16.04.1968
Sameinað þing: 51. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2210 í B-deild Alþingistíðinda. (2061)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Frsm. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti.
Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar kjörbréf Óskars E. Levy, bónda á Ósum í Þverárhreppi, sem er annar varaþm. Sjálfstfl. í Norðurl. v., en eins og fram kom í bréfi forseta Nd. hefur verið beðið um, að hann taki þingsæti í veikindaforföllum hv. 4. þm. Norðurl. v., Pálma Jónssonar, en 1. varaþm. Sjálfstfl. í Norðurl. v. situr nú á þingi sem varamaður fyrir hv. 11. landsk. þm. Kjörbréfanefnd mælir með því, að kosningin verði tekin gild og kjörbréfið samþykkt.