08.02.1968
Sameinað þing: 35. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2198 í B-deild Alþingistíðinda. (2020)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 7. febr. 1968.

Sverrir Júlíusson, 10. landsk. þm., hefur ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna veikinda, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 2. varamaður landsk. þm. Sjálfstfl., Ragnar Jónsson skrifstofustjóri, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Ragnar Jónsson skrifstofustjóri hefur ekki áður átt sæti á þessu þingi. Liggur kjörbréf hans fyrir, og vil ég leyfa mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka það til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]