ég mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka þessi kjörbréf til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]