16.10.1967
Neðri deild: 3. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 253 í C-deild Alþingistíðinda. (2276)

7. mál, efnahagsaðgerðir

Forsrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Það fer ekki á milli mála, að afkoma íslenzku þjóðarinnar verður í ár mun lakari en hún var á s.l. ári. Einkanlega kemur þetta fram í afkomu þess atvinnuvegarins, sem fyrst og fremst stendur undir gjaldeyrisöflun þjóðarinnar, sem sagt sjávarútvegsins. Menn greinir að vísu nokkuð á um, hversu miklum hnekki útflutningsframleiðslan hafi orðið fyrir. Útvegsmenn héldu nýlega fund, þar sem þeir lýstu þeirri skoðun sinni, að gjaldeyristekjur af útflutningnum mundu í ár verða hér um bil 2000 millj. kr. minni en var á s.l. ári. En þá voru sambærilegar tekjur kringum 6000 millj., svo að þá ætti útflutningsverðmætið í ár að verða 1/3 minna en var í fyrra. Aðrir hafa nefnt lægri tölur. Efnahagsstofnunin hefur fyrir nokkru gert áætlun, þar sem hún taldi lágmark minnkunar verða kringum 1/5, en nefndi einnig töluna ¼ Samkv. þeim upplýsingum, sem ég hef nú fengið, eru allra nýjustu áætlanir hennar þær, að lækkunin verði um 1500 millj. kr., og þá er það, að lágmarkið sé kringum ¼ lækkun frá síðasta ári.

Menn hljóta auðvitað að vera óvissir, þangað til reynslan sker úr, en ekki kæmi mér á óvart, að endanleg niðurstaða yrði þarna einhvers staðar á milli, milli 1500 og 2000 millj., þ.e.a.s. lækkun útflutningsteknanna í ár yrði ekki minni en sem næmi ¼ og gæti jafnvel nálgazt 1/3.

Það er ljóst, að hér er um mjög mikla breytingu að ræða, og um orsakir þeirra breytinga er einnig svo, að ekki þarf að fara ákaflega mörgum orðum um þær. Þær liggja nokkuð í augum uppi. Það er erfið vetrarvertíð með mun minni afla en áður. Talið er, að aflamagnið hafi verið kringum 13% minna en á s.l. ári. Til viðbótar kemur lækkun á verðlagi bolfiskafurða, einkanlega hraðfrysta fiskinum. Það, sem mestu máli skiptir, eru þó mun tregari síldveiðar í sumar en áður og gífurleg lækkun á síldarverðinu, þ. e. bæði síldarmjöli og síldarlýsi. Á báðum þessum afurðum hefur lækkun verðlags átt sér stað allt fram á þennan dag. Það er að vísu svo, að nokkur staðfesta sýnist í bili vera komin a.m.k. á mjölverðið, en varðandi síldarlýsi eru menn engan veginn öruggir um, að þar sé enn komið í botn. Um þetta skal ég sem sagt ekki fjölyrða, en bæta við, að einnig fleiri afurðir hafa orðið fyrir hnekki. Humarveiði gekk treglega í sumar. Það hefur orðið veruleg verðlækkun á rækjuverði. Til viðbótar öllu þessu kemur svo það, að mun kostnaðarsamara hefur verið að ná aflanum í ár heldur en á s.l. ári. Kostnaðarhækkun innanlands vegna verðlags er að vísu ekki mikil, þó að meðalkaupgjald sé nokkru hærra í ár en var í fyrra, en mestu máli skiptir, að vetrarvertíðin var einhver sú erfiðasta, sem við lengi höfum átt við að búa. Fróðir menn telja, að hún sé sú erfiðasta frá árinu 1914 vegna þess, hversu misviðrasamt var og gæftir stopular. Þess vegna varð mun kostnaðarsamara að koma aflanum á land heldur en verið hefði í venjulegu árferði. Hið sama má segja, að sé um síldveiðarnar. Það er að vísu rétt, sem sagt hefur verið, að það hefur allmikil síld borizt á land, en þá verða menn að hafa í huga þann mikla skipakost, sem nú er til þess að ná þessum afla og möguleikana til þess að verka hann miðað við það, sem áður var. Úrslitum ræður í þessu, hversu langt hefur þurft að sækja aflann, þannig að öllum er ljóst, að það er miklu kostnaðarsamara að ná í hverja aflaeiningu nú heldur en fyrr hefur verið, þegar miðin voru tiltölulega nærri ströndum landsins, en nú hefur þurft að sigla norður í hafsauga, til þess að nokkurs afla væri von.

Þegar við berum saman afkomu áranna 1967 og 1966, verðum við enn fremur að hafa í huga, að þó að árið 1966 væri mesta útflutningsár, sem við höfum haft, var þó auðfundin það ár mikil breyting frá því, sem verið hafði áður. Þjóðartekjur á úrinu 1966 uxu mun minna en á undanförnum árum, og þó að, eins og ég sagði, útflutningsverðmætin yrðu meiri þá en fyrr, lýsti það sér svo að segja eingöngu í síldar- og loðnuveiði. Afkoma á bolfiskveiðum, sérstaklega varðandi þorskveiðar, var erfiðari á árinu 1966 en undanfarin ár. Þess vegna er það, að þegar við berum afkomu atvinnuveganna nú saman við afkomuna 1966, er varðandi a.m.k. sumar atvinnugreinar síður en svo, að árið 1966 hafi verið metár, heldur var þá þegar farið að verða erfiðleika vart, bæði varðandi aflatregðu og eins varðandi lækkandi verðlag, fyrst á hraðfrystum fiski, en einnig þegar á árið leið og í vaxandi mæli á síldarafurðunum, þó að lækkun þeirra þá væri vitanlega ekki sambærileg við þá lækkun, sem á þessu ári hefur orðið.

Hér hafa þess vegna orðið mjög mikil umskipti í okkar afkomu og þá einkanlega varðandi afkomu útflutningsatvinnuveganna á skömmu bili, og vitanlega hafa þeir úrslitaþýðingu fyrir afkomu annarra atvinnuvega í landinu. En til viðbótar því er þess að geta, að sums staðar hefur þetta ár einnig orðið erfitt fyrir landbúnaðinn sökum vorharðinda víðs vegar um land og misviðrasams sumars, sem að vísu sums staðar hefur verið allgott, en annars staðar erfitt.

Þegar á heildina er litið og ef við berum einungis útflutningsverðmætin, sem nú eru líkleg í heild á þessu ári, saman við það, sem var á s.l. ári, og ef við gerum ráð fyrir, að þau verði a.m.k. ¼ minni en á s.l. ári var, þurfum við að fara aftur til ársins 1931 til þess að sjá svo snögg umskipti í okkar þjóðarbúskap til hins lakara. Menn muna, að á árinu 1931 hófst kreppan mikla og verðlag á því ári lækkaði frá því, sem áður hafði verið, mjög verulega og veittist erfitt um sölu á íslenzkum afurðum. Það ástand hélzt um allmörg ár og varð þó varðandi verðlagið yfirleitt litlu lakara en strax reyndist á árinu 1931, og sum árin virtist þó horfa til nokkurs bata. Breytingin frá árunum 1926–1930 til áranna 1931–1935 var, eins og ég segi, slík, að munaði liðlega fjórðungi, sennilega kringum 27%, eða ámóta miklu og þeim hnekki, sem við höfum nú orðið fyrir í okkar útflutningi á árunum 1966–1967. Þessi ár eftir 1931 eru einhver — og má segja hiklaust hin erfiðustu ár í sögu þeirra manna, sem enn eru á lífi.

Nú er það að vísu svo, að við erum ólíkt betur undir það búnir að mæta erfiðleikum á árinu 1967 en við vorum á árinu 1931. Við höfum meiri gjaldeyristekjur annars staðar frá nú en við höfðum þá, svo að lækkun hjá útflutningsatvinnuvegunum hefur ekki eins mikil áhrif á þjóðarbúið í heild, og með sama hætti má segja, að stoðir okkar atvinnulífs eru orðnar miklu fleiri nú en þær voru á árinu 1931 og þar um bil. En fyrir hverja einstaka atvinnugrein, sem fyrir þvílíkum hnekki verður, má segja, að hann sé jafntilfinnanlegur nú og hann reyndist á þessu umgetna tímabili. Um það verður ekki villzt, þó að þjóðarbúið sé nú mun sterkara og möguleikar okkar til þess að afstýra því, að sams konar vandræði hlytust af eins og urðu á fyrrgreindu tímabili, séu nú ólíkt meiri. Þá leiddi af þessum erfiðleikum stórkostlegt atvinnuleysi og algera fátækt og neyð víðs vegar um land, vandræði, sem við höfum nú fulla ástæðu til þess að vona, að við getum forðazt, ef við höldum rétt á. Hins vegar tjáir ekki að neita því, að þeir örðugleikar, sem hér hafa orðið, eru mjög verulegir og mjög tilfinnanlegir. Þess er skemmst að minnast t.d., að fyrir fáum dögum varð ein af okkar vinaþjóðum, Finnland, að lækka sitt gengi um nærri 1/3 vegna örðugleika, sem þeirra atvinnurekstur hafði komizt í. Það er sökum verðlækkunar á timburafurðum, en þó er timburútflutningur hjá þeim ekki líkt því eins stór hluti af þeirra útflutningi og fiskurinn er hjá okkur, þannig að örðugleikar í þeirri einu atvinnugrein koma vitanlega mun léttar við þá heldur en við okkur varðandi útflutninginn, auk þess sem þar hefur hvorki verið um eins snöggar né eins víðtækar breytingar að ræða, að því er ég hygg, eins og hjá okkur á þessu tímabili varðandi fiskinn.

En hvað sem öllum samanburði líður, er það ljóst, að hér hafa orðið snögg og mikil umskipti, sem vissulega hlýtur að vera mikill vandi að bregðast við. Og ég get út af fyrir sig tekið undir það, sem hv. 1. þm. Austf. sagði á dögunum, að þegar þannig stendur á, er nauðsynlegt, að það sé til í landinu sterk stjórn til þess að bregðast við þessum vanda. Og það var skoðun þess hv. þm., að núv. ríkisstj. væri fjarri því að hafa þann styrkleika, sem hún þyrfti á að halda.

Gegn þessu vil ég einungis vitna til þess, að nú eru nýafstaðnar kosningar og við þær kosningar fengu stjórnarflokkarnir samanlagt liðlega 53% af atkvæðamagni meðal þeirra, sem að kjörborðinu gengu. Ég fullyrði, að það eru ekki ýkjamargar lýðræðisþjóðir, þar sem stjórnir hafa sterkari meiri hl. á bak við sig heldur en að þessu sinni reyndist um hina íslenzku ríkisstj. Það er víða svo, að ríkisstj. hafa um eða innan við 50% af atkvæðamagni meðal kjósenda og eru þó taldar hafa sterkan lýðræðislegan stuðning, nógu mikinn til þess að geta ráðið fram úr öllum þeim vandamálum, sem að höndum ber. Ég minni einnig á það, að á þeim erfiðleikaárum, sem ég áður minntist á og helzt mátti segja, að varðandi snögg umskipti til hins lakara séu sambærileg við það, sem nú hefur orðið hjá okkur, á árinu 1931 og þar á eftir, var það lengst af svo, að hér sátu ríkisstjórnir, sem höfðu mun minna en 50% fylgi meðal þeirra, sem atkv. greiddu, sér til stuðnings, en voru þó hiklausar í sínum ákvörðunum og reyndu að sjálfsögðu að gera það, sem þær bezt máttu, til þess að leysa aðsteðjandi vanda. Styrkleiki ríkisstjórna fer að sjálfsögðu ekki eingöngu eftir því, hversu mikinn fjölda þær hafa við að styðjast, heldur eftir hinu, hvort þær eru innbyrðis sammála, hvort þær líta svo svipuðum augum á úrlausn vandamála, að þær geti komið sér saman um lausn þeirra erfiðleika, sem við er að stríða, eða hvort þar er um eilífar innbyrðisdeilur að ræða, þannig að allt situr fast og ákvarðanir fást ekki teknar, og jafnvel þótt slíkt heppnist að lokum, verði þær svo óljósar og ófullnægjandi, að að litlu gagni komi.

Eins og ég segi, er enginn efi á því, að að okkur steðjar nú slíkur vandi, að þörf er á sem allra sterkustu og öflugustu samstarfi um það, hvernig við vandanum eigi að bregðast. En þá er vitanlega það frumskilyrði, að mönnum komi saman um, hvers eðlis vandinn er, að menn greini ekki algerlega á um, hvert vandamálið er, sem leysa þarf. Nú er það vitað mál, og úr því skal ég ekki gera lítið, að mjög hafa verið uppi skiptar skoðanir um hverri stefnu skyldi fylgja í efnahagsmálum þjóðarinnar á undanförnum árum. Og ég skorast sízt af öllu undan umr. um þann ágreining, þegar efni standa til slíkra umr. En ég legg áherzlu á, að hvað sem þeim ágreiningi liður, fæ ég ekki séð, að hann skipti nokkru eða nokkru teljandi máli varðandi þann vanda, sem við nú stöndum frammi fyrir. Ég tel, að það mundi hafa komið í einn stað niður, hvaða efnahagsstefnu við hefðum fylgt undanfarin ár, þá hefðum við ekki, a.m.k. í neinu verulegu, þar með getað komizt undan þeim erfiðleikum, sem við okkur blasa að þessu sinni. Það er ljóst, að engin íslenzk ríkisstj. fær ráðið yfir árferði né yfir aflamagni, þó að þar komi auðvitað til möguleikar til þess að sigla á sjóinn og til þess að nýta aflann, þegar á land kemur. En varðandi þá aflatregðu og það misviðri, sem við höfum orðið fyrir á þessu ári og gerbreytt hafa ástandinu frá því, sem í fyrra var, og voru þó þá nokkrir örðugleikar fyrir höndum, fæ ég ekki séð, að nein íslenzk ríkisstj. hefði með nokkrum efnahagsaðgerðum getað fengið þar miklu um breytt eða neinu, sem úrslitum hefði ráðið. Þessir örðugleikar eru og hljóta að verða samfara því einhæfi okkar atvinnuvega, sem við allir þekkjum og við að vísu höfum deilt um, hvort ætti að leggja áherzlu á að reyna að gera gagngerar ráðstafanir til þess að minnka eða ekki. Við getum þó sagt, að við berum allir ábyrgð á því, að við erum svo háðir einstökum atvinnuvegum, eins og við erum háðir sjávarútveginum í dag varðandi okkar gjaldeyrisöflun. Aflabrögð hefðu ekki breytzt, hverri stefnu sem fylgt hefði verið af þeim, sem deilt hefur verið um undanfarin ár. Varðandi þá lækkun, sem orðið hefur á afurðunum erlendis, er það einnig með öllu ljóst, að engar aðgerðir okkar hefðu getað komið í veg fyrir þá lækkun nema þá að litlu leyti. Það má segja, að ef við hefðum gert frekari gangskör að því að koma upp vinnslustöðvum á okkar afurðum erlendis, svipað því, sem tekizt hefur í Bandaríkjunum, með því að reisa svipaðar stöðvar í Bretlandi og á meginlandi Evrópu, hefði e.t.v. eitthvað dregið úr verðfallinu. Hvort það hefði orðið sem nokkru nemur, skal ég ekki um segja, en víst er, að slíkar stöðvar hefði ekki þýtt að reisa, nema því aðeins að við hefðum verið búnir að ná betri samningum en enn hefur verið gert, bæði við Fríverzlunarbandalagið og Efnahagsbandalagið. Það er líka ljóst, að ef við hefðum nú verið í þessum bandalögum, hefði verðlækkunin ekki orðið eins tilfinnanleg og hún hefur verið. Það er rétt, en ágreiningurinn í íslenzkum stjórnmálum hefur ekki verið um það, að við stæðum þarna utan við, heldur hefur stjórnarandstaðan ásakað stjórnarflokkana fyrir að hafa of mikinn hug á því að ná samningum við þessi bandalög. Afleiðingin hefur orðið sú, bæði af þeirra gagnrýni og öðrum ástæðum, að við höfum engum samningum náð, svo að skoðanamunur varðandi þessi efni hefur ekki haft áhrif á þá örðugleika, sem við nú eigum við að etja.

Ég þori sem sagt að fullyrða, að hvort sem orðið hefði ofan á að fylgja stefnu hv. stjórnarandstæðinga gagnstætt stefnu ríkisstj., ef þá um nokkra ákveðna stefnu hv. stjórnarandstæðinga er að ræða, sem þeir geta betur gert grein fyrir en ég, þá hefði það ekki firrt okkur þeim vanda, sem við nú erum staddir í. Það er nauðsynlegt, að menn geri sér þessa alveg grein, vegna þess að það er vonlaust, að samráð manna um lausn vanda komi að miklu gagni, nema því aðeins að þeir geri sér grein fyrir, hverjar eru frumorsakir vandans. Ef menn telja, eins og mér skildist á ummælum talsmanna hv. stjórnarandstæðinga, þegar þeir gerðu aths. við þá stjórnaryfirlýsingu, sem ég gaf hér fyrir nokkrum dögum, — ef þeir telja, að það sé vegna rangrar stefnu undanfarin ár að verulegu leyti eða mestu leyti, sem við nú erum staddir í þessum örðugleikum, er ljóst, að það tjáir lítið fyrir okkur að leita frekara samráðs. Þá nálgumst við þetta vandamál frá svo gersamlega ólíkum sjónarhól, að hætt er við, að okkar samtöl um þessi efni verði þýðingarlítil, þar verði um einskisverðar þrætur um orðna og liðna hluti að ræða, en ekki raunhæft mat á því, hvernig nú skuli við bregðast. Er mikilsvert, að menn geri sér hiklaust grein fyrir þessu.

Hitt er svo annað mál að sjálfsögðu, að ákvarðanir manna um framtíðina hljóta vitanlega að verulegu leyti að fara eftir skoðun þeirra á því, sem liðið er. Það er líka rétt. En hér er þess að gæta, að fyrst verða menn að skilja orsakirnar og taka afleiðingum af þeim. Ef menn fást ekki til þess að gera sér grein fyrir eðli orsakanna, er því miður vonlítið, að þeir geti ráðið við sjálfa örðugleikana. Að sjálfsögðu æski ég þess, að sem nánast samstarf takist við hv. stjórnarandstæðinga, bæði innan þings og utan, um lausn þessara erfiðleika, en forsenda þess, að líklegt sé, að slíkt samráð beri árangur, er sú, að menn hafi sameiginlegan skilning á því, hvers eðlis vandinn nú er.

Það er ljóst, að gegn slíkum erfiðleikum duga engin ein úrræði. Það er ekki til neitt allsherjar bjargráð, sem léttir af þeim vanda, sem við nú stöndum frammi fyrir. Slíkt er í sjálfu sér engin nýjung. Ég er sannfærður um, að fáir hafa yfirleitt í stjórnmálum gert meira ógagn heldur en þeir, sem ætíð telja sig hafa allsherjarúrræði við öllu, þykjast hafa örugga sannfæringu eða hafa örugga sannfæringu um kenningar, sem eiga að hafa allsherjarlausn alls þjóðfélagsvandamálsins í sér fólgnar. Slíkir menn, þó að þeir vilji vel, verða yfirleitt til mikils tjóns. Þvílík allsherjarvizka er engum gefin og leiðir yfirleitt til alveg öfugra afleiðinga en tilgangurinn upphaflega miðaði að. Það er því aðeins líklegt, að menn leysi vandamálin, að þeir fáist til þess að skoða þau eins og þau liggja fyrir, beita við lausn þeirra hinni beztu þekkingu, sem fáanleg er, og meti allar aðstæður eftir því, sem efni þá standa til, geri sér grein fyrir, að vandamálin leysast þá bezt, að mönnum takist að greina þau í sundur, leysa þau smám saman, eftir því sem nauðsyn krefur hverju sinni, og hika ekki við að gera þær ráðstafanir, sem þá þarf að gera, þó að þær leysi ekki allt, sem leysa þarf, heldur skilji, að því aðeins getur hið síðara tekizt vel, að menn hafi kjark til þess að gera í upphafi það, sem þá var nauðsynlegt, þó að þeir sjái, að þar með sé ýmislegt eftir skilið, sem síðar þurfi einnig lausnar, þegar þar að kemur.

Mér er það alveg ljóst, að með þeim ráðstöfunum, sem ríkisstj. boðaði í sinni stjórnaryfirlýsingu, sem ráðgerðar eru í þessu frv. og í fjárlagafrv., er ekki allur þjóðfélagsvandi nú leystur og ekki allur sá vandi, sem leiðir af þeim miklu umskiptum, sem nú hafa orðið í íslenzku efnahagslífi. En ég þori að fullyrða, að ráðstafanir svipaðar þeim og með sama markmiði og ráðgerðar eru í þessu frv. og í fjárlagafrv. eru forsenda þess, að ekki fari verr en vilji okkar stendur til. Þessar ráðstafanir eru forsenda þess, að síðar verði hægt smám saman að leysa þá frekari örðugleika, sem við játum að hljóti að verða á leið okkar, þangað til betur vegnar í okkar útflutningsframleiðslu.

Um þessi úrræði vil ég einnig segja það, að mér er ljóst, að vel má deila um, hvort ríkisstj. hafi í öllum einstökum atriðum hitt hið rétta meðalhóf. Ég tek sérstaklega fram varðandi lækkun niðurgreiðslna, að okkur er það ljóst, að þær hljóta að koma illa við mörg heimili. En engu að síður töldum við, að eins og á stóð væri þetta líklegasta ráðið og það, sem minnstri truflun mundi valda, og eins, að með þessu móti ynnist færi á í samráði við aðra, sem í alvöru vilja snúast við þeim vanda, sem nú blasir við, að íhuga, hvort önnur úrræði e.t.v. séu farsælli og geti jafnvel eða betur náð því marki, sem að verður að stefna. Það er greinilegt, að það hlaut að leiða til mikils glundroða og margháttaðrar spillingar, vil ég segja, ef hér á Alþ. hefðu hafizt langar umr. um það, hvort hækka ætti vöruverð með þeim hætti, sem leiðir af lækkun niðurgreiðslna. Slíka ákvörðun verður að taka með sem minnstum fyrirvara og án þess að hún vitnist. Það var ljóst, að á síðustu dögum, áður en þessi ákvörðun var tilkynnt, hafði einhver orðrómur um hana borizt, sem leiddi til þess, að einstakir aðilar voru þegar farnir að hamstra, skapa sér gróðamöguleika á annarra kostnað. Slíkt hefði þó orðið mun tilfinnanlegra og óviðráðanlegt, ef hér á Alþ. eða í samningum við fjölmenn fjöldasamtök hefðu verið teknar upp viðræður um slíkar ráðstafanir. Þessar ráðstafanir varð að gera með sem minnstum fyrirvara. Það haggar ekki því, að ef menn eftir á komast að þeirri niðurstöðu, að önnur ráð séu tiltækilegri, er hægt að breyta hér til. Þá er hægt að auka niðurgreiðslur á ný og lækka verðið. Nú gefst svigrúm til þvílíkrar efnisathugunar, sem ella væri ekki fyrir hendi. Með því er ég ekki að segja, að slíkt sé æskilegt eða að um slíkt verði að lokum samkomulag. En ég segi, að það hlýtur að vera mjög til athugunar, og ríkisstj. er síður en svo andvíg því, heldur beint hvetjandi, að það verði athugað til hlítar, hvaða aðrir möguleikar koma hér til álita. Ríkisstj. er fús til þess, bæði hér á þingi, á þingfundum, í nefndum og við fulltrúa hinna fjölmennu almannasamtaka í landinu og þá einkum stéttarfélögin, að ræða til hlítar, hvaða úrræði séu fyrir hendi og hvaða úrræði séu þá vænlegri heldur en þau, sem nú hafa verið tekin.

Það var ljóst af málflutningi hv. stjórnarandstæðinga, áður en Alþ. kom saman, að þeir höfðu búizt við almennri söluskattshækkun og gerðu ráð fyrir, að till. stjórnarinnar mundu hafa þvílíka hækkun í sér fólgna. Ég minnist ekki þess, að þeir hafi þá mælt sérstaklega með þeirri ráðstöfun, heldur talið á henni öll tormerki. En það er vitanlega rétt, að almenn hækkun á söluskatti hlýtur mjög að koma til álita í þessu sambandi. Það eru ýmsar ástæður, sem liggja þó til þess, að ríkisstj. taldi ekki fært að velja þá leið. Það má að vísu segja, að hún mundi trúlega hafa leitt til þess, að vísitöluhækkun hefði orðið eitthvað minni og sú tilhögun þess vegna litið betur út á pappírnum. Vitanlega hefðu álögurnar á allan almenning ekki lézt, þótt þvílík reikningsaðferð hefði verið viðhöfð, ef menn á annað borð gera sér þess grein, að við verðum að sníða okkur stakk eftir vexti, ef menn gera sér þess grein, að við komumst ekki með nokkru móti hjá að taka afleiðingum þess, sem nú er orðið varðandi okkar tekjur. Ef söluskattshækkun hefði orðið, hefði orðið mun torveldara en nú er að halda öllu verðlagi í landinu kyrru öðru en því, sem menn nú sjá fyrir, að hlýtur að hækka vegna þeirrar greinargerðar, sem þegar hefur verið gefin og fyrst og fremst leiðir af lækkun niðurgreiðslnanna. Það er vitað mál, að söluskattshækkun, sem hefði nægt í þessu sambandi, hefði hlotið að hafa í för með sér endurskoðun á verðlagi svo að segja hverrar einustu vörutegundar og þjónustu í landinu. Nú vitum við það, að álagningaraðilar, hverju nafni sem nefnast, hafa mjög um það kvartað undanfarin ár, að þeirra hlutur væri of lítill. Þar er ekki einungis um að ræða einkaatvinnurekendur, eins og kaupmenn og iðnrekendur, heldur ekki síður kaupfélög, hvort sem þau hafa einungis verzlun eða iðnrekstur með höndum. Allir segja þessir aðilar, að sinn hlutur sé of lítill. Ef þeirra vörur hefðu nú átt að hækka vegna söluskattshækkunar, hefði verið óhjákvæmilegt að taka þessar þeirra umkvartanir allar til athugunar, og ég á eftir að sjá, að mögulegt hefði verið að standa þar á móti. Vegna þess, hversu fáar vörutegundir hækka nú, er hægara en ella að standa fast á verðstöðvun í öllum öðrum tilfellum.

Þá er einnig á það að líta, að svo mikil niðurgreiðsla sem við nú höfum haft þetta síðasta ár getur að vísu staðið nokkra hríð án þess að skekkja atvinnuuppbyggingu og efnahagskerfi landsins verulega, en þegar til lengdar lætur, hlýtur svo mikil niðurgreiðsla að hafa veruleg áhrif í ýmsar áttir og leiða til margra óæskilegra afleiðinga, sem menn geta betur séð, ef þeir gefa sér tíma til að skoða þessi mál ofan í kjölinn. Þá geta menn að vísu sagt: Ríkisstj, kallaði sjálf þennan vanda yfir sig með því að ákveða svo miklar niðurgreiðslur á s.l. ári sem raun ber vitni. Það er að vísu rétt og við höfum líka orðið fyrir harðri gagnrýni frá okkar andstæðingum fyrir þær sakir, sem á því tímabili áttu sumir a.m.k. ekki nógu hörð orð til fordæmingar þvílíkum stórfelldum niðurgreiðslum. En af hálfu stjórnarinnar var það ætíð fram tekið og yfir lýst, að hér væri um bráðabirgðaráðstöfun að ræða. Við gerðum ráð fyrir og vonuðum, að sú verðlagslækkun, sem á skall síðari hluta ársins 1966, mundi ekki verða til frambúðar og þess vegna væri hægt að halda við sams konar lífskjörum og við höfðum öðlazt á árinu 1966 með því að verja tekjuafgangi ársins 1966 til þess að brúa þarna bilið. Það má vel segja, að við höfum reynzt skammsýnir í þessum efnum. En hverjir okkar sáu fyrir árið 1966, þá um haustið, að verðlækkunin mundi ekki einungis standa allt árið 1967, heldur einnig magnast mjög á árinu 1967 og vaxa varðandi hinar þýðingarmestu greinar, eftir því sem á árið líður? Það er enginn vandi í þessum efnum að vera vitur eftir á. Við munum allir þær sveiflur, sem urðu á síldarlýsi síðari hluta ársins 1966. Ég minnist þess t.d., að síldarlýsið komst þá niður undir 50 pund og hækkaði síðan upp fyrir 60 pund. Þá var í einu af höfuðmálgögnum stjórnarandstæðinga sagt, að sú hækkun, sem þá nokkra daga nálgaðist 65 pund, mundi einungis vera stig upp á við. Það væri fyrirsjáanlegt, að lýsið hlyti að hækka mun meira en orðið var. Prentsvertan var naumast þornuð af þessum skrifum, þegar verðið lækkaði aftur verulega, þannig að enginn okkar hefur í þessum efnum reynzt hafa þá gáfu að sjá allt fyrir, sem að höndum hefur borið. En niðurstaðan er þessi, að við stöndum nú frammi fyrir verðfalli, sem við höfum ekki ástæðu til að ætla annað en muni standa nokkra hríð, þó að við höfum ríka ástæðu til að ætla, að það verði ekki varanlegt. Til þess liggja raunsæjar ástæður, bæði batnandi afkoma víðs vegar, hætta á kreppu, sem menn töldu yfirvofandi bæði í Þýzkalandi og Bandaríkjunum, er verið, hinn almenni matvöruskortur í mörgum löndum, sem því miður enn er fyrir hendi, og fleira kemur hér til álita. En allt eru þetta atriði, sem við getum ekki séð fyrir með vissu, og ef við fáumst ekki nú til þess að sníða okkur stakk eftir vexti, er ljóst, að við sköpum okkur mikla erfiðleika, — örðugleika, sem mun erfiðara verður að ráða við á seinna stigi heldur en nú er. Þess vegna segi ég, að þó að það gæti verið verjandi um stutta hríð að hafa svo miklar niðurgreiðslur sem gert var, er ekki þar með sagt, að það sé verjandi eða hyggilegt til lengdar. Ég skal játa hins vegar, að svo snögg umskipti sem óhjákvæmilega hlutu að verða til að ná okkar marki, hljóta að koma illa við marga, og ég endurtek það, sem ég áður sagði, að vitanlega er ríkisstj. ekki einungis fús til, heldur beinlínis hvetjandi þess, að upp verði teknar viðræður um það, hvort hægt sé að fá samkomulag um aðrar aðferðir, sem betur og léttar komi við. Ég hef þar með sem sagt þegar gefið aðvörun gegn söluskattinum. Þó er sjálfsagt að skoða þann möguleika til hlítar, og hér geta fleiri en ein leið komið til álita.

Sumir segja, að það hefði átt að hækka og mætti hækka meira áfengi og tóbak, slíkar munaðarvörur. Slíkt lætur vel í munni og eyrum í bili. En þar er líka þess að gæta, að viss mörk eru fyrir. Það væri að vísu ekki svo hættulegt, þótt menn neyttu minna af þessum vörum. Ég sé það á vini mínum, hæstv. aldursforseta, að hann ætlaði að segja það, sem í huga mínum bjó, og er það mjög ánægjulegt, að við skulum nú vera sammála. Vildi ég vona, að hann héldi áfram að vera svo spegill af minni hugsun sem hann reyndist að þessu sinni. En þó er einnig þess að gæta, að við lifum ekki einir í heiminum, og ef við hækkum verðið á þessari vöru um verulega meira en gert hefur verið, er ég mjög efins um, að hægt sé að koma í veg fyrir stóraukið smygl í landinu. Við verðum að horfa á hvern hlut eins og hann er, og við skulum ekki vera þau börn að ímynda okkur, að hér sé ekki um verulega samkeppnishættu af þessum ástæðum að ræða. Það eru alveg viss mörk, sem fara má, til þess að hitt vandamálið verði okkur ekki óviðráðanlegt. Það er hins vegar enginn okkar, sem fyrir fram getur sagt, hvar þau mörk eru. Það verður meira að feta sig þar áfram heldur en menn geti haft um það brugga sannfæringu fyrir fram.

Menn hafa einnig talað um, að það mætti hækka skatta á þeim, sem hátekjur hafa. Nú hefur mér skilizt að undanförnu, að stjórnarandstæðingar hv. teldu, að skattar hér á landi væru býsna háir og mjög háir miðað við það, sem annars staðar tíðkast, þegar bæði er tekið saman tekjuskattur, eignarskattur og útsvar. Einnig er ljóst, að þó að ég viti raunar, að þessir skattar séu ámóta háir og raunar hærri í sumum okkar nágrannalöndum en hjá okkur, eru einnig viss mörk í þessum efnum. Við skulum sleppa hættunni af skattsvikum, og eru þó væntanlega allir sammála um, að á síðari árum hefur verið gerð mjög veruleg gangskör að því að reyna að koma í veg fyrir skattsvik, meiri gangskör en nokkru sinni fram úr vissu marki, verður það beinlínis til þess að draga úr athafnalöngun manna, vilja manna til þess að afla sér meiri tekna. Þennan vanda þekkjum við einnig, og þetta verður vissulega að hafa í huga.

Varðandi aftur á móti félagaskatt er það rétt, að hann mun vera nokkuð lægri hér en sums staðar annars staðar. Ég minni þá á, að eitt af því, sem hv. stjórnarandstæðingar hafa ásakað ríkisstj. fyrir, er, að við höfum ekki búið nógu vel að atvinnurekstrinum á undanförnum árum, og þeir hafa fært það helzt okkur til fordæmingar, hversu margir atvinnurekendur ættu nú við örðugleika að etja. En mikill hluti af okkar atvinnurekstri er einmitt rekinn í félagaformi. Við höfum fullgild svör gegn þessum ásökunum. Í fyrsta lagi það, að þangað til verðfallið hófst á miðju ári 1968 var yfirleitt hagstæð afkoma þýðingarmestu atvinnufyrirtækja í landinu. T. d. varðandi hraðfrystiiðnaðinn er nú viðurkennt, að afkoma hans hafi aldrei verið betri en á árinu 1965. Við áttum einmitt á sínum tíma í höggi við hv. stjórnarandstæðinga vegna þess, að þeir vildu ekki við skattalögin, sem voru til meðferðar á árunum 1961 og 1962, veita félögum sams konar eða jafnmikinn rétt til frádráttar og til hlunninda og til léttari skattlagningar heldur en áður hafði verið, eins og við vildum. Við vildum sem sagt búa betur að atvinnurekstrinum heldur en hv. stjórnarandstæðingar þá vildu. Að svo miklu leyti sem þeir hafa notað hin góðu ár, sem hér voru að allra dómi óhnekkjanlega fram á síðasta ár, var það okkar stefna, sem létti þeim möguleikann að leggja til hliðar, gagnstætt því, sem okkar hv. andstæðingar töldu, að við gengjum of langt í þessum efnum.

En við skulum sleppa þessum deilum. Við skulum hins vegar gera okkur þess fulla grein, að það er rétt, sem hv. stjórnarandstæðingar segja nú, að atvinnurekendur eiga vitanlega í mjög miklum erfiðleikum. Það á jafnt við hraðfrystihúsaeigendur sem flesta aðra eigendur fiskiðjuvera, vegna þess að einnig þar sem verðið hefur ekki lækkað, svo að menn viti, eins og er á skreiðinni, hafa þeir ekki getað losnað við vöru sína af annarlegum ástæðum, eins og við þekkjum. Útvegsmenn eiga í örðugleikum bæði vegna aflaleysis og vegna þess að hraðfrystihúsin eiga í örðugleikum með greiðslur til þeirra. Allur annar atvinnurekstur í landinu hlýtur á skömmu bili að mótast af þeim örðugleikum, sem þessir undirstöðuatvinnurekendur verða fyrir. Þeir hljóta áður en varir — og er þegar komið fram — að segja til sín í eftirspurn iðnaðarvöru, enda taldi iðnaðurinn, að þær verðhækkanir, sem hér höfðu orðið á s.l. árum og leiddi m.a. af miklum síldveiðum og háum greiðslum, sem þar var hægt að inna af höndum, kæmu hart niður á sér. Með mikilli framleiðslu og umsetningu hefðu þeir getað staðið þetta af sér. En þegar nú dregur úr viðskiptunum vegna miklu minni tekna en áður, verða þessir atvinnurekendur fyrir miklum búsifjum. Alveg hið sama hlýtur eðli málsins samkv. að verða um verzlunina, þannig að það er alger misskilningur, þegar sumir tala eins og nú eigi fyrst og fremst að velta þessum byrðum yfir á launþegana.

Atvinnurekendurnir eru búnir að verða fyrir þessum búsifjum áður og verða óhjákvæmilega fyrir þeim í enn ríkara mæli en jafnvel er ráðgert að launþegar almennt verði fyrir í þeim till., sem hér er um að ræða. Þetta sjá menn, ef þeir fást til þess að gefa sér tíma til að skoða málið ofan í kjölinn. Vitanlega er það ljóst, að útvegsmenn og fiskiðnrekendur verða þar fyrir mestum og beinustum áföllum, en frá þeim hljóta örðugleikarnir, áður en varir, að breiðast um allt þjóðfélagið. Launþegar komast ekki með nokkru móti hjá að taka að sínu leyti örðugleikana á sig, ekki sízt vegna þess, að þeir hafa fengið og í vaxandi mæli fengið hluta af stórauknum þjóðartekjum undanfarin ár. Þjóðartekjurnar jukust á tímabili meira hér en í flestum öðrum löndum. Má segja, að á viðreisnartímabilinu hafi þjóðartekjur á mann aukizt um hér um bil þriðjung. Tekjur launþega jukust töluvert meira en þessu hlutfalli nam, eins og óvefengjanlegar skýrslur sýna. Einmitt vegna þess, að þessum tekjum var þannig jafnóðum í verulegum mæli dreift út um allt þjóðfélagið launþegum til hags eins og öðrum, verður ekki með nokkru móti komizt hjá því, að launþegar verða nú að sínu leyti eins og aðrir að taka á sig hluta af þeim búsifjum, sem þjóðfélagið í heild hefur orðið fyrir. Hvort það kemur léttara niður með þessu móti eða öðru, er svo annað mál, og hvort hægt er að gera þar sérstakar ráðstafanir til þess, að það lendi ekki eins mikið á hinum barnflestu fjölskyldum og þær till. leiða til eða ákvarðanir, sem ríkisstj. nú hefur gert, það er mál, sem við getum athugað, og eins og ég hef sagt og segi enn og aftur, ríkisstj. er mjög fús til og telur sjálfsagt, að það verði athugað til hlítar.

Þar kemur m.a. til greina sú hugmynd, hvort rétt sé að halda við, þegar harðnar í ári, fjölskylduuppbótum til 1. barns eða væri réttara að afnema þær og lækka þá niðurgreiðslurnar minna eða verja því fé handa hinum fjölmennari fjölskyldum. Þetta er atriði, sem ríkisstj. taldi ekki fært að breyta, en er eitt af þeim, sem menn nú hafa tekið upp eftir á og sjálfsagt er að athuga eins og öll þau atriði, sem ég áður drap á.

Þá koma sumir menn og segja: Það er hvorki lækkun á niðurgreiðslum, ekki minni háttar skattalagabreytingar, það er ekki söluskattsbreyting, sem hér kemur að gagni, heldur er það gengislækkun ein, sem getur leyst þann vanda, sem hér er við að etja. — Ég hef lýst yfir því oft áður, að vitanlega væri það fásinna af nokkurri ríkisstj. að lýsa yfir því, að gengisbreyting kæmi aldrei til greina. Ég segi hins vegar nú hið sama og ég hef sagt áður: Eins og við erum staddir, er ég sannfærður um, að gengislækkun skapar okkur fleiri örðugleika heldur en þann vanda, sem hún leysir. Ég er sannfærður um það, að þeir, sem tala um gengisbreytingu, sem ætti að verða lausn, er hjálpaði sjávarútveginum, jafnvel iðnaðinum og örugglega kæmi í veg fyrir atvinnuleysi á næstu missirum, hafa ekki hugsað það mál til hlítar. Í fyrsta lagi er það: Við hvaða söluverð á okkar afurðum eigum við að miða gengisbreytingu, er nú færi fram? Eigum við að miða við það lágmark á síldarlýsi, sem nú er komið, það lágmark á hraðfrystum fiski, sem er á sumum tegundum hans í aðalmarkaðslöndunum? Eigum við að láta slíkar verðsveiflur leiða til svo örlagaríkra breytinga eins og gengishækkun óneitanlega hlýtur að vera? Nei, ég þori að fullyrða, að það þarf að skoða það mál miklu betur og kanna það mál miklu betur en gert hefur verið, til þess að menn geti varið að ákveða gengislækkun, sem þar að auki hlyti að lenda mjög hart og e.t.v. einna harðast á útvegsmönnum nú vegna þeirrar miklu endurnýjunar flotans, sem hefur átt sér stað undanfarin ár og varð m.a. möguleg vegna þeirra miklu lána, sem erlendir útflytjendur hafa veitt út á þessi skip. Ég á þess vegna eftir að sjá, að það mundi létta fyrir sjávarútveginum í heild, þó að gengisbreyting væri nú ákveðin, alveg eins og ég vil segja, að það er engin gengisbreyting, sem getur forðað okkur frá erfiðum vertíðum öðru hverju, sbr. hina mjög erfiðu vetrarvertíð á þessu ári. Það er engin gengisbreyting, sem gerir það auðveldara að ná í síldina norður við Spitzbergen, Svalbarða, heldur en ef hún er nokkra tugi mílna út frá landinu sjálfu eða upp við þess strendur. Hér er um vandamál allt annars eðlis að ræða heldur en gengisbreyting geti leyst.

Þá er einnig á það að líta, að alveg eins og almenningur kemst ekki hjá því að taka á sig afleiðingar jafnstórfellds hnekkis og okkar útflutningur nú hefur orðið fyrir, þá komast atvinnurekendur auðvitað ekki heldur hjá því að taka afleiðingum þvílíkra breytinga. Þeir verða að skoða sinn atvinnurekstur alveg frá grunni, kanna til hlítar, hverju má betur fyrir koma heldur en þeir hingað til hafa gert. Að því leyti geta þessir örðugleikar, sem við vitanlega viljum allir forðast og því fer fjarri, að ég telji, að á nokkurn hátt séu okkur til góðs, — þá geta þeir orðið okkur til lærdóms. Við getum látið þá verða til þess, að við hver og einn endurskoðum betur en áður það verkefni, sem okkur er falið eða við höfum tekið að okkur að leysa. Með því móti á ég ekki við það, sem hv. 1. þm. Austf. talaði um, að nú væri ráðið að efna til einhverrar nýrrar allsherjarendurskoðunar á þjóðarbúinu, úttekt þess. Við höfum heyrt þann boðskap áður frá sömu aðilum, þegar þeir réðu mestu hér í þessu þjóðfélagi á árunum 1956 og 1957. Þá var einmitt ein meginuppistaðan í þeirra boðskap, að slík allsherjarendurskoðun og úttekt ætti að fara fram. Ég veit ekki til þess, að jafnvel nú að 10 árum liðnum hafi menn fengið að sjá þær niðurstöður, sem við þá úttekt fengust.

Það tjáir ekki að ætla að sleppa frá vanda með slíkum almennum orðatiltækjum. Menn verða að gera sér grein fyrir vandamálinu sjálfu, eins og það liggur fyrir, en ekki tala um það fögrum orðum, að með einhverjum allsherjarúrræðum, sem þeir hafa sjálfir enga hugmynd um, hver séu, sé hægt að sleppa hjá þeim óþægindum, sem óhjákvæmilega eru á veginum.

Alveg eins er tal um það, að nú væri hægt með vaxtalækkun eða með fleiri lánum að leysa þá erfiðleika, sem við er að etja, fullkominn misskilningur. Sannleikurinn er sá, að menn hafa gert allt of mikið úr því, hversu vextir séu þungir í ýmiss konar atvinnurekstri. Vitanlega eru þeir þungir, ef menn hafa fengið mikil lán. Einnig er of mikið úr því gert, að vextir séu miklu hærri hér en annars staðar. Ég hygg, að munur á því sé mjög lítill nú orðið, hve vextir séu hér hærri en tíðkast í flestum nágrannalöndum til sambærilegra hluta. Varðandi ýmiss konar stofnlán má segja, að við í fátæku þjóðfélagi höfum auðvitað hvergi nærri getað leyst þann vanda eins og skyldi, en þó hefur aldrei lengra verið gengið heldur en einmitt á síðustu árum. Hitt játa ég svo, að auðvitað hlýtur sveigjanleg lánaúthlutun að verða eitt af þeim úrræðum, sem nú koma til athugunar. Það er alveg ljóst mál og hefur raunar þegar komið fram í útlánum bankanna, að ef atvinna á ekki að stöðvast, er ekki hægt að hafa eins strangar útlánareglur, jafnvel þótt það frá vissu fjárhagslegu sjónarmiði væri verjanlegt og ef til vill rétt, eins og þegar allt leikur í lyndi. Það verður að gera það mögulegt, að heilbrigður atvinnurekstur í landinu geti haldið áfram, jafnvel þó að á móti blási um sinn, því að það erum við allir sammála um, að okkar höfuðverkefni, hvað sem öllum ágreiningi um minni háttar málefni líður, — okkar höfuðverkefni er að koma í veg fyrir atvinnuleysi, þannig að við lendum ekki í því sama böli og þjóðfélagið lenti í á árunum 1931–1940. Þær till., sem hér eru fram bornar, miða einmitt að því höfuðmarki, að forðast verði atvinnuleysi, að komið verði í veg fyrir, að þeir örðugleikar, sem nú steðja að fyrst og fremst atvinnuvegunum, ríkissjóði og öllum almenningi, leiði til þess, að atvinnuleysi skelli á.

Um einstök atriði frv. get ég verið stuttorður. 1. kaflinn fjallar um vísitölu framfærslukostnaðar og verðlagsuppbót á laun. Eins og segir í grg. frv., varð samkomulag um það í hinu svokallaða júnísamkomulagi 1964 að beina því til réttra aðila, að reiknaður yrði nýr vísitölugrundvöllur. Það var berum orðum fram tekið í því samkomulagi, að þann nýja grundvöll mátti ekki taka upp, meðan á samningstímanum stæði, sem ráðgerður var eitt ár, nema með samkomulagi beggja aðila, og var þó sá fyrirvari hafður á, að grunnkaup hækkaði ekki. Nú kom það á daginn, að það tók miklu lengri tíma að reikna út hinn nýja grundvöll en menn höfðu haft í huga á þessum júnídögum 1964, og á það reyndi ekki, að hann væri hægt að taka í gildi, meðan á samningstímanum stæði. Síðan hafa aðilar, eftir að grundvöllurinn hinn nýi lá fyrir, ekki fengizt til að taka afstöðu til þess, hvort hinn nýja grundvöll skyldi taka upp eða ekki. Með eðlilegum hætti má segja, að það sé skiljanlegt, að hver aðili, launþegar að sínu leyti og atvinnurekendur að sínu leyti og ríkið að sínu leyti, skoði, hvernig þetta komi bezt út fyrir hann. Sú skoðun, sem fram hefur farið, leiðir til þess, að á undanförnum missirum mundi þetta að nokkru hafa komið í einn stað niður af ýmsum ástæðum, sem nánar er gerð grein fyrir í aths. frv. Það er hins vegar ljóst, að nýi grundvöllurinn speglar miklu betur efnahagsástand nútímans en grundvöllurinn fyrri gerir. Hann er reiknaður út eftir neyzluvenjum manna á árunum 1953 og 1954 og var lögfestur nokkrum árum seinna. Á þessu tímabili hefur velmegun alls almennings í landinu stórlega aukizt. Menn getur greint á, hversu það sé mikið, en engum kemur til hugar að neita því, að afkoma er miklu betri og neyzluvenjur þess vegna allt aðrar. Og það er eðlilegt, að nú sé miðað við það, sem næst verður komizt. Það, sem rétt er, en ekki það, sem kann að hafa verið rétt fyrir 14–15 árum, einkanlega þegar jafnmikil breyting hefur orðið á eins og orðið hefur á þessu tímabili.

Ég bendi á það, að jafnvel þótt gert sé ráð fyrir nokkurri rýrnun lífskjara í því frv., sem hér liggur fyrir, er þar einungis verið að hverfa til þess, sem var á árunum 1965–1966, einmitt þegar þessi grundvöllur var reiknaður út, sem hér er verið að lögfesta, svo að hann mundi gefa nokkurn veginn rétta mynd af svipaðri tekjuöflun í þjóðfélaginu og ráðgert er með þeirri rýrnun lífskjara, sem menn nú því miður komast ekki hjá að taka ákvörðun um, með hverjum hætti verða skuli. Ég legg áherzlu á það, að hér er engan veginn ætlað að fara neitt aftan að mönnum eða villa um fyrir mönnum um þá breytingu á lífskjörum, sem ráðgerð er. Í grg. frv. er reiknað út, hver breytingin verði eftir núgildandi grundvelli og hver hún verði eftir hinum nýja grundvelli, þannig að fyrir þeim hnekki er ráðgert að menn verði eftir þessum tillögum. Hvernig menn vilja svo meta hann í framtíðinni, hvort á að verða eftir þessum nýja grundvelli eða ekki, það fer eftir því, hvort menn vilja gera sér rétta grein fyrir þróuninni, eða þá því, að hagsmunirnir í bili benda til annars, eða halda einhverju, sem villandi er. Ég er sannfærður um, að þegar til lengdar lætur, þá er betra að gera sér rétta grein fyrir hlutunum en ranga, og þess vegna er þessi tillaga fram borin. Jafnframt er svo ráðgert, að menn taki á sig uppbótalaust þá rýrnun lífskjara, sem nú er gerð tillaga um, en án þess að samningsfrelsi þar fyrir utan sé skert, og ef aðilar semja um að bæta sér þessa skerðingu upp með hækkuðu grunnkaupi, þá er það út af fyrir sig ekki bannað í þessu frv. Til þess hafa samningsaðilar fullt frelsi. Hins vegar hljóta þeir að gera sér grein fyrir því, að af slíku hljóti að verða aðrar afleiðingar, hvort sem þeir eða aðrir fást til að gera sér fulla grein fyrir þeim strax í dag eða ekki.

Verðstöðvunarákvæðin í 2. kafla eru að meginefni til hin sömu og nú eru í lögum. Ráðgert er, að slík ákvæði haldist út allt árið 1968, einmitt vegna þess að viðbúið er, að við verðum að þola slíkt okkur óhagstætt verðlag enn um sinn. Það er þá hægt að breyta til, ef betur horfir en nú virðist.

Um 3. kafla er svo, að hann lögfestir til ársloka 1968 sams konar aðstoð við sjávarútveginn og nú er í lögum, með þeirri breytingu einni, sem leiðir af því, að ákvæðin eiga að gilda fyrir árið 1968. Ég tek það skýrt fram, að þessi aðstoð, sem þarna er ráðgerð, er áreiðanlega lágmark þess, sem sjávarútvegurinn þarf á að halda, eins og nú horfir, að því viðbættu fyrir hann og aðra atvinnuvegi í landinu, að ekki leggist á hann nýjar kvaðir vegna kauphækkana. Ég hef fullan fyrirvara um það og aðvara menn skýrt, að vel má vera, að frekari athuganir, rannsóknir og framvinda geri óhjákvæmilegar frekari og róttækari ráðstafanir í þessum efnum, en rök fyrir þeim liggja ekki fyrir í dag. Til þess þarf frekari rannsókn og athuganir og gögn heldur en enn eru fyrir hendi. Hafin er ýtarleg athugun á afkomu sjávarútvegsins og þá ekki sízt hraðfrystihúsanna á árinu 1967, en henni er ekki lokið. Þá eru hafnar viðræður af hálfu fulltrúa ríkisstj. og Landssambands ísl. útvegsmanna. Til hvaða afleiðinga eða ákvarðana þær viðræður og athuganir leiða, get ég ekki frekar en aðrir sagt um í dag. Ég endurtek það, sem ég sagði fyrr í minni ræðu, að það er víst, að ráðstafanir svipaðar þessum í meginatriðum eru forsenda þess, að vandamálið að öðru leyti verði leyst. Ef menn hverfa frá því að gera í meginatriðum þær ráðstafanir, sem hér er lagt til, þá mun illa fara, þá mun þetta vandamál verða okkur óviðráðanlegt. Þá er viðbúið, að svipaðar afleiðingar komi fram og við áttum við að búa á árabilinu frá 1931–1940, og veit ég, að þeir eru fáir, sem með opnum augum og vísvitandi vilja stofna til slíkra örðugleika á ný.

Um 4. kaflann varðandi farmiðagjöldin, þá hefur svipuð tillaga komið fram áður. Þá blés byrlegar fyrir okkur en nú, og þá var frá henni fallið vegna þeirra óvinsælda, sem slík tillaga hlýtur að hafa í för með sér, og óþæginda margs konar. Þau eru játuð af öllum. En eins og nú horfir, þá tel ég, að hér sé um eðlilega ráðstöfun að ræða því frekar sem það er ljóst, að það er hlutfallslega ódýrara að ferðast erlendis heldur en í landinu sjálfu og að með því að fara til útlanda og kaupa þar ýmiss konar vörur, þá njóta þeir, sem þann munað geta veitt sér, verulegra hlunninda á kostnað hinna, sem heima sitja og annaðhvort hafa ekki efni á eða önnur atvik eru slík, að þeir geti ekki farið til annarra landa. Þess vegna er hér um að ræða réttlætismál og sanngirnismál, sem að vísu kemur illa við suma, en í heild horfir til þess að auka jafnræði og réttlæti á meðal þjóðfélagsþegnanna.

Varðandi 5. kafla er þar ráðgerð hækkun á eignarskatti með hækkun á fasteignamati. Ég vek einkanlega athygli á í því sambandi, að þrátt fyrir þessa hækkun á fasteignamatinu er ráðgert, að það verði innan þeirra marka, sem hið nýja fasteignamat setur. Það fasteignamat hefur dregizt lengur en í upphafi var áætlað, og því er einungis sanngjarnt, ekki sízt þegar aðrir verða að taka slíkum byrðum eins og þessar ráðstafanir hafa í för með sér, að þessi breyting sé gerð. Í nánu sambandi við hana er svo breytingin 5 28. gr., sem fækkar þeim, er eignarskatt eiga að greiða.

27. gr. um söluskatt á fleiri aðilum af hálfu ríkisins er einungis til samræmis milli ríkis og atvinnurekenda. Ákvæði 28. gr. varðandi iðgjöld til almannatrygginga eru til þess að hindra, að iðgjöldin verði óeðlilega há á þessu ári vegna þeirrar linkindar, sem á þeim var veitt á síðasta tímabili.

Það hefur komið fram í því, sem ég sagði um meginatriði frv. í 2., 3. og 4. kafla, að þau eru tímabundin og eiga að gilda til ársins 1968. Sá frestur byggist á því, að við getum ekki á þessu stigi vænzt þess, að núverandi örðugleikum létti, svo að verulegu nemi, fyrr en einhvern tíma á næsta ári, ef það verður þá, sem enginn getur sagt um í dag. Hins vegar er líka ástæða, eins og ég þegar hef sagt, til þess að ætla, að hér sé um tímabundna örðugleika að ræða, — örðugleika, sem engan veginn þarf að verða eða á að verða okkur ofvaxið að ráða við, en við því aðeins munum ráða við, að þjóðin fáist nú til þess að sníða sér stakk eftir vexti og gera sér grein fyrir, hvers eðlis þessir örðugleikar eru, setji til hliðar deilur um önnur atriði, sem skiljanlegt er, að menn greini á um, en einbeiti sér nú að því að leysa þann vanda, sem að þessu sinni blasir við og er annars eðlis en við um langt árabil áður höfum þurft við að etja.