05.02.1968
Neðri deild: 57. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í C-deild Alþingistíðinda. (2153)
86. mál, hægri handar umferð
Gísli Guðmundsson [frh.] :
Herra forseti. Þegar þetta mál var til meðforðar á fundinum í gær, hafði ég talað um stund, en ekki lokið máli mínu, og varð því hlé á ræðunni, þegar fundi var slitið.
Ég hafði þá þegar tekið til meðferðar í öndverðu m.a., hvers vegna það er ekki of seint að snúa við í þessu máli og hverfa inn á rétta leið, að mínum dómi. Ég hafði einnig rifjað upp að nokkru meðferð þessa máls, þ.e.a.s. frv., sem varð að lögum 1966 um hægri handar umferð, og lesið nokkra kafla úr þeim ræðum, sem þá voru fluttar. Ég gat þess þá, að þetta mál hefði verið lagt fram á öndverðu þingi 1965–66, hefði síðan legið fjóra mánuði í n. og yfirleitt mundi það hafa verið skoðun manna, þegar svo var komið, að ekki væri ætlunin að afgreiða málið á því þingi. En þá hefði, þegar komið var undir vor, komizt skriður á málið ýmsum að óvörum og það verið afgr. í n. í hv. Nd., þar sem það fór af stað, og síðan rakti ég nokkuð atvik í því sambandi. Ég gat þess þá um leið, að um það leyti eða litlu áður en dró til úrslita, þannig að málið yrði afgreitt í hv. Ed., en frv. var samþ. þar með 12:8 atkv., áður en það gerðist eða um það leyti hefði mótstaða gegn frv. verið vaxandi í þinginu og þá hefði Alþingi verið farið að berast mótmæli gegn því frá ýmsum, sem sómdu erindi til þingsins, eða undirskriftaskjöl um það mál. Ég vil aðeins því máli mínu til stuðnings leyfa mér að minna á nokkur erindi eða undirskriftaskjöl, sem Alþingi bárust um vorið 1966, áður en frv. var samþ., en ég hef látið athuga það í skjölum Alþingis. Þær mótmælaundirskriftir, sem Alþingi bárust um þetta leytl, þ.e.a.s. nokkrum dögum áður en frv. er samþ. eða rétt um það leyti, voru m.a. þessar, með leyfi hæstv. forseta, eins og það er tekið upp eftir erindaskrá Alþingis:
1) Kristinn Finnsson framkvæmdastjóri Vörubílastöðvar Akraness sendir undirskriftalista með nöfnum 153 bifreiðastjóra, þar sem mótmælt er frv. til l. um hægri handar umferð. 2) Stjórn vörubifreiðastjórafélagsins Vals á Akureyri sendir undirskriftalista með nöfnum 36 félagsmanna, þar sem mótmælt er sama frv. 3) Benedikt Gröndal, 5. þm. Vesturl., sendir undirskriftalista frá 98 Borgfirðingum, þar sem mótmælt er sama frv. 4) 96 bifreiðastjórar í Hafnarfirði skora á Alþingi að fella sama frv. 5) 135 bifreiðastjórar á bifreiðastöðinni Hreyfli í Reykjavík mótmæla sama frv. 6) 92 bifreiðastjórar á Seyðisfirði mótmæla sama frv. 7) Adolf Berndsen sendir undirskriftalista með nöfnum 37 bifreiðastjóra á Skagaströnd, þar sem mótmælt er sama frv. Og að lokum: 97 bifreiðastjórar í vörubílstjórafélaginu Þrótti mótmæla sama frv.
Þetta eru erindi eða mótmælaundirskriftaskjöl, sem fyrir liggja í skjölum Alþingis frá vorinu 1966, um það leyti sem verið var að samþykkja þessi lög. Eins og hv. þm. heyra á þessum upplestri, er það einkennandi fyrir þessi undirskriftaskjöl, að þau eru flest frá bifreiðastjórafélögum og að mér virðist yfirleitt frá atvinnubifreiðastjórum, en þetta eru nú þeir mennirnir auðvitað, bifreiðastjórarnir, sem í raun og veru eiga að framkvæma umferðarregluna, hvort sem hún er vinstri handar regla eða hægri handar regla. Ég vildi aðeins leyfa mér að skýra frá þessu nú því til sönnunar, að ég fór með rétt mál í gær, þegar ég sagði, að undirskriftir til mótmæla hefðu þá þegar verið farnar að berast Alþingi í allverulegum mæll, áður en frv. var samþykkt. Hitt er svo rétt, að mótmæli gegn þessum ráðstöfunum hafa orðið miklu meiri síðar.
Ég hef gert grein fyrir þessum sögulegu atriðum, lesið sýnishorn af umræðunum á Alþingi 1966, sagt frá þessum erindum, sem Alþingi bárust, og getið um fleira í sambandi við sögu þessa máls, til þess að gefa hugmynd um það, sem þá fór fram. Því fer fjarri, að það sé eins og sumir utan þings virðast gera sér í hugarlund, að Alþingi hafi þá verið einhuga um þessa lagasetningu, en ég hef orðið þess var m.a. í blaðagreinum, að það lítur út fyrir, að sumir menn, sem hafa ekki fylgzt með meðferð málsins á Alþingi á undanförnum árum, áliti, að þingið hafi verið einhuga um setningu laganna. En það var síður en svo, að svo væri. Ræðumenn voru að vísu ekki mjög margir, sem þátt tóku í umr., en meiri hl. af þeim, sem til máls tóku, var andvígur frv. Andstaðan var að breiðast út innan þings og utan, og kom það glögglega fram í hv. Ed., þar sem atkvæðafjöldi á móti frv., þegar það var afgr. þar, var hlutfallslega mun meiri en í Nd. En þá var það, sem áhrifamenn í þinginu, undir áhrifum sérfræðinga, sem í slíku máli höfðu á þessu stigi sterka aðstöðu, hespuðu málið af í skyndi undir þinglok. Ég vil aðeins sem sýnishorn af því, sem Alþingi var sagt af sérfróðum mönnum um þetta leyti og sjálfsagt í góðri trú, leyfa mér að minna á það, sem stendur í einu slíku bréfi, sem ég hef hér undir höndum. Þar segir hlutaðeigandi embættismaður í bréfi til allshn. Sþ., með leyfi hæstv. forseta:
„Ég er þess fullviss, að flestir, ef ekki allir, sem við umferðarmál fást hér á landi, séu hlynntir því, að tekinn verði upp hægri handar akstur.“
Ég les ekki upp meira úr þessu bréfi. Það mætti kannske ímynda sér, að alþm. ýmsir, sem ekki hafa mjög ákveðna afstöðu til slíkra mála sem þessara og ekki eru sérlega fróðir í þeim, kynnu að láta það hafa áhrif á sig, og það væri ekki óeðlilegt, að það hefði áhrif í slíku máli sem þessu, þegar þinginu er skýrt frá slíku, að flestir, ef ekki allir, sem við umferðarmál fást hér á landi, séu hlynntir því, að tekinn sé upp hægri handar akstur. Síðar hefur það svo komið í ljós, að því fer fjarri, að svo sé, þó að hlutaðeigandi embættismaður hafi sjálfsagt í góðri trú sagt þetta á sínum tíma. Þeir eru margir, sem við umferðarmál fást og framkvæmd umferðar. Ég hef þegar lesið, hvað nokkuð margir af þeim, sem ég minntist á og við þetta fást í framkvæmd, sögðu um þetta um sama leyti.
Ég dreg það ekki í efa, að þeir menn, sem þarna voru sérfræðingar stjórnar og þings, hafi viljað vel í þessu máli, mér dettur ekki í hug að draga það í efa, en ég hygg, að þeir hafi, eins og t.d. þetta dæmi sýnir, ekki gert sér fyllilega grein fyrir því, hvernig viðhorfin voru, og hið sama hygg ég, að hafi átt sér stað um suma þá, sem töluðu í nafni fjölmennra félaga um þetta leyti, og kem ég að því síðar. Og í sambandi við þessa sérfræðinga, sem við tölum oft um, vil ég raunar draga það nokkuð í efa, að hér séu til nokkrir raunverulegir sérfræðingar í íslenzkri umferð, miðað við íslenzkar aðstæður, þ.e.a.s. það, sem maður getur kallað vísindamenn, að til séu nokkrir slíkir sérfræðingar, nokkrir vísindalegir sérfræðingar, aðrir en þá helzt sjálfir bifreiðastjórarnir, þeir sem hafa í því langa reynslu að stríða við vanþróað vegakerfi. Í löndum stórborganna og hinna malbikuðu og steinsteyptu breiðvega eru til vísindamenn á þessu sviði, en þeirra vísindi eru miðuð við þeirra lönd, en ekki við Ísland, og ég er ekki heldur viss um það, að slíkir menn vildu ráðleggja okkur, ef þeir væru spurðir, að flytja hér þessar 43 þús. bifreiðar, sem aka nú á vinstri vegarbrún, yfir á þá hægri, eins og ástatt er um íslenzka vegi, með sitt vinstri handar stýri, sem er hið algenga hér. Ég grennslaðist eftir því hjá framkvstj H-nefndarinnar á fundi allshn. um þetta mál, hvort sænsku sérfræðingarnir, sem hingað komu, hefðu verið spurðir um þetta grundvallaratriði. Hann sagði, að þeir hefðu ekki verið spurðir. En svo mikið er víst, að Svíar hafa þangað til á s.l. hausti verið með vinstri handar umferð og vinstri handar stýri samtímis. Það hafa Svíar verið, og fram til þess tíma var umferðin í Svíþjóð talin slysafá samanborið við önnur lönd. Hvað nú verður í Svíþjóð eftir breytinguna, vita menn auðvitað ekki, fyrr en sami hraði og áður var hefur verið leyfður á sænskum vegum. Fullyrðingar til og frá um það, hvort öryggi hafi aukizt eða minnkað við breytinguna í Svíþjóð, eru þess vegna ótímabærar. Þetta kemur ekki í ljós, fyrr en hraðinn á vegunum er kominn í sama horf og fyrr og fjöldi bifreiða, sem um vegina fer, er orðinn svipaður og var fyrir breytinguna. En það hef ég fyrir satt, að mun færri bílar fari nú um sænska þjóðvegi en var fyrir breytinguna, og það stafar auðvitað af því, að ýmsir, sem treysta sér illa í umferðinni, veigra sér við að fara út á vegina eða a.m.k. vilja draga það, þangað til umferðin er orðin öruggari.
Ég vil drepa á það í þessu sambandi, að ég hjó eftir því, að hv. frsm. meiri hl. sagði, ég held, að ég hafi það rétt eftir honum, að mikill hluti af vegum í Svíþjóð væri mjóir malarvegir,—að mikill hluti af vegum í Svíþjóð væri mjóir malarvegir. Ég hef nú ekki farið víða um sænska vegi, ofurlítið samt, og ég hef þar hvergi séð mjóan malarveg, reyndar hvergi malarveg, og ég held, að þetta hljóti að vera á nokkrum misskilningi byggt, að það sé réttlætanlegt að komast þannig að orði. En þó skortir mig kunnugleika til þess og hef ekki getað aflað mér upplýsinga um það, enda þær kannske ekki fyrir hendi, hve mikill hluti af sænsku vegunum kann að vera malarvegir. Ég geri ráð fyrir, að það séu kannske heimreiðir að sveitabæjum, sem eru í strjálbýli í Svíþjóð, og ef til vill einhverjir fjallavegir norður í Lapplandi, — það kann að vera, en ég hef álitið að það væri mikill minni hluti af vegum í Svíþjóð, sem væru malarvegir, — mjóir malarvegir. Ég er nokkuð kunnugur í Danmörku, og þar sjást nú yfirleitt ekki slíkir akvegir. Jafnvel vegir, sem eru svo mjóir, að varla er hægt að mætast á þeim, vegir milli sveitabæja, eru malbikaðir. Ég held, að þetta sé ofmælt, að mikill hluti af vegum í Svíþjóð sé mjóir malarvegir, og ég held, að það þurfi að leiðréttast og ætti að leiðréttast af þeim, sem hafa sagt það.
Ég veit ekki heldur, hvað segja skal um þær upplýsingar, sem komu fram í gær og hafðar voru eftir lögreglustjóranum í Reykjavík og hann talinn hafa eftir lögreglustjóra í Svíþjóð, að við löggæzluna, eftir að umferðinni var breytt, hefðu verið á milli 9 og 10 þús. manns, þ.e.a.s. um 7000 lögreglumenn og 2000 hermenn. Ég hef heyrt nefndar allt aðrar tölur um þetta mál, og ég held satt að segja, að um þetta séu ekki fyrir hendi áreiðanlegar upplýsingar, en grunur minn er sá, að þessi tala, sem þarna er nefnd, sé of lág og ekki tekið allt með í reikninginn. Ég vil aðeins geta þess, af því að það kom fram og var ætlað sem rökstuðningur fyrir því, að sú áætlun um kostnað við löggæzlu, sem gerð hefur verið á vegum Félags ísl. vegfarenda, væri fjarri lagi. Mér er það ekki fyllilega ljóst í einstökum atriðum, hvernig sú áætlun, sem Félag íslenzkra vegfarenda hefur gert, er uppbyggð. En það stendur þar, og þessi grg. félagsins er prentuð hér með nál. minni hl. sem fskj., — það stendur þar, að þegar þeir áætla vissa tölu hér, sem þeir telja nauðsynlega, um leið og breytingin gengur í gildi, ef úr því verður fyrst um sinn, sé sú tala, sem þar er nefnd, í samræmi við fjölda löggæzluliðsins í Svíþjóð. Ef það væri rétt, sem fram kom hjá hv. frsm. meiri hl., að tala löggæzlumanna í Svíþjóð hefði verið 9–10 þús., er þetta náttúrlega ofmælt hjá Félagi ísl. vegfarenda. Þá þarf ekki svo marga menn hér, sem þar er talið. Ég held, að þessi tala, 9–10 þús. sé ekki á öruggum heimildum byggð. En jafnvel þó hún væri rétt, virðist mér, borið saman við grg Félags ísl. vegfarenda, að gera mætti ráð fyrir, að löggæzlan hér kostaði 60–70 millj. kr., sem ekki er í þeirri áætlun, sem gerð var á sínum tíma um kostnað við að taka upp hægri umferð.
Ég gat þess í gær, að hæstv. dómsmrh. hefði sagt á sínum tíma, þegar hann lagði fram frv. um hægri handar akstur: „Það er ekki hægt að segja, að það sé nein önnur reglan hinni betri, að aka vinstra megin á vegi eða hægra megin á vegi.“ Þetta voru orð hæstv. dómsmrh., þegar hann lagði frv. fram: „Það er ekki hægt að segja, að það sé nein önnur reglan hinni betri, að aka vinstra megin á vegi eða hægra megin á vegi.“ Og hæstv. ráðh. hafði vissulega ástæðu til þess að segja þetta, því að umferðarnefndin sjálf, sem er höfundur þessarar lagasetningar, hafði þegar gefið svipaða yfirlýsingu í áliti sínu, sem fylgdi frv. Það álit er dagsett 8. nóv. 1965, og þar segir m.a. svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Þegar taka skal afstöðu til þess, hvort hafa skuli vinstri eða hægri handar umferð, vaknar sú spurning, hverjir séu kostir og gallar hvorrar reglunnar fyrir sig. Talið er, að í sjálfu sér hafi hvorug reglan sérstaka kosti umfram hina. Vandamál skapast hins vegar af því, að umferðarreglur á landi eru mismunandi meðal þjóða, þó að hægri handar umferð sé langalgengust.“
Þetta sagði umferðarnefndin, og þetta var hæstv. dómsmrh. í rauninni að endurtaka, eins og eðlilegt var, þegar hann hafði framsögu fyrir frv. Ekki talar n. um það þá, að hér stafi sérstakur vandi af hægri umferð í lofti og á sjó, þótt síðar hafi verið að því vikið, enda eru víst engin dæmi þess, að skip og bifreið eða flugvél og bifreið rekist á. Ég þekki a.m.k. engin slík dæmi. Ég bæti því við til skýringar á þessu máli.
En þegar við rifjum upp ummæli umferðarnefndar um hægri handar eða vinstri handar regluna árið 1965, erum við í rauninni stödd við upphaf þessa máls. Afstaða umferðarn. er að verða til. Hér er sú hugsun að fæðast, sem skóp þessa lagasetningu. Framsetningin er skýr. Hvorug reglan, hægri eða vinstri, hefur sérstaka kosti umfram hina. Ef Ísland væri eina landið í heiminum og framleiddi sjálft sínar bifreiðar, mættum við halda áfram á vinstri vegarbrún um alla eilífð. Vandamálið skapast af því, það er hugsanagangur umferðarn., — vandamálið skapast af því, að umferðarreglur á landi eru mismunandi meðal þjóða, það segir umferðarnefnd.
En af hverju er okkur þá ekki óhætt að bíða eftir því, að hin eyríkin í veröldinni leysi sinn vanda, að hundrað millj. Japana og 60 millj. Breta og Íra leysi sinn vanda? Og það eru víst fleiri en eyríkin, sem hafa vinstri handar umferð. Ég spurði um það á Alþingi 1966, og ég spurði sérfræðingana um það í allshn. um daginn, hvort hér væri til skýrsla um umferðarreglur, þ.e.a.s. hægri og vinstri, umferðarreglur þeirra 110–120 sjálfstæðu ríkja, sem nú eru í heiminum. Þær skýrslur voru ekki til 1966, og þær virðast ekki heldur vera til árið 1968 hjá sérfræðingum okkar í þessum málum. Samt eru flest þessi ríki í Sameinuðu þjóðunum og senda þeim árlega skýrslur um ótal efni. Við Íslendingar erum líka í þessum félagsskap og sendum á þing Sameinuðu þjóðanna ár hvert marga fulltrúa. Það hefði átt að vera hægurinn hjá að afla þessara skýrslna. En það hefur ekki verið gert. Það er bara sagt, að vinstri handar ríkin séu hverfandi fá. En mér finnst það nú satt að segja bera vott um lausatök að hafa ekki svona skýrslu handbæra, þegar alltaf er verið að tala um þetta, alltaf verið að tala um það, hvaða ríki hafi hægri handar umferð og hvaða ríki vinstri handar umferð, að gera sér þá ekki það ómak að hafa þá skýrslu handbæra, sem alveg sker úr um þetta, þannig að það þurfi ekki að vera með neinar getgátur eða bollaleggingar um það, hve mörg ríki hafi vinstri umferð og hve mörg hægri handar. Þetta sýnir lausatök frá öndverðu, a.m.k. á þessari hlið þessa máls. Og þessi lausatök eru eitt af því, sem var þess valdandi, að ég fyrir mitt leyti fór að efast um það mjög alvarlega, að það væri fullkomlega rétt að fara eftir þeim till., sem fyrir okkur alþm. höfðu verið lagðar.
En hvað sem því líður, hvort sem þessar þjóðir eru margar eða fáar, er eitt þó víst, að eyríkin miklu, Bretland og Japan, tvær af mestu tækniþjóðum heims, hafa vinstri handar umferð á vegum.
Ég skal játa það eins og það er, að ég, sem aldrei hef lært að stýra bifreið og er ekki vel að mér í umferðarreglum, hef lengi veigrað mér við að taka þátt í umr. um þessi mál, m.a. af þeim ástæðum. En í fáeinum orðum vil ég nú rifja upp nokkur atriði, sem ráða afstöðu minni til þessa máls.
Sérfróðir menn virðast hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að á breiðvegum stórþjóða séu hægri og vinstri reglan jafngóðar, en margir líta þó svo á, að á slíkum vegum, þ.e.a.s. breiðvegum stóru landanna, kunni að vera betra, að bifreiðastjóri sitji við vegarmiðju en vegarkant. Í meginlandsríkjum með sameiginleg landamæri er það að sjálfsögðu einhver kostur, að sama umferðarregla gildi, og þess vegna hafa Svíar horfið frá vinstri umferð, m.a. að áeggjan annarra þjóða. Ég ætla það sé rétt, að á fundi í Norðurlandaráði á sínum tíma hafi verið sérstaklega skorað á Svíþjóð að taka upp hægri handar umferð. Það var ekki skorað á Íslendinga að gera það. Og um eylönd, þ. á m. Ísland, gegnir vissulega öðru máli. Hér á landi er nú mestur hluti bifreiða með vinstri handar stýri, og slíkar bifreiðar eru og verða auðfengnar. Á okkar vanþróaða vegakerfi víðast hvar hentar það bezt, að bifreiðastjóri sitji við vegarbrún, og vinstri handar stýrinu hentar þá, skilst mér, bezt vinstri handar umferð. Á hinum breiðustu og beztu þjóðvegum hér, en lengd þeirra er hverfandi, kann að vera fullt svo hentugt, að stýrið sé við vegarmiðju. Það eru þessir vegir, þessi örlitli hluti íslenzku þjóðveganna, sem helzt svipar til erlendra vega, og þar erum við þá líkt settir og Svíar hafa lengst af verið með stýrið við vegarbrún og höfðu þó lága slysatölu. Á þessum stuttu, breiðu og greiðfæru vegarköflum í nágrenni höfuðborgarinnar eru 30% umferðarinnar, heyrði ég sérfræðingana segja á fundi hv. allshn. Þeir sögðu það. Á þessum tiltölulega stuttu vegum hér í nágrenni borgarinnar er 30% af heildarumferð landsins. Ég þóttist skilja, hvað þetta þýddi, og mér rann satt að segja kalt vatn milli skinns og hörunds við að heyra þessi orð sögð. Það þýddi, held ég, þetta: Það má ekki vegna framtíðarinnar taka tillit til umferðarinnar, við skulum segja á 7–8 þús. kílómetrum víðs vegar um landið. Löggjöfina verður að miða við þann hluta veganna eingöngu, þar sem umferðin er allra mest eða lítur út fyrir að verða, hvað sem öllu öðru líður. Ég bið afsökunar, ef ég hef skilið eitthvað skakkt um þetta efni. En þannig skildi ég þessar hugleiðingar. Það veit ég raunar, að mörgum, sem aka bifreið hér í Reykjavík, finnst sér enginn greiði gerður. Um það vitna undirskriftirnar mörgu, sem nú eru komnar hingað, einnig úr Reykjavík og ekki síður. Og á sumrin a.m.k. er fólk héðan úr borginni á ferðinni um land allt, eins og menn vita. En mér verður nú einkum og sér í lagi hugsað til þeirra, sem eru að brjótast áfram um hina lélegu vegi um land allt, ekki sízt um vetrartímann, kannske ekki svo afskaplega margir, en af mikilli nauðsyn, í misjafnri færð, í misjöfnum veðrum, í myrkri, stundum í hálku, stundum í leysingum eða holklaka, og þurfa endilega að fylgjast sem bezt með vegarbrúninni. Ég hef rætt við suma þessa menn, síðast nú fyrir nokkrum dögum, og ég vil, að eftir þeim sé munað hér á hinu háa Alþ. Það skiptir máli þeirra umferð, ekki bara umferð hinna breiðu vega.
Ég veit, að menn vilja vel, bæði hv. þm. og sérfræðingar. Ég veit, að ég hef ekki rætt um allt, sem borið hefur á góma í þessum málum. En á þetta, sem ég nefndi, vil ég minna alveg sérstaklega, og ég held, að það sé ekki að ástæðulausu. Um hina auknu slysahættu almennt, sem kaun að verða samfara breytingunni, ef til kæmi fyrst í stað, ætla ég ekki að ræða sérstaklega. Ég held, að það beri öllum saman um það, að hún sé einhver. En um hana ætla ég ekki að ræða sérstaklega, og ef hægri umferð hefst í vor, sem ég vona að verði ekki, verður þjóðin öll auðvitað að standa saman um að stuðla að því að draga úr þeirri hættu. En ég get ekki látið það fram hjá mér fara, hve mörgum í þessu landi er það sýnilega þvert um geð, að umferðarreglunum verði breytt. Það er rétt, að það var eins og almenningur áttaði sig nokkuð seint á því, sem hér var á ferð, þó með talsverðum undantekningum, eins og ég hef áður greint frá. En eigum við alþm. ekki líka nokkuð örðugt með það stundum að átta okkur á málum af þessu tagi? Þarf okkur þá þess vegna að koma það svo ákaflega á óvart, þó að ýmsir hér og þar um landið væru dálítið lengi að átta sig á því, sem um var að vera, og sérstaklega á því þingi, þegar lögin voru samþ., þar sem þá leit ekki út fyrir annað, en að málinu yrði frestað, eins og ég hef áður gert grein fyrir.
Að lítt athuguðu máli hættir okkur Íslendingum oft við að vilja taka það upp eftir öðrum þjóðum, sem ekki er víst að eigi við hér. Mér er ekki grunlaust um það, að þessi eftirlíkingarhneigð eigi hér nokkurn þátt í þróun þessa máls hjá þeim, sem ráðið hafa.
Það var eins og sumum fyndist í fyrstu, að þetta væri lítið annað en sjálfsagður greiði við ferðamenn, innlenda og útlenda, og að þetta yrði að gera þeirra vegna, sem ég held að nú orðið sé ekki haft mjög á orði, að fengnum nánari upplýsingum. En á fyrsta stigi málsins var það talsvert rætt. Eins og ég sagði, byrjuðu strax á árinu 1966 mótmæli ýmissa og einkum bifreiðastjóra að berast hingað til Alþ. Á síðasta þingi barst hingað straumur skriflegra mótmæla af Suðurlandi, og nú í vetur hafa þinginu borizt þúsundir undirskrifta til mótmæla víðs vegar að, og þau eru víst fleiri á ferðinni. Ég minnist þess, að á einhverju síðasta skjalinu, sem ég sá, voru undirskriftir 68 bifreiðastjóra úr Árnessýslu, atvinnubifreiðastjóra úr Árnessýslu, og þar á meðal sá ég að voru nöfn nokkurra sérleyfishafa hér á Suðurlandsleiðum. Á fundi allshn. var upplýst, og það hefur ekki verið borið til baka, að 20 af 22 rannsóknarlögreglumönnum í Reykjavík hafi skrifað undir mótmæli gegn hægri umferð. Þetta eru mennirnir, sem koma á flesta umferðarslysastaði hér nærlendis og rannsaka hin alvarlegri slys. Þeir hafa áreiðanlega þá reynslu í þessum málum, sem ekki ber að vanmeta með öllu. Á fundi allshn. mætti m.a. formaður F. Í. B. Hann sagði að stjórn þess félags hefði lengi haft áhuga á hægri umferð og að hægri umferð hefði verið samþ. á félagsfundum af þeim, sem þar mættu. En hann gaf jafnframt þær upplýsingar óaðspurður, að hann áliti, að mikill hluti hinna 13 þús. félagsmanna í þessu félagi væri mótfallinn breytingunni, og sagði, að áhugi félagsstjórnarinnar hefði vakið mótmælaöldu meðal félagsmanna. Mér sýnist nokkrar líkur fyrir því, að þau meðmæli með hægri umferðinni, sem á sínum tíma bárust frá stjórn Landssambands vörubifreiðastjóra, séu í álíka ósamræmi við þær skoðanir, sem komið hafa fram hjá félagsmönnum í þessum samtökum, þó að ég hafi ekki orð formanns samtakanna sjálfs fyrir því, eins og í þessu tilfelli. En af hverju er ég að nefna þetta? Það er vegna þess, að á fyrsta stigi þessa máls hér á Alþ. hafði það alveg óumdeilanlega og eðlilega töluverð áhrif á viðhorf manna, að það var álitið, að stjórnir þessara fjölmennu landssamtaka töluðu í nafni meiri hluta félagsmanna. Ég gæti nefnt dæmi um það, að það hafði alveg eðlilega áhrif á viðhorf einstakra þm. Nú er það komið í ljós, að sú skoðun og sú umsögn, sem þarna var látin í ljós, var skoðun þeirra fáu manna, sem sitja í stjórn þessara félaga og að vísu ber ekki að vanmeta, þetta eru mætir menn, en hún var ekki skoðun meiri hlutans í þeim félögum, sem þeir hafa umboð fyrir og álitið var að þeir töluðu fyrir. Ég segi ekki, að þetta eigi að hafa áhrif á það, hvort menn telja réttara að hafa hægri handar eða vinstri handar umferð hér á landi, en þetta er bara til skýringar á því, hvernig þróunin hefur orðið í þessu máli, skýring á ýmsu, sem hér hefur gerzt á Alþ., sem mönnum út í frá að öðrum kosti gengur illa að finna skýringu á.
Sumir bera það sér nú í munn í tilefni af þessu frv., sem hér liggur fyrir, að ekkert sé að marka þjóðaratkvgr. í þessu máli, því beri ekki að láta hana fara fram. En er það ekki þjóðin, sem kýs okkur á þing? Er það ekki þjóðin, sem kýs forseta lýðveldisins? Er það ekki þjóðin, sem er grundvöllur ríkisvaldsins? Og er það ekki einmitt svo, að mikill hluti þjóðarinnar sé orðinn að hálfgerðum, a.m.k. minni háttar sérfræðingum í umferðinni, og að þessum sérfræðingum fari stöðugt fjölgandi, að vísu misjafnlega vel færum í sinni grein, eins og gengur, en þessi stóri, nokkuð misjafni og ef til vill lítt lærði hópur sérfræðinga hefur a.m.k. sumt sem reynslu varðar fram yfir hina staðbundnu sérfræðinga, þó að ég meti þá mikils og vilji ekki gera lítið úr þeim á neinn hátt.
Ég held, að það sé skynsamlegt, eins og á stendur, að láta þjóðaratkvæði fara fram. Ég hef raunar heyrt einstaka fylgismenn hægri umferðar segja, að þetta sé óráð, breytingin verði áreiðanlega felld við þjóðaratkvgr. og samþ. að halda áfram vinstri umferð og þetta sé því ekkert að marka. Þetta um væntanleg úrslit þjóðaratkvgr. er meira en ég veit. Ég vil um það engu spá, hvernig hún kynni að fara. En ég vil minna á það í því sambandi, að talsvert er nú um það talað að taka upp þjóðaratkvæðagreiðslu um sum mál, og ég get ekki séð, að þetta mál sé illa til slíks fallið, eins og nú standa sakir.
Þegar einum helzta hvatamanni hægri umferðar var bent á það hér á Alþ. fyrir tveimur árum, að örðugt gæti reynzt að framkvæma hinn nýja sið vegna hins vanþróaða vegakerfis, svaraði hann eitthvað á þessa leið: Það getur vel verið, en þá er að bæta vegina. — Hann sagði það ekki með þessum orðum, en þetta var það, sem hann átti við. Þessi orðaskipti komu mér í hug, þegar vegamálastjóri var að segja okkur í allshn. frá því, ad því færi fjarri, að búið yrði að lagfæra blindhæðirnar og blindbeygjurnar fyrir H-dag. Það er ekki honum að kenna, að svo verður ekki. Það kostar peninga. En ef meiri hluti Alþ. heldur fast við hægri umferðina, verða menn jafnframt að gera sér ljóst, að uppbygging þjóðvegakerfisins um land allt verður enn meira aðkallandi en hún er núna, að því verður ekki lengur slegið á frest að gera sér grein fyrir, hvað slíkt heildarátak kostar, á hve löngum tíma það verði framkvæmt og hvort afla skuli fjár til þess með því að stórauka tekjur vegasjóðsins eða taka lán, sem ríkið, en ekki vegasjóður, stendur straum af, eða hvort fara eigi báðar þessar fjáröflunarleiðir saman. Ef hér á landi á endilega að taka upp nýja umferðarreglu, þá verða hér líka að koma nýir vegir, ekki bara í nágrenni höfuðborgarinnar, þar sem umferðin er allra mest, heldur á alfaraleiðum í öllum landshlutum.