29.03.1968
Efri deild: 77. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 227 í C-deild Alþingistíðinda. (2253)

39. mál, togarakaup ríkisins

Frsm. meiri hl. (Pétur Benediktsson) :

Herra forseti. Það þarf ekki langa framsögu fyrir till. meiri hl. sjútvn. í þessu máli. Við höfum athugað frv. á fundum okkar. Í sjálfu sér erum við hlynntir allri þeirri hugsun, sem þar kemur fram um stuðning við togaraútgerðina, og að athuga beri allar nýjar leiðir í því efni. En á hinn bóginn er þetta mál þegar að áliti okkar í meiri hl. í viðunandi horfi, þar sem ríkisstj. hefur skipað í það n. hinna ágætustu manna undir forustu Davíðs Ólafssonar fyrrv. fiskimálastjóra, nú seðlabankastjóra, aðrir í n. eru Jón Axel Pétursson landsbankastjóri, Loftur Bjarnason útgerðarmaður, Loftur Júlíusson skipstjóri, Pétur Sigurðsson sjómaður og alþm. og Vilhelm Þorsteinsson framkvstj. á Akureyri. Þessi n. hefur haldið fjölda funda og starfað mjög ötullega að þessum málum. Mér er kunnugt um, að þegar liggja fyrir frumteikningar að stórum skuttogara og verið er að vinna að nákvæmlega sama hlutnum og í frv. öðrum togara minni, sem jafnframt mætti nota sem síldveiðiskip. Ég held, að hér sé verið að vinna að nákvæmlega sama hlutnum og í frv. greinir og að við getum í rauninni allir verið sammála um málið. Út frá þessu sjónarmiði hefur meiri hl. n. lagt til, að málinu verði vísað til ríkisstj. Þess skal getið, að einn nm., sem er meðal flm. frv., hefur skilað séráliti og annar nm. var fjarstaddur, þegar málið var afgreitt.