09.12.1967
Neðri deild: 36. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 234 í B-deild Alþingistíðinda. (203)

72. mál, ráðstafanir vegna landbúnaðarins í sambandi við breyting á gengi íslenskrar krónu

Landbrh. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Það þótti eðlilegt að taka þetta frv. fyrir í dag, þótt á laugardegi sé, og freista þess að koma því til n. og 2. umr. Eins og sjá má í 1. gr. frv., er gert ráð fyrir því, að málið hafi verið í athugun og afgreiðslu hjá Sexmannanefnd og yfirnefnd, ef Sexmannanefnd kemur sér ekki saman, og því verði lokið fyrir 20. þ. m., en á þeim tíma er talið, að málinu þurfi að ljúka, til þess að framleiðsluráð hafi nægilegan tíma til undirbúnings og framkvæmd I. geti byrjað 1. jan., eins og gert er ráð fyrir, þ.e. að sú hækkun, sem eðlileg er á búvörum vegna gengisbreytingar, komi þá til framkvæmda.

Úrskurður yfirnefndar féll 1. des. s.l., og í þeim úrskurði er ekki gert ráð fyrir þeim eðlilegu hækkunum, sem koma eiga í verðlagið vegna gengisbreytingar. Það er t.d. hækkun á fóðurbæti, olíum o.fl. Í framleiðsluráðsl., 1. mgr. 9. gr., er gert ráð fyrir, að kaup bóndans komi inn í verðlagið, eins og þar er ákveðið, og þarf engin sérstök lög til þess að það megi verða. Það er einnig gert ráð fyrir því í sömu gr., að breyting á vinnslu- og dreifingarkostnaði vörunnar verði tekin til greina til hækkunar á vöruverði samkv. framleiðsluráðsl. En um afleiðingar gengisbreytingarinnar, svo sem hækkun á fóðurbæti, olíum og ýmsu fleira, þurfa að koma sérstök lög, til þess að það komist inn í verðlagið. Og eins og sjá má, er gert ráð fyrir því samkv. 1. gr. þessa frv., að Sexmannanefnd taki málið til meðferðar að fengnum skýrslum og gögnum frá Hagstofu Íslands, og náist ekki samkomulag í Sexmannanefnd, verði málinu vísað til yfirnefndar og yfirnefnd hafi þá lokið störfum 20. des. í síðasta lagi.

Það er óþarft að fara öllu fleiri orðum um þessa gr. Hún skýrir sig alveg sjálf, og er ljóst, hvað í henni felst. 2. gr. frv. er um það, hvernig fer um gengishagnaðinn, sem kann að verða vegna útfluttra landbúnaðarvara, og færður verður á sérstakan reikning samkv. 4. gr. l. nr. 69/1967. En þar er gert ráð fyrir, að það, sem fært er á þennan reikning vegna útflutnings landbúnaðarafurða, komi landbúnaðinum að gagni, og er gert ráð fyrir, að því verði ráðstafað samkv. ákvörðun landbrh. Það er vitað mál, að mikill hluti af því, sem kemur á þennan reikning, mun fara til þess að bæta upp ull og gærur vegna þess, hversu verð á ull og gærum hefur lækkað mikið á erlendum markaði. Þykir hentugt að nota — ég segi — mikinn hluta af þessu til þess. En mín von er sú, að þar verði talsverður afgangur. Það er vitanlega ekki nema um áætlunartölur að ræða enn. Ég segi, ég vona, að það verði talsverður afgangur, en ekkert er hægt að fullyrða um það í dag.

Ég ætla, að það verði samkomulag um þetta frv. og þau ákvæði, sem í því eru, og að þess vegna megi það hafa góðan gang gegnum þingið. Það er augljóst mál, að ef l. eiga að koma til framkvæmda 1. jan., eins og nauðsyn ber til, þarf málið að hafa greiðan gang gegnum þingið. Og þar sem ég ætla, að samkomulag sé um þetta og þau ákvæði, sem í frv. eru, þyki eðlileg og sanngjörn, vil ég vænta þess, að það megi verða.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um málið að svo stöddu, en legg til, að því verði vísað til 2. umr. og hv. landbn.