19.04.1968
Neðri deild: 102. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2226 í B-deild Alþingistíðinda. (2131)

Starfslok deilda

forseti (SB):

Þá er dagskrá þessa fundar þrotin, en þar sem þetta verður væntanlega síðasti fundur hv. deildar að þessu sinni, leyfi ég mér að þakka öllum hv. þdm. góða og ánægjulega samvinnu og umburðarlyndi við mig sem forseta á liðnum vetri. Sérstaklega vil ég þakka hv. þdm. samvinnulipurð þeirra og þolgæði síðustu daga, sem hafa verið óvenjulegir annatímar, er lagt hafa mikla vinnu á hv. þdm. Jafnframt leyfi ég mér að óska hv. þdm. og fjölskyldum þeirra alls velfarnaðar. Utanbæjarþm. óska ég góðrar heimferðar og heimkomu. Að lokum vil ég láta þá ósk í ljós, að vér megum allir heilir hittast á nýju þingi.