20.04.1968
Sameinað þing: 58. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 2228 í B-deild Alþingistíðinda. (2136)

Þinglausnir

Eysteinn Jónsson:

Ég þakka hæstv. forseta þær árnaðaróskir, sem hann hefur flutt okkur þm. Ég þakka hæstv. forseta fyrir góða samvinnu og fyrir þá tillitssemi, sem hann hefur sýnt í störfum sínum og samstarfi við þm., en sannast að segja er ekki ævinlega létt að gera okkur til hæfis, því að oft sækjum við af kappi að koma málum okkar að. Þetta þakka ég hæstv. forseta.

Þá vil ég enn fremur — og ég veit, að ég tala þar í nafni alls þingheims — óska honum og fjölskyldu hans farsældar og gleðilegs sumars, og læt í ljós þá ósk, að við megum heimta hann heilan á ný, þegar við komum saman aftur. Ég hið menn að taka undir þessi orð með því að rísa úr sætum. [Þingmenn risu úr sætum.]