25.01.1968
Sameinað þing: 29. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2196 í B-deild Alþingistíðinda. (2011)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Eyjólfs Konráðs Jónssonar ritstjóra sem landsk. varaþm. Sjálfstfl. Hefur n. ekkert fundið athugavert við kjörbréfið og leggur til, að kosningin verði tekin gild og að kjörbréfið verði samþykkt.