14.12.1967
Efri deild: 33. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í B-deild Alþingistíðinda. (227)
72. mál, ráðstafanir vegna landbúnaðarins í sambandi við breyting á gengi íslenskrar krónu
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Ég tók það nú fram áðan, að ég legði áherzlu á, að þetta mál gengi fljótt í gegnum þingið, og þess vegna ætti ég nú ekki að tefja það með löngu máli og mun ekki gera. En út af því, sem hv. 1. þm. Vesturl. (ÁB) sagði hér áðan, að það væru fá mál, sem ekki fylgdi sá formáli frá hendi ríkisstj., að það þyrfti að flýta því gegnum þingið, — ætli það væri nú ekki einkennileg ríkisstj., sem ekki hefði áhuga á því að flýta afgreiðslu mála í þingi? Það hefur enn ekki verið stefnt að því að láta þingið sitja mestan hluta ársins. Við höfum flestir fram að þessu verið ánægðir með, að það sæti aðeins 6 mánuði, og það er nú þannig með ýmis mál, að þau þurfa að fá afgreiðslu fyrir ákveðinn tíma. Núv. ríkisstj. hefur t.d. alltaf síðan hún tók við afgreitt fjárlög fyrir áramót, eins og vera ber, og horfið frá því sleifarlagi, sem var áður, eins og hv. 1. þm. Vesturl. kannast við. Og ég undrast það nú, ef hv. 1. þm. Vesturl. skilur það ekki, að hvort sem við erum sammála um öll atriði málsins eða ekki, ber brýna nauðsyn til, að þetta mál fái fljóta afgreiðslu, og ég veit, að hv. þm. skilur það. En hv. þm. fann ástæðu til þess að segja hér ýmislegt nú, sem hann hefur sagt áður, t.d. um það, hvað núv. ríkisstj. væri slæm við landbúnaðinn, hvernig búið væri að bændum, hversu hagur þeirra væri miklu verri nú en hann var t.d. fyrir 10 árum o.s.frv. Allt þetta hefur svo oft verið sagt, annaðhvort af þessum hv. þm. eða flokksbræðrum hans, að það er ekkert nýtt fyrir mér eða öðrum þm., og vegna þess að þetta er ómarkshjal, sem bændur sjálfir taka ekki mark á, er því minni ástæða fyrir mig nú að vera að mótmæla því. Bændur vita sjálfir, hvað að þeim snýr í dag og hvað að þeim hefur snúið áður. Og ég sætti mig við þeirra dóm og get þess vegna látið mér í léttu rúmi liggja, hvað hv. 1. þm. Vesturl. segir hér, sérstaklega þegar ég veit, að hann mælir oft gegn sannfæringu sinni og huga sínum í þessum málum til þess að reyna að gera skyldu sína. En það er alveg misskilin skylda, ef hann heldur, að það sé nauðsynlegt og sjálfsagt, af því að hann er í stjórnarandstöðu, að tala þvert um huga sinn í landbúnaðarmálum. Látum það vera, þó að hann vilji ekki fara viðurkenningarorðum um núv. landbrh. eða ríkisstj. Látum það alveg vera. En að vera með markleysistal og segja, að landbúnaðurinn hafi verið í afturför síðan núv. ríkisstj. tók við, verður hvorki til þess að auka veg hv. þm. né flokksbræðra hans, því að það eru staðreyndirnar, sem tala. Það hafa aldrei verið eins miklar framfarir í landbúnaðinum og síðan núv. ríkisstj. komst til valda. Bændur hafa aukið framleiðslu sína. Þeir hafa aukið framleiðsluna á þessu tímabili yfir 40% í mjólkurafurðum og yfir 20% í kjötafurðum, þótt bændum hafi fækkað, eins og hv. þm. var að tala um hér áðan. Víst hefur bændum fækkað á síðustu 10 árum. En bændum hefur fækkað á síðustu 60 árum og mest fækkaði þeim á áratugnum 1940–1950, og meira fækkaði bændunum á áratugnum 1950–1960 en síðustu 8 árin. Þetta veit hv. þm. Og þegar hv. þm. var að tala um það hér áðan, að heil byggðarlög hafi farið í eyði á valdatímabili þessarar stjórnar, mælir hann þvert um huga sinn. Það hefur ekki gerzt. En það gerðist áður en núv. stjórn kom til valda. Sléttuhreppur og Grunnavíkurhreppur fóru í eyði áður. En ég hef viðurkennt, að það gæti verið alveg eðlilegt, að bændum fækkaði að vissu marki. Það getur verið eðlilegt að sameina 2–3 kotjarðir handa einum bónda, og við vitum það, að aðstaðan til búrekstrar á sumum jörðum er þannig, að þar getur ekki verið lífvænlegt, það er of lítið land, sem bóndinn hefur. Það er of lítið af ræktanlegu landi og það er sama, hvað þessi maður er duglegur, hann getur ekki fengið lífvænleg kjör á þessu býli. Þess vegna getur verið eðlilegt og rétt að sameina jarðir, og til þess að hefja landbúnaðinn til vegs ber að stefna að því að vissu marki, en aðeins að vissu marki. Og við vitum það, að um leið og þjóðinni fjölgar er því nauðsynlegra, að við eigum þróttmikinn landbúnað, sem tileinkar sér tækni og aukna framleiðni, en að horfið verði frá kotbúskap, sem ekki getur gefið viðunandi lifibrauð. Og þetta veit ég, að ég og hv. 1. þm. Vesturl. erum algerlega sammála um. Ég er alveg viss um, að hv. þm. hefur það mikla víðsýni og þekkingu á landbúnaðinum, að hann er mér algerlega sammála um þetta. En hvers vegna þá að vera að bera allt annað á borð en það, sem sæmilegt er og eðlilegt?
Hv. þm. talaði hér um stofnlánadeildina, að það væri afturför í lánveitingum frá Búnaðarbankanum til bænda, eftir að stofnlánadeildin var starfrækt. Þetta eru alger öfugmæli. Hv. þm. talar um, að fyrir 10 árum hafi föstu lánin numið 60% af skuldum bænda. Nú sé þessu snúið við. Þá hafi verið lítið um lausaskuldir. En hvers vegna var stofnað til þess 1962 að breyta lausaskuldum bænda í föst lán? Það var gert til þess að bæta þeirra hag. Það höfðu safnazt miklar lausaskuldir áður og þá var lausaskuldum bænda breytt í föst lán, 20 ára lán. Þær voru eitthvað milli 70 og 80 millj. kr., sem þá var gefið út í nýjum flokki veðdeildarbréfa í Búnaðarbankanum. En þetta hefði getað orðið miklu meira, ef bændur hefðu notfært sér það. En úr sumum byggðarlögum kom lítið af umsóknum, vegna þess að þetta var eitthvað misskilið. Þetta væri nú ekki hagstætt, en sleppum því. Það hefði getað orðið meira. Umsóknunum var fullnægt þá. Þörfin var þá fyrir hendi, en skuldir bænda voru minni þá að krónutölu einfaldlega vegna þess, að framkvæmdirnar voru þá svo miklu minni en nú, miklu minni. Og þetta veit hv. þm. Hv. þm. veit það, að þeir bændur, sem nú eru með lausaskuldir, eru það margir hverjir vegna þess, að þeir hafa staðið í stórframkvæmdum og stofnlánadeildarlánin nægja ekki nú eins og áður fyrir öllum framkvæmdakostnaðinum. En hundraðshlutinn, sem nú er lánaður, er ekki, þrátt fyrir margföldun á upphæðinni, lægri en þá. Þetta veit þm. líka. Og hann veit líka, hv. þm., að lánstíminn hefur ekki verið styttur. Það er lánað til 20 ára til útihúsa, nú eins og áður, og 42 ára til íbúðarbygginga eins og áður. Af hverju er hv. þm. þá að tala um styttingu lánstímans?
Hv. þm. talaði um það hér áðan, að bændur vantaði 22% á verðið, til þess að hlutur þeirra væri ekki fyrir borð borinn. Hvað hefur skeð á einu ári? Ég skal játa það, að ég er ekki tilbúinn til þess að fella dóm um það, hvort bændur vantar mikið til þess að fá eðlilegt verð. Ég vil engan dóm leggja á það. En ég vil bara segja það, að ég kem ekki auga á, að nokkuð það hafi gerzt á einu ári, sem réttlæti það, að bændur ættu að fá 22% hækkun miðað við árið 1966–1967, og mér kemur ekki til hugar, að bændur hefðu samið haustið 1966 um verðið, ef verðlagið hefði verið svona skakkt og óhagstætt fyrir bændur þrátt fyrir þær hliðarráðstafanir, sem gerðar voru. Ef hv. þm. hefði lesið árbók landbúnaðarins 1966, bls. 125 og 126, en þar er samanburður á tímakaupi og kaupmætti verkamanna og iðnaðarmanna og verðhækkun á búvöru og kaupmætti launa bóndans á árunum 1955–1965, — ég efast ekkert um, að hv. þm. samþykki það, að sú skýrsla, sem þarna er birt í árbókinni, sé rétt — þá hefði hv. þm. losnað við að segja það, sem hann sagði hér áðan, því að þessi skýrsla mótmælir öllu því, sem hann sagði. Og þetta geta aðrir hv. þm. líka sannfært sig um með því að lesa skýrsluna, og í þessari skýrslu má finna ágætan dóm um það, hvernig farið hefur verið með bændastéttina síðustu árin.
Þá má einnig minna á, að það kom fram sumarið 1966 á fundum, sem bændur stofnuðu til og formaður Stéttarsambands bænda mætti á, að á meðan kaupgjald verkamanna hafði hækkað um 89%, hafði kaupgjaldsliður bóndans hækkað um 142%. Ég veit, að hv. 1. þm. Vesturl. er samþykkur því, að þetta hafi svona verið, vegna þess að þetta má einnig finna í árbók landbúnaðarins. En hvers vegna þurfti að hækka kaupgjald bóndans svona mikið umfram kaup verkamanna og iðnaðarmanna? Var það gert til þess að gera hlut bóndans betri en hlut launþeganna? Nei. Það var gert til þess að nálgast það, að bændur fengju sambærileg kjör og viðmiðunarstéttirnar. Og til þess að nálgast það, þurfti kaupgjaldsliður bóndans að hækka svo langt umfram það, sem kaup annarra stétta hafði hækkað. En þetta hafði gerzt frá árinu 1960, af því að það hafði gleymzt — það hafði nefnilega alveg gleymzt á næsta áratug á undan að halda þannig á málum landbúnaðarins, að bændur drægjust ekki aftur úr.
Að ég rifja þetta hérna upp, geri ég aðeins til þess að hv. 1. þm. Vesturl. og þeir, sem hafa trú á hans málflutningi, taki sér það fyrir hendur að lesa opinberar skýrslur og hafa það, sem sannara reynist. Og ég efast ekkert um það, að þegar hv. 1. þm. Vesturl. talaði hér áðan, hefur hann, enda þótt hann hljóti að hafa lesið þessar skýrslur, verið búinn að gleyma, hvað í þeim stendur, enda þótt tilhneigingin hjá honum sé rík í þá átt að reyna að koma með eitthvað, sem er til stuðnings því, að núv. ríkisstj. hafi verið vond við bændur.
Hitt er svo annað mál, að árferðið nú síðustu tvö árin hefur a.m.k. í ýmsum landshlutum verið erfitt og hagur bænda á ýmsan hátt lakari þess vegna og búin í sumum sýslum það lítil, að afkoman getur ekki orðið góð við þau skilyrði. Og það er vitað mál, að í einni sýslu landsins voru meðaltekjur giftra bænda árið 1965 140 þús. kr., þegar þær voru 229 þús. í þeirri sýslu, sem hæst var. Þetta er allt of mikill munur, sem stafar eingöngu af því, að aðstöðumunurinn er mjög mikill, og þessi aðstöðumunur og það, þegar vont árferði kemur, kal og gjaffelldir vetur og vor, það verður ekki bætt með því að hækka verðlagið upp úr öllum skölum. Og hv. þm. þarf ekkert að undrast það, þótt nú hafi ekki a.m.k. enn verið gerðar hliðarráðstafanir í sambandi við yfirdóminn. Í fyrra voru gerðar hliðarráðstafanir, vegna þess að um það var samið, og þó að sagt væri, að það væri í sambandi við verðlagninguna, var það ekki nema að litlu leyti, því að sumt af þessum málum, sem hv. þm. talaði um, var búið að undirbúa löngu fyrir haustið og nefnd manna starfaði í því í júlí- og ágústmánuði, áður en Sexmannanefnd kom saman. En yfirdómur er alveg óskyldur þessu. Það var ekki samkomulag. Það var ekkert samið við ríkisstj. að þessu sinni um verðlagið. Hins vegar hefur stjórn Stéttarsambands bænda oft talað við mig um þessi mál, og það eru ýmis mál, sem stjórn Stéttarsambandsins er með á óskalista nú eins og áður, sem ég er tilbúinn til þess að hlusta á og kanna, hvort hægt er að koma í framkvæmd, eftir því sem möguleikar leyfa. Þetta vita þeir, sem eru í forustu fyrir bændur, og nú hefur hv. 1. þm. Vesturl. verið kosinn í stjórn Búnaðarfélags Íslands og verður þá að teljast einn af þeim forustumönnum, sem eru kosnir til þess að vera í stjórn hagsmunasamtaka bænda, og það er þess vegna, sem gera verður hærri kröfur til hans nú en áður og að hann vandi málflutning sinn eftirleiðis betur en hann gerði hér áðan.