19.04.1968
Neðri deild: 102. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2210 í B-deild Alþingistíðinda. (2063)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

forseti (SB):

Forseta hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 19. apríl 1968.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að vegna veikindaforfalla l. varamanns taki 2. varamaður Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi, Oddur Andrésson bóndi, sæti á Alþingi í fjarveru minni.

Matthías Á. Mathiesen,

1. þm. Reykn.“