21.02.1968
Sameinað þing: 40. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2204 í B-deild Alþingistíðinda. (2042)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Forseti (ÓB):
Svo hljóðandi bréf hefur borizt frá hæstv. forseta Ed.:
„Björn Fr. Björnsson, 4. þm. Sunnl., hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég get ekki sinnt þingstörfum næstu vikur vegna sérstakra anna heima fyrir, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að vegna forfalla l. varamanns taki 2. varamaður Framsfl. í Suðurlandskjördæmi, Sigurgeir Kristjánsson lögregluvarðstjóri, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Jónas G. Rafnar,
forseti efri deildar.“
Frá l. varamanni Framsfl. í Suðurlandskjördæmi, Helga Bergs, hefur borizt svo hljóðandi bréf: „Vegna sérstakra starfa, sem ákveðin voru áður en kunnugt var um forföll Björns Fr. Björnssonar og ekki verður á frest skotið, er mér ekki mögulegt að taka sæti hans á Alþingi næstu vikurnar. Fer ég því fram á, að til verði kvaddur 2. varamaður Framsfl. í Suðurlandskjördæmi, Sigurgeir Kristjánsson, Vestmannaeyjum.
Virðingarfyllst,
Helgi Bergs.“
Þar sem Sigurgeir Kristjánsson hefur ekki átt sæti fyrr á þingi, fer nú fram rannsókn á kjörbréfi hans, og vil ég hér með leyfa mér að afhenda hv. formanni kjörbréfanefndar kjörbréfið og gef fundarhlé í nokkrar mínútur, meðan rannsókn þess fer fram. — [Fundarhlé.]