25.01.1968
Sameinað þing: 29. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2196 í B-deild Alþingistíðinda. (2010)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Forseti (BF):
Svo hljóðandi bréf hefur borizt:
„Reykjavík, 24. jan. 1968.
Bjartmar Guðmundsson, 11. landsk. þm., hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna veikinda, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Sjálfstfl., Eyjólfur Konráð Jónsson hrl., taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Sigurður Bjarnason,
forseti neðri deildar.
Til forseta sameinaðs Alþingis.“
Eyjólfur Konráð Jónsson hrl. hefur ekki áður átt sæti á Alþingi, og þarf að fara fram rannsókn á kjörbréfi hans. Vil ég biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]