16.04.1968
Neðri deild: 97. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 234 í C-deild Alþingistíðinda. (2264)

5. mál, þóknun fyrir innheimtu opinberra gjalda

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Frv., sem hér liggur fyrir um þóknun fyrir innheimtu opinberra gjalda, er eitt af fyrstu málum þessa þings. Efni frv. er það, að þar er lagt til, að atvinnurekendum, sem er gert skylt samkv. heimild í lögum að innheimta opinber gjöld hjá fólki, sem þeir hafa í þjónustu sinni, skuli greiða þóknun fyrir innheimtuna, er nemi 3% af upphæðum innheimtra gjalda, og þóknun greiðist um leið og innheimtufénu er skilað til réttra aðila.

Það er að ýmsu leyti illa búið að atvinnuvegunum hér á landi. Nýir skattar í ýmsum myndum hafa verið á þá lagðir á síðustu tímum og auk þess alls konar kvaðir. T. d. er þeim gert að gera skýrslur fyrir hið opinbera um ýmsa hluti, og svo er gjaldainnheimtan, en engin greiðsla er þeim veitt fyrir þessa fyrirhöfn og þann kostnað, sem þessu er samfara. Þetta tel ég ósæmilegt og ranglátt. Allir aðrir fá laun fyrir störf í þágu hins opinbera, og því skyldi þá ekki greiða þessum aðilum einnig sanngjarna þóknun fyrir þá vinnu, sem þeir framkvæma í þágu ríkis og sveitarfélags ?

Þetta er eitt af fyrstu málum þingsins, eins og ég sagði, það er 5. mál þingsins, og það er búið að vera lengi hjá hv. fjhn. Hún hefur nú loks skilað áliti um það, og lýsi ég ánægju yfir því. En hitt er annað mál, að ég er óánægður með till. n. Hún leggur til, að málinu verði vísað frá. N. fékk umsagnir um þetta, t.d. frá Vinnuveitendasambandi Íslands og Félagi ísl. iðnrekenda. Þau félög mæla bæði með samþykkt frv. og benda á þá miklu fyrirhöfn, kostnað og ábyrgð, sem lögð er á vinnuveitendur með innheimtu opinberra gjalda. Einnig fékk n. bréf um málið frá Sambandi ísl. sveitarfélaga og stjórn þess félagsskapar kemst að þeirri niðurstöðu, að það sé ekki tímabært að ákveða atvinnurekendum þessa þóknun fyrir unnin störf. Þetta samband er, eins og nafnið bendir til, félagsskapur sveitarstjórnarmanna. Flestir nefnast þeir hreppsnefndarmenn og hreppsnefndaroddvitar. En allmargir í þeim söfnuði bera þó önnur nöfn, sem munu þykja fínni. Þeir nefnast bæjarfulltrúar og bæjarstjórar og borgarfulltrúar og borgarstjóri. En allt er þetta sama tóbakið, þó að það gangi undir mismunandi vörumerkjum. Það sé fjarri mér að gera lítið úr störfum þessara sveitarstjórnarmanna, og ekki lasta ég þá, því að ég geri ráð fyrir, að yfirleitt sé þetta sómafólk. En hitt er annað mál, að ég tel ekki hollt, að þeir ráði einir lögum í landinu.

Fjhn. vill vísa málinu til ríkisstj., mun telja, að þar sé til manns að moka. Ég veit það ekki. Málið snertir fyrst og fremst hæstv. fjmrh., og ég þekki ekki svo vel hans þankagang, að ég viti, hvernig hann hugsar um þetta mál. En ekki hefur þess orðið vart, að hann fyndi hvöt hjá sér til þess að greiða fyrir þessi störf í þágu ríkisins hingað til. E. t. v. hugsar hann líkt og sumir sveitarstjórnarmenn, að atvinnurekendur séu ekki of hvítir til að vinna þetta fyrir ekki neitt. Ef þeir misstíga sig í þegnskylduvinnunni, má alltaf stinga þeim í svartholið í forsetans og laganna nafni.

Sveitarstjórnarmannafélagið vill tengja þetta mál við endurskoðun laga um tekjustofna sveitarfélaga, og reyndar tekur fjhn. undir það. En þetta er alveg út í hött. Auðvitað ber að borga fyrir þessa vinnu, hvað sem þeim lögum líður. Þeir, sem vilja ekki borga vinnuveitendum fyrir innheimtuna, fyrr en búið er að endurskoða tekjustofnalögin, gætu alveg eins haldið því fram, að það ætti að fresta því að borga fyrir þessa vinnu, þangað til Íslendingar væru búnir að stíga fótum á tunglið. Þetta kemur nefnilega málinu ekki nokkurn skapaðan hlut við. En hitt er annað mál, að það er rétt hjá þeim, að það er þörf á að endurskoða lögin um tekjustofna sveitarfélaga. Einkum er þess brýn þörf að lagfæra ákvæðin um aðstöðugjöld, sem eru í þeim lögum. Álagning þeirra er nú þannig, að fólk á vissum stöðum á landinu þarf að borga fjórum sinnum hærra aðstöðugjald af brýnustu nauðsynjum, sem það kaupir, heldur en fólk á öðrum stöðum á landinu þarf að borga. Og þó er munurinn enn meiri á aðstöðugjöldum, sem lögð eru á ýmsar nauðsynjar til framleiðslustarfseminnar. Þetta er óþolandi ójöfnuður, sem þarf að lagfæra, og tilraunir hafa verið gerðar til þess. Á síðasta kjörtímabili gerðum við Sigurður Ágústsson, sem þá var 2. þm. Vesturl., tilraunir til að fá lagfæringar á þessu. En meiri hl. þm. tók ekki undir okkar málflutning. Og nú liggur fyrir einmitt þessu þingi frv. um það efni. Það var flutt í byrjun þingsins af mér og Guðmundi Jónassyni bónda í Ási í Vatnsdal, sem þá sat á þingi um tíma. Frv. okkar var vísað til n., sem nefnist heilbr.- og félmn. í hv. þd. En heilsufar manna í sjálfri heilbrigðismálanefnd er ekki betra en svo, að eftir að þeir eru búnir að velta vöngum í um það bil 6 mánuði yfir þessu frv., hafa þeir þó ekki enn skilað áliti um það til þd. Þó gafst tækifæri til að koma till. um þetta efni undir atkv. í þinginu, því að hæstv. ríkisstj. bar fram eins og stundum oftar frv. um breyt. á l. um tekjustofna sveitarfélaga á þessu þingi. Og þá greip hv. 5. þm. Norðurl. e. tækifærið og flutti brtt. við það frv. um aðstöðugjöldin, sem að verulegu leyti gengu í sömu átt og till. okkar Guðmundar Jónassonar. En þær voru felldar. Við 3. umr. um stjórnarfrv. bar sami hv. þm. enn fram brtt. og þá aðeins um aðstöðugjöld á tilbúnum áburði, að þau skyldu ekki vera hærri en ½% af verði áburðarins. Þetta var í samræmi við till. í frv. okkar, sem ég gat um áðan.

Á undanförnum árum hefur mátt finna eitt dæmi um það, að ekkert aðstöðugjald hefur verið lagt á áburðinn. Sveitarstjórn á þeim verzlunarstað, sem þar um ræðir, mun hafa litið svo á, að þetta væri svo mikil nauðsynjavara, að það væri rétt að sleppa henni við slíkt gjald. En annars hefur álagning aðstöðugjalda á tilbúinn áburð verið frá ¼% og upp í 2% af verði hans. Þessi nauðsynjavara hækkar nú mjög í verði eins og fleira. Ef till. frá hv. 5. þm. Norðurl. e. um ½% hámarksgjaldið hefði verið samþ., má gizka á, að meðalbóndi hefði þurft að borga um 250 kr. nú í ár í aðstöðugjald af þeim áburði, sem hann þurfti að kaupa og þetta sýnist vera alveg nóg. En þessi réttmæta till. Stefáns Valgeirssonar, hv. 5. þm. Norðurl. e., var því miður ekki samþ. Of margir hv. þdm. lögðu kollhúfur, greiddu atkv. á móti till. og felldu hana. Þeir virðast telja eðlilegt og sanngjarnt, að bóndi, sem rekur bú af meðalstærð, eigi yfir höfði sér að verða að borga 1000 kr. í aðstöðugjald af áburðarskammtinum á túnið sitt, fyrir það eitt, að þessi áburður er fluttur gegnum verzlunarstaðinn, þar sem bóndinn hefur sín viðskipti. Þetta er eitt af mörgum ljótum dæmum um það, hvernig búið er að atvinnurekstrinum. Það er mála sannast, að lagaákvæðin um aðstöðugjald og framkvæmd þeirra er hvort tveggja stórgallað og þetta þarf að leiðrétta.

Samband ísl. sveitarfélaga segir, að endurskoðun tekjustofnalaganna standi fyrir dyrum, en fjhn. segir, að unnið sé að endurskoðun þeirra. Út af því vil ég spyrja hæstv. ríkisstj.: Hverjir vinna að þessari endurskoðun? Þar ættu fleiri að koma til en sveitarstjórnarmenn og embættismenn í stjórnarráðinu: Þar ætti að mínum dómi að kveðja til einnig fulltrúa frá samtökum útvegsmanna, bænda og iðnaðarmanna. Einnig væri ástæða til að kalla þar til fulltrúa frá fleiri samtökum, svo sem Alþýðusambandinu og Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja. Ætla mætti, að fulltrúar frá þeim vildu vinna að jöfnuði í þessum efnum.

Ég tel, að atvinnurekendur séu búnir að bíða of lengi eftir því að fá þóknun, sem þeim ber að fá fyrir innheimtustörfin, og það eigi að ákveða greiðslu til þeirra nú þegar án þess að láta þá bíða lengur eftir því. Ég er því andvígur till. hv. fjhn. um að vísa frv. frá, legg til, að sú till. verði felld, en frv. á þskj. 5 verði samþ.