16.01.1968
Sameinað þing: 27. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2195 í B-deild Alþingistíðinda. (2008)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Karls Sigurbergssonar skipstjóra, sem er 1. varaþm. Alþb. í Reykjaneskjördæmi, kjörbréf fyrir Hjalta Haraldsson bónda, Ytra-Garðshorni, Svarfaðardal, sem er 1. varaþm. Alþb. í Norðurl. e. og kjörbréf fyrir Tómas Árnason hrl., Reykjavík, sem er 1. varaþm. Framsfl. í Austurlandskjördæmi. Kjörbréfanefnd hefur ekkert fundið athugavert við þessi kjörbréf og leggur því einróma til, að öll þessi kjörbréf verði samþ. og kosning þeirra manna, sem ég hef hér nefnt, verði tekin gild.