25.11.1967
Neðri deild: 26. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 118 í C-deild Alþingistíðinda. (2174)
59. mál, vegalög
Axel Jónsson:
Herra forseti. Ég vil gera hér nokkrar athugasemdir nú strax við 1. umr. þessa máls, vegna þess að ég tel, að fram komi bæði í grg. með því frv., sem hér er til umr., og einnig hafi komið fram hjá frsm. sá skilningur, sem ég vil ekki láta athugasemdalaust fram hjá mér fara. En það er það, að líta má svo á, að tilkoma Reykjanesbrautarinnar steyptu sé fremur óþurftarverk í garð Suðurnesjamanna en hitt, og í öðru lagi, að með innheimtu umferðarskattsins hafi verið komið aftan að Suðurnesjabúum eða öðrum. Allt þetta er rangt.
Eins og hæstv. samgmrh. tók fram, hygg ég, að það hafi tvímælalaust verið ljóst öllum alþm., þegar vegalögin voru samþ. hér 1963 og þetta ákvæði um heimild til handa ráðh. að ákveða með reglugerð innheimtu umferðargjalds á tilteknum stöðum, að þá hafi fyrst og fremst verið höfð í huga hin væntanlega Reykjanesbraut. Þá var ekki annað, hygg ég, í hugum hv. þm. heldur en einmitt sú fyrirhugaða framkvæmd fyrst og fremst. Það er svo annað mál, að margvíslegum áróðri hefur verið beitt gegn þessari framkvæmd, gegn þeim aðilum, sem að þessu hafa staðið. Það er kannske ekki einsdæmi, að svo sé, en þeir, sem til þekkja, vita, að þarna hefur verið á stundum gengið mjög langt.
Ég minnist þess t.d., að fyrir alþingiskosningarnar 1983 var uppi nokkur deila og hún allviðkvæm milli íbúa Voga og Vatnsleysustrandar annars vegar og ráðamanna í samgöngumálum hins vegar um legu vegarins þar suður eftir. Íbúar þessa svæðis kusu fremur að fá veginn um sína byggð, í stað þess að hann lægi beint suður Strandarheiði, eins og raun er á. Þetta er allt skiljanlegt frá sjónarhóli beggja aðila, að þarna hlaut að verða viss ágreiningur. Skyldi hv. flm. nokkuð kannast við það, að einn frambjóðandi fyrir alþingiskosningarnar 1963 beinlínis lofaði því á framboðsfundi í Vogunum, að ef hann kæmist til áhrifa, skyldi hann beita sér fyrir því, að vegurinn lægi ekki suður Strandarheiði, heldur yrði fluttur nær byggðinni. Og ef litið er á það dæmi, er engu líkara en þar hafi átt að styðjast við aðstoð æðri máttarvalda, því að það var þá þegar mjög langt komið undirbyggingu þessa trausta vegar. Ég nefni þetta sem eitt dæmi af mörgum, sem sanna, að það hefur verið beitt í þessu máli mjög lævíslegum og markvissum áróðri til þess að vekja óánægju í héraðinu um þessa merku og nauðsynlegu framkvæmd.
Ræðumaður vitnaði hér til þess, að mikið hafi verið talað um, og vitnaði í tiltekinn aðila máli sínu til sönnunar um það, að fast hafi verið kveðið að orði um, hversu slæmt ástand gamla Suðurnesjavegarins hafi verið. Þetta er alveg rétt. Þeim mun fremur hlýtur það að hafa orðið verulega mikil samgöngubót að fá í staðinn bezta veg landsins. Það hlýtur að vera mikill munur fyrir þá, sem þar eiga hlut að máli. En sé það ekki réttlætanlegt að greiða það umferðargjald, sem greitt er af veginum, eins og hann er í dag, þá hefur það ekki verið satt, sem haldið hefur verið fram um það, hversu erfiður gamli vegurinn hafi reynzt þeim, sem um hann þurftu að fara. Það er ekki hægt að segja hvort tveggja, að Suðurnesjavegurinn hafi verið svo slæmur, að það hafi valdið stórfelldu tjóni umfram aðra landshluta, að sá vegur hafi verið í svo ömurlegu ástandi, að það hafi valdið íbúum þessa héraðs verulega miklu meira tjóni en íbúum annarra héraða, ástand vegarins þar, miðað við aðra vegi landsins, ef um leið á að segja um þann nýja veg, sem notaður er núna, að það sé ekki greiðandi eitthvað sérstaklega fyrir að nota hann. Og ég get ekki séð, að það sé réttlætanlegra, að það fólk, sem enn býr við lélegu malarvegina, eigi einnig að taka á sig þann aukakostnað, sem orðið hefur af byggingu Reykjanesbrautarinnar. Einhvers staðar verður að taka fjármagnið. Það vissu allir. Reykjanesbrautinni hefur ekki verið ætlað fé á vegalögum eða vegaáætlun, svo að miklu nemi. Það mun ávallt hafa verið stílað upp á það, að tekið yrði lánsfé til þessara framkvæmda. Hvernig á að greiða það? Er ekki réttlætanlegast, að þeir, sem njóta vegarins, greiði það, í stað þess að þeir, sem þurfa að notast við miklu lélegri vegi, eigi einnig að hæta þessum kostnaði á sig?
Ræðumaður minntist einnig í sinni framsöguræðu á fundinn fræga í Keflavík. Ég ætla ekki að ræða um þann fund. Ég vil segja, að því miður varð sá fundur ekki til sóma fyrir þá, sem að honum stóðu eða tóku þátt í samþykktum þar, eins og raunar samgmrh. kom hér inn á áðan.
Þá kem ég að því, að ég vil mótmæla því, að hægt sé að láta líta svo út, að vegaskatturinn eða umferðargjaldið hafi komið Suðurnesjabúum á óvart. Menn geta deilt um upphæð gjaldsins, það er vissulega hægt að deila um það, en það er ekki hægt að segja, að innheimta skattsins hafi komið neinum á óvart, sem fylgzt hefur með. Ég vil aðeins í því sambandi minna á það, að þegar það kom til umr., að vegurinn yrði malbikaður frá Kúagerði og suður úr, í stað þess að hann yrði steyptur, eins og fyrirhugað var, þá risu Suðurnesjamenn mjög upp og andmæltu þessu og færðu fram mörg rök fyrir sínu máli. Ég dreg enga dul á það, að ég var ávallt þeirrar skoðunar, að halda ætti við það, eins og ráðgert hafði verið, að steypa veginn alla leið, og sú varð raunin. Ég hlustaði á rök þessara manna. Það voru ekki haldnir opinberir fundir um þetta atriði, þetta var þá í athugun, en ekki búið að taka opinberlega ákvörðun um það, hvort breytt yrði til, en ég hlustaði á marga Suðurnesjabúa og þeirra rök í þessu máli, og m.a. þau rök, sem mér fannst vera mjög þungvæg, er þeir sögðu: Við eigum að borga þennan veg, og við viljum því hafa talsvert um það að segja, hvort hann verður malbikaður eða steyptur. — Þeir gerðu sér þá ljóst, að það átti að innheimta umferðargjald þarna, og það var í hugum áreiðanlega margra þeirra, að þeir vildu þá heldur, að vegurinn yrði steyptur áfram frá Kúagerði og suður úr en hann yrði malbikaður, þó að það þýddi kannske að einhverju leyti hærra umferðargjald.
Ég vil aðeins, herra forseti, vekja athygli á þessu, því að eins og ég gat um í upphafi, virtist mér koma fram, að tilkoma þessarar merkustu samgöngubótar hér á landi, Suðurnesjavegarins, hafi beinlínis valdið búsifjum í þessu héraði og að innheimta umferðargjaldsins hafi komið aftan að íbúum þar. Þetta er hvort tveggja alrangt. Þarna er um glæsilegustu samgöngubót að ræða, sem fyllsta ástæða er til fyrir íbúa þessa héraðs að vera þakklátir fyrir, sem þeir og allir aðrir, sem þar eiga leið um, njóta, og ég er þess fullviss, að þó að tekizt hafi að vekja upp þessar deilur á fyrri stigum þessa máls, eru þær raddir mjög svo þagnaðar. Þótt við höfum heyrt eina hér í þingsölunum í dag, þá er sem betur fer orðinn allt annar skilningur á þessu máli heima í héraði en þar er haldið fram.