23.11.1967
Neðri deild: 21. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 181 í C-deild Alþingistíðinda. (2231)
48. mál, loðdýrarækt
Flm. (Jónas Pétursson) :
Herra forseti. Frv. til l. um loðdýrarækt á þskj. 50 er hér til 1. umr. Flm. að þessu frv. eru auk mín þeir hv. þm., Ingvar Gíslason, Geir Gunnarsson og Matthías Bjarnason. Nær shlj. frv. þessu var flutt á tveim þingum á síðasta kjörtímabili, og var hv. 2 þm. Norðurl. e. þá 1. flm., en hann á nú sæti í hv. Ed.
Núgildandi lög um loðdýrarækt eru allflókin, og þetta frv. miðar að því að gera lögin einfaldari og skipa sem mest fyrir um framkvæmd þeirra í reglugerð, sem telja verður eðlilegri hátt. En aðalatriði málsins er það, að fella úr l. ákvæðið um bann við minkaeldi, sem sett var af Alþingi fyrir um það bil hálfum öðrum áratug, um það leyti sem ætla verður, að þessi atvinnugrein hafi slitið barnsskónum a.m.k. hér á landi. Framvinda minkaeldisins hjá öðrum þjóðum hefur a.m.k. sannað það á þeim tíma, sem liðinn er frá því að minkaeldi var bannað hér.
Í grg., sem frv. fylgir, er lítillega rakið, hvað fyrir flm. vakir. Það er í stuttu máli að skapa möguleika fyrir nýjum framleiðsluþætti í landi okkar, framleiðsluþætti, sem öll rök hníga með, að sé nánast vaxinn út úr náttúrlegu umhverfi á Íslandi, hvort sem litið er til hnattstöðu, veðurfars eða fæðuskilyrða. Þá þarf naumast að fjölyrða um þörf okkar og nauðsyn að taka til huga og hendi á sem flestum framleiðslusviðum. Ein frumskylda vaxandi þjóðfélags er einmitt að hvetja heldur en að letja þegna sína til athafna á hverju því sviði, sem styrkir undirstöðu þjóðfélagsins. Og með þessu er ekki látin í ljós nein bjánaleg bjartsýni né oftrú á gildi minkaræktar sem íslenzks framleiðsluþáttar. Þvert á móti er ætlazt til, að stigið sé hægum, en öruggum skrefum. Að því miðar bráðabirgðaákvæðið um fá bú fyrstu 4 árin. Á bak við frv. og þetta ákvæði liggur sú skoðun, að hér sé um framtíðaratvinnugrein að ræða, — atvinnugrein, sem ekki ber að hugsa í árum, heldur í áratugum a.m.k. Þess vegna hefur það ekki latt okkur að flytja þetta frv. nú, þótt okkur sé vel ljós sú staðreynd, að mikið verðfall hefur orðið á minkaskinnum um þessar mundir, en þó fyrst og fremst á hinum lélegri tegundum.
Þessi framleiðsla hefur lotið sömu lögmálum á markaði eins og ýmsar framleiðsluvörur íslenzkar um þessar mundir. Er sá kaldi veruleiki kunnari en frá þurfi að segja. Með verðsveiflum má reikna á þessari framleiðslu ekki síður en mörgum öðrum. En á árunum 1964–65 hefur verðið verið einna hæst samkv. dönskum heimildum, hefur síðan fallið stórlega, einkum á feldum af kvendýrum, sem ávallt eru verðlægri og gæðakröfurnar eru nú orðnar stórum strangari.
En ég vil enn benda hér á nokkur atriði í sambandi við þetta mál. Það fyrsta er, að um þessar mundir eru öll ríki, sem liggja að Norður-Íshafinu hringinn í kringum Norðurpólinn, komin með minkaeldi nema Ísland. Og annað: frá því um 1950, um það leyti sem við bönnuðum minkaeldið eða litlu fyrr, hefur framleiðsla á minkaskinnum um það bil áttfaldazt í heiminum. Heildarframleiðslan er nú talin vera um 25 millj. skinna á ári, og þar af er framleiðsla á Norðurlöndunum einum um 9 millj. Þriðja, sem gjarnan má draga fram, er það, að það er talið, að til framleiðslu á einu minkaskinni þurfi sem lágmark um 30 kg af fiskúrgangi. Í fjórða lagi er rétt að minna á, að markaðurinn fyrir minkaskinn er til. Við þurfum ekki að leggja í kostnað við að vinna markaðinn eða mikinn auglýsingakostnað, því að það eru gæðin ein, sem ráða, hvernig þessari framleiðslugrein vegnar.
Þegar þetta frv. var til umr. á Alþ. tvisvar á síðasta kjörtímabili, mætti það mikilli mótspyrnu margra hv. alþm. Leita varð umsagnar margra aðila um frv., og það bárust umsagnir frá þeim, og mér þykir rétt að rifja nokkuð upp um þau efni. Vil ég því leyfa mér að lesa ofurlítið úr nál. meiri hl. landbn. Nd. á þinginu 1965–66, en þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Við meðferð málsins á síðasta Alþ. leitaði landbn. Nd. umsagnar búnaðarþings, Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna og veiðistjóra. Komu ekki fram tilmæli innan n. um að leita umsagnar þessara aðila að nýju, þar sem svo skammt var liðið frá því, að þær bárust. Í nál. meiri hl. landbn. síðasta þings segir svo um álit þessara aðila :
„Umsagnir hafa borizt frá þeim öllum, og má segja, að þær séu allar jákvæðar, þótt misjafnlega sé. Nokkrar bendingar koma fram um breytingar á frv., sem n. hefur athugað, en meiri hl. telur ekki ástæðu að beita sér fyrir að þessu sinni. Eru þær jafnt fyrir því til athugunar og leiðbeiningar við framkvæmd laganna, sem þær einkum snerta.“
Náttúruverndarráð vitnar í svari sínu til umsagnar ráðsins frá 6. maí s.l., er þá var sent Alþ. Eru allir ráðsmenn að einum undanskildum mótfallnir frv. Í svari forstöðumanns náttúrugripasafnsins, sem einnig er andvígur frv., enda einn af fulltrúum í náttúruverndarráði, eru ýmsar hugleiðingar um minkaeldi og loðdýrarækt. Er þar af talsverðri fimi útlistað um hugsanlega hættu af blöndun nýrra afbrigða við villiminkinn, sem fyrir er í landinu. Og enn fremur er því haldið fram, að villiminkurinn hér fari að verða skaðlítill. Vafalaust má á ýmsa vegu stilla upp myndum af hugsanlegum fyrirbærum í lífi minksins í landinu á næstu árum, bæði án nýrrar blöndunar og með henni. Tilgangur minkaeldis í búrum er ekki sá að blanda honum villtum við þann mink, sem fyrir er í landinu, enda þótt engum detti í bug að fullyrða, að ekki kunni dýr að sleppa úr haldi. Hitt er víst, að minkaeldi með sem verðmætustum felddýrum verður því aðeins sett á stofn, að vandlega sé frá loðdýragörðunum gengið. Fer þar saman skylda rn. um eftirlit og hagsmuni ræktunarmanna að tapa ekki hinum verðmætu dýrum né baka sér viðurlög. Í lok umsagnar sinnar gerir dr. Finnur þá till., að verði minkaeldi leyft, verði helzt leyft eitt bú í Vestmannaeyjum sem reynslubú. Rökstyður hann það með einangrun eyjarinnar annars vegar og með mergð fæðuefna fyrir minkinn. Þessi till. er athyglisverð, en við hana er þó það að athuga, að Vestmannaeyjar eru að líkindum ekki heppilegur staður til þessa eldis vegna rakrar veðráttu, sem áhrif hefur á feldinn. Bezti feldur er talinn fást í þurrviðrabyggðum. Eru að því leyti beztu skilyrðin norðanlands. Skynsamlegt virðist, að þau fimm fyrstu bú, sem ráðgerð eru, séu staðsett þannig að þessi tvenn höfuðskilyrði njóti sín sem bezt, hagstæð veðrátta og gnægð fiskúrgangs í nágrenninu. Þrátt fyrir það að Vestmannaeyjar uppfylla að líkindum illa annað skilyrðið, gera þær það því betur með hitt.“
Meira skal ég ekki lesa úr þessu nál. Fulltrúar atvinnuveganna og veiðistjóri mæltu sem sagt með frv., en náttúruverndarráð og Náttúrufræðistofnunin á móti. Með hverju ári sem líður verður ljósara, að við Íslendingar verðum að vera vel vakandi á atvinnusviðinu. Um eins árs skeið höfum við þreifað á því betur en nokkru sinni fyrr. Það er því heilög skylda okkar, sem skipum Alþingi að beita áhrifum okkar, viti og valdi til að hasla þegnum okkar kæra lands völl á hverju því sviði bjargræðismála, sem við komum auga á.
Hér er flutt frv. um eitt slíkt svið, starfsemi, sem byggir á auðlindum landsins, í náttúrunni og í fólkinu, sem landið byggir, starfsemi, sem öll rök hníga að, að verði í gildi svo lengi sem mannkyn byggir jörð. Ég tel engar líkur á, að grávaran svonefnda, feldirnir, skinnavaran og þar með hár og ull tapi nokkurn tíma gildi sínu fyrir gerviefnum. Þess vegna mun minkaeldi verða bjargræðisvegur um langa framtíð. Og við eigum ekki lengur að láta einn hlekk vanta í keðju minkaræktarlanda, sem liggja umhverfis Norðurpólinn samkv. áreiðanlegum upplýsingum, sem ég var hér áðan að lýsa um það, að Ísland sé nú eina landið í þeim hópi, sem ekki hefur minkaeldi. Ég vil svo ekki fjölyrða meira á þessu stigi um þetta mál, en ég leyfi mér, herra forseti, að leggja til, að frv. verði vísað til 2. umr. að lokinni þessari og þá væntanlega til hv. landbn.