12.03.1968
Efri deild: 69. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í C-deild Alþingistíðinda. (2198)

60. mál, rannsóknir í þágu atvinnuveganna

Frsm. meiri h1. (Pétur Benediktsson):

Herra forseti. Sjútvn. Ed. hefur haft þetta frv. til meðferðar á nokkrum fundum, og hefur ekki verið neinn ágreiningur um það í n., að hér væri um mikið nauðsynjamál að ræða, að auka rannsóknir í þágu atvinnuveganna. Eina atriðið, sem ágreiningur var um í n., var, hvaða leið væri hentugust í því máli, hvort við ættum að auka við enn nýrri stofnun með þeim kostnaði, sem því fylgir að setja á stofn nýtt ráð með nýjum starfsmönnum eða hvor við ættum að láta þetta hlutverk vera í höndum Fiskifélags Íslands, sem er fúst til að vinna að málinu og hefur þegar aukið starfsemi sína í þessa átt.

Ég geri ráð fyrir, að hv. dm. hafi þegar lesið nál. á þskj. 337, og þar er endurtekin í aðalatriðum allýtarleg umsögn frá stjórn Fiskifélagsins, sem eins og sjútvn. öll er málinu mjög hlynnt, en telur hentugast, að að því verði starfað innan Fiskifélagsins og í samvinnu við Hafrannsóknastofnunina. Við í meiri hl. álítum, að í þessum höndum verði málinu vel borgið, og leggjum þess vegna til, að a.m.k. fyrst um sinn verði haldið áfram að vinna að þessum málum í sama anda og hingað til, eða réttara sagt af sömu aðilum í embættiskerfi ríkisins. Við viljum hins vegar að sjálfsögðu ekki sýna frv. neina óvinsemd og viljum þess vegna ekki fella það, heldur leggjum við til, að því verði vísað frá með svofelldri rökstuddri dagskrá:

„Þar eð Fiskifélag Íslands og Hafrannsóknastofnunin hafa hafið tilraunir og leiðbeiningastarfsemi af því tagi, sem í frv. greinir, og í trausti þess, að sú starfsemi megi vaxa og dafna, telur d. ekki ástæðu til að samþykkja frv. og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.“

Ég vona, að hv. þd. geti fallizt á þessa till. okkar um afgreiðslu málsins.