16.10.1967
Neðri deild: 3. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 268 í C-deild Alþingistíðinda. (2277)

7. mál, efnahagsaðgerðir

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Óneitanlega kvað nokkuð við annan tón hjá hæstv. forsrh. nú en þegar þessi mál almennt voru rædd mjög ofan í kjölinn síðast, þ.e.a.s. á s.l. vori í sambandi við þær alþingiskosningar, sem þá fóru fram, þegar menn voru að afla sér umboða til þess að starfa á hv. Alþ., væntanlega þetta kjörtímabil. Þú kom hæstv. forsrh. ekki fram til þess að segja þjóðinni frá því, að það væri fram undan stórkostleg verðhækkunaralda og kjaraskerðing, sem menn yrðu að taka á sig vegna þess, hvernig ástatt væri um atvinnumálefni og málefni landsins. Þá kvað við allt annan tón, sem sé þann, að ríkisstj. hefði tekið upp verðstöðvunarstefnuna, sem hvíldi á traustum grunni atvinnulífsins, það væri búið að koma málum þannig fyrir, að atvinnulífið hvíldi á traustum grunni, verðstöðvunarstefna hefði verið tekin upp, og þeir, sem vöruðu við þessum málflutningi og sögðu, að því miður væri þessu allt öðruvísi varið og stöðvunin, sem innleidd hefði verið, gæti ekki staðið nema til bráðabirgða, vegna þess að hún væri byggð á sandi, voru kallaðir boðberar barlóms og úrtölumenn, og önnur slík heiti voru þeim valin. Það er fróðlegt í þessu sambandi að minnast t.d. á það, hvernig forustublað stjórnarflokkanna í þessu tilliti hagaði sínum málflutningi. Með leyfi hæstv. forseta, vil ég aðeins minna á það. Morgunblaðið sagði rúmum hálfum mánuði fyrir kosningarnar:

„Þótt við vonum, að verðfallið muni ekki standa til langframa, eru engin merki þess, að verðlagið fari hækkandi á ný. Fyrir viðreisn hefði slíkt verðfall þegar í stað haft í för með sér ströng höft og kjaraskerðingu. Vegna viðreisnarinnar eru Íslendingar nú miklu betur undir það búnir að standa það af sér. Gjaldeyrisvarasjóðurinn gegnir einmitt því þýðingarmikla hlutverki að koma í veg fyrir slíkar hömlur á tímum, þegar erfiðleikar steðja að, og hann nemur nú um 2000 millj.“

Og í þeim samþykktum, sem Sjálfstfl. gerði rétt fyrir kosningarnar, stóð m.a.:

„Þótt verðfall framleiðslunnar kunni að draga úr hagvexti um sinn, er efnahagur þjóðarinnar nú svo traustur, að auðið á að vera að forðast veruleg efnahagsleg vandræði, ef skynsamlega er á málum haldið.“

Og enn fremur var sagt, að stefnt verði að víðtæku samkomulagi um verðlag og kaupgjald, er treysti gengi krónunnar og tryggi atvinnuvegunum samkeppnisaðstöðu, en launþegum batnandi kjör.

Þessu var haldið fram fyrir kosningarnar, að verðstöðvunin byggðist á öruggum og traustum grundvelli og ef eitthvað bæri út af meira en orðið væri, skyldu menn muna eftir gjaldeyrisvarasjóðnum, því að það væri alveg tryggt, að þá gæti hann komið til hjálpar. Hann tæki skellinn og menn þyrftu ekki að búast við neinum búsifjum á næstunni. Þetta sagði hæstv. ríkisstj., og þessu gerði hún grein fyrir frammi fyrir allri þjóðinni, þótt hún vissi jafnvel og við, að niðurgreiðslurnar, sem efnt var til í fyrravetur til þess að fela, hvernig komið var, fram yfir kosningarnar, voru þannig uppbyggðar, að til þeirra hafði raunverulega ekki verið aflað fjármuna og þær gátu ekki staðið nema um stundarsakir.

Nú verður hæstv. forsrh. að stíga þau þungu skref aðeins örfáum mánuðum eftir kosningarnar að koma hér fram á hv. Alþ. og tilkynna Alþ. og þjóðinni, að einmitt þessar niðurgreiðslur, sem þeir efndu til fyrir nokkrum mánuðum, verði allar afnumdar og menn verði að taka á sig bótalaust þann skell, sem af því leiði. Það á að láta nú örstuttu eftir þessar kosningar, verðstöðvunarkosningarnar, sem voru unnar af stjórnarflokkunum á verðstöðvunarloforðunum, því að þær voru unnar á verðstöðvunarloforðunum, — að láta nú flæða yfir landið nýja verðhækkunar- og dýrtíðarbylgju upp á 750–800 millj. Og mönnum er sagt í launþegastétt og bændum, að þeir verði að taka þetta á sig bótalaust. Þetta er framkvæmd verðstöðvunarstefnunnar.

Ég sagði það hér, þegar þessi mál voru til umr. um daginn, að stjórnin væri allt of veik, en hæstv. forsrh. sagði, að hún hefði á bak við sig 53% þjóðarinnar. En hvernig er það kjörfylgi fengið? Heldur hæstv. forsrh., að hann hafi traust þessa fólks í dag, sem hann fékk með þessum hætti til þess að kjósa stjórnarflokkana í júní? Dettur honum það í hug? Þessar kosningatölur segja ekkert um það, hvort menn styðja stjórnina nú, eða um það traust, sem hún nýtur. Það er engum blöðum um það að fletta og það er almennur skilningur á því í landinu, að það, sem nú er að gerast, sýnir svart á hvítu, að hæstv. ríkisstj. sveikst aftan að þjóðinni í vor og hefur ekkert umboð til þeirrar fruntalegu árásar, sem hún hyggst nú beita sér fyrir á lífskjör almennings með þeim ráðstöfunum, sem hún er að gera, vegna þess að meiri hl. er fenginn með því að streitast við að halda því fram, að engar slíkar ráðstafanir eins og þær, sem nú er gert ráð fyrir, gætu verið fram undan eða kæmu til mála. Það var svo rækilega ráðizt gegn þeim aðvörunum, sem framsóknarmenn fluttu í kosningunum í vor, að það var gert að aðalatriði kosningabaráttunnar, að einmitt væri búið að koma þessum málum þannig fyrir á traustum grundvelli atvinnulífsins og með gjaldeyriseigninni, sem kölluð var gjaldeyrisvarasjóður, að þó að verðlag lækkaði á útflutningsvörum og ýmis þvílík óhöpp kæmu fyrir, þyrfti alls ekki að grípa til neinna neyðarráðstafana af því tagi, sem hér er nú verið að framkvæma.

Þessar ráðstafanir, sem hér er gert ráð fyrir, eru sumpart fólgnar í því að hætta við þær niðurgreiðslur, sem ríkisstj. hafði ákveðið, að skyldu vera í gildi meðan kosningabaráttan stóð yfir, meðan verið var að kjósa, og nemur það, að því er manni skilst, yfir 400 millj. En jafnframt er gert ráð fyrir því að leggja á nýja skatta og nýjar álögur 3 óteljandi myndum. Það verður verðhækkun á nálega öllum landbúnaðarafurðum, mjólk, osti, kjöti, kartöflum, enn fremur á smjörlíki og ýmsum öðrum vörum. Þá verður innleitt nýtt farmiðagjald, hækkuð daggjöld á sjúkrahúsum, hækkaður eignarskattur, hækkuð gjöld pósts og síma, hækkuð gjöld hljóðvarps og sjónvarps, hækkuð almenn iðgjöld trygginganna og sjúkrasamlagsgjöldin. Allar þessar hækkanir eiga að koma, og þær eru taldar nema um 750–800 millj. Gert er ráð fyrir, að þessar hækkanir allar saman muni nema um 13½ vísitölustigi, og mér skilst, að það þýði sama sem 7½% kjaraskerðingu.

Sagt er, að þetta verði menn að taka á sig vegna þess, hvað menn hafi fengið mikið af góðærisgróðanum í sinn hlut, menn hafi fengið svo mikið af góðærisgróðanum í sinn hlut, að menn verði að taka á sig þessar búsifjar. Honum hafi verið dreift til almennings, gróðanum, og því verði menn nú, þegar nokkuð bjátar á, að taka á sig þessar byrðar. Athugum ofurlítið, hvernig þessi dreifing á góðærisgróðanum, á gróða þeirra uppgripaára, sem verið hafa undanfarið, hefur farið fram. Hvað er kaupgjaldið núna fyrir dagvinnuna? Hvað er það? Kaupgjald Dagsbrúnarmanna í 4. flokki, sem mér skilst að muni vera einn hæsti flokkurinn, ef Dagsbrúnarmaðurinn hefur vinnu 300 daga ársins og vinnur fulla dagvinnu alla daga, er 114 þús. kr. Kaupgjald iðnverkafólks eftir B-taxta, og það er hærri taxtinn, ekki byrjendataxtinn, er 105 þús. kr. með því að vinna 300 daga á ári allar dagsstundir, 105 þús. kr. Ef við tökum járnsmiði, þá er árskaup með því að hafa 300 vinnudaga á ári um 136 þús. kr., og rafvirkja, ef þeir hafa unnið í 8 ár, um 140 þús. kr. Það skal tekið fram, að orlofið er ekki tekið með.

Hver er svo húsnæðiskostnaðurinn núna eftir 8 ára viðreisn? Þetta er kaupið eftir 8 ára viðreisn, eftir 8 ára ráðstafanir til þess að dreifa góðærisgróðanum til almennings af hálfu stjórnarflokkanna. Og hæstv. forsrh. dáðist mjög að því, hvað það hefði tekizt vel og því yrðu menn nú að sýna þegnskap og taka vel undir, þó að eitthvað strekki i. Hver er svo húsaleigan, hver er húsnæðiskostnaðurinn, sem þetta fólk verður að standa undir? Ég ætla ekki að nefna tölur. En það væri æskilegt, að hæstv. forsrh. tæki sér það fyrir hendur að reyna að gera mönnum grein fyrir því, hvernig hugsanlegt er að lifa á þessu kaupi, miðað við húsnæðiskostnaðinn eins og hann er núna, áður en hann heldur fleiri ræður í þeim stíl, sem hann hélt hér áðan til þess að dást að því, hvað þetta hefði tekizt vel. Það væri fróðlegt að heyra, hvernig hæstv. forsrh. teldi að ætti að fara að því, hvað þá heldur þegar búið væri að lækka þetta um 7½%, og yrði þó meira, ef þessar viturlegu aðferðir eru viðhafðar, sem þeir stinga upp á, því að ég geri ráð fyrir því, að það verði meira en 7½%lækkun hjá þessu fólki, því að flest af því mun lítið annað geta keypt en matinn. Og það er fyrst og fremst hann, sem á að hækka.

Það er ekki að furða þó að Alþfl. hafi það eitt um þetta að segja, að hann sé þessu í einu og öllu samþykkur.

Það var talað um það hér áður, að hinir og aðrir þyrftu að endurskoða rekstur sinn, og ég hef stundum talað um það, og það var dálítið gaman að því áðan, að hæstv. forsrh. var kominn með æðilangan kafla, þar sem hann lýsti yfir því, að atvinnurekendur yrðu að endurskoða rekstur sinn frá rótum, sagði hann. Þá mundi hann allt í einu eftir því, að þetta var sama orðalag og ég hef notað um þjóðarbúskapinn og ríkisbúskapinn hjá hæstv. ríkisstj., og hljóp hann þá út úr götu sinni og kom annar kafli, þar sem hann í raun og veru var að taka þetta allt aftur. Þó varð niðurstaðan sú í lokin, að það þyrftu allir að endurskoða rekstur sinn og allar sínar athafnir nema ríkisstjórnin, hún þyrfti ekki að endurskoða neitt. Þar þyrfti ekki að endurskoða neitt, því síður frá rótum. Þar hefði yfirleitt ekki verið hægt að fara skynsamlegar að en hún hefur gert á undanförnum árum og þýðingarlaust að vera að ræða um það, sagði hæstv. forsrh. Engin mistök, sem þyrfti að leiðrétta, og yfirleitt ekkert að endurskoða, því síður frá rótum. En atvinnurekendur áttu að endurskoða allt hjá sér frá rótum, og ég geri ráð fyrir, að þær fjölskyldur, sem ég hef verið að ræða hér um og hafa þessar tekjur með því að vinna 300 daga á ári, eigi að endurskoða sitt ráð frá rótum. En er það til of mikils mælzt, þegar stungið er upp á þessu, að þjóðarbúskapurinn sé endurskoðaður frá rótum, og ráðsmennska hæstv. ríkisstj.? Mér finnst það ekki vera neitt til þess að dást að, að niðurstaðan skuli vera sú eftir þau uppgripaár, sem við höfum búið við, að almenningur getur alls ekki lifað af dagkaupinu, en samt sem áður geti atvinnuvegirnir í raun og veru ekki greitt það. Er ástæða til að dást að þessari niðurstöðu eftir 8 mestu góðæri, sem þjóðin hefur nokkurn tíma búið við? Ég held ekki.

Ég held, að hæstv. ríkisstj. ætti að gera sér grein fyrir því, að það er alveg óhugsandi, að menn láti bjóða sér þetta. Það er alveg óhugsandi t.d., að verkalýðshreyfingin láti bjóða sér þetta án þess að hafast eitthvað að til þess að reyna að rétta hlut þessa fólks. Þetta er ekki bægt. Það er ekki hægt að knýja þessar lækkanir fram, við sjáum það á þessum dæmum, sem ég hef nefnt. Og ég er satt að segja alveg steinhissa á því, að hæstv. ríkisstj. skuli leggja þetta frv. fram.

Hér er ekkert gert til þess að rétta atvinnuvegunum hjálparhönd. Þetta er eingöngu miðað við að reyna að sjá einhvern veginn ríkiskassanum borgið og þá með þessum aðferðum. Ég mundi ráðleggja hæstv. ríkisstj. að taka þetta frv. til baka eða a.m.k. leggja því rækilega við akkeri og snúa sér í þess stað að málefnum atvinnuveganna, — taka þau fram fyrir og leysa þau þannig, að kauplækkun á almennu kaupi þurfi ekki og geti ekki komið til mála, — snúa sér að málefnum atvinnuveganna með það sjónarmið í huga, en taka þetta frv. til baka, eða eins og ég segi, leggja því rækilega við akkeri.

Þó að slík athugun tæki einhvern talsverðan tíma, sem hún hlýtur að taka, eins og allt er í pottinn búið, verður auðvitað að hafa það, og sá halli, sem nú er í þjóðarbúinu, verður að standa á meðan, því að eftir þessum leiðum, sem hér er stungið upp á, næst engin lausn.

Því hefur verið haldið hér fram af hæstv. forsrh., að það mundi sennilega ekki vera hægt að bæta neitt um eða greiða fyrir atvinnuvegunum. Þannig væri þessi sjálfhelda, og út úr henni væri ekki hægt að komast nema eftir þessari einu leið, sem hér er stungið upp á. En í þessu efni er ég hæstv. forsrh. algerlega ósammála, alveg eins og ég er alveg ósammála þeirri fullyrðingu hæstv. forsrh., sem á sér enga stoð, að þau vandkvæði, sem við nú búum við, stafi eingöngu af aflabresti og stórkostlegu verðfalli á afurðum.

Auðvitað hefur orðið minni afli núna en þegar hann hefur orðið mestur. En það er ekki minni afli en við höfum oft áður átt við að búa og það meira að segja árum saman. Og varðandi verðlagið mun það vera sönnu næst, að þó að verðfallið á útflutningsafurðunum sé mjög tilfinnanlegt, — mjög tilfinnanlegt, og ekki skal ég draga úr því, að það er mjög tilfinnanlegt vegna þess, hvað það var orðið óskaplega hátt, er sannleikurinn sá, að þegar á heildina er litið, munum við núna, jafnvel eftir þetta verðfall, búa við a.m.k. eins hagstætt verðlag og var, þegar hæstv. ríkisstj. tók við, og eins hagstætt og við höfum oft orðið að sætta okkur við áður. En þetta þýðir, að ef sómasamlega hefði verið búið að íslenzkum atvinnurekstri við þau uppgrip, sem hér hafa verið á undanförnum árum, og gífurlega hátt útflutningsverðlag, átti vitanlega að vera hægt að taka þann skell, sem varð af nokkru verðfalli, um nokkurn tíma án þess að gera ráðstafanir nokkuð í líkingu við það, sem hér er stungið upp á.

Sannleikurinn er sá, að aðalástæðan til þess, hvernig komið er með okkar atvinnurekstur, og aðalástæðan fyrir þeim vanda, sem við eigum við að glíma, er vitanlega, hvernig til hefur tekizt um stjórn atvinnumála og stjórn efnahagsmála á þessu mikla góðæristímabili. Það eru staðreyndirnar í þessu máli. Verðbólgan hefur vaxið hér á Íslandi tvöfalt hraðar en áður, enda þótt hæstv. ríkisstj. teldi sig vera að reyna og framkvæma ýmsar heppilegar, nýjar hagstjórnaraðferðir. En þær reyndust þess gjörsamlega ómegnugar að draga úr verðbólgunni, því að hún fór sífellt vaxandi. Þess vegna er verðlag á Íslandi komið algerlega úr samræmi við verðlag nágrannalandanna, og þar í liggur einn höfuðvandinn, sem við er að fást í íslenzku atvinnulífi: Hann liggur í þessum verðbólguvexti, sem hér hefur orðið á undanförnum árum. Ef hér hefði orðið svipaður verðbólguvöxtur og í nágrannalöndunum eða bara álíka og hann var áður en þessi hæstv. ríkisstj. kom til, þá hefðu atvinnuvegirnir staðið miklu betur að vígi og sennilega ekki verið í neinum sérstökum vanda með það að komast yfir stutt tímabil erfiðleika af því tagi, sem við eigum nú við að fást vegna minni afla en hann hefur orðið mestur og vegna þess, að verðfall hefur orðið á íslenzkum vörum. En það er þessi verðbólguvöxtur, þessi verðbólgustefna, sem hæstv. ríkisstj. hefur staðið fyrir, sem veldur vandræðunum, og það misræmi, sem orðið er.

Það er líka margt fleira, sem vert er að leggja ríka áherzlu á, og m.a. það, að hagstjórnaraðferðir hæstv. ríkisstj. hafa grafið hreinlega grunninn undan íslenzku atvinnulífi í mörgum greinum og þær reynzt alveg óbærilegar. Í því sambandi vil ég nefna t.d. stefnuna í lánamálum. Á meðan útflutningsverðmæti frá Íslandi var um eitt þús. millj. á ári, lagði Seðlabankinn inn í lánakerfið venjulega um 600–800 millj. í formi víxlaendurkaupa. Það var hans framlag inn í lánakerfið. En á undanförnum árum hefur þessu verið hagað þannig, að þótt útflutningsverðmæti hafi orðið 5–6 þús. millj. eða vaxið um 500–600%, hefur sú fúlga, sem Seðlabankinn leggur inn í lánakerfið, ekki vaxið meira en um 50–60%. Áður var allt sparifé í umferð á vegum atvinnuveganna sem rekstrarlán og á vegum almennings, en á þessum árum hefur verið tekin upp sú pólitík að draga verulegan hluta af aukningu sparifjárins inn í Seðlabankann og minnstur hluti þess hefur verið lánaður út aftur í atvinnulífið.

Það hefur því verið framkvæmdur samdráttur á rekstrarlánum til atvinnuveganna, sem nemur þús. millj. á ári, miðað við það, sem áður var, enda er sannleikurinn sá, að íslenzkur atvinnurekstur hefur í öllum greinum: iðnaði, landbúnaði og sjávarútvegi, verið svo lamaður af rekstrarfjárskorti á undanförnum árum, að það hefur í raun og veru ekki verið hægt að koma við skynsamlegum atvinnurekstri í neinni grein vegna skorts á rekstrarfé. Hvernig á að vera hægt að reka fyrirtæki skynsamlega, ef rekstrarfé vantar til að kaupa hráefni, til að kaupa lífsnauðsynlegustu vélar eða framkvæma annað það, sem gera þarf, enda hefur aldrei verið nokkurt lát á vitnisburðum frá atvinnuvegunum um erfiðleika þeirra, sem af þessu hafa stafað. En hæstv. ríkisstj. hefur látið þetta algerlega eins og vind um eyru þjóta. Það hefur verið sagt: Peningarnir eru ekki til. Að svara þessu er líkast því, að verið sé að tala við börn, því að í þessu sambandi er ekkert, sem heitir, að peningarnir séu ekki til. Þetta er sem sé aðeins spurning nú um það, hvað skynsamlegt er að setja mikið peningamagn í umferð. Það er margt, sem þarf að hafa til hliðsjónar í því sambandi. Það er ekki til nein formúla um það efni, heldur verður að þreifa sig áfram og notfæra sér heilbrigða skynsemi. Við sjáum t.d., að áður en hæstv. ríkisstj. tók upp þessa stefnu, að reyna að koma á jafnvægi með því að draga inn lánveitingar og svelta atvinnulífið að rekstrarfé, var öll sparifjáraukningin sett í umferð jafnóðum og Seðlabankinn endurkeypti miklu meira tiltölulega en síðan. Samt sem áður var verðbólguvöxturinn hægari þá en hann hefur verið síðan. M. ö. o.: þessar aðfarir hæstv. ríkisstj. hafa ekki náð að lækna verðbólguna, en þær hafa lamað íslenzkt atvinnulíf, og um það er ekkert að efast, þær hafa lamað íslenzkt atvinnulíf. Þá er það orðið vitað mál, að íslenzkt atvinnulíf þolir ekki þá vexti, sem hafðir hafa verið á undanförnum árum og yfirleitt hafa verið miklu hærri en vextir í nágrannalöndunum, í þeim löndum, sem þarf að skipta við, og það eru mýmörg dæmi þess, að íslenzkir iðnrekendur t.d., sem eiga að keppa við erlendan varning, t.d. skipasmíðastöðvar og annað slíkt, hafa rekið sig á, að það er óhugsandi að reka atvinnureksturinn í samkeppni við erlendan atvinnurekstur með þeim vaxtakjörum, sem við er að búa hér.

Það er því alveg augljóst, að þó að verðlækkun sú, sem orðið hefur á útflutningsvörum, sé mjög tilfinnanleg, og ekki skal ég draga úr því, þá er grundvallarkjarni þessara mála sá, að við hefðum lent í stórkostlegum vandræðum, þótt útflutningsverðið hefði ekki lækkað á okkar vörum, vegna þess að það eru grundvallarmeinsemdir í okkar atvinnulífi, sem verður að lagfæra. Þess vegna held ég fast á því, að jafnvel þó að nú væru gerðar neyðarráðstafanir til bráðabirgða til þess að reyna að fleyta sér stutta stund, mun aftur sækja í sama horfið, nema tekin sé upp alveg ný stefna í atvinnu- og efnahagsmálum.

Ég vil í þessu sambandi rifja upp, hvernig þessi hæstv. ríkisstj. fór á stað 1960. Hún gerði þá hvort tveggja í senn, hún lækkaði gengið mjög verulega og lagði á óhemjulegar nýjar álögur í margs konar myndum. Við, sem vorum á móti þessum ráðstöfunum, bentum á, að þetta mundi reisa slíka dýrtíðaröldu í landinu, að það yrði ekki við neitt ráðið. Það mundi rísa ein dýrtíðaraldan af annarri og ekki verða ráðið við neitt. Við bentum á það strax þá, að sú stefna, sem þá var ákveðin í lána- og vaxtamálum, gæti alls ekki staðizt. Reynslan hefur orðið ólygnust í þessu. Það hefur borið heldur minna á þessum vandkvæðum en ella vegna þess, að verðlag á útflutningsvörum fór sífellt hækkandi og það fundust nýjar veiðiaðferðir á síld, og í framhaldi af því varð aflamok, alveg óvenjulegt. Af þessum ástæðum komu meinsemdirnar, sem voru að éta í sundur grunninn í íslenzku atvinnulífi, ekki eins greinilega í ljós næstu árin og ella hefði verið. En núna, þegar ekki er lengur hægt að styðjast við aflamokið og hið óvenjulega háa verðlag, koma þessar meinsemdir fullkomlega í ljós. Þessar ráðstafanir hæstv. ríkisstj. 1960 höfðu strax í för með sér verulega kjaraskerðingu, en henni var vel tekið í byrjun af íslenzkri verkalýðshreyfingu. Menn höfðu þá stefnu að vilja sjá til og að þessar ráðstafanir fengju reynslu. En 1961 var þannig komið, að það var óhugsandi, að launþegar í landinu gætu lengur verið aðgerðalausir, og þá var gerður á vegum verkalýðshreyfingarinnar og samvinnuhreyfingarinnar 2 ára kjarasamningur um nokkra kauphækkun. Þá var hækkandi verð á afurðum landsmanna. En hvað gerði hæstv. ríkisstj.? Í stað þess að notfæra sér þennan samning til þess að koma jöfnuði á þessi mál og kyrrð, framkvæmdi hún fruntalega og alveg ástæðulausa gengislækkun á árinu 1961 við hækkandi útflutningsverðlag, sem verkaði eins og benzín á dýrtíðarbálið, og sannleikurinn er sá, að síðan hefur hæstv. ríkisstj. aldrei ráðið við neitt, og afleiðingarnar sýna sig nú. Má ég spyrja hæstv. forseta um fundarhaldið.

Það mundi henta vel fyrir mig að hafa kaflaskipti núna. [Frh.]