14.11.1967
Efri deild: 16. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 221 í C-deild Alþingistíðinda. (2250)
39. mál, togarakaup ríkisins
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson) :
Herra forseti. Það er aðeins í tilefni af beinum fyrirspurnum, sem hv. 1. flm. þessa frv. beindi til mín í umr. í gær. Mér gafst þá ekki vegna annarra starfa tími til þess að svara honum, en vil nota tækifærið til þess nú og skal þá í upphafi taka það fram, að ég mun leiða hjá mér þau svigurmæli, sem fram komu í ræðu hans til þess að gera lítið úr þeim tilraunum, sem uppi hafa verið hafðar til úrbóta á því vandamáli, sem ætlað er að leysa með því frv., sem hér er flutt. Ég tel, að það bæti hvorki hag íslenzkrar togaraútgerðar né losi um þann hnút, sem þar hefur verið á löngu árabili að hnýtast, þó að farið væri að elta ólar við einstök þau atriði í ræðu þm., sem undir léttari tón áttu að heyra, — það muni ekki bæta neitt um þann vanda, sem hér er við að etja.
Þm. sagði að nánast ekkert af opinberri hálfu hefði verið gert til styrktar togaraútgerð hér á undanförnum árum, annað en kjósa nefndir ofan á nefndir, eins og hann mun hafa efnislega orðað það, þar við sæti. Ég vil í fyrsta lagi taka fram, að það er rétt hjá honum, að tvær eða þrjár slíkar nefndir hafa verið kosnar og hafa efnislega komizt að sömu niðurstöðu um þá erfiðleika, sem þar er við að etja, og gert hliðstæðar till. til úrbóta. Þær hafa einkum verið fólgnar í þrennu, þessar till.: Í fyrsta lagi auknum opinberum fjárhagslegum styrk, í öðru lagi rýmkun veiðisvæðanna og í þriðja lagi, að breytt verði gildandi lögum um skipun áhafna þessara skipa, þ.e.a.s. að fækkað yrði mannskap á togurunum til þess að bæta rekstrarafkomu þeirra.
Varðandi fyrsta liðinn, þá hygg ég, að því verði ekki á móti mælt, að undanfarnar ríkisstjórnir hafa hækkað allverulega fjárframlög til styrktar togaraútgerðinni. Um hin tvö atriðin hefur orðið að leita fylgis bæði innan Alþ. og utan við breytingu lagaákvæða og reglugerða þar um. Það er kunnara en frá þurfi að segja, hvaða andstöðu það hefur mætt að rýmka veiðiheimildir togaranna innan núverandi fiskveiðilögsögu. Ég minnist þess ekki, að hv. þm., frsm. þessa máls, hafi sérstaklega örvað til þess eða hvatt til stuðnings við það að hleypa togurunum inn í núverandi fiskveiðilögsögu, frekar en þeim er þegar veitt mjög takmarkað og tímabundið skeið á hverju ári. Sannleikurinn er sá, ef menn vilja horfast í augu við staðreyndir, að skoðanir manna í þessum efnum hafa ekki farið eftir flokkum, fremur mætti telja, að það færi eftir kjördæmum, hvar menn eru kjörnir, hver afstaða manna hefur verið í þessum efnum, og utan þess hóps eru svo einnig menn, sem hafa ef til vill tekið afstöðu án þess að láta áhrif kjördæmisins hafa þar áhrif á eða þær skoðanir, sem eru í viðkomandi kjördæmi. En sannleikurinn er eigi að síður sá, að meiri hluti hefur ekki verið fyrir slíkri laga- og reglugerðarbreytingu sem þarna er um að ræða, og af þeim ástæðum hefur ríkisstj. og undanfarnar ríkisstjórnir talið það óeðlilegt, að gengið væri í berhögg við meiri hluta Alþingis í þessu efni.
Nákvæmlega sama máli gegnir um fækkun áhafnarinnar á togurunum. Fjöldamargir af okkar færustu togaramönnum telja það mjög vel fært að fækka að mun mannskap á þessum skipum, án þess að það þyrfti að skerða veiðihæfni þeirra eða veiðigetu. Af hálfu stéttarfélaganna, sem þarna eiga hlut að máli, hefur harðlega verið á móti þessu barizt og færð fram þau rök, að þótt togaraafli hafi nú um skeið minnkað, þá séu skipin með sama útbúnaði og verið hefur og hafi verið þegar núgildandi lög voru sett og þess vegna engin ný forsenda fyrir fækkun manna um borð, önnur en minnkandi afli. Og það eitt getur ekki að þeirra dómi orðið viðmiðun til lagabreytinga. Þetta eru efnislega, held ég, þau rök, sem þeir hafa fært fyrir sínu áliti. Þeir hafa hins vegar bætt því við þessar röksemdir sínar, að þeir séu reiðubúnir til þess að ræða hugsanlega fækkun áhafnar, ef ný skip komi til með nýjum búnaði, sem sannanlega geri það mögulegt, að ekki aukist álag á einstaklingana um borð frá því, sem gert er ráð fyrir í núgildandi lögum, með þeim aðbúnaði, sem menn hafa um borð í okkar skipum, eins og þau hafa verið í dag útbúin.
Þetta hafa verið þær þrjár meginröksemdir, sem hafa verið undirstaða að tillögum þeirra togaranefnda, sem starfað hafa á undanfórnum árum.
Ræðumaður vék að því með nokkuð gamansömum tón, að ég hefði lýst yfir áhuga mínum og ríkisstj. á því hér fyrir nokkru að fá hingað leiguskip af nýtízkugerð, til þess að Íslendingar fengju aðstöðu til að prófa þar sérstaka hluti um borð og væru að loknum þeim tíma færari um að gera tillögur eða kröfur til byggingar nýrra skipa við hæfi okkar aðstæðna hér og fá þannig fram veiðiskip með sem mestri veiðihæfni. Þetta skýrði ég hér á hv. Alþingi í þessari hv. deild fyrir um það bil 10 mánuðum, að þessi tilrann hefði að okkar dómi mistekizt. Það var reynt á nánast öllum skipasmíðastöðvum í Evrópu að fá slíkt skip til leigu og eins hjá útgerðarfyrirtækjum í sömu löndum. Það var aðeins einn möguleiki, sem gafst. Ég skal gjarna endurtaka þá skýringu aftur, það var aðeins einn möguleiki, sem gafst til þess að fá slíkt skip til leigu, en þá bæði um svo skamman tíma og á svo óhentugum árstíma, að að fróðustu manna áliti hér heima gæti sú tilraun ekki gefið þann árangur, sem annars hefði mátt vænta. Þeir togaraskipstjórar, sem við var rætt, töldu, að skipið þyrfti að vera a.m.k. 6–8 mánuði hér og þá um haust- og vetrarmánuði, en sá tími, sem til boða stóð hjá þessum eina aðila, var júlí- og ágústmánuður, en menn töldu, að þá gæti engin reynsla af þessu fengizt og þá aðeins í 2 mánuði. Af þeim ástæðum var áfram hugsað um þessi mál, og niðurstaðan varð sú að skipa nýja nefnd, sem skyldi falið það verkefni, eins og ræðumaður vitnaði til, að sjá um byggingu 3–4 skipa af mismunandi gerðum, þannig að þau gætu rutt brautina að frekari endurnýjun togaraflotans, byggðri á reynslu, sem okkar færustu menn hefðu yfirumsjón með og drægju af eðlilegar ályktanir.
Þm. gat þess þá einnig, að hann teldi, að lítið hefði frá þessari n. heyrzt síðan, og óskaði eftir upplýsingum um, hvað, störfum n. liði. Ég vil aðeins af því að ég ætla að hafa það svar mitt sem lokaorð þessara orða minna, minna á enn eitt atriði, sem þm. minntist á, og það var út af minni gerðum bátaflotans, þar sem hann taldi að hefðu óeðlilega margir bátar verið strikaðir út af skrá á undanförnum árum. Ástæðan til þess er einfaldlega sú, að um árabil höfðu verið á skipaskrá hér skip, sem raunar voru óvirk, höfðu verið bundin í naustum árum saman, þó að þau væru á skrá, og alls ekki útgerðarhæf. Skipaskoðunarstjóri fór fyrir nokkru fram á það við alla sína fulltrúa úti á landi, að þeir gerðu gangskör að því að skoða ástand þessara mála hver á sínum stað og senda sér nákvæma skýrslu þar um. Þetta ásamt þeim vágesti, sem að smærri bátagerðum hefur steðjað, þ.e.a.s. bráðafúinn hefur orsakað það, að nú um nokkurra ára bil hefur verið óeðlilega mikið strikað út af skipaskrá, vegna þessarar hreingerningar, ef ég má orða það svo, í skipaskráningunni. Það segir þess vegna ekki nema hálfan sannleikann um þessa hluti, þegar um árabil hefur safnazt töluvert saman af bátum, sem raunar voru ekki orðnir annað en nafn á skrá, en alls ekki til veiða hæfir.
Þessari skýringu vildi ég koma hér að, þó að mér gefizt hér ef til vill síðar tækifæri til þess að greina þarna nokkru nánar frá.
Varðandi nefndarstörfin sjálf vil ég taka eftirfarandi fram, með hliðsjón af þeim upplýsingum, sem ég hef aflað mér um störfin frá togaranefndinni svonefndu.
Fyrsti þátturinn í starfi nefndarinnar var í því fólginn að safna gögnum, sem nauðsynleg máttu teljast, til þess að unnt væri að gera tillögur um smíði skuttogara, einkum um stærð og gerð og allan útbúnað. Í því skyni átti n. mörg viðtöl við skipstjórnarmenn á togurum og ræddi við þá um reynslu þeirra af togveiðum og leitaði eftir áliti þeirra um skipastærðir og ýmislegt, er viðkemur útbúnaði skipanna. Voru þær athuganir n. að ýmsu leyti mjög gagnlegar og raunar nauðsynlegar fyrir allt starf nefndarinnar. Þá var enn fremur leitað upplýsinga og gagna víða erlendis frá skipasmíðastöðvum, auk þess sem tæknilegir sérfræðingar nefndarinnar hafa kynnt sér þessi mál með því að skoða nýjustu skuttogarana erlendis og einnig slík skip, ef þau hafa komið hér í höfn. Á þennan hátt hefur einnig verið safnað miklum og nauðsynlegum gögnum. Þá hefur enn fremur verið rætt ýtarlega við fulltrúa frá þeim verkalýðssamtökum, sem hlut eiga að máli, að því er snertir áhafnir togaranna, um áhafnir og vinnufyrirkomulag um borð í slíkum togurum, sem hér um ræðir. En n. taldi mjög nauðsynlegt að fá sem gleggstar hugmyndir um afstöðu þessara aðila til þessa þáttar undirbúningsstarfsins. Þegar lokið var þessum undirbúningsþætti í starfi nefndarinnar, var ákveðið að láta gera uppdrátt af skipum, er gætu orðið grundvöllur að væntanlegum tillögum n. um skipastærð, gerð og útbúnað, og er nú unnið að þessum þætti, þ.e.a.s. teikningu skipanna. Það er gert ráð fyrir, að því verki verði lokið nú innan mjög skamms tíma. Meginsjónarmið í öllum athugunum n. hefur verið, að skip, sem byggð yrðu, hentuðu fyrst og fremst til öflunar hráefnis fyrir fiskvinnslustöðvarnar í landi, en jafnframt, að slík skip gætu sótt til fanga á þau mið, sem íslenzkir togarar sækja nú á heima og á fjarlægum miðum.
Herra forseti. Ég læt þessar athugasemdir nægja að sinni við framsöguræðu hv. 5. þm. Reykn.