11.03.1968
Neðri deild: 73. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2207 í B-deild Alþingistíðinda. (2050)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
forseti (BGr):
Borizt hefur eftirfarandi bréf: „Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu tvær vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi, Ásberg Sigurðsson sýslumaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Sigurður Bjarnason.
Til forseta neðri deildar.“