13.12.1967
Neðri deild: 38. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 243 í B-deild Alþingistíðinda. (216)

72. mál, ráðstafanir vegna landbúnaðarins í sambandi við breyting á gengi íslenskrar krónu

Frsm. meiri hl. (Bjartmar Guðmundsson):

Herra forseti. Frv. þetta er efnislega aðeins tvær gr. Fyrri gr. fjallar um, að endurskoða skuli verðlagsgrundvöll landbúnaðarafurða með hækkun fyrir augum vegna rekstrarvöruhækkunar við landbúnaðinn, sem stafar af gengisbreytingunni, sem nýlega er afstaðin.

Það fer ekki á milli mála, að rekstrarvörur hækka mjög verulega vegna gengisbreytingarinnar, og sumar þær vörur hækka nú þegar í verði. Er þar efst á blaði fóðurbætir, því að eigi munu verið hafa teljandi birgðir í landinu af fóðurbæti, þegar gengisbreytingin varð. Og auk þess kemur þetta sérstaklega þungt niður á bændum nú, vegna þess að fóðurbætiskaup á þessum vetri munu vera með allra mesta móti, sökum þess að heyskapur var mjög rýr s.l. sumar um allt land, og þó sérstaklega verður þetta áberandi erfitt fyrir þá bændur, sem bjuggu við þá sérstöku aðstöðu, að hjá þeim var stórkostlegt kal næstliðið vor og þar að auki 3–4 undanfarin ár í æðimiklum mæli. Ég geri ekki ráð fyrir, að þetta frv. geti leyst vanda þessara bænda, en hann er áreiðanlega mikill, því að fóðurkaup hjá þeim í haust voru gerð hreint og beint með það fyrir augum að setja búpening á erlendan fóðurbæti að æðimiklu leyti. Er þetta að mínu áliti langstærsti liðurinn, sem kemur til álita nú, þegar hækkun verður athuguð á tilkostnaði við búin, samkv. útreikningi Sexmannanefndar. Þar að auki er olía og benzín, sem koma með nokkrum þunga þegar í stað. Hins vegar er það um aðrar rekstrarvörur, sem hækka vegna gengisbreytingar, að sú hækkun kemur inn smátt og smátt og sumt af því ekki fyrr en seint á ári, og er þar stærsti liðurinn áburðarkaupin.

Ég sé í brtt., sem hér liggur fyrir á þskj. 138 frá minni hl. landbn., að þar eru talin upp þau atriði, sem hafa áhrif á rekstrarkostnaðinn, og þar á meðal er áburðurinn talinn og talið sjálfsagt, að hann verði reiknaður inn í verðið, að því er mér skilst þegar í stað, eftir að þessi endurskoðun hefur farið fram. Ég held, að það sé á misskilningi byggt að gera ráð fyrir því, að áburðurinn verði reiknaður inn í verðið að þessu sinni, vegna þess að útgjöld vegna hans koma ekki fram fyrr en seint á árinu, en olíur og fóðurbætir koma af nokkurn veginn fullum þunga strax og ýmislegar fleiri rekstrarvörur, að því er ég hygg, t.d. viðhald á vélum og rekstur þeirra.

2. gr. þessa frv. fjallar hins vegar um ráðstöfun á þeim fjármunum eða gengishagnaði, ef svo mætti að orði kveða, sem verður af sölu á þeim landbúnaðarvörum, sem framleiddar voru áður en gengisbreytingin varð, en seldar eftir að hún er orðin. Á sá peningur að leggjast í sérstakan sjóð, sem ráðstafað verði síðan í þarfir landbúnaðarins, eftir því sem landbrh. leggi til.

Það hefur einnig komið fram brtt. við þessa gr. frv. frá minni hl. landbn. á því þskj., sem ég nefndi áðan, sem gerir ráð fyrir því, að önnur aðferð verði viðhöfð við úthlutun á þessu fé. Ég hlustaði á þær umræður, sem fóru hér fram við 1. umr. þessa máls, og þóttist taka eftir því, að einmitt það ákvæði eða það orðalag gr., sem er í frv., hefði verið samkomulagsatriði milli hæstv. landbrh. eða hæstv. ríkisstj. og framámanna í stéttarsamtökum hænda. Að þessi skilningur minn hefur verið réttur efast ég raunar ekki um, því að ekkert hefur heyrzt frá stéttarsamtökum bændanna, svo sem stéttarsambandinu sjálfu eða Búnaðarfélaginu, um að framámenn bænda væru óánægðir með þetta ákvæði í frv. Og það verður þá leiðrétt, ef svo er. Ég lít því svo á, að frágangur gr. sé gerður með fullu samþykki stéttarsamtakanna, og sé því ekki ástæðu til, að Alþ. fari að gera breytingu á því. Það er kunnugt, að það hefur verið fremur góð samvinna með Stéttarsambandi bænda og hæstv. landbrh. að undanförnu, og hafa ýmis mál verið flutt hér á þingi sem bein afleiðing af samkomulagi milli þessara aðila. Það má nefna þar t.d. framleiðnisjóð landbúnaðarins, jarðakaupasjóð, búreikningaskrifstofu landbúnaðarins, sérstök framlög til illa stæðra bænda á smájörðum og aukaframlag til súgþurrkunar, svo að eitthvað sé nefnt. Öll þessi mál og fleiri munu hafa komið fram og náð fram að ganga, að undangengnum viðræðum og samkomulagi hæstv. landbrh. við stéttarsamtökin, og ég lít svo á, að þetta atriði að ráðstafa þeim peningum, sem koma inn í þennan sjóð, eins og frv. gerir ráð fyrir, sé því með vitund og án óánægju af hálfu þessara stéttarsamtaka fram komin.

Vildi ég leggja til, að frv. það, sem hér um ræðir, verði samþ. eins og það liggur fyrir og mæli þar fyrir munn þeirra nm. í landbn., sem undir álitið hafa skrifað. Þess ber þó að geta að lokum, að landbn. varð sammála um það að flytja eina brtt., sem prentuð er hér á sérstöku þskj., 137, þess efnis, að í staðinn fyrir 20. des. komi í gr. 23. des. Þetta stafar af því, að það muni ekki vera of langur tími til að ganga frá þeim málum, sem frv. gerir ráð fyrir, þó að fresturinn sé til 23. des., ekki sízt þar sem öllu meiri dráttur hefur orðið á afgreiðslu málsins hér í þessari hv. d. en búizt var við. Landbn. lagði áherzlu á það að afgreiða málið frá sér það snemma, að frv. væri tekið til umr. í gær, en það gat ekki orðið og hver dagurinn, sem líður, verður til þess að gera þeim mönnum, sem með málið eiga að fara, þ.e. Sexmannanefnd, örðugra um vik að skila útreikningum sínum í tæka tíð.

Ég tel svo ekki ástæðu til að ræða þetta frekar, en legg til, að frv. verði samþ. með þessari breytingu.