09.12.1967
Neðri deild: 36. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 238 í B-deild Alþingistíðinda. (208)

72. mál, ráðstafanir vegna landbúnaðarins í sambandi við breyting á gengi íslenskrar krónu

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Ég skal ekki verða fremur en aðrir, sem talað hafa, margorður um þetta frv. nú við 1. umr. En meginefni frv. virðist vera það, sem stendur í 1. málsl. 1. gr., að endurskoða skuli kostnaðar- og tekjuhlið verðlagsgrundvallar landbúnaðarafurða fyrir yfirstandandi framleiðsluár, 1967–1968, með tilliti til þeirra verðbreytinga, sem gengisbreytingin hefur haft í för með sér. Mér er ekki kunnugt um og hæstv. ráðh. gat þess ekki, hverjir hefðu samið þetta frv., hvort það væri samið í rn. eða hvort aðrir hefðu um það fjallað. En það, sem ég ætlaði að ræða um í framhaldi af því, sem aðrir hafa gert og sérstaklega hv. 5. þm. Norðurl. e., eru þær upplýsingar, sem fram komu frá hæstv. ráðh. nú í umr., að úrskurður yfirnefndar í verðlagsmálum landbúnaðarins hafi fallið 1. des. s.l.

Eins og kunnugt er, hefur það dregizt mjög lengi að þessu sinni að ákveða verð landbúnaðarvaranna. Ég ætla, að það standi í l. um framleiðsluráð landbúnaðarins, verðskráningu o. fl., að þetta verð eigi að ákveða snemma hausts eða í byrjun septembermánaðar. En nú hefur sem sé, eftir því sem hæstv. ráðh. segir, úrskurður yfirnefndarinnar fallið 1. des. Segja má, nú sem oftar, að betra er seint en aldrei. Fróðlegt er að heyra það, að þessi úrskurður skuli þó að lokum hafa fallið. Mér er nær að halda, að yfirnefndin hafi um síðustu mánaðamót verið búin að starfa á annan mánuð, ef ég man rétt. Og hæstv. ráðh. upplýsti ekkert um það, enda var þess varla að vænta, hvernig þessi úrskurður væri.

En nú hefur komið fram frá hv. þm. í landbn. ósk um það, að n. verði gert kunnugt um efni þessa úrskurðar, og virtist mér hæstv. ráðh. taka liðlega í, að það gæti orðið. Hann tók það fram að vísu, að hann segði ekki Sexmannanefnd fyrir verkum og þá líklega ekki yfirnefndinni heldur. En annað mál er það, að þessi löggjöf um framleiðsluráð landbúnaðarins frá 1966 heyrir undir rn. hæstv. ráðh., og þess vegna er það náttúrlega eðlilegt, að þm. snúi sér til hans um upplýsingar um framkvæmd þeirra.

En í framhaldi af þessu, sem hv. nm. í landbn. fara fram á, að n. verði kunnugt um efni úrskurðarins, vildi ég mælast til þess, að öðrum þm. verði einnig gert kunnugt efni úrskurðarins. Og að sjálfsögðu er í raun og veru annað ófært en að úrskurðurinn verði birtur, þegar hann er loksins fallinn. En út af fyrir sig er ég aðeins að fara fram á, að þm. verði gert kunnugt um efni hans. Og það er m.a. vegna þess, að þótt úrskurðurinn hafi ekki verið birtur, hefur ýmislegt verið rætt um vinnubrögð Sexmannanefndar og yfirdóms eða yfirnefndar, og það hefur komið fram í umr. hér í hv. d., að sumir hv. þm. hafa borið nokkurn ugg í brjósti um það, að vera mætti, að ekki væri farið fyllilega að lögum í sambandi við þennan úrskurð, og má þá a.m.k. ætla, að það kunni að vera eitthvað í þessum aðferðum, sem beitt hefur verið, sem tvímælis orki, eins og stundum er með lög.

Það er með sérstöku tilliti til þessa, sem ég er að óska þess, að þm. verði birtur úrskurðurinn, vegna þess að ef eitthvað það kemur fram í þessum úrskurði, sem mönnum þykir sýnt, að ekki sé í samræmi við gildandi lög eða þann skilning, sem þeir hafa haft á þeim lögum, er náttúrlega tækifæri til þess að gera l. skýrari í sambandi við þetta frv., sem hér liggur fyrir, ef mönnum sýnist svo, og gæti ég ímyndað mér, að mönnum þætti e.t.v. einsætt að nota það tækifæri til þess. En um það vil ég ekkert frekar segja fyrir mitt leyti á þessu stigi málsins og tel ekki, að hægt sé að ræða frekar um það, fyrr en þessi úrskurður er kunnur hér á hinu háa Alþ. og forsendur hans. Út af þessu vil ég endurtaka þessi tilmæli til hæstv. ráðh., að úrskurðurinn verði ekki aðeins birtur landbn.- mönnum heldur þm. öllum.