14.11.1967
Efri deild: 16. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 224 í C-deild Alþingistíðinda. (2251)

39. mál, togarakaup ríkisins

Flm. (Gils Guðmundsson) :

Herra forseti. Ég vil í fyrsta lagi þakka hv. 3. þm. Norðurl. v., sem talaði hér áðan, fyrir eindreginn stuðning við þetta mál. Það er að sjálfsögðu rétt, sem hann benti á, að ekkert er eðlilegra en slíkt mál sem þetta, sem í rauninni er stórmál og hugsað sem upphaf aðgerða, sem væntanlega yrði framhald á, — að slíkt mál fái rækilega athugun í n., ef vilji er fyrir því að vinna að málinu á annað borð, og þá geti eitthvað breytzt í meðförum, og ég vil lýsa því yfir fyrir hönd okkar flm., að við erum að sjálfsögðu fúsir til þess að ræða um breytingar á þessu frv., allt það, sem betur mætti fara eða mætti auðvelda það, að hafizt verði handa með nokkrum myndarbrag í sambandi við þessi mál.

Hv. 3. þm. Norðurl. v. skýrði hér frá því, að áhugi og það mikill áhugi væri í hans kjördæmi fyrir því að fá skuttogara til þess að bæta úr þeim atvinnuskorti, sem þar hefur verið og er ríkjandi á ýmsum stöðum, í kaupstöðum og kauptúnum. Og frásögn hans var býsna fróðleg. Í fyrsta lagi kom þar fram, að þörfin á því, að við gerum tilraunir með skuttogara, hún er brýn og áhuginn er víða fyrir hendi, en í öðru lagi sýndi sú saga, sem hann rakti hér, að einhvern veginn er það þannig, að slíkt skipulagsleysi ríkir í þessum efnum, bæði hjá ríkisvaldi og lánastofnunum, að þeir, sem áhuga hafa á því að bæta úr atvinnuskorti með því að taka upp nýjan hátt í sambandi við skipakaup og útgerð skipa, þeir reka sig á vegg, sem hindrar þá í því að gera slíka tilraun. Þetta virðist mér vera býsna fróðleg saga. Hann skýrði frá því, að hæstv. sjútvmrh. hefði verið allur af vilja gerður til þess að greiða fyrir þessu máli, og ég dreg það ekki í efa, en allt kom fyrir ekki, það varð að hætta við að gera þessa tilraun.

Hæstv. sjútvmrh. svaraði hér að nokkru þeim fyrirspurnum, sem ég beindi til hans sérstaklega í ræðu minni hér í gær. Ég mun hafa haft nokkuð ákveðin orð um það; að áhugi stjórnarvalda og ráðamanna í stjórnarflokkunum 4 sambandi við endurnýjun togaraflotans hefði virzt heldur lítill á undanförnum árum og hann hefði kannske einna helzt birzt í því, að stöðugt hefðu verið skipaðar nýjar og nýjar nefndir og þá fyrst og fremst til þess að kanna rekstrargrundvöll og gera tillögur um bættan rekstrargrundvöll gömlu togaranna, en það væri fyrst nú með skipun nefndar frá því í marzmánuði í vor, sem hefði verið þó ákveðið af stjórnarvalda hálfu að láta fara fram könnun á því, hvernig líklegt væri, að útkoman yrði varðandi ný skip með nýja tækni. Ég er satt að segja orðinn svo langeygur eftir að sjá eitthvað raunhæft í sambandi við þetta mál, að vegna þess kvað ég nokkuð fast að orði. Mér virðist, að þrátt fyrir vafalaust góðan vilja ýmissa mætra manna, eins og hæstv. ráðherra, þá hafi hér allt hjakkað allt of lengi í sama fari, það hafi yfirleitt, það lítið sem gert hefur verið, verið athugað um einhverjar úrbætur í sambandi við gömlu skipin, en yfirleitt ekki farið út í það fyrr en þá nú að kanna af alvöru líklegan rekstrargrundvöll skipa af nýrri gerð skipa með nýjum búnaði, skipa, sem ættu að geta að margra dómi verið hagkvæmari en hin gömlu skip. Ég þarf ekki að minna á það, sem allir vita, að meiri hlutinn af þeim togurum, sem enn er verið að gera út héðan, meiri hluti þeirra er um 20 ára gamall eða nálægt því. Þessir togarar eru dýrir í viðhaldi, sá kostnaður vex með hverju ári, og í rauninni er það ekki nema spurning um nokkur ár, hvenær þeir eru svo gersamlega úreltir og svo allt of dýrir í viðhaldi, að það geti engan veginn verið forsvaranlegt að halda útgerð þeirra áfram, það getur ekki verið spurning um nema tiltölulega skamman tíma með elztu skipin. En þessi skip, það er talið, að þau þurfi við núverandi aðstæður um 30 manna áhöfn. Það er hins vegar talið, að skuttogarar, 400–500 tn. að stærð, muni vegna bætts útbúnaðar og annars fyrirkomulags ef til vill ekki þurfa nema 20 manna áhöfn eða a.m.k. þriðjungi minni áhöfn en togarar, sem við eigum nú. Þá er það einnig talið af hinum fróðustu mönnum, að með bættum útbúnaði, sem á að vera auðvelt að hafa í þessum nýju skipum, bættum umbúnaði 4 lestum og breytingar að því er varðar alla meðferð fisksins, þangað til hann kemur í land, eigi að vera möguleikar á því, að skuttogararnir komi með miklu betri fisk að landi heldur en togarafiskur hefur áður verið og alveg sérstaklega miklu betri fisk en netafiskurinn er upp og ofan, sem hefur verið aðalmagnið af þeim fiski, sem hraðfrystihúsin hafa fengið undanfarin ár. En það er alkunnugt, að verulegur hluti netafisksins er því miður mjög vont hráefni. Og ef þetta er rétt, að togarar af nútímagerð geti flutt að landi 1. flokks hráefni, sem ef til vill gefur ekki mikið eftir línufiski, kannske alls ekki, þá er þar um að ræða mikilsverðan hlut fyrir þjóðarbúið. Það er vitanlega þjóðhagsleg nauðsyn, að við vöndum þessa vöru sem mest, og við getum ekki búizt við því til lengdar, að skreiðarmarkaður t.d. í Afríku taki við úrgangsfiski frá okkur, eins og sá fiskur hefur verið, sem verstur hefur borizt hér á landi til vinnslu. Við getum ekki búizt við því, að það verði svo í framtíðinni, að við getum selt mjög slæma og gallaða vöru.

Ég skal ekki fara öllu lengra út í þessa sálma, ég talaði nokkuð rækilega um þessi mál hér í gær, en ég vildi aðeins að lokum leggja á það ríka áherzlu, að það er fyrir löngu tími til þess kominn, að þetta mál, hvernig skuli að því staðið að endurnýja íslenzkan togaraflota, að það mál verði tekið föstum tökum.

Hæstv. ráðh. skýrði frá því, að sú n., sem hann skipaði í vor til þess að kanna þessi mál, hefði unnið að gagnasöfnun og aflað ýmissa þarflegra og nauðsynlegra gagna og gert ýmsar athuganir í þessu sambandi. Og nú væri svo komið, að hún hefði ákveðið að láta gera teikningar af togskipi, skuttogara, einni eða fleiri gerðum, og að þessu sé nú unnið. Það er að sjálfsögðu gleðilegt, að þessi n. skuli hafa starfað og skuli vera að störfum, og ég vil vænta þess, að sem allra fyrst komi einhver árangur í ljós af störfum hennar og að það verði hægt á grundvelli þess undirbúnings, sem hún er að láta framkvæma, að hefjast handa um skipasmíðina. En ég sé ekki, að þó að þessi n. eigi eitthvað í land með sinn undirbúning, þá eigi það að þurfa að tefja á nokkurn hátt fyrir því, að það frv., sem hér liggur fyrir, fái eðlilega meðferð og verði með einhverjum breytingum ef til vill samþykkt á þessu þingi. Þar með er ríkisstj. fengin heimild til þess að vinna að þessum málum, að því er snertir fjármálin og annað, sem vitanlega er nauðsynlegt, ef eitthvað verulegt á að gera, og ég sé ekki, að það þurfi á neinn hátt að tefja þetta mál, þó að n., sem er að athuga hinar heppilegustu gerðir og stærðir skuttogara fyrir okkur, hafi ekki lokið störfum. Hins vegar vil ég leggja áherzlu á það og vænta þess, að hæstv. ráðh. beiti áhrifum sínum í þá átt, að þessi n. hraði störfum sínum, eftir því sem föng eru á. Nauðsynin á því að efla þann skipastól okkar, bæði togara og vélbáta. sem aflar bolfisks fyrir hraðfrystihúsin, er vissulega brýnni nú en nokkru sinni fyrr. Ég skýrði frá því í gær og taldi mig hafa fyrir því allgóðar heimildir, að þau hraðfrystihús, sem þegar hefði algerlega verið lokað og hætt störfum, væru um það bil 20. En ég var varla farinn úr þessum ræðustól, þegar kunnugur maður þessum málum skýrði mér frá því, að þau hraðfrystihús væru nú a.m.k. orðin 25 og þeim hefði fjölgað með hverri viku nú að undanförnu.

Ég vil svo láta það verða mín síðustu orð í sambandi við þetta mál við 1. umr., að ég heiti á hæstv. sjútvmrh. að taka nú myndarlega forustu um breytta stefnu í þessum málum, að hann taki nú forustu um það, að mörkuð verði raunsæ uppbyggingarstefna í málefnum útvegsins öllum, þar sem kostað verði kapps um það, að þau framleiðslutæki, sem við eigum í dag, verði hagnýtt og skili eðlilegum afköstum, en jafnframt og ekki síður verði markvisst að því unnið að afla okkur nýrra og fullkominna framleiðslutækja með nútímasniði, og þá er gagnger endurnýjun togaraflotans áreiðanlega mjög ofarlega á blaði.