14.02.1968
Sameinað þing: 38. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2201 í B-deild Alþingistíðinda. (2030)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Frsm. (Auður Auðuns):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf Ásbergs Sigurðssonar, 1. varaþm. Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi. N. hefur ekkert fundið við kjörbréfið að athuga og leggur til, að það verði samþ. og kosning Ásbergs Sigurðssonar tekin gild.