13.02.1968
Sameinað þing: 37. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2199 í B-deild Alþingistíðinda. (2026)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Reykjavík, 12. febr. 1968.

Matthías Á. Mathiesen, 1. þm. Reykn., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda til þess að sitja þing Norðurlandaráðs og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu tvær vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að vegna veikinda 1. varamanns taki 2. varamaður Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi, Oddur Andrésson bóndi, sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Sigurður Bjarnason,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Kjörbréf Odds Andréssonar bónda, Neðra-Hálsi, Kjósarhreppi, útgefið af yfirkjörstjórn Reykjaneskjördæmis, liggur hér fyrir, og vil ég biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréfið til rannsóknar. Á meðan verður gert stutt fundarhlé. — [Fundarhlé.]