19.12.1967
Neðri deild: 48. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2223 í B-deild Alþingistíðinda. (2118)

Þingfrestun og þinghlé

Lúðvík Jósefsson:

Ég vil fyrir hönd okkar þdm. þakka hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir í okkar garð. Um leið vil ég þakka honum fyrir góða og rösklega fundarstjórn, og ég óska honum og fjölskyldu hans gleðilegrar jólahátíðar og góðs og farsæls komandi árs. Ég bið hv. þm. að taka undir óskir mínar til forseta með því að rísa úr sætum. [Dm. risu úr sætum.]